Morgunblaðið - 15.10.2004, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 15.10.2004, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. OKTÓBER 2004 31 „Já, við höfum það, enda er listasafn mjög frábrugðið bókasafni, svo dæmi sé tekið. Þetta er ekki spurning um að eignast sem flest lista- verk, eins og markmið bókasafns er varðandi safneignina. Gæði hvers einstaks verks ákvarða innkaupin – á þeim punkti er afstaðan tekin.“ Hvað innkaup á eldri verkum varðarsegir Ólafur safnið ekki geta keypteldri verk nema fyrir það fé sem þaðfær árlega til innkaupa. Því er t.d. ekki heimilt að selja jaðarverk úr safneigninni til þess að afla fjár til kaupa á lykilverkum sem kunna að koma á markað og ættu heima í safn- eigninni. „Ríkissöfnin á Norðurlöndum gera það ekki heldur,“ segir hann. „Menn hafa sagt sem svo að hugmyndir þeirra um menningararfinn og gildi einstakra verka breytist með tímanum. Og það er mikið til í því. Það er álitin of mikil áhætta að velja úr safneigninni til að selja á sama tíma og verið er að kaupa inn, viðhorf okkar til sögunnar eru á svo mikilli hreyfingu.“ Ólafur segir umræðuna um innkaupin ná- tengda umræðu um aðgengi. „Aðgengi að lista- sögunni er gríðarlega víðtækt mál. Það tekur til húsnæðismála safnsins, möguleikanna á því að við sýnum hina listrænu arfleifð. Einnig til þess hvernig við byggjum upp þekkingu og gagna- grunna. Hjá okkur er t.d. mikil uppbygging í gangi í stóru heimildasafni um íslenska lista- sögu sem er að sjálfsögðu veigamikið mál þegar verið er að ræða myndlistararfinn. Við þurfum að huga að því hvernig við getum veitt fólki að- gang að þessum fróðleik. Okkar hlutverk er ekki einungis að safna heldur einnig að miðla og gera menningararfinn virkan.“ Að hans mati er mjög mikilvægt að huga bet- ur að allri miðlun úr gagnagrunninum – inn á önnur söfn og í skóla – svo sem á Netinu. En þar segir hann standa á samningum við Mynd- stef um stefgjöld. „Okkur hefur ekki tekist að leysa það. En um leið og sá samningur er í höfn verður sú miðlun öflugri. Þetta á að vera sam- eiginlegt hagsmunamál myndlistarmanna og safnanna, þessi aukna miðlun sem gæti orðið á myndlistinni. Það er því brýnt að finna lausn.“ Ólafur segist eiga sér draumsýn varðandi miðlunina. „Ég sé fyrir mér listasafn þar sem sýningaraðstaða er fyrir 3–400 verk, þar sem fjallað er um íslenska listasögu á tuttugustu öld- inni. En þar að auki þurfa að vera salir með sér- sýningum, í ákveðnu samtali við íslensku lista- söguna. Þetta er módelið sem er í gangi í öllum þjóðlistasöfnum í kringum okkur. Sérsýningar og sýningarstefnan er í samspili við þá listasögu sem er kjarninn í þjóðarsafninu. Listaverka- eignin er auðvitað mikilvægasta eign hvers safns; hún ákvarðar inntakið, rannsóknirnar og miðlunina. Eignin er lykillinn að öllu starfinu. Og hún stýrir því að einhverju leyti sýning- arstefnunni. Það sem gerir okkur erfitt fyrir hérvegna plássleysis, er að við erum aðsýna íslenska listasögu í þemasýn-ingum, tímabilasýningum og yfirlits- sýningum, en síðan erum við líka með sýning- arstefnu sem sér stað í stórum erlendum listsögulegum sýningum, sem á vissan hátt eru í samhengi við íslensku listasöguna. Það sam- band afhjúpast þó með allt öðrum hætti hjá okkur þegar sýningarnar kallast ekki á sam- tímis.“ Ólafur tekur sem dæmi sýninguna Raunsæi og veruleiki, sem var uppi í fyrra, og fjallaði um tímabilið frá 1960–80. Í kjölfarið kom svo stór alþjóðleg sýning helguð flúxus tímabilinu og loks bandarísk sýning í vor á Listahátíð í Reykjavík, sem var í raun amerísk útgáfa af flúxus. „Allt eru þetta samhangandi sýningar, hugmyndafræðilega og í sýningarstefnunni, en þær fá allt aðra útkomu af því þær eru ekki í virku samspili. Þær hefðu helst þurft að standa yfir allar í einu.“ Hvaða möguleika sérð þú á því að slíkt verði framkvæmanlegt í framtíðinni? „Þeir liggja í því að það sé mörkuð metn- aðarfull stefna í húsnæðismálum safnsins sem tekur mið af þessum þörfum og þeim kröfum sem eru gerðar til okkar. Menn verða að fylgja því eftir sem var þegar ljóst þegar núverandi húsnæði safnsins var opnað 1988; að það var bara fyrsti áfanginn. Með þeim áfanga, sem náðist í ráðherratíð Björns Bjarnasonar, var í raun búið mjög vel að forvörslu, bókasafni og skrifstofuhaldi, og það stendur enn í dag. En nú þarf að sýna metnað í því að stækka sýning- arrýmið, svo þjóðin hafi aðgang að sinni lista- sögu og sjái það sem mikilvægt erindi og þátt í sínum lífsgæðum að njóta þess sem safnið hefur að bjóða.“ Þú ert þá væntanlega einnig að vísa til menntunarhlutverks safnsins, eða þess að safn- astarf sé álitið þáttur í menntunarstefnu stjórn- valda? „Já. Þarna erum við kannski farin að vísa til skortsins á skilgreindum menningarpólitískum markmiðum. Að hlutverk safnanna sé betur skilgreint inni í samfélaginu.“ Í tilefni af afmæli safnsins nú, þá leggur safn- ið upp með sýningu tileinkaða forvörslu. Það starf leiðir óneitanlega hugann að hlut og hlut- verki safnsins í fölsunarmálum þeim sem gerðu svo mikinn usla í myndlistarlífinu. Hvaða áhrif hefur þetta haft á ykkar starf og starfsum- hverfi? „Safnið kom þarna að sem mjög virkur rann- sóknaraðili og sýndi getu sína. Þetta mál í heild sinni afhjúpaði að hér er til þekking og bolmagn til að takast á við vandamál af þessu tagi, sem er ekkert annað en árás á menningararfinn sem okkur er falið að varðveita. Það eru engin áhöld um það lengur að við erum að tala um falsaðar myndir og það er almennt viðurkennt að svo sé. En hvað áhrifin á markaðsmálin varðarþá er hér um tvo markaði að ræða,samtímamyndlistina og eldri mynd-list. Markaðurinn í kringum eldri myndlist leið, en ég er ekki svo viss um að sá markaður er snýst um samtímalistina hafi skað- ast – þó þetta auki að sjálfsögðu ekki áhuga fólks á því að kaupa myndlist á meðan á málinu stendur. En á meðan spurningunum sem komu upp í kringum fölsunarmálið hefur verið jafn- afdráttalaust svarað og okkar rannsókn gerði þá eru engir lausir þræðir lengur í þessu máli. Trúverðugleiki okkar sem stofnunar til að tak- ast á við þetta sem rannsókn og fræðilegt vandamál, er í lagi.“ Ólafur segir gríðarlega mikilvægt að skoða listasögu Íslendinga í alþjóðlegu samhengi; að við komum auga á að okkar listasaga er hluti af evrópsku samhengi. Hann segir okkur ekki mega líta á okkar hefð sem einangrað fyr- irbrigði, en hann telur að sú hugsun hafi á margan hátt fylgt okkur inn í nútímann. Hann segir þá takmörkuðu vídd sem við höfum í þeim efnum til að nálgast menningararfinn hafa verið þrálátan vanda og telur mikilvægt að innleiða nýja hugsun á því sviði. „Maður sér að ýmislegt í íslenskri myndlist er sprottið úr mjög þröng- um farvegi, og það er út af fyrir sig forvitnilegt. Við vorum t.d. eitt sinn með sýningu hér sem hét Draumur um hreint form og fjallaði bara um sjötta áratuginn. Þar var rannsókn á þessu mikilvæga tímabili þegar íslensk myndlist var í fyrsta sinn samstiga því sem var að gerast í Evrópu. Þá sáum við einmitt hvað þarf að þétta þessa söfnun sem við stundum mikið, bara til þess að við eigum trúverðuga mynda af tíma- bilinu. En það sáum við ekki fyrr en við hrintum af stað þessu stóra rannsóknarverkefni sem sýningin var. Ólafur segir sérlega ánægjulegt í þessu sam- bandi að á fjárlögum fyrir árið 2005 hafi opnast glufa til að gera varðveislu myndlistararfsins enn betur skil en fram að þessu því gert sé ráð fyrir fjárframlagi til þess að rituð verði íslensk listasaga í fjórum bindum og mun Listasafn Ís- lands hafa umsjón með verkinu. Það er mikið gleðiefni.“ Á morgun, laugardag, verður afmælishátíð í Listasafninu sem hefst kl. 11.00 og stendur til 16.10. Í boði verður fjölbreytt dagskrá sem stendur allan daginn, en meðal þess sem boðið er upp á er leiðsögn um þær tvær sýningar sem nýlega voru opnaðar í tilefni af afmælinu; yf- irlitssýningu á verkum Guðmundu Andrés- dóttur, Tilbrigði við stef, og sýninguna Varð- veisla menningararfs, en hún snýst um forvörslu. Dagskráin verður öllum opin og er aðgangur ókeypis þennan dag. 1939 Mosi og hraun Jóhannes Kjarval (1885–1972) 1995 Fiskar sjávar Helgi Þorgils Friðjónsson (1953–) 1969 Landslag (Environmental Sculpture) Kristján Guðmundsson (1941–) 1946 Gullfjöll Svavar Guðnason (1909–1988) ingararfsins mikilvæg Morgunblaðið/Kristinn við verk Guðmundu Andrésdóttur, sem nú hanga frammi á sýningunni Tilbrigði við stef. og tuttugu ára og hefur því verið til í álíka langt varan, forstöðumaður safnsins, rekur í samtali ast að beina sjónum að til þess að safnið fái þjón- nu, við varðveislu og miðlun myndlistararfsins. fbi@mbl.is nni sem spanna þá fnið hefur starfað ’… það er ákveðin hefð fyrirskilningsleysi íslenskra stjórn- valda gagnvart innkaupunum, sem sýnir sig vel í því hvaða peninga safnið hefur haft til innkaupa. Þetta hefur verið baráttumál í áratugi.‘
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.