Morgunblaðið - 15.10.2004, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 15.10.2004, Qupperneq 32
32 FÖSTUDAGUR 15. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN K arlar í valdastöðum fá falleinkunn í nýrri skýrslu Hag- stofu Íslands sem nefnist konur og karlar 2004. Þeir virðast ekki hafa neinn sérstakan áhuga á stjórnarstörfum með konum, að konum séu veitt há embætti eða greidd sömu laun og þeir. Í skýrslunni stendur orðrétt: „Kon- ur eru í minnihluta í áhrifastöð- um næstum hvert sem litið er. Þær eru tæpur þriðjungur þingmanna og sveitarstjórn- armanna, fjórðungur ráðherra og tæplega fimmtungur fram- kvæmdastjóra sveitarfélaga. Þá eru konur 29% þeirra sem sitja í opinberum nefndum og ráðum ríkisins og um fimmtungur forstöðu- manna rík- isstofnana. Konur koma lítt við sögu við stjórnun samtaka atvinnulífs- ins og helstu fyrirtækja á mark- aði, og stjórnir launþegasamtaka endurspegla almennt ekki þá kynjaskiptingu sem er meðal fé- lagsmanna.“ (bls. 1.) Konur hafa áhuga, vilja, getu og menntun – og þær hafa barist áratugi fyrir bættum hlut kvenna í samfélaginu en: „Í Úrvals- vísitölu Kauphallar Íslands eru 15 félög. Í júní 2004 voru 87 manns í stjórnum þessara félaga, 85 karlar og tvær konur sem svarar til 2,3% stjórnarmanna.“ (68). Aðeins Burðarás og KB banki virðast hafa hugrekki til að velja konu í stjórn. 13 fyrirtæki virðast ekki hafa snefil af áhuga á að heyra sjónarmið kvenna, reynslu þeirra eða þekkingu. Sá sem hefur völd, vill oftast festa sig í sessi og mælir því iðu- lega með þeim í stjórn sem líkleg- ir eru til að fylgja honum að mál- um. Kona hlýtur því að vera einhvers konar ógnun, því næst- um ævinlega er talin meiri „þörf“ á öðrum sjónarmiðum og annarri þekkingu en hún býr yfir þegar valið er í stjórnir, bitastæð störf eða embætti. Skýrsla Hagstofunnar sannar að kyn veldur hvarvetna, þar sem völd koma við sögu, usla. Valda- (karl)kynið á Íslandi „bætir“ hlut sinn á fyrsta tug þessarar aldar miðað við tíunda tuginn á öldinni sem leið – á helstu vígstöðvum. Skekkjan yrði ekki svona áber- andi ef kyn væri áhrifalaus þátt- ur, skekkjan er einmitt til staðar vegna þess að kyn vegur þungt í „baráttunni“ um völdin. „Konur í fullu starfi unnu að meðaltali í 43 stundir árið 2003 og karlar í 49 stundir.“ (43). „Árið 2003 voru atvinnutekjur starfandi kvenna 1.993 þúsund krónur en karla 3.235 þúsund krónur og tekjur kvenna því tæp 62% af tekjum karla.“ (45). Tekjur kynjanna eru einungis jafnar hjá börnum í unglingavinnunni 12–15 ára, svo ekki sögunni meir, aldrei aftur til loka starfsævinnar. Dóttir mín var í unglingavinn- unni í sumar og sonur minn einn- ig. Ég get nú sagt þeim að töl- fræðin sýni að þau verði aldrei aftur með sömu tekjur. Hugs- anlega verði dóttir mín með 62% af framtíðartekjum bróður síns. Strax á aldrinum 16–19 ára er launabil kynjanna orðið greini- legt og mest verður það um miðj- an aldur, þá er hlutfallið á bilinu 58–62% af tekjum karla. Ég mót- mæli þessu launamisrétti, ekki aðeins fyrir hönd dóttur minnar, heldur einnig sonar, sem finnst þetta skammarlegt. Mér finnst að það ætti að kenna þessa skýrslu Hagstof- unnar á unglingastigi (á meðan kynin eru á sömu launum) og í framhaldsskólum til að varpa ljósi á íslenskt samfélag, og áhugaleysið til að vinna gegn misréttinu. Einnig til að skapa umræðu meðal nemenda um helstu hugtök í jafnréttismálum og fá þau til að grafast fyrir um ástæður kynjaskekkjunar. Ráð- setta fólkið virðist a.m.k. ekki ráða við þessa umræðu. Stjórn- endur kannast ekki við „vanda- málið“ og valdamenn trúa inni- lega að þeir eigi allt sitt undir eigin snilligáfu; hæfileikum, reynslu, þekkingu og gáfum. Ekkert undir hagsmuna- tengslum, ætterni, kyni, vinum í valdastöðum, skólafélögum, bú- setu, aldri, klæðskerasniðnum at- vinnuauglýsingum og ríkidæmi. Alvarlegustu mistök kvenna í baráttu þeirra fyrir jafnrétti á öllum sviðum þjóðlífsins eru að búast við að réttlætissjónarmiðið geri gagn í umræðunni. Alvarleg- ustu mistök karla eru að telja sér trú um að jafnréttismál séu kvennamál. Þeir mæta ekki á fundi, málþing eða ráðstefnur um jafnréttismál og þeir gera fáar rannsóknir á þessu sviði. Mér finnst að knýja ætti dyra hjá öllum eintómum karlastjórn- um í atvinnulífinu og spyrja þær beint út: „Hvers vegna teljið þið sjónarmið, reynslu, þekkingu og snilli kvenna einskis virði?“ Svar- ið fæst ekki á einum degi, því sennilega vita þeir ekki svarið. Karlastjórnirnar gera sér ekki grein fyrir eigin vanþekkingu, og spyrja undrandi: „Skortir okkur eitthvað?“ Mér finnst eintóm karlastjórn hláleg, en því miður finnst henni sjálfri og eigendum það ekki. Samt vitnar allur heimurinn gegn þeim: Konur eru helmingur mannkyns, helmingur starfs- manna og viðskiptavina, helm- ingur maka, fjölskyldunnar … Þessar karlastjórnir taka feiki- lega djarfar ákvarðanir í fjár- málum með kaupum og sölum, sýna mikla klæki og útsjónarsemi … en þær virðast iðulega telja það of mikla áhættu að vera með konu innanborðs. Við hvað eru þeir, og eigendur, hræddir? Um hvað snýst óttinn? Ég tel að hér sé sálfræðirannsóknar þörf. Mér finnst boltinn vera hjá körlum og að túlka megi skýrslu Hagstofu um konur og karla 2004 á Íslandi sem svarta skýrslu um frammistöðu þeirra í jafnréttis- málum. Þurfa konur enn einu sinni að gefa körlum spark í rass- inn eða geta þeir hugsað sér að líta upp og gera tilraun til ný- sköpunar í heilabúinu – og að segja eitthvað gáfulegt um málið – eitthvað annað en klisjur? Konur og karlar 2004 Dóttir mín var í unglingavinnunni í sumar og sonur minn einnig. Ég get nú sagt þeim að tölfræðin sýni að þau verði aldrei aftur með sömu tekjur. Hún verði e.t.v. með 62% af framtíðartekjum hans. VIÐHORF Eftir Gunnar Hersvein guhe@mbl.is Í SÍÐASTA Reykjavíkurbréfi eru kjaramál grunnskólakennara gerð að umræðuefni. Þar er margt fallegt sagt um störf kennara og hina miklu þýðingu sem grunn- skólastarfið hefur fyrir þjóðfélagið í heild. Ekki er að efa að allt sem þar er sagt er bæði rétt og satt. Í þessu Reykjavík- urbréfi er mjög tekið undir kröfur grunn- skólakennara um verulegar kauphækk- anir þeim til handa, launahækkanir um- fram það sem öðrum er ætlað. Þann kostn- aðarauka sveitarfélag- anna sem af þessu hlýst vill höfundur Reykjavíkurbréfs fjármagna með harla nýstárlegum skatti – einhvers konar kennaraútsvari. Þennan skatt útfærir höfundur þannig að kosið skuli um hann í hverju sveitarfélagi fyrir sig, menn eiga sem sagt að skattleggja sjálfa sig og nágranna sína í almennum kosningum. Kjör grunnskólakennara eiga í framtíð- inni að ráðast af því hvernig þess- um kennaraútsvarskosningum reið- ir af í hverju hrepps- eða sveitarfélagi. Varla er það þetta sem kennarasambandið er að berj- ast fyrir. Mætti ég biðja, í fullri vin- semd við höfund Reykjavíkurbréfs, að hann hugleiddi þessi mál þó ekki nema aðeins ögn betur. Í þessu Reykjavíkurbréfi eru einnig gerð að umræðuefni þau sjónarmið margra, eða eins og þar stendur: „ … að ef gengið yrði að kröfum kennara væri fyrirsjáanlegt að hinn efnahagslegi stöðugleiki væri horfinn út í veður og vind og ný verðbólgualda skylli yfir vegna þess að aðrar stéttir myndu fylgja í kjölfarið og knýja fram meiri launa- hækkanir í skjóli hugsanlegra veru- legra launahækkana hjá kennurum. Er þetta rétt?“ Og höfundur Reykjavíkurbréfs svarar sér sjálfur og kemst að því að þetta sé ekki rétt, eða eins og þar stendur: „ … að á Íslandi býr vel menntuð og upplýst þjóð. Og það er hægt að tala við þá þjóð. Það er hægt að tala við fólk og útskýra nauðsyn þess að grunnskólakennarar fái verulegar breytingar á sínum kjör- um umfram aðra. Það er hægt að útskýra fyrir landsmönnum mik- ilvægi þess að í þessu tilviki, eins og í nokkrum öðrum á undan- förnum árum, skipti máli að launa- breytingar verði ekki til þess að aðrir fylgi í kjölfarið.“ Ég skal fúslega viðurkenna að við þessa lesningu varð ég mjög forviða. Þrátt fyrir það skal ég leggja mig allan fram við að reyna að trúa þessu, en þá verður Morg- unblaðið líka að finna fullyrðingum sínum stað. Ég treysti því að nú muni Morgunblaðið í gríð og erg byrja að safna vitnisburði máli sínu til staðfestingar og fljótlega muni þá byrja að birtast í blaðinu yfirlýsingar frá stéttarfélögum um að svona líti þau einnig á málið. Ekki munu leikskólakennarar gera neinar kröfur um launahækkanir eins og grunnskólakennarar og þá ekki heldur framhaldsskóla- kennarar eða háskólakennarar. Hvað þá aðrir starfsmenn sveitarfé- laganna, þeir hljóta að hafa fullan skilning á því að einungis grunn- skólakennarar þurfi að hækka veru- lega í launum, en ekki þeir. Og þá munu starfsmenn ríkisins, þeir sem hafa lausa samninga í desember næstkomandi, sýna málinu mikinn skilning og alls ekki gera kröfur um kauphækkanir sér til handa eins og grunnskólakennarar. Eflaust á eftir að rigna yfir Morgunblaðið yfirlýs- ingum frá verkalýðsfélögunum, sjó- mannafélögunum, félögum versl- unarmanna og félögum iðnaðar- manna, frá bændasamtökunum, frá eldri borgurum og öryrkjum og frá öllum launþegum og launþega- samtökum í landinu, þar sem þeir munu allir lýsa yfir stuðningi við verulegar kauphækkanir grunn- skólakennara og fullyrða að þeir muni ekki gera slíkar kröfur sér til handa. Eða eins og stendur í títt nefndu Reykjavíkurbréfi: „ … á Ís- landi býr vel menntuð og upplýst þjóð“. Og þegar þessi skæðadrífa af yfirlýsingum og vitnisburðum birt- ist í Morgunblaðinu, væntanlega á næstu dögum og vikum, þá má höf- undur Reykjavíkurbréfs vera þess fullviss að ég mun auðmjúkur biðj- ast afsökunar á öllum þeim rang- indum sem ég hef látið frá mér fara um launamál og launakröfur á síð- astliðnum tuttugu árum. Athugasemd við Reykjavíkurbréf Einar Oddur Kristjánsson svarar Reykjavíkurbréfi ’Ég treysti því að númuni Morgunblaðið í gríð og erg byrja að safna vitnisburði máli sínu til staðfesting- ar …‘ Einar Oddur Kristjánsson Höfundur er alþingismaður. GRUNNSKÓLANEMENDUR og foreldrar þeirra eru búnir að fá nóg af því ástandi sem skapast hefur vegna verkfalls grunnskólakennara. Foreldrar krefjast taf- arlausra aðgerða til lausnar á deilu kenn- ara og sveitarfélaga. Skorað er á ríkisstjórn landsins og mennta- málaráðherra sem fer með æðstu yfirstjórn menntamála í landinu að vinna með deil- endum að lausn máls- ins. Í verkfalli er gengið á rétt barna til náms. Verri áhrif á æsku lands- ins er vart hægt að hugsa sér. Stjórnvöld hafa falið sveitarfélög- unum þá ábyrgð að framfylgja skólaskyldu samkvæmt lögum og þar með að sjá til þess að börn fái 170 kennsludaga á hverju skólaári. Skapa þarf sveit- arfélögum skilyrði til að sinna þeirri skyldu sinni. Foreldrar treysta því að stjórn- völd skorist ekki und- an þeirri ábyrgð að beita sér í þessari deilu. Öllum er ljóst að íslenskt samfélag er í uppnámi. Framtíðar- auður þjóðarinnar, grunnskólabörnin í landinu, búa nú við mikla óvissu og hafa setið auðum höndum í fjórar vikur. Foreldrar hafa miklar áhyggjur af þeirri rösk- un sem nú þegar hefur orðið á nám- inu og þeim alvarlegu afleiðingum sem hún hefur á námsframvindu og líðan margra nemenda. Skólastarf er samfélagslegt viðfangsefni og krafa foreldra er að hér séu starf- ræktir framúrskarandi skólar með hæfu starfsfólki. Fólki sem stenst þær kröfur sem gerðar eru til þess. Til að framtíðarlausn náist telja for- eldrar að samfélagið þurfi að til- einka sér jákvæðari viðhorf til skólastarfs og hefja það til vegs og virðingar. Í því felst að sátt náist um að kjör kennara verði í sam- ræmi við mikilvægi þess starfs sem þeir gegna. Opið bréf til mennta- málaráðherra María Kristín Gylfadóttir skrif- ar vegna kennaraverkfalls ’Foreldrar krefjast taf-arlausra aðgerða til lausnar á deilu kennara og sveitarfélaga.‘ María Kristín Gylfadóttir Höfundur er formaður stjórnar Heimilis og skóla. ÞÓRARNA Jónasdóttir. Þú ert fulltrúi Kennarasam- bands Íslands í undanþágunefnd vegna verkfalls grunnskólakenn- ara og verður sem slík að bera ábyrgð á gjörðum þínum í þeirri nefnd. Á fundi nefndarinnar 13. októ- ber tókst þú ákvörðun um að halda áfram að mismuna einhverf- um börnum á landinu með því að heimila aðeins undanþágu vegna sumra þessara barna, en synja öðrum beiðnum. Hver eru rök þín fyrir þeirri ákvörðun? Ákvörðun þín er ekki byggð á faglegri greiningu á stöðu þessara barna, svo mikið veit ég. Vart telst hún byggð á siðferðislegu mati. Er þetta þá pólitísk yfirlýsing um að rétt sé að úthýsa einhverfum börnum úr almennum skólum landsins? Ef svo, er þetta þá per- sónuleg skoðun þín eða er þetta skoðun þeirra samtaka sem þú ert fulltrúi fyrir? Við foreldrar þeirra einhverfu barna, sem þú hefur kosið að níð- ast á, eigum rétt á skýru svari frá þér. Erlendur Magnússon Opið bréf til full- trúa kennara í undanþágunefnd Höfundur er faðir einhverfs barns.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.