Morgunblaðið - 17.10.2004, Side 1

Morgunblaðið - 17.10.2004, Side 1
STOFNAÐ 1913 283. TBL. 92. ÁRG. SUNDAY 17. OCTOBER 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is KAST KRINGLU í dag kl. 14 á torginu á 1. hæð Uppboð Gefandi að kenna börnum Árni Sævar Jónsson lét æsku- drauminn rætast um fimmtugt | 16 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 SUNNUDAGUR VERÐ KR. 350 BANDARÍKJAMENN hafa farið fram á að breski herinn, sem ræður ríkjum í suður- hluta Íraks þar sem tiltölulega rólegt er um að litast, komi Bandaríkjaher til aðstoðar á róstusömustu svæðunum í Írak. Þessar fréttir fengust staðfestar í gær en þær mæl- ast misvel fyrir í Bretlandi. Talið er að Bandaríkjamenn hyggist leggja til atlögu gegn uppreisnarmönnum í Fallujah. Eigi slíkar hernaðaraðgerðir að skila árangri er líklegt að fjölga þurfi bandarískum hermönnum í nágrenni borg- arinnar. Þá kæmi til kasta Breta að leysa Bandaríkjamenn af annars staðar. Í fréttum Channel 4 sagði að rætt væri um að 650 breskir hermenn kæmu Banda- ríkjamönnum til aðstoðar. Líklegast væri að þeir færu til Bagdad. Myndu þeir lúta yf- irstjórn bandarískra herforingja en þær hugmyndir mælast illa fyrir í Bretlandi. Töldu verkefnið of hættulegt Nítján bandarískir hermenn í Írak neit- uðu í vikunni að taka þátt í verkefni sem sinna átti á svæði þar sem árásir á Banda- ríkjaher hafa verið tíðar. Hermennirnir hafa verið færðir í varðhald og sæta nú rannsókn en ættingjar þeirra segja þá hafa talið verkefnið of hættulegt, að hluta til vegna þess að farartæki þeirra voru í slæmu ásigkomulagi. Breskir hermenn færðir til? Bagdad, Washington. AFP, AP. Reuters Íraskur prestur hughreystir konu fyrir framan eina af þeim fimm kristnu kirkjum sem skemmdust í árásum í Bagdad í fyrri- nótt. Talið er að um skipulagðar aðgerðir íslamskra öfgamanna hafi verið að ræða en um 3% íbúa Íraks eru kristinnar trúar. GRUNNSKÓLABÖRN í verkfalli hafa ýmislegt fyrir stafni, og börn starfsmanna Íslenskrar erfðagreiningar hafa meðal annars farið í heimsókn á Gljúfrastein – hús Halldórs Laxness. Þar litu þau meðal annars í spegla á snyrtiborði í herbergi Auðar, konu Halldórs, auk þess sem þau fengu að prófa að skrifa á ritvél og teikna með blýantsstubbi eins og Halldór skrifaði gjarnan með. Morgunblaðið/RAX Litu í spegla húsfreyjunnar á Gljúfrasteini ÖSSUR Skarphéðinsson, formaður Samfylking- arinnar, gerði aukinn rétt einstaklinganna og beint lýðræði að umtalsefni í setningarræðu sinni við upphaf flokksstjórnarfundar Samfylkingar- innar í Versölum í gærmorgun. „[…]við eigum ekki bara að berjast fyrir jöfn- um kosningarétti heldur líka auknum rétti kjós- enda. Í þessu samhengi er eðlilegt að skoða í fullri alvöru hugmyndir um að í kosningum fái kjósendur ekki aðeins að velja flokk heldur líka tækifæri til að velja einstaklinga og raða þeim í sæti. Með því móti væri valréttur allra kjósenda aukinn, og prófkjörin gerð óþörf í leiðinni,“ sagði Össur m.a. í ræðu sinni. „Þessi aukni valréttur einstaklingsins er eitt af því sem ég tel að Samfylkingin eigi að berjast fyrir í framtíðinni,“ bætti hann við. Össur sagði að enginn stjórnmálaflokkur hefði lagt fram jafnítarlegar og þroskaðar tillögur um aukið lýðræði og Samfylkingin hefði gert að und- anförnu. Samfylkingin hefði ein íslenskra stjórn- málaflokka sett beint lýðræði á dagskrá. Sagðist hann telja að til álita kæmi að kjósendur fengju möguleika til að hafa áhrif með beinum almenn- um kosningum um val embættismanna, sem hafi hlutverki að gegna í varðstöðu um almenn lýð- réttindi og skoðanafrelsi. „Hví kjósum við ekki beint í embætti eins og útvarpsstjóra, umboðs- mann Alþingis og umboðsmann neytenda sem bæði ríkisstjórn og Samfylking hafa lagt til að verði sett á laggir?“ sagði Össur og bætti við að um slíkar kosningar þyrfti hugsanlega að setja sérstakar reglur til að tryggja að aðgangur að fjármagni geti ekki ráðið úrslitum í slíku kjöri. Minnti hann einnig á að Reykjavíkurlistinn hefði gert athyglisverða tilraun varðandi íbúa- lýðræði með kosningunni um Reykjavíkurflug- völl. „Tæknin á að gera okkur kleift að taka upp beint íbúalýðræði með beinum kosningum á völd- um sviðum. Í framtíðinni, þegar sveitarfélög verða stærri og fá aukin verkefni á borð við heilsugæslu og framhaldsskóla, verða slík úr- lausnarefni fleiri. Þá er hægt að hugsa sér að beint lýðræði verði aðferðin til að taka grundvall- arákvarðanir innan sveitarfélaga um skóla, skipulagsmál, umhverfisvernd og heilsugæslu, svo stærstu sviðin séu nefnd. Það eru hins vegar óleyst tæknileg úrlausnarefni. Við þyrftum að fá reynslu á hvernig á að praktísera beint lýðræði innan sveitarfélaganna,“ sagði Össur. Össur Skarphéðinsson fjallaði um leiðir til að koma á beinu lýðræði Kjósendur velji röð fram- bjóðenda á framboðslistum Morgunblaðið/Kristinn Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Össur Skarp- héðinsson á flokksstjórnarfundinum. ÞÆR fréttir að Sarah Ferguson, fyrrverandi tengda- dóttir Elísabetar Englandsdrottningar, hefði samþykkt að láta taka af sér nektarmyndir í góðgerðarskyni vöktu misjöfn viðbrögð í Bretlandi í gær. Dræmastar undirtektir fengu fréttirnar þó hjá dagblaðinu The Sun sem fór vinsamlegast fram á að Ferguson gerði ekki al- vöru úr áætlunum sínum. Stendur blaðið fyrir undir- skriftasöfnun í þessu skyni. Ferguson tilheyrir bresku konungsfjölskyldunni ennþá formlega en hún hélt titli sínum, hertogaynjan af York, þegar hún skildi við Andrew Bretaprins fyrir átta árum. Hún hefur samþykkt að láta taka af sér myndir þar sem hún yrði aðeins klædd skartgripum frá Cartier og í skóm hönnuðum af Jimmy Choo en mynd- irnar eiga að birtast í bók sem gefin verður út í góðgerðarskyni af stofn- un sem kennd er við Elton John og beitir sér í baráttunni gegn alnæmi. The Sun fylgdi í gær lítið bréf sem blaðið hvatti lesendur sína til að klippa út og undirrita og senda síðan almannatengslafulltrúum Ferguson. „Kæra Fergie,“ segir í bréfinu, „við grátbiðjum þig, ekki íþyngja heim- inum með myndum af þér nakinni.“ Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Ferguson fær harða útreið í bresku götublöðunum en þau hafa m.a. skamm- að hana fyrir að kunna ekki að klæða sig smekklega. Beðin um að fara ekki úr fötunum Sarah Ferguson Tímarit | Undarlegt fólk og utangátta  Fullkomin fegurð  Leikur að andstæðum  Matarhefðir mikilvægar hverri þjóð Atvinna | Minnkandi atvinnuleysi Vinnueftirlitið viðurkennir þjónustuaðila Tímarit og Atvinna í dag

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.