Morgunblaðið - 17.10.2004, Blaðsíða 44
44 SUNDAY 17. OCTOBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Félagi eða náinn vinur kemur þér virki-
lega á óvart í dag. Eitthvað óvænt gerist
sem mun veita þér mikla ánægju. Njóttu
hverrar mínútu.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Einhver kynnir byltingarkenndar að-
ferðir við framleiðslu í vinnunni í dag.
Ert það kannski þú? Vertu opinn fyrir
breytingunum, þær eru til batnaðar.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú finnur fyrir spenningi og jafnvel
taugaveiklun í dag. Er tvíburinn eitt-
hvað hvumpinn þessa dagana? Skýringin
er sú að þig þyrstir í breytingar.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Óskammfeilinn daðrari verður óvænt á
vegi þínum í dag. Þú hittir einhvern
spennandi og heillast algerlega. Því áttir
þú alls ekki von á, var það?
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Allt sem glóir vekur áhuga þinn í dag.
Forvitnin heltekur þig hreinlega. Slíttu
þig úr viðjum vanans og gerðu eitthvað
aldeilis óvænt.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Búðu þig undir smávegis kaupæði í dag.
Allar breytingar á peningaflæði eru
bæði óvæntar og upp úr þurru þessa
dagana. Þeir koma. Og fara.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þetta er góður dagur til þess að leysa
gömul vandamál. Þú kemur auga á
lausnir sem voru þér huldar áður. Enda
hugsarðu utan rammans núna.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Tjáskiptaplánetan Merkúr er í samstöðu
við hinn óútreiknanlega Úranus þessa
dagana. Andrúmsloftið kringum þig er
rafmagnaðra fyrir vikið.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Nýr fróðleikur gleður þig innilega núna
og alls kyns námskeið og lærdómur
vekja áhuga þinn. Þú ert í raun á hött-
unum eftir nýjum vinkli.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Yfirmenn, foreldrar eða kennarar luma
á öldungis óvæntum tíðindum. Kannski
verður þú beðinn um að dansa konga.
Það er samt ekkert að óttast.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Fylgstu vel með reikningsyfirlitinu í
bankanum og haltu fast um budduna.
Óvænt innkaup og aukið peningaflæði
liggja í loftinu. Jibbí.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú nærð að víkka sjóndeildarhringinn
verulega í dag og ert til í að prófa nýjar
hugmyndir og hugsanamynstur. Þröng-
sýni gagnast engum.
Stjörnuspá
Frances Drake
Vog
Afmælisbörn dagsins:
Eru huguð, frökk og full sjálfstrausts. Þau
hika ekki við að taka áhættu og leita
spennu hreinlega uppi. Þau sem virðast
ráðsett og yfirveguð fá útrás fyrir þessar
tilhneigingar í vinnu eða samböndum.
Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár
af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Evrópubikarinn.
Norður
♠108
♥D652 N/Allir
♦4
♣KD8632
Vestur Austur
♠DG ♠K5432
♥94 ♥G10
♦ÁDG109872 ♦K653
♣Á ♣74
Suður
♠Á976
♥ÁK873
♦--
♣G1095
Tíu efstu þjóðirnar á EM í Málm-
ey síðastliðið vor áttu fulltrúa í
keppninni um Evrópubikarinn, sem
fram fór í Barcelona í síðustu viku,
en röð þjóðanna í Málmey var þessi:
Ítalía, Svíþjóð, Pólland, Rússland,
England, Holland, Tyrkland, Þýska-
land, Danmörk og Frakkland. Ítalir
fengu aukasveit í Barcelona vegna
sigurs í fyrra í þessu móti og gest-
gjafanir tefldu einnig fram eigin liði,
svo alls voru sveitirnar tólf. Fyrst
var liðunum skipt í tvo riðla og var
spiluð einföld umferð af 20 spila
leikjum. Ítölsku sveitirnar urðu þar
efstar í báðum riðlum, en samkvæmt
reglum mótsins máttu sveitir sömu
þjóðar ekki spila úrslitaleik og því
spiluðu ítölsku sveitinar innbyrðis í
undanúrslitum. Í hinum undan-
úrslitaleiknum unnu Pólverjar sveit
frá Hollandi, svo úrslitaleikurinn var
á milli Ítala og Pólverja, eins og svo
oft áður.
Spilið að ofan er frá úrslita-
leiknum. Í opna salnum gengu sagn-
ir þannig:
Vestur Norður Austur Suður
Balicki Lauria Zmudzinski Versace
-- Pass Pass 1 hjarta
4 tíglar 4 hjörtu 5 tíglar 5 hjörtu
Dobl Allir pass
Balicki hafði skýra áætlun þegar
hann doblaði fimm hjörtu og fylgdi
henni út í æsar. Hann lagði niður
laufásinn í byrjun og spilaði svo
litlum tígli undan ásnum. En því
miður – Versace í suður átti engan
tígul til: 11 slagir og 650 til Ítala.
Á hinu borðinu fóru Pólverjarnir
Kwiecinski og Golebiowski í sex
hjörtu, sem Ítalir dobluðu og tóku
einn niður: 13 stig til Ítala, sem
unnu leikinn (48 spil) með 107 stig-
um gegn 52.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
1. e4 d6 2. d4 Rf6 3. Rc3 g6 4. Be3
Bg7 5. Dd2 Rc6 6. f3 e5 7. Rge2 O-O
8. d5 Re7 9. O-O-O Re8 10. g4 c6 11.
Rg3 cxd5 12. Rxd5 Be6 13. h4 Rc6
14. c3 Rc7 15. h5 Bxd5 16. exd5 Re7
17. Dh2 Re8 18. hxg6 fxg6 19. Dxh7+
Kf7
Staðan kom upp í Evrópukeppni
taflfélaga sem lauk fyrir skömmu í
Cesme í Tyrklandi. Ofurstórmeist-
arinn Alexander Grischuk (2704)
hafði hvítt gegn hinum stigalausa
Klisurica Jashar en sá síðarnefndi
virðist hóta drottningu hvíts með
Hf8-h8. 20. Re4! Hh8 21. Rg5+ Kf6
22. Dxh8 Bxh8 23. Hxh8 svartur er
nú flæktur í mátnet sem hann getur
ekki losað sig úr með góðu móti.
23...Dd7 24. Bb5! Dxb5 25. Hf8+ og
svartur gafst upp enda verður hann
mát eftir 25... Kg7 26. Re6+ Kh7 27.
Hh1#.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Hvítur á leik.
Tónlist
Kaffihúsið Sogn Dalvík | Hörður Torfa
kynnir Loftsögu kl. 21.
Laugarneskirkja | Eyþór Ingi Jónsson mun
halda fyrstu tónleikana á fullklárað orgel
Laugarneskirkju. Á efnisskránni verða verk
eftir Sweelinck, Frescobaldi, Buxtehude og
Bach en einnig tvö verk eftir Jón Nordal.
Myndlist
Smáralind | Myndlistarsýning listakonunnar
G. Dahl, Guðrúnar Norðdahl, í veitingahús-
inu Energiu á 2. hæð Smáralindar stendur
yfir til 31. okt. nk. Málverkin eru ljóð í formi
og litum, túlkun þeirra er í höndum áhorf-
andans.
Mannfagnaður
Átthagafélag Þórshafnar | Vetrarfagnaður
Átthagafélags Þórshafnar og nágr. verður
laugardaginn 23. okt. að Engjateigi 11 (Kiw-
anishúsinu). Húsið opnað kl. 19, hlaðborð og
skemmtun hefst kl. 20. Hljómsveitin Ponik
leikur fyrir dansi fram eftir nóttu. Miðar
seldir í Kiwanishúsinu miðvikudaginn 20.
okt. nk. frá kl. 17–19.
Fréttir
ITC samtökin á Íslandi | Kynningarfundir
haldnir um þessar mundir í flestum deildum
ITC samtakanna. Upplýsingar http://
www.simnet.is/itc eða itc@simnet.is Lands-
samtökin, sími 848-8718.
Fundir
Aðstandendahópur geðsjúkra | Stofn-
fundur aðstandenda geðsjúkra verður hald-
inn í félagsmiðstöð Geðhjálpar, Túngötu 7,
Reykjavík, þriðjudaginn 19. október kl. 18.
Þeim sem áhuga og þörf hafa er velkomið
að mæta.
Kvenfélagið Keðjan | Kvenfélagið Keðjan
heldur fyrsta fund vetrarins, mánudaginn
18. október kl. 20 í Flugvirkjasalnum, Borg-
artúni 22. Fatakynning verður frá IGMA.
Útivist
Ferðafélag Íslands | Feðafélag Íslands
stefnir nú fólki saman á sunnudags-
morgnum til að kanna nýjar og gamlar
gönguleiðir í nágrenni höfuðborgarinnar.
Göngurnar eru óformlegar og öllum opnar.
Fyrsta Göngugleði á sunnudegi verður nú á
sunnudag og verður lagt af stað úr Mörkinni
kl. 10.30.
Félagsstarf
Félag eldri borgara Kópavogi | Haustfagn-
aður FEBK verður í Félagsheimili Kópavogs,
Fannborg 2, laugardaginn 23. okt. Húsið
opnað kl. 18.30 Kvöldverður, skemmtiatriði,
veislustjóri Sigurður Geirdal, ræðumaður
Pétur Sveinsson, Karlakórinn Kátir karlar og
Kvennahópur syngja. Happdrætti. Söngur
og dans. Uppl í félagsmiðstöðvunum.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Dansleikur
sunnudagskvöld kl. 20, Capri-tríó leikur fyrir
dansi.
Félagsstarf eldri bæjarbúa í Mosfellsbæ |
Skráning stendur yfir í ferðina á Þjóðminja-
safnið miðvikudaginn 20. okt. Lagt verður
af stað kl. 13 frá Hlaðhömrum. Sími 586-
8014 e.h.
Félagsstarf Gerðubergs | Fjölbreytt vetr-
ardagskrá hvern virkan dag frá kl. 9–16.30.
Hæðargarður 31 | Skráningu í leikhúsferð á
„Tenórinn“ í Iðnó lýkur kl. 12 á morgun
mánudag 18. október. Sýningin er föstudag
22. október kl. 20. Upplýsingar í síma 568-
3132.
Kirkjustarf
Digraneskirkja | Alfa samvera sunnudag kl.
17. Gamlir og nýir Alfa félagar velkomnir.
Kaffi, fræðsla og fyrirbænir. (Sjá nánar
www.digraneskirkja.is).
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Brauðs-
brotning kl. 11. Ræðumaður Kistinn P. Birg-
isson. Almenn samkoma kl 16:30. Ræðu-
maður Ólafur Zophoníasson. Gospelkór
Fíladelfíu leiðir lofgjörð. Aldursskipt barna-
kirkja á meðan á samkomu stendur.
Njarðvíkurprestakall | Njarðvíkurkirkja
(Innri-Njarðvík): Sunnudagaskóli í Ytri-
Njarðvíkukirkju á sunnudögum kl. 11. Ekið frá
Safnaðarheimilinu kl. 10.45. og komið við á
Akurbraut. Systrafélag Njarðvíkurkirkju
fundir 2. þriðjudag hvers mánaðar kl. 20. í
safnaðarheimilinu. Nýjar konur velkomnar.
Kynning
Listasafn Reykjanesbæjar | Kynning verð-
ur haldin á listaverkaeign Listasafns
Reykjanesbæjar, í listasalnum í Duushúsum,
laugardaginn 16. október kl. 11. Gunnhildur
Þórðardóttir nemandi í liststjórnun við
listaháskólann í Cambridge kynnir verkefni
sem hún vann fyrir safnið í sumar. Boðið er
upp á veitingar.
SAGA rokksins er í skoðun þessa dagana á
Grand rokk, enda er þessi „endapunktur
siðmenningarinnar“ fimmtugur á árinu. Því
þykir við hæfi að kanna rætur rokksins
duglega og af þeim sökum mun saga blús-
ins lita dagskrá kvöldsins í kvöld.
Fyrsta mynd kvöldsins er annar hluti
myndaraðarinnar „The Blues“, en þar er
um að ræða myndina „Soul Of A Man“ eftir
þýska leikstjórann Wim Wender, en í mynd-
inni blandar Wender saman leiknum atrið-
um, heimildaefni, tónleikaupptökum og við-
tölum þannig að úr verður heildstæð
upprifjun sögu þriggja hálfgleymdra upp-
hafsmanna blússins, þeirra Skip James,
Blind Willie Johnson og JB Lenoir. Margir
þekktir tónlistarmenn votta blúsmönn-
unum virðingu sína í myndinni með því
fremja söngva þeirra og eru þá helst nefnd-
ir þeir Nick Cave, Lou Reed, Beck, Bonnie
Raitt og Jon Spencer Blues Explosion.
Þá verður sýnd myndin The American
Folk Blues Festival 1962–1966: Volume
One, en þar eru á ferðinni nýfundnar og ein-
stæðar sjónvarpsupptökur fjölmargra blús-
manna. Þessi mynddiskaútgáfa hefur að
sögn aðstandenda blúskvöldsins að und-
anförnu hlotið afar góðar viðtökur sem fal-
inn fjársjóður í sögu blústónlistarinnar.
Upptökurnar fóru fram í Þýskalandi á sjö-
unda áratugnum þegar hópur þekktra,
bandarískra blúsara ferðaðist um Evrópu
með tónleikahaldi og hafði þannig áhrif á
bítlakynslóðina sem þá var að vaxa úr
grasi. Meðal þeirra sem koma fram eru
T-Bone Walker, Otis Rush, John Lee Hook-
er, Eddie Boyd, Muddy Waters, Otis Spann,
Junior Wells og margir fleiri.
Þriðja mynd kvöldsins er einnig úr röð-
inni „The Blues“, en þar er um að ræða
mynd Richard Pearce, The Road To
Memphis, þar sem Pearce fylgir hinum
gamla konungi sólógítarsins BB King til
heimaborgar hans í Memphis í Tennessee.
Myndin fjallar öðrum þræði um hin miklu
áhrif sem borgin hafði á þróun rafmagnaða
blúsins áður en Chicago tók við því hlut-
verki um miðbik síðustu aldar. Í myndinni
koma fram m.a. þeir Bobby Rush, Ike Turn-
er og Little Milton auk eldri myndskeiða
með t.d. Howlin Wolf og Rufus Thomas.
Að lokum verður sýnd myndin BB King:
Sweet Sixteen, frá tónleikum BB King í
Kinshasa í Zaire árið 1974.
Blúsað hvíldardagskvöld á Grand rokk
Sýningar hefjast stundvíslega kl.
20 og er aðgangur ókeypis.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Krossgáta
Hægt er að kaupa 10 krossgátur á 600 kr. á mbl.is. Slóðin er: http://www.mbl.is/mm/f olk/krossgata/index.html
Lárétt | 1 gæði, 4 dý, 7
endar, 8 fim, 9 væl, 11
duglegu, 13 ósköp, 14 byr,
15 galdratilraunir, 17
bjartur, 20 viðvarandi, 22
stílvopn, 23 aflöng, 24
þvaðra, 25 reyna sig við.
Lóðrétt | 1 brekka, 2 fár-
viðri, 3 harmur, 4 hróp, 5
látni, 6 skynfærin, 10 guð,
12 reyfi, 13 ögn, 15 málm-
ur, 16 þekktu, 18 flatur
klettur, 19 bölva, 20 hlífa,
21 föst á fé.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt | 1 tjaldferð, 8 rófan, 9 róðan, 10 dóm, 11 skata, 13
asnar, 15 svans, 18 eldur, 21 ker, 22 riðla, 23 titra, 24 rugl-
ingur.
Lóðrétt |2 jafna, 3 lenda, 4 ferma, 5 ræðin, 6 hrós, 7 knár,
12 tin, 14 sól, 15 sárt, 16 auðnu, 17 skafl, 18 ertan, 19 duttu,
20 róar.
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði
dagsins er að finna á Staður og
stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
MIRALE
Grensásvegi 8
108 Reykjavík
sími: 5171020
Opið:
mán. - föstud.11-18
laugard.11-15
Spennandi
gjafavörur og húsgögn