Morgunblaðið - 17.10.2004, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 17.10.2004, Qupperneq 4
Kannabis, amfetamín, e-pillur og landi LÖGREGLAN í Kópavogi handtók á föstudag karlmann og konu á fer- tugsaldri og lagði jafnframt hald á verulegt magn fíkniefna við húsleit í austurbæ Kópavogs. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var um að ræða um 300–400 grömm af kannabisefnum auk nokkurs magns af amfetamíni, e-pillum og ofskynj- unarsveppum. Auk þess var lagt hald á landa. Fólkið var handtekið síðdegis og yfirheyrt fram á kvöld. Í gærmorg- un fengust þær upplýsingar að málið teldist upplýst en ekki lá fyrir hvort fólkið hefði játað fíkniefnasölu. Kirkjuþing hefst í dag KIRKJUÞING 2004 hefst í dag, sunnudag, og verður guðsþjónusta kl. 11 í Dómkirkjunni og þingsetn- ing í Grensáskirkju kl. 14. Þingið verður haldið í Grensáskirkju. Meðal þess sem fjallað verður um á þinginu er fræðslustefna Þjóð- kirkjunnar, tónlistarstefna Þjóð- kirkjunnar og tillaga að þings- ályktun um stöðu og málefni aldraðra. Morgunblaðið/Golli Nýjar höfuðstöðvar Alcan í Straumsvík hafa hlotið nafnið Faðmur og vísar nafngiftin til lögunar á framhlið hússins. NÝJAR höfuðstöðvar voru teknar í notkun í álverinu í Straumsvík á föstudag og leysa þær af hólmi eldra skrifstofuhúsnæði sem verið hefur í notkun frá því bygging- arframkvæmdir við verksmiðjuna hófust fyrir næstum fjórum áratug- um árið 1967. Hrannar Pétursson, upplýsinga- fulltrúi Alcan, segir að bygging- arframkvæmdir hafi hafist fyrir rétt rúmu ári og flutt hafi verið í nýja húsnæðið á föstudag. Það leysi af hólmi eldra hús sem flutt hafi verið inn fyrir hartnær fjörutíu ár- um í byrjun byggingarfram- kvæmda vegna verksmiðjunnar og notast hafi verið við það síðan. Það sé því óhætt að segja að það hafi lengi verið beðið eftir þessu og löngu tímabært að segja skilið við gamla húsið. Nýju höfuðstöðvarnar hafa hlotið heitið Faðmur og vísar nafngiftin til lögunar framhliðar hússins. Nýja húsnæðið er um 1130 fermetrar að stærð og hýsir skrifstofuhald verk- smiðjunnar, tæknimenn og stjórn- endur þar sem munu starfa um 35 manns. Alls starfa um 500 manns í álverinu í Straumsvík. Fyrsta skóflustunga vegna bygg- ingarinnar var tekin í september í fyrra og hafa byggingarfram- kvæmdir því tekið rúmt ár. Teikni- stofa Ingimundar Sveinssonar teiknaði húsið. Tekin hefur verið ákvörðun um að rífa og fjarlægja eldra skrifstofuhúsnæðið. Rannveig Rist, forstjóri Alcan á Íslandi, gengur fremst í flokki starfsmanna yfir í nýjar höfuðstöðvar fyrirtækisins þegar þær voru teknar í notkun. Gengið fylktu liði yfir í Faðm 4 SUNDAY 17. OCTOBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Úrval-Úts‡n Lágmúla 4: 585 4000 • Hlí›asmára: 585 4100 Keflavík: 420 6000 • Akureyri: 460 0600 Selfossi: 482 1666 www.urvalutsyn.is Njóttu Edinborgar undir lei›sögn Kjartans Trausta, hann er mættur á sta›inn. Edinborg – fegursta borgin – ekki spurning netverð á mann í tvíb‡li á Jury’s Inn. 43.990* kr. * Innifali›: Flug til Glasgow, akstur til Edinborgar þá daga sem hópferðir eru, skattar, gisting með morgunverði í 2 nætur og íslensk fararstjórn. ÍS LE N SK A A U G L† SI N G A ST O FA N /S IA .I S U R V 2 61 53 1 0/ 20 04 Edinborg í allt haust Ver›dæmi: HÉRAÐSDÓMUR Austurlands hef- ur vísað frá stefnu tólf íbúa sveitarfé- lagsins Norður-Héraðs um að sam- eining sveitarfélagsins við Austur- Hérað og Fellahrepp yrði ógilt. Kemst dómurinn að þeirri niðurstöðu að stefnendur hafi ekki lögvarða hagsmuni af því að fá skorið úr þessu ágreiningsefni fyrir dómstólum. Upphaflega stóð til að sameina fjögur sveitarfélög en sameiningar- tillagan var felld í Fljótsdalshreppi. Sveitarstjórnir hinna sveitarfélag- anna þriggja ákváðu allar samein- ingu og félagsmálaráðuneytið stað- festi þá ákvörðun síðar með úrskurði. Stefnendur töldu m.a. að þar sem Fljótsdalshreppur myndi ekki renna inn í sameinað sveitarfélag hafi for- sendur fyrir sameiningunni brostið. Í tengslum við sameininguna hafi verið stofnaður sjóður sem átti að styrkja byggða- og atvinnuþróunarverkefni í Fljótsdalshreppi og Norður-Héraði. Tekjur sjóðsins skyldu vera sem svaraði 50% af árlegum brúttó- tekjum vegna fasteignagjalda af mannvirkjum Kárahnjúkavirkjunar fyrstu 15 árin. Með synjun Fljóts- dalshrepps hafi málefnalegar for- sendur sameiningarinnar brostið. Í úrskurðinum segir að það sé grunnregla í lögum um meðferð einkamála að málsaðili hafi lögvarða hagsmuni af því að fá skorið úr um ágreiningsefni sem viðkomandi ber undir dómstóla. Stefnendur hafi ekki sýnt fram á slíka hagsmuni og ekki dugi að þeir séu búsettir í sveitarfé- laginu. Þorgerður Erlendsdóttir kvað upp úrskurðinn. Hróbjartur Jónatansson hrl. sótti málið. Bjarni G. Björgvins- son hdl. var til varnar fyrir ríkið og Jón Jónsson hdl. fyrir Norður-Hér- að. Kröfu um ógildingu vísað frá dómi FYRIRTÆKIÐ Alvarr Geovarme, sem sérhæfir sig í jarðborunum, hef- ur fengið nokkuð umfangsmikið verk- efni í Lundi í Svíþjóð. „Við unnum Svíana í þessu tilfelli og það er virki- lega ánægjulegt að hafa fengið þetta verkefni og geta þannig flutt út reynslu og þekkingu,“ sagði Frið- finnur Daníelsson eigandi fyrirtæk- isins, sem hefur starfað við boranir og jarðhitaleit hérlendis í tæpa þrjá ára- tugi. Alls buðu sjö fyrirtæki í verkið, sem er upp á milljónir króna en að sögn Friðfinns liggur ekki endanlega fyrir hversu hár kostnaðurinn verður, þar sem óvissuþættirnir séu enn margir. Verkefnið lýtur að hreinsun á tveimur borholum, 2.000 metra og 3.700 metra djúpum. Salt vatn er í holunum Friðfinnur sagði að vatnið í hol- unum væri mjög salt og um 40 og 45 gráðu heitt. „Við hendum frá okkur 40 gráðu heitu vatni, sem Svíarnir líta á sem mikinn auð, enda aðstæður þar allt aðrar en hér á landi. Í þessu til- viki er hugmyndin að dæla vatni úr annarri holunni, nýta orku vatnsins með varmadælu og skila vatninu ofan í hina holuna. Þaðan skili vatnið sér aftur í fyrri holuna og hitni á leiðinni.“ Friðfinnur sagði að stór og öflug fyrirtæki hefðu gert tilboð í verkið. „Við erum lítið fyrirtæki en með mikla reynslu og erum jafnframt sveigjanlegri en stóru fyrirtækin og það hafði sitt að segja. Það er mjög ánægjulegt að vera kominn með ann- an fótinn inn á þennan markað sem er gríðarlega stór og þar gætu vissulega verið fleiri tækifæri. Menn eru farnir að huga að því að bora dýpri holur og þá færri en í Svíþjóð eru t.d. um 250 þúsund varmadælur sem sækja orkuna í 100–150 metra djúpar holur, þar sem hitastig er um 7 gráður. Þarna eru allt önnur lögmál og sjón- armið en hér varðandi nýtingu jarð- hita og menn eru tilbúnir að leggja mikið á sig til að ná í 40 gráðu heitt vatn.“ Jarðborinn Snúður, sem er norsk- íslenskur, verður notaður til verksins en um er að ræða tromlubor með 60 mm óslitnu stálröri sem vafið er upp á kefli, alls 2.000 metrar að lengd. Frið- finnur og starfsmenn hans, tvíbura- bræðurnir Sölvi og Fjólmundur Traustasynir, hafa smíðað sérstakan haus á borinn sem notaður verður við hreinsunina. Fyrirtækið Alvarr, sem er skráð í Reykjavík, á þrjá bora en verkefnin hafa verið vítt um breitt um landið. Síðastliðna 18 mánuði hafa starfsmennirnir að mestu verið við vinnu á Kárahnjúkum. Þeir eru nú staddir á Akureyri og vinna við að gera borinn og tilheyrandi búnað kláran til flutnings til Svíþjóðar. Morgunblaðið/Kristján Friðfinnur Daníelsson, fyrir miðju, ásamt tvíburabræðrunum Fjólmundi og Sölva Traustasonum, við jarðborinn Snúð, sem þeir eru að fara með utan. Ánægjulegt að geta flutt út reynslu og þekkingu Fyrirtækið Alvarr fær verkefni við jarðborun í Svíþjóð NÝGERT samkomulag um náms- lánaábyrgðir hjá Landsbanka Íslands hf. felur það í sér að fyrir veitta ábyrgð þarf lántakandi að greiða 980 kr. afgreiðslugjald og 2,5% ábyrgðar- gjald ef námsmenn semja um banka- ábyrgð á námslánum sínum í stað þess að tilnefna ábyrgðarmenn. Greiðslan er miðuð við heilt skólaár og kemur til frádráttar við útborgun námsláns. Veiting lánaábyrgðar Landsbank- ans er ennfremur háð því að umsækj- andi standist skilyrði um fjárhags- stöðu og skilvísi. Jarþrúður Ásmundsdóttir, formað- ur Stúdentaráðs Háskóla Íslands, sagðist telja að margir námsmenn vildu þennan kost fremur en að þurfa að tilnefna ættingja eða aðra sem ábyrgðarmenn lánanna. Hún sagði einnig hugsanlegt að t.d. foreldrar myndu kjósa að greiða ábyrgðar- gjaldið fyrir börn sín fremur en þurfa sjálfir að gangast í ábyrgð. „Svo má vel vera að það muni koma upp samkeppni á milli banka um [gjaldið] þegar á líður og ef fleiri bankar bætast við,“ sagði hún. Jar- þrúður sagði samkomulagið þýðing- armikið fyrir námsmenn og skref í þá átt að tryggja jafnrétti til náms. Námslánaábyrgðir Landsbankans Lántakendur greiða 2,5% ábyrgðargjald NÍTJÁN ára gamall maður hefur verið dæmdur í fimm vikna gæslu- varðhald vegna síbrota að kröfu lög- reglunnar í Reykjavík. Hann var handtekinn þegar hann var að brjót- ast inn í verslun í Breiðholti en hafði áður verið kærður fyrir ýmis afbrot. Að sögn Ómars Smára Ármanns- sonar aðstoðaryfirlögregluþjóns hófst brotahrina mannsins fyrir al- vöru í september. Hann er m.a. sak- aður um eignaspjöll, fölsun á lyfseðl- um, innbrot og líkamsmeiðingar. Samkvæmt úrskurði Héraðsdóms situr í haldi til 17. nóvember. Fimm vikna gæsla vegna síbrota

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.