Morgunblaðið - 17.10.2004, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 17.10.2004, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ SUNDAY 17. OCTOBER 2004 27 Heilsu- og hvatningar- dagarnir Ísland á iði halda áfram í Smáralind í dag. Dagskráin er á www.isi.is Komdu og taktu þátt! Hvort sem um er að ræða gamla vináttu eða nýja erætíð áfall að standa frammi fyrir vinarmissi, ekkivegna misgjörða eða misskilnings, heldur af ástæð-um sem ekki verður með nokkru móti við ráðið.Þetta var ég að hugsa þar sem ég sat í bjartri haustsól og drakk latte á gamalkunnum nyrðri bakka Sortedam- tjarnar í Kaupmannahöfn, í þann mund að heimsækja vin minn, hugsanlega í síðasta sinn. Sólskinið glitraði á gáruðu yfirborði tjarnarinnar og vegna gjól- unnar minnti það fremur á djúpt og breitt fljót en grunna tjörn og leiddi hugann að eilífri framrás tímans og óafturkvæmni stundanna. Fólk skokkaði framhjá sér til heilsubótar, eða gekk og spjallaði. Við næsta borð sat ungt par með sofandi barn í vagni. Hvað segir maður við vin sinn á slíkri stund, – þegar allsendis óvíst er að endurfundir eigi sér stað hérna megin grafar? Er kjánalegt að ræða sameiginleg áhugamál og hugðarefni eins og venja okkar er? Felst í því vanvirðing við þær aðstæður sem upp eru komnar, afneitun þeirra eða flótti frá þeim tilfinningum sem hljóta að krauma undir yfirborðinu? Laufin á trjánum voru farin að fölna og það skrjáfaði í visnum systkinum þeirra þegar þau fuku eftir gangstígnum. Ég heyrði að unga parið var að ræða um að flytja til útlanda um sinn vegna náms eða vinnu og taldi á margan hátt heppilegt að fara núna, meðan barnið væri ungt. Því myndi til dæmis ganga vel að læra annað tungumál. Eins og okkur öllum er tamt voru þau að gera áætlanir og láta í ljósi væntingar um framtíðina, líkt og ekkert væri sjálfsagðara. Þegar baráttu læknisfræðinnar við sjúkdóm lýkur með ósigri er það framtíðin sem glatast. Hinni ávallt ótryggu og aldrei áreið- anlegu framtíð þess sem í hlut á eru allt í einu settar skorður. Allar áætlanir um hana verða marklítið hjal. Snögglega er dauðans óvissi tími ekki lengur jafn óviss. Er maður ef til vill með örlítið samviskubit yfir því að njóta enn um sinn óvissunnar sem vinurinn hefur nú verið rændur? Þetta var meginmunurinn á aðstæðum vinar míns og unga parsins með barnavagninn. Og ég vissi ekki hvert mitt hlutverk var í þeim harmleik sem líf hans var snögglega orðið. Hvernig talar maður við mann án framtíðar? Þegar til kom ræddum við vinirnir sam- an, bæði eins og ekkert hefði breyst og eins og ekkert væri leng- ur samt. Við ræddum meðal annars um framtíðina. Setningar hans voru kannski fremur mótaðar af ósk en væntingum. En þær hljómuðu eins og áður. Við kvöddumst með einu orði. Þegar hann sagði það í þetta sinn var það kannski fremur sett fram sem ósk en yfirlýsing, en einnig það hljómaði eins og áður. Ég svaraði því sama. Undir kvöld gekk ég aftur meðfram Sortedam-tjörn. Kveðja vinarins hljómaði enn í huganum: „Sjáumst.“ Sólin var horfin bak við ský og logn dottið á. Vatnið kyrrt og ekki á leiðinni neitt. Hvernig kveður maður vin sinn? HUGSAÐ UPPHÁTT Eftir Sveinbjörn I. Baldvinsson AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111 FRÉTTIR NÝR samningur um þróunarsamvinnu Íslands og Namibíu var nýlega undirrit- aður í Windhoek, höfuðborg Namibíu. Í samningnum er kveðið á um vilja þjóð- anna til að vinna sameiginlega að auk- inni hagsæld og eflingu félagslegrar þróunar í Namibíu. Um er að ræða al- mennan rammasamning um verklags- reglur og aðferðafræði í því sambandi. Samninginn undirrituðu ráðuneyt- isstjórarnir Gunnar Snorri Gunnarsson, fyrir hönd Íslands, og Samuel Gôag- oseb, af hálfu Namibíu. Samningurinn er gerður til þriggja ára og gildir til ársloka 2007. Samningur um þróunarsamvinnu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.