Morgunblaðið - 17.10.2004, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ SUNDAY 17. OCTOBER 2004 33
FRÉTTIR
FASTEIGNA
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/
Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteigna- og skipasali.
Maríubaugur Stórglæsilegt og vel
skipulagt 192 fm einbýlishús, tengihús,
með 38 fm innb. bílskúr. Húsið er allt afar
vandað m. sérsmíð. innréttingum úr
bæsaðri eik og skiptist m.a. í gestaw.c.,
stórt sjónvarpshol, stórt baðherb. m.
hornbaðkari, rúmgóðar stofur, eldhús m.
vönduðum tækjum og góðri borðaðst. og
tvö herb. Massívt eikarparket og flísar á
gólfum og er hiti í þeim flestum. Inn-
byggð halogenlýsing í öllum loftum. Öll
loft eru tekin upp og er því mikil lofthæð.
Falleg lóð með afgirtri verönd. Hiti í stétt-
um og innkeyrslu. Fullkomið öryggiskerfi.
Verð 36,5 millj.
Brúnastekkur Nýkomið í sölu 334
fm einbýlishús á tveimur hæðum ásamt
50 fm tvöföldum bílskúr. Eignin skiptist
m.a. í gestaw.c., eldhús með góðum
borðkrók, stofu, borðstofu, fjölda her-
bergja, tvö baðherb. auk 67 fm séríbúð-
ar. Mikið útsýni úr stofu. Falleg ræktuð
lóð með hellulögðum veröndum og
vegghleðslum. Hiti í stéttum fyrir framan
hús. Verð 48,5 millj.
Nesbali - Seltj. Fallegt 202 fm
raðhús á tveimur hæðum með 58 fm
innb. bílskúr. Á neðri hæð er forstofa,
hol, flísalagt baðherb., tvö herb. og garð-
hús með timburverönd. Uppi er svefn-
gangur, 3 herb., eldhús m. borðaðst.,
rúmgóð og björt stofa með mikilli loft-
hæð og útgengi á stórar svalir til suðurs
og baðherb. Fallegur viðarstigi á milli
hæða. Nýlegt járn á þaki. Ræktuð lóð.
Verð 29,5 millj.
Garðastræti Fallegt um 200 fm ein-
býlishús á þremur hæðum á þessum eft-
irsótta stað. Á 1. hæð er forstofa, hol,
tvær samliggj. stofur með rósettum í lofti
og eldhús með borðaðst. Á 2. hæð eru 3
rúmgóð herb. og baðherb. Í risi er opið
rými með herb. innaf og í kjallara er
þvottaherb. o.fl.
Freyjugata Mjög falleg og vel skipu-
lögð 144 fm efri hæð og ris í þessu fal-
lega þríbýlishúsi. Á aðalhæð er hol, sam-
liggj. stofur, flísalagt baðherb. með ný-
legum tækjum, eldhús með fallegum
eldri innrétt., borðstofa og tvö svefnherb.
Í risi er baðherb. og 4 svefnherb. Stór
gróin lóð. Þak lagt skífum og hiti í stétt-
um við hús. Verð 29,9 millj.
Hamravík Björt 105 fm íbúð á 3.
hæð með sérinng. Björt og rúmgóð
stofa/borðst., eldhús m. borðkrók og fal-
legri viðarinnrétt., flísal. baðherb. og tvö
herb. auk þvottaherb. Stórar suðursvalir.
Gott útsýni til sjávar og til Esjunnar.
Parket og flísar á gólfum. Rúmgóð
geymsla m. síma- og tölvulögnum. Íbúð í
topp ástandi. Verð 17,8 millj.
Kjarrhólmi - Kóp. Vel skipulögð
og björt 75 fm 3ja herb. íbúð á 1. hæð í
góðu fjölbýli við Fossvogsdalinn. Góð
borðaðstaða í eldhúsi, rúmgóð stofa, tvö
herb., bæði með skápum, og flísal. bað-
herb. Þvottaherb. í íbúð. Parket og flísar
á gólfum. Hús klætt að utan og sameign
góð. Verð 12,8 millj.
Vallarás Björt 58 fm íbúð á 2. hæð í
góðu lyftuhúsi auk sérgeymslu í kjallara.
Suðursvalir út af stofu. Útsýni. Sameign
endurnýjuð. Verð 10,2 millj.
Bræðraborgarstígur. Falleg 50
fm íbúð á 3.h æð, efstu, í góðu fjölbýli
auk sér geymslu í kj. eldhús m. góðri
borðaðstöðu, stofa m. svölum til vesturs,
rúmgott herb. m. skápum og mosaiklagt
baðherb. Gott útsýni til vesturs og norð-
urs. Hús að utan og sameign nýlega
endurnýjað. Verð 11,5 millj.
Sumarhús í landi Nesja
við Þingvallavatn
Glæsilegt um 127 fm sumarhús í
landi Nesja við Þingvallavatn. Húsið
er hæð og uppsteyptur kjallari, afar
vel staðsett með glæsilegu útsýni yfir
Þingvallavatn og allan fjallahringinn.
Á hæðinni er alrými, stofa, borðstofa,
eldhús og 2 svefnherb. Niðri er rúm-
gott svefnherb., stórt baðherb.,
þvottaherb., saunaklefi og geymsla.
55 fm timburverönd umlykur alla efri
hæð bústaðarins. Leigulóð ræktuð trjám og runnum. EINSTÖK STAÐSETN-
ING Í FALLEGU UMHVERFI. Nánari uppl. veittar á skrifstofu.
Melabraut - Seltjarnarnesi
Vel skipulögð 135 fm 5 herb. efri sér-
hæð, ásamt 29 fm bílskúr. Hæðin
skiptist í hol með skápum, eldhús
með góðri borðaðstöðu, samliggj-
andi stórar stofur, 3 herb., öll með
skápum og flísalagt baðherbergi.
Tvennar svalir til austurs og vesturs.
Frábært útsýni út á sjóinn og að
Snæfellsjökli. Sérgeymsla í kjallara
og sérgeymsluloft.
Bolafótur 11, Njarðvík
500m2 iðnaðarhúsnæði á 2 hæðum,
möguleiki að skipta upp í einingar,
eignin er í góðu ástandi.
15.400.000,-
TIL SÖLU
Hafnargötu 29, 2. hæð, Keflavík • Sími 420 4000
fax 420 4009 • studlaberg.is
Alltaf til þjónustu reiðubúin. Skrifstofan í Hverafoldi
er opin frá 9 til 18 - heitt á könnunni.
Upplýsingar og ráðgjöf.
Síminn er 595 9080
Gsm 693 4490
margret@holl.is
Grafarvogsbúar! Nú vantar
eignir á söluskrána hjá mér
Skólavörðustíg 13
Sími 510 3800
Fax 510 3801
www.husavik.net
Reynir Björnsson
lögg. fasteignasali
Kvisthagi - sérinngangur
Húsavík – þar sem gott orðspor skiptir máli
Óvenju björt og glæsileg 3ja herbergja 102,5 fm íbúð á jarðhæð í
stórglæsilegu og virðulegu steinhús í Vesturbæ Reykjavíkur. Íbúðin er með
sér inngangi og skiptist í tvö stór svefnherbergi, glæsilega og rúmgóða
stofu með útbyggðum glugga, eldhús með nýlegum innréttingum og
vönduðum tækjum, gestasnyrtingu og baðherbergi. Parket og flísar á gólf-
um. Sameignlegt þvottahús á hæðinni og verönd til suðurs. Búið er að
endurnýja skólp, rafmagn og drena meðfram íbúð að sögn eiganda. Þá
hafa gluggar og gler einnig verið endurnýjað. Sjá myndir á www. husa-
vik.net. Verð 17,6 millj.
Til leigu í Ármúla
Glæsilegt 328m² skristofuhúsnæði á 3. hæð, auk 132 m² á 2. hæð eða
samtals 460 m², staðsett í neðri hluta Ármúla. Rýmin geta leigst sitt í
hvoru lagi eða saman. Þægileg aðkoma og bílastæði beint við inngang.
Rýmin eru í góðu ástandi með parketi á gólfum og öflugum
tölvulögnum, lagnaskápur fyrir hendi.
Áhugasamir hafið samband við Guðlaug í síma 896 0747.
Mánaðarleiga samtals kr. 415.000
Sími 511 2900
KENNARAFÉLAG Kennarahá-
skóla Íslands hefur sent frá sér yf-
irlýsingu þar sem félagið lýsir
óskoruðum stuðningi við grunn-
skólakennara í einarðri baráttu
fyrir bættum kjörum, og lýsir yfir
vanþóknun á tómlæti sveitar-
stjórna og ríkisvalds í þeirri ill-
vígu kjaradeilu sem nú stendur.
Í yfirlýsingunni kemur fram að
kennarastarfið reyni á sífellt fleiri
þætti sem krefjast ábyrgðar,
þekkingar og færni langt umfram
það sem laun kennara og svigrúm
til starfa endurspegla.
Félagið höfðar til samfélags-
legrar ábyrgðar sveitarstjórna og
ríkisvalds á því mikilvæga og fag-
lega starfi sem fram fer í grunn-
skólum landsins og nú liggur
niðri, vandi sveitarfélaga verði síst
leystur með því að leiða hjá sér
eða reyna að brjóta á bak aftur
sanngjarna og einhuga baráttu
kennara.
Haustfundur Faghóps leik-
skólastjóra lýsir einnig yfir ein-
dregnum stuðningi við kjarabar-
áttu grunnskólakennara.
Fundurinn skorar á sveitarstjórnir
að stuðla að lausn þessarar deilu
til að börn þessa lands fái notið
þeirrar menntunar sem lög kveða
á um.
Styðja grunn-
skólakennara
NÝ STJÓRN var kjörin á lands-
fundi Ungra vinstri grænna, sem
haldinn var á Akureyri í byrjun
október, og var Oddur Ástráðsson
kjörinn formaður hennar. Á meðal
annarra í stjórn UVG 2004–2005
eru: Dögg Proppé Hugosdóttir,
varaformaður, Emil Hjörvar Pet-
ersen, ritari, og Dagur Snær Sæv-
arsson, gjaldkeri.
Á landsfundinum var eftirfar-
andi ályktun um stríðið í Írak
samþykkt: „Landsþing Ungra
vinstri grænna, haldið á Akureyri
2. október 2004, krefst þess að ís-
lensk stjórnvöld taki Ísland taf-
arlaust af lista hinna viljugu, stað-
föstu þjóða og fordæmi þá
hernaðar- og yfirgangsstefnu sem
rekin er í Írak að frumkvæði
stjórna Bandaríkjanna og Bret-
lands. Sá skilyrðislausi und-
irlægjuháttur sem stjórnvöld hafa
sýnt af sér gagnvart þeirri and-
styggilegu heimsvaldastefnu sem
rekin er af þessum þjóðum er
skammarlegur smánarblettur á ís-
lensku þjóðinni. Ung vinstri græn
neita að taka þátt í því að gera
heiminn allan að einsleitu kerfi
sem stjórnað er með hernaðarógn-
unum stórvelda. Stríðsrekstur skil-
ar engu nema dauða.“
Ný stjórn
Ungra vinstri
grænna kjörin
VEGNA umfjöllunar um breyt-
ingar á nefndum Reykjavík-
urborgar vill Vilhjálmur Þ. Vil-
hjálmsson, borgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokks, árétta að aldrei
hefur legið fyrir formlegur
stuðningur sjálfstæðismanna um
að sameina íþrótta- og tóm-
stundaráð og menningar-
málanefnd í eina nefnd og eitt
svið.
Vilhjálmur segir að sú hug-
mynd hafi verið ein af tugum
hugmynda sem stjórnkerfis-
nefndin hafi fjallað um og skoðað
með opnum hug. Hann segir að í
störfum nefndarinnar á undan-
förnum misserum hafi hugmyndir
og tillögur tekið sífelldum breyt-
ingum og nýjar tillögur komið
fram. Hann segir afstöðu sjálf-
stæðismanna vera að leggjast
gegn sameiningu íþrótta- og tóm-
stundaráðs og menningarmála-
nefndar, og hafi sú afstaða verið
ljós fyrr í haust þegar henni var
lýst á fundi stjórnkerfisnefndar.
Aldrei formlegur
stuðningur