Morgunblaðið - 17.10.2004, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ SUNDAY 17. OCTOBER 2004 43
DAGBÓK
Sjálfstæðismenn í
Grafarholti
Stjórn Fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna
í Reykjavík.
Stofnfundur
Félags sjálfstæðismanna í Grafarholti
verður haldinn mánudaginn 18. október
kl. 20.00 á Holtakránni, verslunar- og
þjónustumiðstöð Grafarholts,
Kirkjustétt 2-6.
Fundarstjóri verður Margeir Pétursson,
formaður Fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík.
Gestir fundarins verða Geir H. Haarde, varaformaður
Sjálfstæðisflokksins og fjármálaráðherra, og
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti borgarstjórnarflokks
Sjálfstæðisflokksins.
Jens Ingólfsson, rekstrarhagfræðingur,
Róbert Trausti Árnason, rekstrarfræðingur.
Salómon Jónsson,
löggiltur fasteignasali.
Fyrirtæki til sölu
Upplýsingar um fyrirtæki ekki veittar í síma
Við sölu fyrirtækja er gagnkvæmur trúnaður mikilvægur og við gefum því
ekki upplýsingar um fyrirtæki í síma. Við viljum fá kaupendur til okkar og
kynnast þeim, en með því móti getum við einnig þjónað þeim betur.
Vinsamlega hringið áður og pantið tíma. Síminn er 533 4300, en einnig er
hægt að nota tölvupóstinn: jens@husid.is eða robert@husid.is .
Eftirfarandi eru stuttar lýsingar á nokkrum fyrirtækjum sem eru fáanleg, en
við auglýsum ekki nema brot af þeim fyrirtækjum sem höfum til sölu:
Þekkt barnafataverslun í Kringlunni.
Iðnfyrirtæki með 280 m. kr. ársveltu. Góð afkoma.
Þekkt heildverslun með gjafavörur. Ársvelta 30 m. kr.
Lítil sápugerð með góðar vörur. Hentugt fyrirtæki til flutnings.
Ein þekktasta barnafataverslun landsins. Ársvelta 85 m. kr.
Veitingahús í miðbæ Hafnarfjarðar. 60 sæti. Sömu eigendur í 13 ár.
Gullöldin. Rótgróinn hverfisbar - skemmtistaður í Grafarvogi.
Þekkt sportvöruverslun í miðbænum. Mjög góður rekstur. Mikill sölutími
framundan.
Söluturninn Miðvangi. Gott tækifæri fyrir einstakling sem vill hefja eigin
atvinnurekstur.
Þekkt verslun með föndurvörur. Ársvelta 60 m. kr.
Þekkt sérverslun með 200 m. kr. ársveltu. Eigin innflutningur. Góður
hagnaður um árabil.
Vitum af mörgum sérverslunum, heildverslunum og iðnfyrirtækjum í
ýmsum greinum fyrir rétta kaupendur. Ársvelta 100-1000 m. kr.
Reyndur rekstrarmaður óskar eftir fjárfesti-meðeiganda til að kaupa
með sér gott fyrirtæki.
Rótgróin sérverslun-heildverslun með fallegar vörur. Ársvelta 40 m. kr.
Góð EBIDTA og miklir möguleikar.
Rótgróinn veitingastaður, söluturn og ísbúð. Ársvelta 36 m. kr. Góður
rekstur.
Tveir söluturnar í 101 Reykjavík. Hentugur rekstur fyrir hjón eða fjöl-
skyldu.
Þekkt snyrtistofa við Laugaveg.
Húsgagnaverslun í góðum rekstri.
Skemmtileg gjafavöruverslun í Kringlunni.
Rótgróin brauðstofa í eigin húsnæði. Vel tækjum búin - gott veislueld-
hús. Mikil föst viðskipti.
Bílasprautun og réttingaverkstæði. Vel tækjum búið. 3-4 starfsmenn.
Stór og þekktur bar í eigin húsnæði. Mikil velta, spilakassar og pool.
Glæsileg ísbúð, myndbandaleiga og grill á einstaklega góðum stað í
austurbænum. Mikil veitingasala og góð framlegð.
Vörubílaverkstæði með mikil föst viðskipti. 4-5 starfsmenn. Vel tækjum
búið, í eigin húsnæði á góðum stað.
Big Ben Sportbar. Flottur bar í Seljahverfi með nýjum innréttingum og
tækjum, m.a. þrjú breiðtjöld. Velta 2-3 m. kr. á mánuði.
Íþróttavöruverslun með þekkt merki og góð viðskiptasambönd. Sami
eigandi í 20 ár. Hagstætt verð.
Lítill söluturn í Háaleitishverfi. Gott tækifæri fyrir duglegt fólk sem vill
komast í eigin rekstur.
Gagnlegur fróðleikur á heimasíðu
fyrirtækjadeildar: www.husid.is .
Suðurlandsbraut 50 (Bláu húsin v/Faxafen),
sími 533 4300, GSM 820 8658 (Jens) og 663 8478 (Róbert).
Námskeið í indverskri grænmetismatargerð
Fæða fyrir sál og líkama
Afsláttur fyrir 8-10
manna hópa
Skemmtilegt eitt kvöld - grunnnámskeið
25. okt. og 27. okt. og 1. nóv. og 3. nóv.
frá kl. 18.00–22.30 með
Shabönu, símar 581 1465 og 659 3045.
Indversk matargerð í eldhúsinu þínu.
Ef þú vilt halda veislu, þá kem ég á staðinn
og sé um matinn.
Skemmtileg gjafabréf fyrir þá sem ætla að
gefa skemmtilega gjöf.
Áfyrsta fræðslufundi Foreldrafélagsbarna með athyglisbrest og ofvirkni(AD/HD) næstkomandi þriðjudags-kvöld munu Rósa Steinsdóttir list-
meðferðarfræðingur og Sólveig Guðlaugsdóttir,
geðhjúkrunarfræðingur og fjölskylduráðgjafi,
fjalla um félagsleg samskipti barna með AD/
HD.
Þær Sólveig og Rósa hafa sl. tvö ár staðið
fyrir námskeiðum þar sem unnið er markvisst
með félagsleg samskipti í náinni samvinnu við
foreldra. Sérstaða námskeiðsins felst í kennslu-
aðferðum, smæð hópa, mikilli stýringu og
þéttri samvinnu við foreldra, sem tryggir yf-
irfærslu færni yfir í heimaumhverfi.
Rósa segir tölur frá BNA sýna að 10% barna
eigi við námsörðugleika af einhverjum toga að
stríða. „Þar er unnið að og víða búið að flytja
nemendur með sérþarfir inn í almennan bekk
að minnsta kosti 60% af skóladeginum,“ segir
Rósa og bætir við að hér á landi sé verið að
breyta skólakerfinu í sömu átt. „Reynsla
Bandaríkjamanna er sú að þetta fyrirkomulag
virðist ganga upp hvað námið varðar varðar en
félagslega eigi börnin oft í verulegum erfið-
leikum. Mörg börn með AD/HD eiga við náms-
erfiðleika að stríða og býsna mörg glíma við
vanlíðan vegna félagslegrar einangrunar. Það
er erfitt fyrir barn með AD/HD að lesa rétt í
innihald samskipta en einnig virðist því erfitt
að meta hvernig hegðun þess virkar á aðra. Í
stað þess að læra af félögum sínum endurtekur
barnið sömu mistökin í félagslegum sam-
skiptum sem leiðir til þess að því er strítt,
hafnað eða hreinlega látið afskiptalaust af öðr-
um börnum. Þessi mistök geta haft afar nei-
kvæð áhrif á sjálfsmatið og leitt til þunglyndis
eða ögrandi hegðunar í athyglileit. Þegar barn-
ið finnur að því tekst ekki það sama og öðrum
börnum verður það ögrandi og sýnir erfiða
hegðun. Félagsleg höfnun leiðir svo til enn
fjandsamlegri hegðunar.“ Rósa segir góðan ár-
angur geta náðst með því að vinna með fé-
lagslega þáttinn.
Hversu alvarleg er þessi röskun?
„Mörg börn með AD/HD eiga við námsörð-
ugleika að stríða og býsna mörg glíma við van-
líðan vegna félagslegrar einangrunar. Nýlegar
bandarískar rannsóknir hafa sýnt að 35% nem-
enda með námserfiðleika hætta námi á gagn-
fræðastigi og 31% unglinga með námserfiðleika
kemst á sakaskrá 3–5 árum eftir að gagn-
fræðastigi lýkur. Allt að 60% nemenda sem
komið hafa til meðferðar í BNA vegna fíkni-
efnamisnotkunar hafa átt við námserfiðleika að
stríða. Þessi hópur er í aukinni hættu vegna
vanlíðunar og fjandsamlegra viðhorfa, þá er
aukin hætta á að þau detti út úr skólakerfinu
og leiðist út í misnotkun fíkniefna eða áfengis.
Það er því afar mikilvægt að styrkja félagslega
færni barna með AD/HD og hjálpa þeim að
fullorðnast í sátt við sig og aðra. Til þess hafa
þau alla möguleika.“
Börn | Fyrsti fræðslufundur Foreldrafélags barna með AD/HD
Rósa Steinsdóttir
fæddist í Reykjavík
1952. Hún lauk BA-
prófi í sálarfræði frá HÍ
1978 og lauk mast-
ersnámi í listmeðferð
1980 frá Hertfordshire
college of Art and
Design á Englandi.
Rósa hóf störf við list-
meðferð á barna- og
unglingageðdeild LSH
árið 1980 og hefur frá árinu 1991 sérhæft sig í
vinnu með börn og unglinga með greininguna
athyglisbrest með eða án ofvirkni.
Rósa er gift Agnari H. Kristinssyni og eiga
þau fimm börn.
Mikilvægt að styrkja félagslega færni
Þekkir þú fólkið?
FÓLKIÐ á þessum myndum er lík-
lega ættað úr Dalasýslu eða Snæfells-
nesi, e.t.v. er það af Ormsætt.
Þeir sem kunna að þekkja fólkið
eru beðnir um að hafa samband við
Björgu Gunnarsdóttur í s. 557 4302.
Þjóðminjasafn
ÞAÐ hefir verið sagt slæmt þegar
vinstri höndin veit ekki hvað sú hægri
er að gera. Nú er verið að flytja
Hringbrautina til að greiða fyrir um-
ferð niður í miðbæ. Hægri mennirnir
eru í miklum framkvæmdum á norð-
urströnd borgarinnar, m.a. búið að
byggja nokkur háhýsi á Móakotslóð-
inni við Skúlagötu. Þar verða íbúðir
fyrir um 700 manns. Innar með
ströndinni er risið skrifstofuhverfi
sem leysir af gamla miðbæinn. Nú
hefir Þjóðminjasafnið verið opnað
eftir mikla viðgerð, samkvæmt frétt-
um gleymdist að setja járnabindingu
í aðra hæðina og hin var steypt í
frosti. Nú hefir þessi ónýta steypa
ekki verið fjarlægð svo að í framtíð-
inni gæti orðið önnur stórviðgerð á
þessu mikla húsi og er það hið besta
mál. Það virðast nefnilega fara saman
framkvæmdir við Hringbraut og
Þjóðminjasafn. Þegar safnhúsið var
byggt, var hringtorgið gert og gengið
frá götunni, nú er safnhúsið endur-
byggt og Hringbrautin færð. Þegar
skipt verður um ónýtu steypuna verð-
ur gatan færð í upprunalegt horf
enda þá orðin þjóðminjar.
Gestur Gunnarsson,
Flókagötu 8, Rvík.
Persneskur kisi týndur
íVesturbæ
LJÓSBRÚNN stór og loðinn pers-
neskur köttur með flatt nef týndist
við Melhaga sl. föstudagsmorgun.
Þeir sem vita um kisa eru beðnir að
hafa samband í s. 552 2174 og
663 2174.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 kl. 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Brúðkaup | Gefin voru saman 2. októ-
ber síðastliðinn í Ullern Kirke í Osló þau
Þórdís Birna Arnardóttir og Håvard
Grimsmo. Heimili þeirra er í Osló.
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
arra rita s.s skáldsögu, smá-
sagna og ævisagna.
Í Söng í mannhafinu nálg-
ast höfundur jafnframt við-
fangsefni sín á heimspeki-
legum nótum ásamt því að
beita kímninni. Bókin inniheld-
ur bæði stök ljóð og ljóða-
flokka og er efni bókarinnar
ýmist rímað eða órímað.
Ljóð
LJÓÐABÓKIN Söngur í mann-
hafinu eftir Jón frá Pálmholti
er komin út í útgáfu Valdi-
mars Tómassonar. Hér er um
að ræða fjórtándu frumortu
ljóðabók höfundar, sem auk
þess hefur þýtt ljóð eftir kúrd-
íska skáldið Goran auk ann-