Morgunblaðið - 07.11.2004, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 07.11.2004, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. NÓVEMBER 2004 35 liggur það hins vegar fyrir að George Bush verð- ur forseti Bandaríkjanna fjögur ár enn. Leiðtog- ar Evrópuríkjanna ættu ekki að bíða eftir að hann sýni frumkvæði að því að leita sameigin- legra lausna á hinum gríðarstóru viðfangsefnum, sem fyrir liggja. Þeir eiga sjálfir að leita til Bush, í því skyni að ná samstöðu um framtíðarstefnu. Trúarhiti og siðferðisgildi Eins og nefnt var hér í upphafi, er það ekki eingöngu utanríkis- stefna Bush, er nú hefur fengið endurnýjaðan stuðning bandarískra kjósenda, sem veldur mörgum Evrópumönnum áhyggjum. Kannanir, sem gerðar voru meðal kjósenda vestra þegar þeir komu af kjörstað, benda eindregið til þess að Bush geti að verulegu leyti þakkað sigur sinn því að stuðningsmönnum hans tókst að höfða til bókstafstrúaðra mótmæl- enda, sem leggja mikið upp úr „siðferðisgildum“ á borð við bann við fóstureyðingum og bann við hjónaböndum samkynhneigðra og raunar líka gildum, sem eiga kannski minna skylt við sið- ferði, til að mynda frelsi manna til að eignast byssu. Í öllum þeim ellefu ríkjum, þar sem kosið var um bann við giftingum samkynhneigðra, var það samþykkt og í öllum þeim ríkjum sigraði Bush jafnframt. Menn hafa því leitt getum að því að það hafi verið tækifærið til að greiða atkvæði gegn rétti samkynhneigðra til að ganga í hjóna- band, sem ýtti undir að hinir kirkjuræknu og trú- heitu mættu á kjörstað. Í kosningahefti tímaritsins New Yorker er vitnað til ræðu Johns Zogby, sem hefur getið sér orð fyrir að gera skoðanakannanir, um það hvernig kjósendur í „rauðum“ ríkjum, þar sem meirihlutinn kýs repúblikana, og „bláum“ ríkjum demókrata skiptust: „Fimmtíu og fjórir af hundraði kjósenda í rauðu ríkjunum kváðust fara í guðshús að minnsta kosti einu sinni í viku – það er mjög mikilvæg vísbending um íhaldssaman kjósanda – þrjátíu og tveir af hundraði í bláu ríkj- unum kváðust gera það. Sjötíu og fimm af hundr- aði í rauðu ríkjunum kváðust vilja að forsetinn tryði á guð, fimmtíu og einn af hundraði í þeim bláu. Fimmtíu og sex af hundraði kjósenda í rauðu ríkjunum kváðust eiga byssu, þrjátíu og fimm af hundraði kjósenda í bláu ríkjunum sögðu það. Í bláu ríkjunum er sjö prósentustigum lík- legra að viðkomandi sé einhleypur, hafi aldrei gifzt, og ég skal segja ykkur að við tölum um kynjabil í stjórnmálum, en það er hverfandi mið- að við bilið á milli giftra og einhleypra,“ sagði Zogby. Þegar kortið af Bandaríkjunum var skoðað, eftir að kosningaúrslit lágu fyrir, fór ekki á milli mála að það var að mestu leyti rautt – Bush sigr- aði alls staðar nema á vesturströndinni, á norð- anverðri austurströndinni og í nokkrum ríkjum við vötnin miklu í norðurhluta landsins, en þetta eru þau svæði þar sem hefð er fyrir frjálslyndi í trúarskoðunum og fylgi við demókrata mikið. Þessi mynd segir auðvitað mikla sögu, en ýmsum Evrópumönnum hefur þó hætt til þess undan- farna daga að túlka sigur Bush sem svo að Bandaríkjamenn upp til hópa séu þeirrar skoð- unar að staður konunnar sé á heimilinu, samkyn- hneigðra í skápnum og byssunnar á náttborðinu. Myndin er að sjálfsögðu ekki svo einföld. Banda- ríkin eru ótrúlega margbrotið þjóðfélag. Þar má finna dæmi um miklu meiri nesjamennsku og þröngsýni en í Evrópu, en jafnframt miklu meira frjálslyndi og víðsýni en Evrópumenn geta stát- að af. Þannig eru til dæmis réttindi samkyn- hneigðra betur tryggð í sumum ríkjum Banda- ríkjanna en víðast hvar í Evrópu. Staðreyndin er hins vegar sú að sjaldan hefur klofningurinn á milli hinna hefðbundnu, íhaldssömu lífsgilda og frjálslyndari viðhorfa verið dýpri en í þessum forsetakosningum. Ein af stóru spurningunum, sem velt hefur verið upp eftir kosningarnar, er hvort Bush forseti hyggist verða sameiningar- tákn með því að fara bil beggja í félags- og sið- ferðismálum eða hvort hann hyggist fylgja fram af hörku stefnu hinna heittrúuðu og íhaldssömu. Margir velta því til dæmis fyrir sér hvernig Bush hyggist haga skipunum í hæstarétt Bandaríkj- anna, sem getur haft veruleg áhrif í þessum efn- um. Forneskjurök í dómum Nóg um Bandaríkin að sinni. Hér á landi er líka að finna tog- streitu á milli íhalds- samra og frjálslyndra lífsgilda, þótt hún sé ekki eins hatrömm og í Bandaríkjunum og markist miklu síður af trúarlegri afstöðu fólks. Allir eiga að sjálfsögðu rétt á sínum skoðunum, en stund- um rekur fólk í rogastanz þegar á opinberum vettvangi, og jafnvel af hálfu fulltrúa ríkisvalds- ins, eru settar fram skoðanir sem virðast ger- samlega úr takti við þau viðhorf, sem almennt eru ríkjandi. Dæmi um slíkt var rökstuðningur dómara við Héraðsdóm Reykjaness, sem vakið hefur miklar umræður og verið harðlega gagn- rýndur. Dómarinn fann mann sekan um árás á eiginkonu sína en frestaði ákvörðun um refsingu, þar sem hann taldi að konan hefði átt nokkra sök á því að á hana var ráðizt. Algengustu viðbrögðin við þessu hafa verið: Forneskja. Úrelt og eld- fornt sjónarmið, sem einhvern tímann var kannski útbreitt – þegar heimilisofbeldi lá a.m.k. í þagnargildi – en á engan rétt á sér í dag. Svo djúpt er kannski ekki hægt að taka í árinni um annan úrskurð héraðsdóms, sem féll fyrr á árinu, en þó er fyllsta ástæða til að velta fyrir sér hvaðan dómaranum komu röksemdir hans. Hér er um að ræða úrskurð, sem felldur var í forsjár- máli hjóna, sem höfðu skilið og áttu tvö börn, átta og fimm ára. Dómari við Héraðsdóm Reykjavík- ur komst að þeirri niðurstöðu að báðir foreldrar væru prýðilega hæfir til að fara með forsjá barnanna. M.a. kom fram að faðirinn ynni heima. Rökstuðningur dómarans fyrir því að dæma móðurinni forsjána var þessi: „Börnin, sem hér um ræðir, eru ung að aldri. Á þeim aldri þurfa börn meir á móður sinni að halda en föður.“ Föðurnum, sem hafði fram að því tekið virkan þátt í uppeldi barnanna til jafns við móðurina, var því dæmdur fjögurra daga umgengnisréttur við börnin í mánuði hverjum; aðra hverja helgi. „Við þessa ákvörðun er miðað við að sem minnst röskun verði á högum barnanna á virkum dögum vikunnar,“ segir í úrskurðinum – sem síðar var staðfestur í Hæstarétti. Þessi úrskurður hefði vafalaust þótt ósköp eðlilegur fyrir einhverjum árum eða áratugum. Hin almennu viðhorf í samfélaginu hafa hins veg- ar breytzt. M.a. hefur Alþingi sett lög um fæð- ingar- og foreldraorlof, þar sem gengið er út frá því að mæður og feður séu jafnhæfir uppalendur, og að börn þurfi jafnt á báðum foreldrum sínum að halda. Og hér eru líka jafnréttislög, sem kveða á um jafna stöðu og rétt karla og kvenna. Ekkert kom fram í áðurnefndu máli, sem benti til þess að annað foreldrið væri lakara en hitt. Hvernig er þá hægt að slá því fram eins og ósköp eðlilegum hlut að fimm og átta ára börn þurfi meira á móð- ur sinni að halda en föðurnum? Og hvernig getur það verið minni röskun á högum barna að svipta þau samvistum við föður sinn 26 daga í mánuði en að leyfa þeim að gista hjá honum einhverja virka daga? Gamlir fordómar um það hvað kynin geti eða geti ekki eiga ekkert erindi inn í úrskurði ís- lenzkra dómstóla. Það á að vera liðin tíð. Morgunblaðið/RAX Súlnatindar og sést í Skeiðarárjökul. „Ýmsum Evrópu- mönnum hefur þó hætt til þess und- anfarna daga að túlka sigur Bush sem svo að Banda- ríkjamenn upp til hópa séu þeirrar skoðunar að staður konunnar sé á heim- ilinu, samkyn- hneigðra í skápnum og byssunnar á nátt- borðinu. Myndin er að sjálfsögðu ekki svo einföld.“ Laugardagur 6. nóvember
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.