Morgunblaðið - 07.11.2004, Blaðsíða 38
38 SUNNUDAGUR 7. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Margrét Hannesdóttir fráNúpsstað var í sendi-ferð á næsta bæ þegarhún varð vör Kötlu-
gossins 12. október 1918, að hana
minnir um fjögurleytið síðdegis. „Á
heimleiðinni sé ég að það er ljósa-
gangur. Ég átti ekki von á því í
heiðskíru veðri. Mér fannst það ætti
að vera leiðinlegt veður þegar
skruggugangur var. En þetta var
eitthvað svo einkennilegt. Þegar ég
kom heim fór ég að tala um af
hverju það væri ljósagangur og
samt heiðskírt, þá var það bara sagt
einhver vitleysa! Það var ekkert
verið að taka mark á krökkum,“
segir Margrét og hlær. Hún er
fædd 15. júlí 1904 og var því 14 ára
þegar þetta gerðist. Þegar leið á
kvöldið varð fólk meira vart við
ljósaganginn og gosmökkinn úr
Kötlu.
Lætin bergmáluðu í Lómagnúp
„Fólk fór að fara á ýmsa staði til
að sjá þetta betur og þá sást ösku-
strókurinn og ljósagangurinn beint
úr Kötlu. Það leyndi sér ekkert
hvaðan þetta kom.“ Margrét segir
að mökkurinn hafi verið tilkomu-
mikill ásýndar, þótt engum hafi þótt
gaman að horfa á þetta. Fólk renndi
í grun hvað þetta gæti kostað. Eld-
ingarnar hlupu eftir mekkinum með
tilheyrandi drunum. Lætin berg-
máluðu í Lómagnúpnum og fjöllun-
um í kring.
„Ég hef aldrei heyrt annan eins
skruggugang. Lætin voru óskap-
leg,“ segir Margrét. „Um nóttina
svaf enginn maður því það var svo
mikill gauragangur, verri en nokkr-
ar skruggur. Skepnurnar voru
hræddar og hundarnir vildu fara inn
í bæ og liggja nálægt fólkinu. Ösku-
fallið var þvílíkt að það sá ekki út úr
augum. Alveg koldimmt.“
Margrét segist ekki minnast þess
að fólk hafi verið beinlínis hrætt við
þennan fyrirgang. „En það voru all-
ir einhvern veginn miður sín yfir
þessu. Það datt öllum í hug að þessu
fylgdu einhver ósköp.“
Morguninn eftir var enn mikið
öskufall, en fór að birta um hádegið.
Þegar fólkið fór að hreyfa sig um
morguninn minnist Margrét þess að
amma hennar, Valgerður Einars-
dóttir, sagði: „Ég hlýt að vera blind.
Ég sé ekki nokkra glóru.“ Hún
sagði Jóni Jónssyni, afanum á heim-
ilinu og eiginmanni sínum, að
kveikja á lampanum. Hann kveikti
ljósið og þá fór gamla konan að sjá.
Þegar út var komið var meira en
skóvarpa aska yfir öllu.
Sett á Guð og gaddinn
Margrét segir að gosið hafi komið
í kjölfar mikils sprettuleysis og hey-
leysis um sumarið. Bændur voru því
margir heylitlir og treystu á vetr-
arbeit. „Það var ekki hægt að gefa
fénu nema rétt fram að jólum. Þá
var allt hey búið. Eftir það var bara
að treysta á Guð og gaddinn. Það
tókst misjafnlega og varð voðalegur
fellir. Askan tók fyrir beit og fór illa
með féð. Það varð veikt af þessu.
Það harðgerasta lifði og það sem
gekk lengst að heiman, inni í Núps-
staðaskógi. Það lifði frekar þar.
Heimaféð var voðalega illa farið. Í
mínu minni var aldrei fjárfellir
heima, nema þegar þetta kom fyr-
ir.“
Askan kom líkt
og regnskúrir
Filippusi Hannessyni, sem enn
býr á Núpsstað, er í fersku minni
myrkrið sem fylgdi öskufallinu úr
Kötlu. Hann er fæddur 2. desember
1909 og var því tæpra níu ára þegar
Katla gaus.
„Fólk undraðist að það ætlaði
aldrei að birta morguninn eftir að
gosið hófst. Það var svo dimmt inni
að það varð að kveikja ljós. Ösku-
skúrirnar gengu yfir sveitina, ekki
ólíkt og miklar regnskúrir. Hrepp-
stjórinn úr Öræfunum var hér á
ferð og lenti í þessu. Hann leitaði
skjóls inni í bæ og gisti um nóttina.
Skúrirnar komu hér yfir í nokkra
daga eftir að gosið byrjaði.“
Ekki sést til Kötlu frá bænum á
Núpsstað því fjöll skyggja á. Gos-
mökkurinn úr Kötlu náði svo hátt að
hann sást yfir fjöllin. Filippus segir
að þau á Núpsstað hafi gengið fram
á túnið til að sjá mökkinn betur.
Ljósagangur og samt heiðskírt
Systkinin Margrét og
Filippus Hannesarbörn frá
Núpsstað muna vel Kötlu-
gosið 1918. Margrét er nú
100 ára og Filippus að
verða 95 ára. Mikill ljósa-
gangur, gríðarlegar skrugg-
ur og svartamyrkur vegna
öskufalls fylgdi gosinu. Þau
sögðu Guðna Einarssyni
og Ragnari Axelssyni
frá Kötlugosinu.
Morgunblaðið/RAX
Systkinin á Núpsstað, Filippus og Margrét Hannesarbörn. Þegar myndin var tekin á liðnu sumri var Margrét nýorðin 100
ára og Filippus var 94 ára. Þau muna vel eftir Kötlugosinu 1918.
’Um nóttina svaf enginn maður því það var svomikill gauragangur, verri en nokkrar skruggur.
Skepnurnar voru hræddar og hundarnir vildu fara
inn í bæ og liggja nálægt fólkinu. Öskufallið var
þvílíkt að það sá ekki út úr augum.
Alveg koldimmt.‘
Velkomin í Eignamiðlun, elstu starfandi fasteignasölu á landinu.
Velkomin í trausta og ábyrga þjónustu hjá fólki sem er með áratuga reynslu af fasteignaviðskiptum.
Velkomin í pottþétt fasteignaviðskipti,
-við sjáum um allt fyrir þig, -nema flutningana.
Velkomin heim!
ÍSLEN
SKA
A
U
G
LÝSIN
G
A
STO
FA
N
/SIA
.IS EIG
26088 LJÓ
SM
YN
D
: SILJA
M
A
G
G
Síðumúla 21 sími 588 90 90 www.eignamidlun.is