Morgunblaðið - 07.11.2004, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 07.11.2004, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. NÓVEMBER 2004 45 UMRÆÐAN Suðurlandsbraut 4a • 108 Rvk. • Fax 533 4811 • midborg@midborg.is 533 4800 Björn Þorri hdl., lögg. fastsali, Karl Georg hrl., lögg. fastsali. La gavegur 182 • 105 Rvík • Fax 53 481 • i r idborg.is Mjög falleg 72,8 fm 3ja herb. íbúð á 4. hæð í lyftuhúsi á eftirsótt- um stað. Íbúðin skiptist í flísalagða forstofu, parketlagt hol, gott eldhús, baðherbergi með baðkari, parketlagða stofu með suð- austur svölum og tvö parketlögð svefnherbergi með skápum. Nýleg gólfefni á íbúð. 5041. Verð 14,1 millj. Sigurður, sími 895 0201, sýnir í dag milli kl. 14.00 og 16.00. BOÐAGRANDI 7 - OPIÐ HÚS Suðurlandsbraut 54 við Faxafen, 108 Reykjavík, sími 568 2444, fax 568 2446. Ingileifur Einarsson, lögg. fasteignasali. Byggingaraðli Húsafl ehf. Sóleyjarimi 11 er 5 hæða glæsilegt steinsteypt lyftu- hús á frábærum útsýnisstað á Landssímalóðinni í Grafarvogi og er byggt af byggingafélaginu Húsafli. Í húsinu eru 2ja, 3ja og 3ja–4ra herb. íbúðir sem seljast fullbúnar án gólfefna. Íbúðirnar eru allar með sérinn- gangi af glerlokuðum svalagangi og öllum íbúðunum fylgir sérmerkt bílastæði í fullbúinni og lokaðri bíla- geymslu. Innangengt er úr bílageymslu í sameign og lyftu. Að utan verður húsið einangrað utanfrá og klætt með báraðri álklæðningu, en hliðar á svalagangi og svöl- um verða einangraðar innanfrá á hefðbundinn hátt og múrhúðaðar með litmúr. Lóð verður fullfrágengin með malbikuðum bílastæðum og innkeyrslu, hellu- lögðum stígum, grasi og gróðri. GLÆSILEG NÝBYGGING Á LANDSSÍMALÓÐINNI Í GUFUNESI VIÐ SPÖNGINA Íbúðirnar eru mjög vel skipulagðar, allar með góðu útsýni og stórum suðursvölum. Þvottaherbergi er innan íbúðar og sérgeymsla í kjallara. Mynddyrasími verður í öllum íbúðunum. Íbúðirnar eru í einka sölu MEINBÆGINN maður komst svo að orði eftir að hafa horft á þá Kristján Þór Júlíusson, bæjar- stjóra Akureyrar, og Stefán Jón Hafstein, formann fræðsluráðs Reykja- víkur, í Kastljósi Sjónvarpsins 26. októ- ber sl. að þar hefðu haldist í hendur norð- lenskur rótarskapur og sunnlensk sjálf- umgleði. Mörgum kennurum mun víst ekki hafa verið skemmt þegar þeir horfðu á þessa samherja viðra „nýj- ar“ hugmyndir sínar um kjarasamning kennara og sveitarfélaga. Viðbrögðin voru ýmist á þá leið að enn einu sinni væri hamrað á þeim gamalgrónu fordómum að kennarar væru starfsstétt sem ekki nennti að vinna fulla vinnu, eða þá að nú ætti endanlega að hneppa kennara í þrældóm. Vissulega er þessi reiði að mörgu leyti skiljanleg, einkum þegar haft er í huga að vel mátti ætla að þessir ágætu menn hefðu á stundum ekki hundsvit á því sem þeir voru að segja. Þannig hljómaði t.d. kjarninn í tillögu Kristjáns Þórs: „Ég er bara að tala um að samn- ingurinn, og nú talar maður mjög gróft, sé einfaldlega þannig að kennari ráðist til grunnskóla og hafi ákveðinn kennslustundafjölda í viku, eða vinnustundafjölda fyr- irgefið þið, og þegar hann er upp- fylltur og honum ráðstafað af skólasamfélaginu í viðkomandi skóla, skólastjórnendum og kenn- urum, þá er annaðhvort um það að ræða að viðkomandi vinnur ekki meira í þeirri vikunni eða þá hann tekur að sér önnur verkefni og yf- irvinnu.“ Og Stefán Jón bergmálaði að þau fyrir sunnan hefðu verið að ræða „nákvæmlega sömu hug- myndirnar“. Með vissum hætti er skiljanlegt að kennarar fatti ekki snilldina í þessari tillögu Kristjáns Þórs og líti jafnvel á hana sem móðgun. Í fljótu bragði er nefni- lega ekkert nýtt að sjá í henni. Það er líka eðlilegt að menn sjái ekki viskuna í eftirfarandi orðum Stefáns Jóns: „Menn hafa horft í angist upp á það að verið væri útkljá útfærslu á skólastefnu í kjarasamningum og njörva þetta ennþá meira niður, skólastarfið með nákvæmum tíma- einingum, mælingum og ákvæðum, girðingum innan samninga og hvernig skuli vinna vinnuna, sem nánast útilokar sveigjanlegt skóla- starf. Eða að við þróum okkur meira í þá átt sem hófst með síð- asta kjarasamningi.“ Illkvittnir menn gætu jafnvel túlkað þessi orð Stefáns á þá leið að hann líti svo á að „skólastefnu“ R-listans sé ekki ætlað að vera nema orðin tóm og því þurfi ekk- ert að semja um útfærslu hennar. Síðast en ekki síst gætu þeir sem til þekkja skilið þá fullyrðingu formanns fræðsluráðs Reykjavíkur að meðallaun kennara í Reykjavík séu 256 þúsund krónur á mánuði sem dæmi um ótrúlega vanþekk- ingu. Hér er í rauninni um að ræða meðalheildarlaun allra starfs- manna innan Félags grunnskóla- kennara og Skóla- stjórafélagsins. Gera má ráð fyrir að með- allaun þessi myndu lækka strax um 20 til 30 þúsund við það að launum skólastjóra yrði kippt burt úr þessari summu. Hér er líka um að ræða unna yfirvinnu eink- um kennara á ung- lingastigi og síðast en ekki síst áunnin tekju- réttindi elstu, reynd- ustu og menntuðustu kennaranna. En auðvitað eru svona vanga- veltur ekkert annað en dæmi um vænisýki sem því miður er ekki óalgeng meðal kennara. Það er ekkert að því þótt aðrir eins menn og Kristján Þór Júlíusson og Stef- án Jón Hafstein láti eins og þeir séu ekki alveg með smáatriðin á hreinu. Það er bara hluti af plott- inu. Mestu máli skiptir að þarna eru menn sem sjá skóginn fyrir trján- um, menn sem, eins og skáldið sagði, hugsa í öldum en ekki árum. Kennarar vita kannski ekki hví- líkur afburða maður Kristján Þór er í samningagerð. Sem bæjarstjóri Ísafjarðar samdi hann um að flaggskip Ísfirð- inga, Guðbjörgin, færi til Akureyr- ar og að hann yrði bæjarstjóri Ak- ureyrar fyrir vikið. Í ofanálag tókst honum svo að ná á fjórðu milljón króna út úr Ísafjarðarbæ fyrir óunna vinnu. Þetta geta ekki nema snillingar. Það er ekki ónýtt fyrir grunn- skólakennara að eiga svona hauk í horni sem þegar hefur sýnt lipurð sína í verki með því að lokka for- mann fræðsluráðs Reykjavíkur og væntanlegt borgarstjóraefni, Stef- án Jón Hafstein, í lið með sér. Þegar menn skyggnast dýpra ofan í tillögu þeirra Kristjáns Þórs og Stefáns Jóns að „draumasamn- ingi“ grunnskólakennara þá sjá þeir strax að hinn rauði þráður hennar er einföldun og jöfnuður. Kennarar eiga að vinna í skól- anum sínum frá átta til fjögur, rétt eins og þeir hafa gert. Það nýja er að nú þurfa þeir ekki lengur að vera að puða í skólanum fram á kvöld eða um helgar. Og það sem meira er þeir eiga ekki að taka vinnuna með sér heim. Þeir eru búnir í vinnunni klukkan fjögur! Svo taka frístundirnar við. Og launin. Þeim er jafnað í 250 þúsund króna mánaðarlaun á hvern kennara, óháð stöðu, mennt- un, aldri eða búsetu, og síðan eru þau hækkuð um 26% og þá verða laun grunnskólakennara 315 þús- und krónur á mánuði! Þetta er tær snilld. Það er óskiljanlegt að samn- inganefnd kennara skyldi ekki stökkva á þetta tilboð forvígis- manna tveggja lykilsveitarfélaga í þessari kjaradeilu en láta þess í stað þvinga upp á sig þeirri hung- urlús sem fólst í miðlunartillögu ríkissáttasemjara. Misstu kennarar af „draumasamningnum“? Vigfús Geirdal fjallar um kennaradeiluna ’Og Stefán Jón berg-málaði að þau fyrir sunnan hefðu verið að ræða „nákvæmlega sömu hugmyndirnar“.‘ Vigfús Geirdal Höfundur er sagnfræðingur og kennari. Fréttir í tölvupósti
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.