Morgunblaðið - 16.11.2004, Blaðsíða 1
Margar
kökur og
smáarSmákökur úr smiðju Hússtjórn-
arskólans Daglegt líf
Semur fyrir
stórstjörnur
Arnþór Birgisson á stefnumót við
norræna menningu Menning
STOFNAÐ 1913 313. TBL. 92. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 16. NÓVEMBER 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Allt um heimsbikarmótið Samn-
ingar þjálfara kvennalandsliðanna
lausir Gylfi Einarsson til Leeds
Íþróttir í dag
COLIN Powell, utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, hefur sagt af sér. Háttsettur
bandarískur embættismaður sagði seint í
gærkvöldi að
Condoleezza Rice
þjóðaröryggisráð-
gjafi hefði verið
beðin um að taka
við embættinu.
Hermt var að
Steve Hadley að-
stoðarþjóðarör-
yggisráðgjafi tæki
við embætti Rice.
Spencer Abra-
ham orkumálaráð-
herra, Ann Vene-
man landbúnaðarráðherra og Rod Paige
menntamálaráðherra hafa einnig sagt af
sér.
Powell kvaðst í gær ætla að gegna emb-
ættinu þar til öldungadeild þingsins stað-
festi eftirmann hans.
Afsögn hans kom ekki á óvart og hefur
lengi verið talið að hann myndi aðeins sitja
eitt kjörtímabil. „Að loknum kosningum tel
ég tímabært að láta af embætti utanríkis-
ráðherra og snúa mér að einkalífinu,“ sagði
í afsagnarbréfi sem Powell skrifaði á föstu-
dag. „Ég er ánægður með að hafa verið í liði
sem hóf stríð gegn hryðjuverkum í heim-
inum, frelsaði Afgana og írösku þjóðina.“
Powell hefur verið talinn rödd hófsemi í
stjórn George W. Bush. Leiðtogar Evrópu-
ríkja lofuðu Powell í gær og kváðust vona að
samstarfið við eftirmann hans yrði jafngott.
Rice sögð
eiga að
taka við
af Powell
Utanríkisráðherrann og
þrír aðrir ráðherrar í
stjórn Bush segja af sér
Colin Powell og
Condoleezza Rice.
Washington. AFP, AP.
Fulltrúi/16
ÍSLANDSBANKI tilkynnti í
gær að bankinn ætli að gera til-
boð í allt
hlutafé í
norska bankan-
um BNbank.
Tilboðsupp-
hæðin er 320
krónur á hlut-
inn, samanlagt
3,1 milljarður
norskra króna
sem samsvarar
33,3 milljörðum
íslenskra króna.
Íslandsbanki á fyrir 30% hluta-
fjár í BNbank og er þegar búinn
að tryggja sér 16% til viðbótar.
Verði kaupin að veruleika mun
Íslandsbanki tvöfalda inn- og út-
lánaveltu sína auk þess sem eign-
ir bankans munu aukast um 415
milljarða króna. Þar með verða
eignir bankans orðnar ríflega
1.000 milljarðar, gangi kaup Ís-
landsbanka á Kreditbanken í
gegn, að sögn Bjarna Ármanns-
sonar, forstjóra Íslandsbanka.
Bjarni segir enn fremur að
kaupin séu mjög mikilvæg fyrir
Íslandsbanka því áhættudreifing
bankans muni aukast verulega og
hann verði norsk-íslenskur banki.
Þegar fréttist af tilboði Ís-
landsbanka tóku hlutabréf í
BNbank kipp í norsku kauphöll-
inni og lokaverð hlutarins í gær
var 333 norskar krónur en opn-
unarverð var 270 krónur. Á vef-
síðu norska viðskiptablaðsins
Dagens Næringsliv er haft eftir
norskum fjármálasérfræðingum
að þetta bendi til þess að tilboð
Íslandsbanka hafi verið of lágt.
Tore Gløersen, sérfræðingur hjá
Terra Fonds, telur í kjölfarið lík-
legt að KB banki auk Danske
Bank muni keppa við Íslands-
banka um BNbank en í samtali
við Morgunblaðið sagði Hreiðar
Már Sigurðsson, forstjóri KB
banka, að þetta ætti ekki við rök
að styðjast. KB banki hefði eng-
ar áætlanir um að kaupa
BNbank.
Íslandsbanki tvö-
faldar veltu sína
Lokaverð í BN-bankanum yfir tilboði Íslandsbanka
Íslandsbanki vill norskan/14
Bjarni
Ármannsson
NOKKRAR norskar lýta-
læknastofur bjóða nú upp á
gjafabréf sem hægt er að
kaupa handa fólki sem vill fá
fegrunaraðgerð í jólagjöf, að
sögn Aftenposten.
„Þetta er ekki jólagjöf sem
menn gefa hverjum sem er,
en ef það eina sem mamman
óskar sér í jólagjöf er
stinnari magi eða stærri
brjóst þá væri það tilvalið ef
pabbinn og börnin gæfu
henni gjafabréf saman,“
hafði fréttavefur Aftenposten
eftir talsmanni einnar af
lýtalæknastofunum. Þær
auglýsa ekki gjafabréfin en
hafa fengið fyrirspurnir um
þau.
Aðrar lýtalæknastofur
telja ekki við hæfi að setja
lýtalækningar á jólagjafa-
markaðinn.
Lýtalæknar
bjóða upp á
gjafabréf
ALLIR kennarar við Grunnskóla
Fáskrúðsfjarðar, fimmtán að tölu,
auk aðstoðarskólastjórans, sögðu
upp störfum í gær. Ástæðan sem
þeir gefa er staðan í kjaramálum
grunnskólakennara. Allir kennarar
skólans mættu til vinnu í gær. Þá
sögðu sjö kennarar við grunnskól-
ann á Stöðvarfirði upp störfum.
Sautján kennarar í Mosfellsbæ
höfðu sagt upp störfum í gær. Víðar
voru uppsagnir í grunnskólum.
Óvissa ríkir um hvort kennarar
mæti til vinnu í dag. Hugsanlegt er
að foreldrar muni þurfa að hjálpa til
í skólunum í dag svo ekki þurfi að
senda börnin heim.
Þórhildur Helga Þorleifsdóttir,
skólastjóri Grunnskóla Fáskrúðs-
fjarðar, segir að undanfarin ár hafi
verið unnið markvisst að því að
fjölga réttindakennurum við skól-
ann og því sé staða mála mikil von-
brigði.
„Ég er ekki viss um að við náum
öllum kennurunum til baka,“ sagði
Þórhildur í gærkvöld. „Það er allt
annað landslag hér en í Reykjavík,
þar sem fólk getur farið í aðra
vinnu. Hér þýðir þetta að einhverjir
munu líklega flytja í burtu.“
Ekki kennt í Laugalækjarskóla
Fræðslunefnd Austurbyggðar
fundaði um málið í gærkvöld og
samþykkti bókun þess efnis að
nefndin harmi þá stöðu sem komin
er upp í grunnskólunum og vonast
hún til að allir hlutaðeigandi aðilar
finni lausn á þeim vanda sem upp er
kominn svo bjarga megi skólastarfi
á skólaárinu og til framtíðar. Jósef
Friðriksson, formaður fræðslu-
nefndar, segir að stöðurnar verði
ekki auglýstar strax, enda vonist
allir til þess að lausn finnist á deil-
unni.
Fræðsluyfirvöld í Reykjavík
funduðu í gær með skólastjórum og
er ætlan þeirra að halda úti fullu
skólastarfi í dag. Víða ríkir óvissa
um hvort kennarar mæti til vinnu.
Hafa foreldrafélög í nokkrum skól-
um verið beðin að koma að málum,
fari svo að kennarar mæti ekki.
Seint í gærkvöldi kom í ljós að ekki
yrði kennt í Laugalækjarskóla í
dag. Auður Stefánsdóttir, skóla-
stjóri skólans, sagðist hafa fengið
fréttir af því að röskun yrði á skóla-
starfi víðar í borginni í dag.
BÖRN, sem send voru heim í gær þegar ljóst var að
flestir kennarar mættu ekki til starfa, brugðu mörg
á það ráð að leika sér í nýföllnum snjónum til að
drepa tímann. Nemendur Hlíðaskóla og krakkar á
Seltjarnarnesi drógu t.d. mörg hver fram sleðana og
snjóbrettin og fóru í nærliggjandi brekkur að renna
sér. Þá tóku þessi svölu ungmenni upp á því að spila
fótbolta í snjónum og skemmtu sér konunglega.
Morgunblaðið/Jim Smart
Enginn skóli en nóg af snjó
Foreldrar beðnir um
að hjálpa til í skólunum
Allir kennarar
Grunnskóla
Fáskrúðsfjarðar
hafa sagt upp
Kennaradeilan/6/Miðopna
SÆNSK samkeppnisyfirvöld hafa krafist
þess að olíufélög í landinu verði sektuð um
405 milljónir sænskra króna, sem samsvar-
ar tæpum 3,93 millj-
örðum króna, vegna
verðsamráðs. Þetta
kemur fram í
Svenska Dagbladet.
Árið 1999 var
gerð húsleit hjá
a.m.k. fimm sænsk-
um olíufélögum og
fundust ýmis gögn
sem sönnuðu að for-
ystumenn félag-
anna höfðu hist á
laun nokkrum sinn-
um það ár og fundað
um verðlagningu
bensíns. Ákveðið var að lækka verð til mik-
ilvægra viðskiptavina og jafna það út með
hækkun til almennra viðskiptavina. Dæmt
verður í málinu í febrúar á næsta ári.
Verðsamráð
í Svíþjóð
!"
#"!
$%&'
(
&'
♦♦♦