Morgunblaðið - 16.11.2004, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 16.11.2004, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. NÓVEMBER 2004 31 UMRÆÐAN Á DEGI íslenskrar tungu verð ég að vekja athygli þína á hnignun móðurmáls og feðra- tungu. Háskóli Íslands lætur sér fátt um finnast. Happdrætti hans auglýsir í sjónvarpi þjóðarinnar og notar engilsaxneskan söng. Sími Hollvinasamtaka Háskóla Íslands er lokaður vegna van- skila. Kvenfélagasamband Íslands lætur svara á ensku á símsvara sínum. Sama er að segja um símsvara prófessors í fé- lagsfræði. Síminn, stofnun sem hlutafélag í meirihlutaeigu ís- lenska ríkisins, arftaki Lands- síma Íslands, auglýsir heilsíðu- auglýsingu í dagblöðum og hvetur Íslendinga til „kollekt- símtala“ við byssubófa, sem munda skotvopn sín. Íslandspóstur auglýsir í sjón- varpi og ver mestum hluta aug- lýsingar sinnar í enskan söng. Sneiðir hjá vel þekktum íslensk- um söng um Gunnar póst. Barnakennarar í verkfalli ræða um „að vinna með börn“. Á degi íslenskrar tungu spyr ég þig, sem eitt sinn hvattir til dáða, ertu ánægð með breytingu þá sem orðin er? Nú heita Flugleiðir Iceland- air. Hótel Saga heitir Radisson SAS. Á 80 ára afmæli Lúðrasveitar Reykjavíkur lék sveitin ekkert lag eftir forgöngumenn ís- lenskra tónskálda og forgöngu- manna um sönglúðrasveitir. Ætlar þú að hóa í lætin og hvetja þjóð þína til dáða? Eða ætlarðu að sjóða niður pestar- kjöt útdauðra þjóðtungna? Fyr- ir japönsku yenin og hafa síma Hollvinasamtakanna lokaðan áfram? Þú skilar kannski kveðju til Friðriks krónprins og prinsessu hans og segir þeim að þau séu ekki skötuhjú að dómi Íslend- inga þótt Ríkissjónvarpið hafi lýst þeim þannig. Fjallkona er með Baug undir augum. Hvenær ætlarðu að vitna í ljóð Snorra Hjartarson- ar: Land, þjóð og tunga? Kær kveðja. Pétur Pétursson Kæra Vigdís Höfundur er þulur. ÁSKRIFTARDEILD netfang: askrift@mbl.is, sími 569 1122 Greiðsluáskorun Innheimtumenn ríkissjóðs skora hér með á gjaldendur eftirtalinna gjalda að gera skil nú þegar eða í síðasta lagi innan 15 daga frá dagsetningu áskorunar þessarar: Gjöldin eru: Staðgreiðsla og tryggingagjald sem fallið hafa í eindaga til og með 15. nóvember 2004, virðisaukaskattur sem fallið hefur í eindaga til og með 5. nóvember 2004 og önnur gjaldfallin álögð gjöld og ógreiddar hækkanir er fallið hafa í eindaga til og með 15. nóvember 2004 á staðgreiðslu, trygg- ingagjaldi og virðisaukaskatti, virðisaukaskatti í tolli, vanskilum launagreiðenda utan staðgreiðslu, áfengisgjaldi, launaskatti, bifreiðagjaldi, úrvinnslugjaldi, slysatryggingagjaldi ökumanna, föstu árgjaldi þungaskatts, þungaskatti skv. ökumælum, viðbótar- og aukaálagningu söluskatts vegna fyrri tímabila, skemmtanaskatti og miðagjaldi, virðisaukaskatti af skemmtunum, tryggingagjaldi af skipshöfnum ásamt skráningargjöldum, búnaðargjaldi, iðgjaldi í lífeyrissjóð bænda, vinnueftirlitsgjaldi, vörugjaldi af inn- lendri framleiðslu, vörugjaldi af ökutækjum, eftirlitsgjöldum, aðflutningsgjöldum og útflutningsgjöldum, skilagjaldi á umbúðir, verðbótum á ógreiddan tekjuskatt og verðbótum á ógreitt útsvar, fasteignagjöld- um, skipulagsgjaldi, skipagjaldi, fiskisjúkdómagjaldi, jarðarafgjaldi og álögðum þing- og sveitarsjóðs- gjöldum, sem eru: Tekjuskattur, útsvar, aðstöðugjald, sérstakur tekjuskattur manna, eignarskattur, sérstakur eignar- skattur, slysatryggingagjald vegna heimilisstarfa, tryggingagjald, iðnlánasjóðs- og iðnaðarmála- gjald, þróunarsjóðsgjald, kirkjugarðsgjald, markaðsgjald, gjald í framkvæmdasjóð aldraðra og skattur af verslunar- og skrifstofuhúsnæði, ofgreiddar barnabætur, ofgreiddur barnabótaauki og ofgreiddar vaxtabætur. Fjárnáms verður krafist án frekari fyrirvara að þeim tíma liðnum fyrir vangoldnum eftirstöðvum gjald- anna ásamt dráttarvöxtum og öllum kostnaði, sem af innheimtu skuldarinnar kann að leiða, á kostnað gjaldenda. Athygli skal vakin á því að auk óþæginda hefur fjárnám í för með sér verulegan kostnað fyrir gjaldanda. Fjárnámsgjald í ríkissjóð er allt að 11.500 kr. fyrir hvert fjárnám. Þinglýsingargjald er 1.200 kr. og stimpilgjald 1,5% af heildarskuldinni, auk útlagðs kostnaðar eftir atvikum. Eru gjaldendur hvattir til að gera full skil sem fyrst til að forðast óþægindi og kostnað. Þá mega þeir gjaldendur, sem skulda staðgreiðslu, staðgreiðslu tryggingagjalds, vörugjald, afdreginn fjármagnstekjuskatt, áfengisgjald og virðisaukaskatt, búast við því að starfsemi þeirra verði stöðvuð án frekari fyrirvara, þeir gjaldendur er skulda bifreiðagjöld og þungaskatt mega eiga von á að skráningar- númer verði tekin af ökutækjum þeirra án frekari fyrirvara og þeir gjaldendur sem skulda gjöld þar sem lögveð fylgir mega búast við að send verði út sérstök greiðsluáskorun fyrir gjaldföllnum kröfum. Greiðsluáskorunin hefur ekki áhrif á þessi innheimtuúrræði þannig að fyrrgreindur 15 daga frestur frá dagsetningu áskorunar þessarar gildir ekki í þessum tilvikum. Reykjavík, 16. nóvember 2004. Tollstjórinn í Reykjavík Sýslumaðurinn í Kópavogi Sýslumaðurinn í Hafnarfirði Sýslumaðurinn í Keflavík Sýslumaðurinn á Keflavíkurflugvelli Sýslumaðurinn á Akranesi Sýslumaðurinn í Borgarnesi Sýslumaðurinn í Stykkishólmi Sýslumaðurinn í Búðardal Sýslumaðurinn á Ísafirði Sýslumaðurinn í Bolungarvík Sýslumaðurinn á Patreksfirði Sýslumaðurinn á Hólmavík Sýslumaðurinn á Siglufirði Sýslumaðurinn á Sauðárkróki Sýslumaðurinn á Blönduósi Sýslumaðurinn á Akureyri Sýslumaðurinn á Húsavík Sýslumaðurinn á Ólafsfirði Sýslumaðurinn á Seyðisfirði Sýslumaðurinn á Eskifirði Sýslumaðurinn á Höfn Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum Sýslumaðurinn á Selfossi Sýslumaðurinn í Vík Sýslumaðurinn á Hvolsvelli Gjaldheimta Vestfjarða Gjaldheimta Austurlands Gjaldheimtan í Vestmannaeyjum Alltaf á mi›vikudögum! MAGNA‹ MILLJÓNADÆMI Ef Ofurtala vikunnar er ein af útdráttartölunum sex bætist Ofurtölupotturinn við fyrsta vinninginn. Þannig getur fyrsti vinningur núna stækkað um 260 milljónir! Meiri spenna – fleiri milljónir E N N E M M / S IA / N M 14 0 9 7 Vertu me› fyrir kl.17. 22560 1101. vinningur 370milljónir Bónus-vinningur 20 milljónirsá stærstifrá upphafi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.