Morgunblaðið - 04.12.2004, Side 6

Morgunblaðið - 04.12.2004, Side 6
6 LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eyjólfur var einn dáðasti afreksmaður Íslendinga um miðja síðustu öld, en hann synti meðal annars frá Reykjavík til Akraness. Saga hans er í senn saga ótrúlegs eldhuga og einstæð lýsing á viðburðaríku lífi fólks í bæ sem breyttist í borg. „Bók Eyjólfs er eins og hann sjálfur, hógvær, vönduð, fyndin og bráðskemmtileg.“ - Pétur Pétursson, þulur „Bráðskemmtileg“ 3. Ævisögur og endurminningar Penninn Eymundsson og Bókabú›ir MM 24. –30. nóv. LANDEIGENDUR Reykjahlíðar í Skútustaðahreppi sendu í gær iðnað- arráðherra formlegt erindi varðandi áform um að rannsaka jarðhita á svo- nefndu Sandabotna- og Gjástykkis- svæði í landi Reykjahlíðar. Jafnframt er óskað eftir leyfi ráðherra til leitar og rannsóknar á svæðinu að norður- mörkum Reykjahlíðar. Orkuveita Norðurlands stofnuð um verkefnið Í bréfi til ráðherra segir að land- eigendur hafi um nokkurt skeið kannað möguleika á því að standa sjálfir eða í samvinnu við aðra aðila að rannsóknum á hitaorku jarðar sinnar og í framhaldinu að virkjun þeirrar orku. Landeigendur hafi í samstarfi við Orkuveitu Reykjavíkur ákveðið að stofna einkahlutafélag, Orkuveitu Norðurlands ehf., sem hafi þann tilgang að vinna að undirbún- ingsrannsóknum og virkjun á hita- orku í Sandabotnum og Gjástykki, auk samvinnu um eignarhald og rekstur virkjunarmannvirkja og sölu og dreifingu á orku. Landeigendur muni leigja félaginu rétt sinn til könnunar og virkjunar á hitaorku á svæðinu. „Samningar um aðild Orkuveitu Reykjavíkur að þessu verkefni fé- lagsins og félaginu sjálfu eru á loka- stigi. Félagið verður þá í eigu land- eigenda Reykjahlíðar og Orkuveitu Reykjavíkur, með heimilisfesti í Reykjahlíð í Skútustaðahreppi.“ Kanna hvort háhiti sé nýtanlegur til virkjunar Í bréfi til ráðherra er óskað eftir að hið nýja félag fái forgang á nýting- arleyfi á hitaorku á svæðinu. Í lýsingu á fyrirhuguðum rann- sóknum félagsins segir að tilgangur- inn sé að leiða í ljós hvort á svæðinu sé háhiti sem nýtanlegur er til virkj- unar, enn fremur að gætt verði að hvort tengsl séu milli svæðanna og Kröflusvæðisins. Rannsóknir nýrra vinnslusvæða taki alla jafnan langan tíma og því þurfi að huga að ýmsum þáttum. Meðal þess sem stendur til að gera eru jarðfræðikort af svæð- unum þar sem fram koma berggerðir á umræddu svæði, eldvirkni, út- breiðsla hrauna, jarðhita og vatnafar. Þá séu rannsóknir á grunnvatni mik- ilvægur þáttur rannsókna fyrir jarð- hitavirkjanir og grunnvatnsstraumar þurfi að vera vel þekktir, bæði vegna vatnsöflunar og förgunar affalls- vatns. Sömuleiðis þurfi að gera at- huganir sem snerti umhverfi og grunnástand landsins, m.t.t. gróður- fars, dýralífs, veðurfars, loftgæða o.s.frv. Fram kemur að ekki liggi fyrir hvar mannvirki í tengslum við virkj- unina muni rísa og kanna þurfi hvaða leiðir séu hentugastar að svæðunum. Landeigendur Reykjahlíðar í Skútustaðahreppi í bréfi til iðnaðarráðherra Hið nýja félag fái forgang á nýtingu hitaorku á svæðinu RÍFLEGA 75% þjóðarinnar telja að Samkeppnisstofnun veiti fyr- irtækjum of lítið aðhald og um 2% telja að stofnunin veiti fyrirtækjum of mikið aðhald, að því er kemur fram í Þjóðarpúlsi Gallup. Nær 82% segja að það þurfi að auka umsvif stofnunarinnar en tæplega 3% að það eigi að draga úr umsvifum. Fram kom, að viðhorf til starf- semi Samkeppnisstofnunar eru ólík þegar greint er eftir því hvaða flokk fólk segist ætla að kjósa. Tveir af hverjum þremur stuðn- ingsmönnum stjórnarflokkanna telja að stofnunin veiti fyrirtækjum of lítið aðhald og 84–85% stuðnings- fólks Samfylkingar og Vinstri- hreyfingarinnar græns framboðs telja það einnig. Einnig kemur fram munur þegar greint er eftir aldri, þar sem fleira fólk á aldrinum 18 til 24 ára og 35 til 44 ára telur að Samkeppnisstofnun veiti nægj- anlegt aðhald en aðrir aldurshópar. Ekki reyndist munur á viðhorfi eft- ir kyni, menntun og búsetu. Telja Samkeppn- isstofnun veita of lítið aðhald ÍSLENSK stjórnvöld styrkja í dag kennslu í íslensku við 17 erlenda háskóla. Hátt á annað þúsund nem- ar stunda nám í íslensku við þessa skóla ár hvert að ótöldum fjölda er- lendra nema sem stunda íslensku- nám við Háskóla Íslands. Stofnun Sigurðar Norðdals hefur umsjón með íslenskukennslu við er- lenda háskóla af hálfu íslenskra stjórnvalda. Frá þessu er sagt í Stiklum, vef- riti utanríkisráðuneytisins um menningar- og landkynningarmál. Bent er á í vefritinu að stöðugt fari fram kynning á íslenskri menn- ingu við erlenda háskóla í öllum heimsálfum og mikilvægt sé fyrir sendikennara að þeir geti fylgst með íslenskum viðburðum erlendis. Kenna íslensku við 17 erlenda háskóla ÁRNI Magnússon, félagsmálaráð- herra, og Anna S. Valdemarsdóttir, framkvæmdastjóri Klúbbsins Geysis, hafa undirritað samkomulag félagsmálaráðuneytisins og klúbbs- ins vegna ráðningar til reynslu. „Samningurinn felur í sér að félags- málaráðuneytið veitir okkur 50% starf í eitt ár, sem þýðir að tveir fé- lagar í Geysi fá tækifæri til að starfa í ráðuneytinu og öðlast þannig ómet- anlega starfsreynslu“, sagði Anna S. Valdemarsdóttir í samtali við Morg- unblaðið. „Það hefur auðvitað gífurlega þýðingu fyrir okkur hér í Geysi að fá slíka „ráðningu til reynslu“ í starf fyrir félaga okkar sem geta þá reynt sig á vinnumarkaði og ekki síður skiptir máli að fá störf hjá svona góðri stofnun í góðu vinnuumhverfi,“ segir Anna og segist þess fullviss að fleiri fyrirtæki og stofnanir muni fylgja í kjölfarið. Klúbburinn Geysir, sem stofnaður var árið 1999, er rekinn samkvæmt alþjóðlegri hugmyndafræði Founta- in House, sem kom fyrst fram á sjónarsviðið árið 1948 í New York og er fyrir fólk sem á eða átt hefur við geðræn veikindi að stríða. Starfa um 400 klúbbar undir merkjum Fount- ain House í um þrjátíu löndum. Morgunblaðið/Golli Glatt var á hjalla í húsakynnum Klúbbsins Geysis þegar Árni Magnússon félagsmálaráðherra og Anna S. Valdemarsdóttir, framkvæmdastjóri Geysis, handsöluðu samninginn um ráðningu til reynslu. Ráðning til reynslu í félagsmálaráðuneytinu NIÐURSTÖÐU Samkeppnisstofn- unar um hvort heimilt sé að inn- heimta uppgreiðslugjald þegar lán eru greidd upp á lánstímanum fyrr en ákvæði viðkomandi skuldabréfs gera ráð fyrir er að vænta fljótlega. Miðstjórn Alþýðusambands Ís- lands og Neytendasamtökin beindu fyrirspurnum til Samkeppnisstofn- unar í september vegna ákvæða um uppgreiðslugjald sem er að finna í skuldabréfum banka og sparisjóða vegna íbúðalána. Samkeppnisstofnun leitaði álits banka og sparisjóða vegna þessa og er með svör þeirra nú til meðferðar. Samkeppnisstofnun hefur eftirlit með lögum um neytendalán nr. 121/ 1994, en þar segir meðal annars í 3. kafla laganna um greiðslu fyrir gjalddaga í 16. gr. „Neytanda skal heimilt að standa skil á skuldbind- ingum sínum samkvæmt lánssamn- ingi fyrir þann tíma sem umsaminn er. Notfæri neytandi sér heimild þessa á hann rétt á lækkun á heild- arlántökukostnaði sem nemur þeim vöxtum og öðrum gjöldum sem greiða átti eftir greiðsludag. Ekki er hægt að krefjast endurgreiðslu eða lækkunar á gjöldum sem eru óháð því hvenær greiðsla er innt af hendi. Ákvæði 1. mgr. á ekki við um greiðslu sem innt er af hendi fyrir gjalddaga þegar hún tengist ekki uppgreiðslu láns fyrir umsaminn lokagjalddaga eða annarri breytingu á umsömdum afborgunum láns.“ Erindi um uppgreiðslu- gjald afgreitt fljótlega VIÐ SAMÞYKKT fjáraukalaga fékk Náttúrufræðistofnun 32 millj- ónir aukalega til að mæta lækkun sértekna og þar var líka tekið á hús- næðismálum stofnunarinnar í Reykjavík. Í fjárlögunum fær stofn- unin að auki sérstakt framlag vegna náttúrufarskorta, segir um- hverfisráðherra. „En það er alveg ljóst að þarna er um vanda að ræða sem þarf að taka á,“ segir Sigríður Anna Þórðardóttir umhverf- isráðherra um fjárhagsvanda Nátt- úrufræðistofnunar. Í nýrri skýrslu Ríkisendurskoðunar kemur fram að stofnunin glími við alvarlegan fjár- hagsvanda og að árleg fjárveiting nægi ekki til rekstursins. „Við erum að fara yfir skýrsl- una og meta stöð- una,“ segir Sig- ríður Anna. „Það er auðvitað fullur vilji til að leysa þennan vanda. Við höfum þegar unnið að því í góðri samvinnu við stofnunina og munum halda því áfram.“ Sigríður Anna segir aðalvanda stofnunarinnar felast í því að sér- tekjur hennar hafa minnkað. „Þá er nauðsynlegt að líta til baka. Sér- tekjurnar jukust mjög á árunum 2000–2002 vegna þess að stofnunin tók að sér ýmis stór verkefni sem hún fékk sérstaka greiðslu fyrir. Þegar þessar sértekjur drógust síð- an saman gripu stjórnendur stofn- unarinnar til ýmissa ráðstafana, eins og t.d. að segja upp fólki.“ Sigríður Anna segir að nauðsyn- legt sé að skoða heildarmyndina áð- ur en gripið verði til frekari að- gerða. „Til dæmis kemur fram í skýrslu Ríkisendurskoðunar að stjórnsýsla stofnunarinnar sé flókin og ástæða sé kannski til að einfalda hana. Ég tel að það eigi að fara yfir þessi mál öll í heild sinni og taka síðan ákvarðanir í framhaldi af því.“ Umhverfisráðherra um fjárhagsvanda Náttúrufræðistofnunar Fær 32 milljónir til að mæta lækkun sértekna Sigríður Anna Þórðardóttir ÍSLENSKUR karlmaður um þrí- tugt hefur verið úrskurðaður í far- bann til 10. janúar vegna rann- sóknar á smygli á um 140 grömmum af kókaíni til landsins. Sá sem smyglaði því var handtek- inn á Keflavíkurflugvelli 23. nóv- ember og var sleppt að loknum yf- irheyrslum. Samkvæmt upplýsingum frá lög- reglunni á Keflavíkurflugvelli hafa nokkrir verið yfirheyrðir í tengslum við málið. Ekki fengust upplýsingar um hvernig sá sem sit- ur í farbanni er talinn tengjast mál- inu. Í farbann vegna smygls á kókaíni

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.