Morgunblaðið - 04.12.2004, Síða 8
8 LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Það er alveg synd með svona stæðilegan gaur, að hann skyldi ekki ná að þroskast meira,
hann heldur enn að pylsa og kók sé það besta sem við fáum.
Jón Ingi Kristjánsson,formaður Afls,starfsgreinafélags,
segir umhverfi verkalýðs-
félaga á Austurlandi hafa
breyst mjög síðan hafist
var handa um stóriðju- og
virkjunarframkvæmdir í
fjórðungnum. „Umfangið á
starfinu eykst gríðarlega,
ekki síst vegna þeirra
mörgu mála sem við höfum
þurft að taka á, bæði gagn-
vart Impregilo á Kára-
hnjúkasvæðinu og svo eru
að koma upp mál núna á ál-
verssvæðinu. Þau tengjast
aðallega aðbúnaði vinnu-
umhverfi og -tíma, en eru
þó gjörólík þeim sem hafa
verið í gangi við Kárahnjúka.“
Jón Ingi segir sáttmála sem
Samiðn, Starfsgreinasambandið,
Rafiðnaðarsambandið og Bechtel
hafa gert með sér varðandi Fjarða-
álsverkefnið hafa mikla þýðingu sé
tekið mið af þeim samskiptum sem
stéttarfélög hafa átt við Bechtel og
Alcoa. „Við sjáum það t.d. á örygg-
isþættinum sem er á svæðinu að
þeir leggja sig mjög fram um að ör-
yggis- og umhverfismál séu í lagi.
Svo mjög raunar að það er eitthvað
sem við Íslendingar þekkjum vart
og gæti lagt línur fyrir okkur í
framtíðinni. Ég hef litlar áhyggjur
af Bechtel en því meiri af
Impregilo. Þar er staðan erfið, ekki
síst hvað varðar réttinda- og
starfsleyfamál og skil á lögboðnum
gjöldum. Aðbúnaðarmál hafa
lagast mikið, en afþreyingarmál
minna.“
Jón Ingi segir að líklega þurfi að
setja spurningarmerki við áætlaða
fjölgun fólks til langtímabúsetu á
Austurlandi, þar sem þær hafi m.a.
verið byggðar á spám um íslenskt
vinnuafl sem myndi að einhverju
leyti setjast að til framtíðar.
„Mér var það ljóst í upphafi ferl-
isins hér að ekki yrðu nægir ís-
lenskir starfskraftar til staðar í
verkefnin og finnst vera ákveðin
spurningarmerki þarna um t.d.
mannafla og áhugaleysi á áliðna-
braut VMA í Neskaupstað.“
Mannaflaþörf við Kárahnjúka-
virkjun er talin muni ná hámarki á
næsta ári. Ítalska verktakafyrir-
tækið Impregilo mun þurfa um
1.000 manns í vinnu út næsta ár, en
2006 fækkar þeim í 600–800
manns. Af rúmlega 1.100 manns
sem unnu hjá Impregilo við Kára-
hnjúkavirkjun í september sl., voru
119 Íslendingar, starfsmannavelta
er mjög mikil og ekki gert ráð fyrir
að hlutur innlends vinnuafls muni
aukast.
Ómar Valdimarsson, talsmaður
Impregilo, segir að frá því að Imp-
regilo tók að starfa við Kárahnjúka
hafi fyrirtækið lagt
sig fram um að ráða Íslendinga í
vinnu, en þrátt fyrir laun skv. virkj-
unarsamningi kjósi Íslendingar að
fara annað og þeir sem unnið hafi
hjá Impregilo standi margir stutt
við.
„Nú er svo komið að starfs-
mannavelta íslenskra starfsmanna
við Kárahnjúka er meira en 60 pró-
sent,“ segir Ómar. „Starfsmanna-
velta hjá starfsmönnum utan Evr-
ópska efnahagssvæðisins er hins
vegar undir 5 prósentum. Til þess
að halda uppi framleiðni og góðum
starfsanda á svæðinu er mikilvægt
að starfsmannavelta sé lítil. Imp-
regilo hefur því leitast við að
tryggja sér starfsfólk frá löndum
sem fyrirtækið hefur góða reynslu
af. Hjá Impregilo vinnur nú um 100
Íslendinga kjarni. Flestir þeirra
hafa unnið lengi hjá fyrirtækinu og
er þar um að ræða hóp fólks sem
vinnur störf sín ákaflega vel og fyr-
irtækinu er annt um.“
Hámark vinnuaflsþarfar við
stóriðjuframkvæmdirnar á Reyð-
arfirði verður árin 2006 og 2007.
Fjarðaál og Bechtel, sem reisir ál-
verið, reikna með að á næsta ári
verði 1.000 til 1.200 manns við
byggingu álversins, en um eða yfir
1.600 manns árið 2006 og fram á
mitt ár 2007. Verklok eru áætluð
um áramót 2007. Bechtel áætlaði
íslenskt vinnuafl í allt að 400 störf
árlega næstu þrjú árin.
Glúmur Baldvinsson, upplýs-
ingafulltrúi Bechtel, segir að í byrj-
un verkefnisins hafi Bechtel áætlað
innlent vinnuafl um 40% við bygg-
ingu álversins sjálfs. Síðan þá hafi
staðan jafnt og þétt verið endur-
metin í ljósi vaxandi framkvæmda
innanlands og nú sé gert ráð fyrir
að hlutfall Íslendinga verði 20%.
„Bechtel mun þó reyna að ráða
eins marga Íslendinga og mögu-
legt er,“ segir Glúmur. „Ekki er þó
loku fyrir það skotið að í heildina
verði árlega um 400 íslenskir
starfsmenn í störfum að byggingu
álvers, starfsmannaþorps og ýms-
um hliðartengdum störfum t.d.
eins og flutningum, jarðvegsfram-
kvæmdum o.fl. Nú eru rúmlega
250 manns að störfum fyrir Becht-
el og langflestir íslenskir.“
Líklegt er að ráða þurfi yfir
1.800 erlenda starfsmenn til fyrir-
liggjandi verkefna við uppbygg-
ingu stóriðju og virkjana í landinu
öllu fram til ársins 2007. Vinnu-
málastofnun hefur unnið að því að
tengja Bechtel og opinberar vinnu-
miðlanir á evrópska efnahags-
svæðinu til að auðvelda ráðningar-
ferli erlends vinnuafls til landsins á
þessu tímabili.
Fréttaskýring | Þorri starfa við virkjunar-
og stóriðjuframkvæmdir á Austurlandi
unninn af útlendingum
Íslendingar
fást trauðla
Afl hefur ekki teljandi áhyggjur af
Bechtel, en því meiri af Impregilo
Portúgalskir verkamenn í Kárahnjúkavirkjun.
Umhverfi verkalýðsfélag-
anna eystra gjörbreytt
Í nýrri skýrslu Vinnu-
málastofnunar Íslands um
mannaflaþörf við stóriðju- og
virkjunarframkvæmdir á ár-
unum 2005–2007, kemur fram að
á þriðja þúsund manns þurfi til
starfa við virkjunar- og stór-
iðjuframkvæmdir á Austurlandi.
Útlit er fyrir að þorri þessara
starfa verði unninn af erlendu
vinnuafli. Umhverfi verkalýðs-
félaga eystra hefur gjörbreyst á
tiltölulega stuttum tíma.
steinunn@mbl.is