Morgunblaðið - 04.12.2004, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 04.12.2004, Blaðsíða 12
12 LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR á morgun Matthías Johannessen og Sigurður A. Magnússon í Reykjavíkurbréfinu ÚR VERINU KANADAMENN hafa lokað höfnum sínum fyrir skip frá Danmörku, Færeyjum og Grænlandi til að mótmæla rækjuveiðum þeirra utan kanadískrar lögsögu. Kanadísk stjórnvöld gripu til aðgerðanna eftir að færeyskur togari var staðinn að veið- um á umdeildu hafsvæði á Miklabanka, svo- kölluðu svæði 3L. Norðvestur-Atlantshafs- fiskveiðiráðið (NAFO) úthlutar veiðiheimildum á svæðinu til aðildarríkja ráðsins og fá Danir, fyrir hönd Grænlend- inga og Færeyinga, úthlutað 144 tonna kvóta, rétt eins 14 og aðrar Evrópuþjóðir, m.a. Íslendingar. Kanadamenn fá hins vegar 10.800 tonna kvóta eða um 83% heildarkvót- ans á svæðinu. Færeyingar hafa allt frá árinu 1999 mót- mælt úthlutun NAFO og viljað fá meira í sinn hlut, enda sé kvóta úthlutað til þjóða sem ekki einu sinni stundi rækjuveiðar. Hafa Færeyingar sett sé einhliða 1.344 tonn kvóta á svæðinu. Vegna þessara deilna voru kan- adískar hafnir lokaðar fyrir færeyskum skip- um frá marsmánuði árið 2002 og fram í ágúst í fyrra en þá var samið um málið innan NAFO. Færeysk skip hættu veiðum innan svæðisins í september sl. eftir að Kanada- menn hótuðu refsiaðgerðum, enda var afli færeyskra skipa þá orðinn meira en 900 tonn, að því er fram kemur á fréttavef Intra- Fish. Fulltrúi Færeyinga í NAFO segir að veið- um hafi aðeins verið hætt tímabundið, á með- an reynt yrði að ná samkomulagi um kvóta færeyskra skipa. Það hafi hins vegar ekki tekist og því hafi veiðar verið hafnar á ný í vikunni. Kanadamenn segja að hafnbannið muni gilda þar til Færeyingar fari að settum reglum og að leysa verði deiluna á vettvangi NAFO. Þeir segja að ofveiðar erlendra skipa utan kanadískrar lögsögu séu ein meginor- sök þess að fiskistofnar við austurströnd landsins hafi hrunið. Kanadískar hafnir liggja næst umræddum rækjumiðum og hafa rækjuskip jafnan land- að afla sínum þar. En Færeyingar segjast munu halda áfram veiðum á svæðinu, þó þeim sé nú meinað að landa aflanum í Kan- ada. Íslenskum skipum er heimilt að veiða 144 tonn af rækju á umræddu svæði. Samkvæmt upplýsingum af vef Fiskistofu hefur aðeins eitt íslenskt skip, Pétur Jónsson RE, stund- að þar veiðar á árinu og veitt um 104 tonn. Loka höfnunum fyrir Færeyingum LOÐNA veiddist á ný eftir langt hlé á fimmtudag þegar Guðmundur Ólafur ÓF fékk loðnu við miðlínu Íslands og Grænlands. Að sögn Guðmundar Garðarssonar, skip- stjóra á Guðmundi Ólafi, fengust 30 til 40 tonn í nokkrum togum innan grænlensku lög- sögunnar á fimmtudag, um 90 sjómílur norð- vestur úr Straumnesi. „Þó þetta sé lítið magn þá viljum við helst ekki fá mikið meira, því við frystum loðnuna um borð og ráðum ekki við að frysta mikið magn,“ sagði Guðmundur í samtali við Morgunblaðið í gær. Hann sagði loðnu átulausa og henta vel til frystingar á Rússlandsmarkað. „Við höfum orðið varir við talsvert af loðnu á svæðinu og ég er til- tölulega bjartsýnn á framhaldið.“ Huginn VE var einnig kominn á loðnu- miðin í gær. Niðurstöður loðnuleiðangurs Hafrann- sóknastofnunarinnar, sem lauk fyrir skömmu, liggja ekki fyrir en gert er ráð fyrir að þær verði kynntar eftir helgi. Loksins loðna Uppgjör? LANDEIGENDUR Reykjahlíðar ehf. í Mývatnssveit gera athuga- semdir við svör Friðriks Sophus- sonar, forstjóra Landsvirkjunar, í blaðinu í fyrradag, varðandi um- sókn um rannsóknaleyfi vegna jarð- hita í Gjástykki. Formaður félags- ins, Ólafur H. Jónsson, segir svör forstjórans hafa komið landeigend- um verulega á óvart og þau séu beinlínis röng. Ekkert hafi verið rætt við landeigendur og Lands- virkjun sé að útiloka möguleika þeirra til nýtingar á jarðhita á þeirri eigin jörð. Þannig segir Ólafur það rangt hjá Friðriki að landeigendur hafi beint bótakröfum sínum að ríkissjóði, sem ríkissjóður hafi hafnað. Kröfunum hafi verið beint gegn Landsvirkjun. „Landeigendur hafa höfðað mál á hendur Landsvirkjun, ekki ríkis- sjóði, til heimtu bóta að fjárhæð á annað hundrað milljónir króna fyrir óheimila efnistöku Landsvirkjunar, ekki ríkissjóðs, úr landi þeirra án greiðslu sem og töku vatns úr vatnslindum jarðar þeirra, einnig án greiðslu,“ segir Ólafur. Málsvörn Landsvirkjunar hafnað í Hæstarétti Hann segir Landsvirkjun hafa haft þá vörn uppi í málinu að land- eigendur hefðu átt að stefna rík- issjóði til greiðslu þeirra tjónabóta. Þeirri málsvörn hafi Hæstiréttur hafnað með dómi 28. október sl. sem lesa megi á heimasíðu Hæsta- réttar. Forstjóri Landsvirkjunar sagði í blaðinu í fyrradag að rætt hefði ver- ið við landeigendur um að stækka mætti vinnslusvæðið þegar niður- stöður úr viðræðum ríkisins og Landsvirkjunar lægju fyrir. „Þetta kemur einnig á óvart vegna þess að Landsvirkjun hefur ekki stofnað til neinna viðræðna við landeigendur um þetta efni, reynd- ar hafnað viðræðum um öll málefni sem bændur hafa borið upp við Landsvirkjun til þessa án undan- gengins dóms. Í öðru lagi vissu landeigendur ekkert um þær við- ræður Landsvirkjunar og ríkisins sem forstjórinn segir frá fyrr en upplýsingar um þær birtast í Morg- unblaðinu,“ segir Ólafur ennfremur. Formaður landeigenda segir for- stjóra Landsvirkjunar í svari sínu í Morgunblaðinu draga mjög úr vægi og þýðingu umsóknar Landsvirkj- unar um rannsóknaleyfi, hann tali aðeins um „leitarleyfi“ og „umferð- arrétt“. Bendir Ólafur á að í um- sóknarbréfi Landsvirkjunar frá 25. október 2004, sem Friðrik undirriti sjálfur, sé óskað „leyfis … í sam- ræmi við 4. og 5. grein laga nr. 57/ 1998 um rannsóknir og nýtingu auð- linda í jörðu“. Sótt hafi verið um leyfi með „fyrirheit um forgang að rannsóknar- og síðar nýtingarleyfi samkvæmt 2. málsgrein 5. gr. lag- anna“, líkt og standi í bréfi Lands- virkjunar. „Þessi skriflega umsókn Lands- virkjunar er í algjöru ósamræmi við það sem haft er eftir forstjóranum í Morgunblaðinu. Ef þessi umsókn Landsvirkjunar verður samþykkt af iðnaðarráðherra verða landeigendur einfaldlega útilokaðir frá því að geta sjálfir nýtt jarðhitaréttindi þau sem þeir eiga óumdeilanlega á eigin jörð. Þessi umsókn Landsvirkjunar hefur því afar mikið vægi og mikla þýðingu fyrir landeigendur þar eð hún gengur þvert á allar þeirra áætlanir um rannsóknir og nýtingu orkulinda landeigenda,“ segir Ólaf- ur. Hann segir að með ummælum Friðriks, þess efnis að jafneðlilegt sé að Landsvirkjun sæki um rann- sóknarleyfi í Gjástykki og að Orku- veita Reykjavíkur sæki um slíkt leyfi á Hellisheiði, sé alfarið horft framhjá því að eigendur Reykjahlíð- ar séu eigendur þeirra orkulinda sem um sé rætt og Landsvirkjun ásælist til að virkja. Eigendur orku- lindanna þurfi ekki að virða viðlits, ekki þurfi einu sinni að segja þeim frá því að verið sé „að ráðskast með eignir þeirra“. Landsvirkjun að koma í veg fyrir samkeppni? „Finnst forstjóra Landsvirkjunar eitthvað óeðlilegt við það að eig- endur orkulindanna geri athuga- semdir við þessa afstöðu? Finnst forstjóra Landsvirkjunar eitthvað athugavert við það að landeigendur vilji sjálfir nýta eigin orkulindir eða hafa eitthvað um það að segja hvernig að því er staðið? Getur ver- ið að Landsvirkjun eða ráðandi eig- andi sameignarfélagsins Lands- virkjunar sé að reyna að koma í veg fyrir samkeppni með umsókn sinni? Getur það verið að Landsvirkjun sé að koma þeim skilaboðum á fram- færi við Orkuveitu Reykjavíkur að hún skuli bara halda sig sunnan heiða?“ spyr Ólafur og bætir við þeirri spurningu hvort þau ákvæði nýrra raforkulaga gildi ekki um Landsvirkjun að markmið þeirra sé að skapa forsendur fyrir samkeppni í vinnslu og viðskiptum með raf- orku. Eigendur Reykjahlíðar ósáttir við svör Landsvirkjunar Nýting á jarðhita á eigin jörð útilokuð Morgunblaðið/BFH Ólafur H. Jónsson, landeigandi í Reykjahlíð, segir að Landsvirkjun sé að útiloka möguleika þeirra til nýtingar á jarðhita á svæðinu. Það sé rangt hjá forstjóra Landsvirkjunar að bótakröfum hafi verið beint gegn ríkissjóði.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.