Morgunblaðið - 04.12.2004, Page 16
16 LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
Hætta á að ungt
fólk verði verðlagt
út af markaðnum
EIN af hættunum af auknu fram-
boði af íbúðalánum á markaðnum er
að verð á fasteignum hækki svo
mikið í kjölfarið, að ungt fólk með
meðaltekjur, sem kaupir sér íbúð á
hóflegu verði, verði verðlagt út af
markaðnum. Þetta kom fram í máli
Eddu Rósar Karlsdóttur, forstöðu-
manns greiningardeildar Lands-
banka Íslands, á morgunverð-
arfundi Félags MBA-HÍ í fyrradag.
Edda segir að þetta ástand hafi
ekki skapast hér á landi ennþá, en
ef til þess kæmi þá væri það skýr
vísbending um að fasteignaverð hér
á landi væri orðið of hátt. Við þess
konar aðstæður dettur eftirspurnin
niður og verð lækkar á ný. Edda
sagði á fundinum að það eina sem
unnið gæti á móti hækkun á fast-
eignaverði væri aukið framboð
íbúða sem fyrst, helst strax á næsta
ári.
Einbýli hækkað um 20,4%
Edda sagði á fundinum að á síð-
ustu 12 mánuðum hefði verð á ein-
býli á höfuðborgarsvæðinu hækkað
um 20,4%, fjölbýli á höfuðborg-
arsvæðinu hefði hækkað um 11,8%
og íbúðir á landsbyggðinni hefðu
hækkað um 7,9%. Edda sagði einnig
að hið aukna framboð á lánamark-
aðnum yki árlega hækkun fast-
eignaverðs allt að15% meira en ella
hefði orðið.
Sagði Edda Rós enn fremur að
menn stæðu frammi fyrir ákveðnum
valkvíða vegna mikillar fjölbreytni í
vöruframboði á lánamarkaði. Því
væri mikilvægt að fá vandaða ráð-
gjöf, enda verið að spila með fram-
tíðartekjur heimilanna.
Edda sagði að viðhorfsbreyting
hefði orðið til eignamyndunar í
samfélaginu, ungt fólk fyndi ekki
sömu þörf og fyrri kynslóðir að eiga
jafnmikið í húsnæði sínu. „Það er
val yngstu kynslóðarinnar að færa
eignamyndun sína yfir í lausafé, þ.e.
verðbréf og lífeyrissparnað, en
minna í steinsteypu.“
Jákvæðar breytingar
Gylfi Magnússon, dósent við við-
skipta- og hagfræðideild Háskóla
Íslands, sagði í sínu erindi á fund-
inum að breytingar þær sem orðið
hefðu á íbúðalánamarkaði hér á
landi væru jákvæðar. Hann varaði
hins vegar við því að fólk hefði öll
sín viðskipti við eina og sömu
bankastofnunina. Í því væri fólgin
áhætta og hana ætti ekki að taka
nema fá það rækilega umbunað í
góðum vaxtakjörum.
● MIKIL viðskipti voru í Kauphöll Ís-
lands í gær. Heildarviðskiptin námu
liðlega 30 milljörðum króna. Þar af
voru viðskipti með íbúðabréf fyrir
12,8 milljarða króna og með hluta-
bréf fyrir 5,4 milljarða. Úrvalsvísitala
Kauphallarinnar lækkaði um 0,7%
og var lokagildi hennar 3.458,89
stig.
Mest viðskipti voru með hlutabréf í
Íslandsbanka eða fyrir rúmlega 1,6
milljarða. Af félögum í úrvalsvísitöl-
unni hækkuðu bréf í Fjárfesting-
arfélaginu Atorku mest, eða um
1,1%, en hlutabréf í Össuri lækkuðu
mest, eða um 1,7%. Hlutabréf í Þor-
móði ramma Sæbergi, sem eru á að-
allista Kauphallarinnar, lækkuðu
hins vegar um 10%.
Mikil viðskipti
í Kauphöllinni
● SAMKVÆMT bráðabirgðatölum
um innheimtu virðisaukaskatts nam
innflutningur í nóvember um 21 millj-
arði króna án skipa og flugvéla.
Þetta kemur fram í vefriti fjár-
málaráðuneytisins.
Samkvæmt þessu er nóvember
þar með einn af helstu innflutnings-
mánuðum ársins og er um 5% aukn-
ingu að ræða frá fyrri mánuði. Síð-
astliðin ár hefur innflutningur hins
vegar verið minni í nóvember en
október. Helsta skýringin mun vera
hækkun eldsneytisverðs á heims-
markaði auk þess sem innflutningur
flutningatækja og hrá- og rekstr-
arvöru hefur aukist.
Aukinn innflutn-
ingur í nóvember
● STJÓRN BNbank mælir með því
við hluthafa sína í tilkynningu til
kauphallarinnar í Ósló, að þeir taki
yfirtökutilboði Íslandsbanka. Segist
stjórnin telja verðið gott og að bæði
stjórnin og fulltrúi starfsmanna telji
að vel sé hugsað fyrir hagsmunum
starfsmanna með yfirtökunni.
Þá lýsti sjóðstjóri Skagen Vekst,
sem á 5,6% eignarhlut í BNbank, yfir
í norska viðskiptablaðinu Dagens
Næringsliv í gær að sjóðurinn muni
taka yfirtökutilboði Íslandsbanka í
BNbank ef ekki komi hærra tilboð.
Íslandsbanki hefur þegar tryggt
sér 60% eignarhlut í BNbank.
Stjórn BNbank mælir
með tilboði ÍSB
! ! "
#$%
&
%
27$& 8) 5
9##$-8) 5
9
0! &032)#
698*&
' * 1#&
:91#&
%* 1#&' *
+!
+!*7!
;0 #&5&
;5&#!0& , /!&
,
0! &13
<
'((
$ )
& # # ' *
!&&
6 5&
6 1 9=13 60" & 3> /0
?1)&
:-
%0#& &
@A/!&
,'
, 0 , *
,- & -/0" &/3
B& B"& & -&
C& -&
>) &(,1!
*
+!,!
2 1##&
& #! *&D"0
%* &' * B#&0&
C"&0 ' * ,
$& #3$!
(
(
(
(
(
(
(
(
(
(
(
9!"&0
0"$& #3$!
( ( (
(
( ( ( ( (
(
( ( (
(
(
(
(
( (
(
(
(
(
(
(
(
( (
(
(
(
(
EF
E(F
E(F
EF
(
(
E(F
E(F
EF
E(F
E(F
(
(
E(F
E(
F
(
(
(
EF
(
(
E(F
(
(
(
(
(
(
(
(
E(F
(
(
(
(
(
6!& *$& #&5&
* &
B& 1) )#* G
: 5,
3
3
3 3 (
33 33
3
3 3 3 3 3
3 3 3
(
(
3 (
3 (
(
(
(
(
(
3 (
3
(
(
(
C& #&5&= 3#3
2B63H2/ & &
- *&
$& #&5
(
(
(
(
(
(
(
(
(
(
(
SÍÐAN bankarnir hófu að bjóða
upp á lán með 4,4% vöxtum í lok
ágúst hafa um 85 milljarðar króna
verið teknir að láni með fasteigna-
veðtryggðum lánum. Alls hafa um
sjö þúsund lán verið afgreidd. Þetta
kom fram í máli Birgis Ísleifs Gunn-
arssonar seðlabankastjóra í pall-
borðsumræðum á morgunverðar-
fundi Verslunarráðs í gær. Hér er
um að ræða áætlun Seðlabankans
miðað við stöðu mála í lok nóvember
en upplýsingar frá einum banka
hafa ekki borist. Miðað við mann-
fjölda í lok síðasta árs hefur hvert
mannsbarn á Íslandi samkvæmt
þessu tekið tæpar 300 þúsund krón-
ur að láni síðan í lok ágúst.
Birgir tók það fram að Seðlabank-
inn væri ekki að gagnrýna það að
fasteignalán væru að færast frá rík-
inu til banka enda hefur Alþjóða-
gjaldeyrissjóðurinn sagt þessa þró-
un vera æskilega þar sem hún eykur
stöðugleika í fjármálakerfinu og hjá
bönkunum til langs tíma litið. Hins
vegar sagði Birgir: „Þetta gerist á
ákaflega óheppilegum tíma, þegar
sveiflan er upp á við af öðrum
ástæðum. Þannig að ég held að
bankarnir þurfi aðeins að hugsa
sinn gang, það er til dæmis ekki út-
skýrt ennþá af þeirra hálfu hvernig
á að fjármagna þetta. Hvaðan koma
peningarnir og munu peningarnir
koma til þess að fjármagna þessi út-
lán?“
Gengi krónunnar veldur óvissu
Í pallborðsumræðunum varð
mönnum tíðrætt um gengi krónunn-
ar en eins og kunnugt er hefur
gengi krónunnar styrkst verulega á
síðustu misserum. Hækkandi gengi
leiðir til lækkunar verðbólgu en hins
vegar er hætta á því að gengið
hækki um of en springi svo líkt og
aðrar bólur og fari í kjölfarið hríð-
lækkandi.
Í máli Eddu Rósar Karlsdóttur,
forstöðumanns greiningardeildar
Landsbankans, kom það fram að
ekki væri fullljóst hver áhrif vaxta-
hækkana Seðlabankans væru á
gengisþróun og færi það svo að
botninn dytti úr gengisþróuninni
væri mikil hætta á að Seðlabankinn
missti tökin á verðbólgunni.
Birgir Ísleifur Gunnarsson beindi
varnaðarorðum til bankanna og
sagði að sú nýjung að bjóða lán í er-
lendum gjaldmiðlum þrýsti gengi
krónunnar enn frekar upp. „Þetta
er eitt af því sem ógnar stöðugleik-
anum í okkar þjóðarbúskap,“ sagði
Birgir Ísleifur.
„Bankarnir
þurfa að hugsa
sinn gang“
Morgunblaðið/Kristinn
Varnaðarorð Birgir Ísleifur Gunnarsson seðlabankastjóri sendi bönkunum
viðvörun á morgunverðarfundi Verslunarráðs í gær.
ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI
HRINGBRAURARAPÓTEK var
sameinað lyfsölukeðjunni Lyfjum og
heilsu um síðustu mánaðamót. Í til-
kynningu frá fyrirtækjunum segir
að Jón Grétar Ingvason lyfjafræð-
ingur, aðaleigandi Hringbrautarapó-
teks, muni starfa áfram í apótekinu
um sinn en hverfa að eigin ósk til
annarra starfa að nokkrum mánuð-
um liðnum. Þá segir að öllu starfs-
fólki Hringbrautarapóteks hafi verið
boðið starf hjá Lyfjum og heilsu.
Lyfjaverslanirnar tvær, sem eru hlið
við hlið í JL húsinu við Hringbraut í
Reykjavík, verði reknar áfram, en
muni sameinast í verslun Lyfja og
heilsu hinn 1. mars 2005.
Samkeppni mun aukast
Haft er eftir Jóni Grétari í tilkynn-
ingu fyrirtækjanna að samkeppni
hafi aukist verulega á lyfjamarkaði á
síðustu árum, auk þess sem starfs-
umhverfi allt hafi tekið gífurlegum
breytingum. „Það er ljóst að sam-
keppni mun aukast enn frekar á
komandi árum og þörf á hagræðingu
í ljósi stærðarhagkvæmni verður því
brýnni með hverju árinu sem líður.“
Þá segir Jón Grétar að það sé mat
forsvarsmanna Hringbrautarapó-
teks að þessi ráðstöfun sé til hags-
bóta fyrir viðskiptavini og tryggi um
leið áframhaldandi uppbyggingu á
þjónustu á starfssvæði verslunarinn-
ar. Það sé trú þeirra að á þennan
hátt sé áfram tryggð góð þjónusta
við viðskiptavini Hringbrautarapó-
teks. „Stærðarhagkvæmni er komin
til að vera í lyfsölugeiranum og hið
opinbera raunar þrýstir lyfsölunni í
síauknum mæli úr einstaklings-
rekstri yfir í samstæðurekstur með
aðgerðum sínum til lækkunar lyfja-
verðs,“ er haft eftir Jóni Grétari.
Kröfur um hagræðingu
Hrund Rudolfsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Lyfja og heilsu, segir í
tilkynningunni að fyrirtækið leiti sí-
fellt að tækifærum til að gera rekst-
urinn hagkvæmari. Lyfjaverslanir
séu hluti af heilbrigðiskerfi þjóðar-
innar og sú krafa sé hávær að heil-
brigðiskerfið sé rekið með skilvirk-
ari hætti. „Við reynum að svara þeim
kröfum með því að hagræða og erum
viss um að með sameiningu við
Hringbrautarapótek muni apótek
okkar í JL-húsinu öðlast styrk til að
veita vesturbæingum enn betri þjón-
ustu en hingað til,“ segir Hrund.
Opnað við hliðina
Jón Grétar stofnaði Hringbraut-
arapótek árið 1996. Hann sagði í
samtali við Morgunblaðið í maí í
fyrra að Karl Wernersson, aðaleig-
andi Lyfja og heilsu, hefði þá fyrir
um tveimur árum byrjað að falast
eftir Hringbrautarapóteki. Hann
sagði að Karl hefði fljótlega gefið til
kynna að ef Lyf og heilsa myndu
ekki fá að kaupa apótekið myndi
keðjan opna sitt eigið apótek við hlið-
ina á því sem þá var orðin raunin.
„Tilgangurinn er augljóslega sá að
bola okkur út af markaðinum,“ sagði
Jón Grétar.
Hringbrautar-
apótek sameinast
Lyfjum og heilsu
@ *I
,JK
B,D
L2M
N2N ;+M
:
M
@&##!&
ONDM L)P?)!