Morgunblaðið - 04.12.2004, Qupperneq 20
20 LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
STJÓRNVÖLD í Rússlandi, Kína,
Bretlandi, Frakklandi og tugum ann-
arra ríkja hafa lýst yfir stuðningi við
Kofi Annan, framkvæmdastjóra
Sameinuðu þjóðanna, eftir að at-
kvæðamikill repúblikani í öld-
ungadeild Bandaríkjaþings krafðist
þess að hann segði af sér. Stjórn
George W. Bush Bandaríkjaforseta
hefur ekki tekið undir kröfuna.
Bush vék sér hins vegar tvisvar
undan því á fimmtudag að svara
spurningum fréttamanna um hvort
Annan ætti að segja af sér og notaði
ekki tækifærið til að lýsa yfir stuðn-
ingi við hann.
Þess í stað sagði Bush að mik-
ilvægt væri að rannsaka til fulls
meinta spillingu fulltrúa Sameinuðu
þjóðanna í tengslum við viðskipti með
íraska olíu í stjórnartíð Saddams
Husseins.
Sakaður um að
hindra rannsókn
Annan sætir nú vaxandi gagnrýni í
Bandaríkjunum þar sem nokkur dag-
blöð og þekktir dálkahöfundar hafa
hvatt til þess að honum verði vikið
frá. Krafa Norms Colemans, repú-
blikana í öldungadeildinni, hefur vak-
ið mesta athygli.
Coleman stjórnar einni af fimm
rannsóknum Bandaríkjaþings á
meintri spillingu og óstjórn í
tengslum við áætlun Sameinuðu þjóð-
anna frá 1996 um að Írakar fengju að
selja olíu gegn því skilyrði að tekj-
urnar rynnu að mestu til kaupa á
mat, lyfjum og öðrum nauðsynjum.
Coleman skrifaði grein, sem birt var í
Wall Street Journal á miðvikudag,
þar sem hann krafðist þess að Annan
segði af sér vegna þess að „umfangs-
mesta svikamál í sögu Sameinuðu
þjóðanna kom upp á vaktinni hans“.
Rannsóknarnefnd Colemans
skýrði frá því fyrir hálfum mánuði að
ólöglegar tekjur stjórnar Saddams
Husseins af „áætluninni um olíu fyrir
mat“ hefðu numið 21,3 milljörðum
dollara, 1.360 milljörðum króna, á ár-
unum 1996 til 2003.
Kofi Annan hefur falið Paul Volck-
er, fyrrverandi seðlabankastjóra
Bandaríkjanna, að rannsaka málið,
afhent honum öll skjöl SÞ sem tengj-
ast því og gefið embættismönnum
samtakanna fyrirmæli um að aðstoða
hann við rannsóknina.
Coleman vill nú fá þessi skjöl en
Volcker sagði honum fyrir hálfum
mánuði að Bandaríkjaþing fengi ekki
skjölin fyrr en í fyrsta lagi í janúar,
þegar hann birtir fyrstu skýrsluna
um rannsókn sína. Annan segir að
það sé undir Volcker komið hvenær
þingið fái skjölin en Coleman sakar
Annan um að hindra rannsókn þess.
Sagðir vilja koma óorði á SÞ
Krafan um afsögn Annans nýtur
lítils stuðnings utan Bandaríkjanna
og leiðtogar fjölmargra ríkja hafa
hringt í hann eða sent honum bréf til
að lýsa yfir stuðningi við hann.
Stjórnmálamenn og álitsgjafar í
Evrópu og víðar hafa sakað hægri-
menn í bandarískum fjölmiðlum og
nokkra stjórnmálamenn úr röðum
repúblikana um að hafa gert of mikið
úr meintri spillingu í tengslum við ol-
íusöluna.
Rússneska utanríkisráðuneytið
sakaði vestræna fjölmiðla um að hafa
notað spillingarásakanirnar til að
koma óorði á Sameinuðu þjóðirnar.
„Ljóst er að sumum líkar það ekki að
alþjóðasamtökin skuli gegna vaxandi
hlutverki í heimsmálunum og þess
vegna er reynt að gera þau hlýðnari,
meðal annars í Íraksmálunum,“ sagði
í yfirlýsingu frá ráðuneytinu.
„Innan Sameinuðu þjóðanna er
engin umræða meðal aðildarþjóðanna
um hvort framkvæmdastjórinn eigi
að segja af sér,“ sagði forseti örygg-
isráðsins, Abdallah Baali, sendiherra
Alsírs.
Annan var skipaður í embættið til
desember 2006 og þá verða tíu ár liðin
frá því að hann tók við því. Þegar
hann lætur af embætti er röðin komin
að Asíuríkjum að velja fram-
kvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna.
Leiðtogar allra Afríkuríkjanna
hafa sent Annan stuðningsyfirlýsingu
og sendiherrar landa Evrópusam-
bandsins hjá Sameinuðu þjóðunum
komu saman á fimmtudag til að ræða
hvernig þeir gætu eflt stuðninginn við
hann.
Samskipti SÞ og Bandaríkjanna
hafa verið stirð frá því að örygg-
isráðið neitaði að heimila innrásina í
Írak með sérstakri ályktun. Annan
reitti bandaríska embættismenn til
reiði í september þegar hann sagði að
innrásin hefði verið „ólögleg“.
Sonurinn bendlaður
við spillingarmálið
Sonur Annans, Kojo, er á meðal
þeirra sem nefndir hafa verið í
tengslum við meinta spillingu innan
Sameinuðu þjóðanna. Kojo Annan
var starfsmaður fyrirtækis í Sviss,
Cotecna, þegar það fékk samning við
Sameinuðu þjóðirnar 31. desember
1998 um að hafa eftirlit með Íraks-
viðskiptunum. Skýrt var frá því að á
dögunum að Kojo hefði verið á launa-
skrá Cotecna þar til í febrúar síðast-
liðnum, en áður höfðu SÞ sagt að
hann hefði hætt störfum hjá fyr-
irtækinu í lok ársins 1998.
Cotecna sagði að á þeim tíma hefði
verið gerður starfslokasamningur við
Kojo Annan þar sem fyrirtækið hefði
lofað að greiða honum sem svarar
160.000 krónum á mánuði gegn því að
hann starfaði ekki fyrir keppinauta
fyrirtækisins í Vestur-Afríku næstu
árin. Talsmaður fyrirtækisins sagði
að Kojo hefði aðeins starfað í Vestur-
Afríku og hann tengdist á engan hátt
starfsemi Cotecna í Írak.
Kofi Annan sagði á mánudag að
hann væri „mjög vonsvikinn og undr-
andi“ á því að sonur sinn skyldi hafa
verið svo lengi á launaskrá fyrirtæk-
isins án vitneskju SÞ. Hann lagði
áherslu á að sonurinn hefði aðeins
starfað í Afríku, ekki Írak, og tengsl
hans við Cotecna hefðu ekki haft nein
áhrif á ákvarðanir SÞ. Annan við-
urkenndi þó að nýju upplýsingarnar
gætu kynt undir grunsemdum um
hagsmunaárekstra og spillingu.
Yfir 3.000 starfsmenn Sameinuðu
þjóðanna hafa undirritað tölvubréf
þar sem þeir lýsa yfir stuðningi við
Kofi Annan. „Brýnt er að starfsmenn
Sameinuðu þjóðanna standi saman og
gangi ekki í gildru þeirra sem gagn-
rýna samtökin og vilja grafa undan
þeim að innan,“ segir í bréfinu.
Stjórn félags starfsmanna SÞ hef-
ur hins vegar gagnrýnt bréfið og var-
að við því að yfirmenn samtakanna
geti refsað þeim sem vildu ekki und-
irrita það.
Bréfinu var dreift í tölvupóstkerfi
SÞ til starfsmanna samtakanna út
um allan heim með beiðni um að þeir
undirrituðu það. Stjórn starfsmanna-
félagsins segir þetta óeðlilegt og hef-
ur krafist þess að yfirmenn SÞ geri
grein fyrir því að hverjir standi á bak
við bréfið. Nokkrir stjórnarmanna fé-
lagsins segja að háttsettir embætt-
ismenn hafi dreift bréfinu til að knýja
undirmenn sína til að lýsa yfir stuðn-
ingi við Annan og til að bæla niður
andóf gegn æðstu stjórnendum sam-
takanna.
Embættismenn „hvítþvegnir“
Stjórn starfsmannafélagsins sam-
þykkti ályktun fyrir hálfum mánuði
þar sem æðstu stjórnendur SÞ eru
sagðir „rúnir trausti“ undirmanna
sinna eftir að hafa „hvítþvegið“ emb-
ættismenn sem sakaðir hafa verið um
spillingu.
Starfsmannafélagið skírskotaði
einkum til Dileeps Nairs, yfirmanns
innra eftirlits SÞ. Kofi Annan hafði
hreinsað hann af ásökunum um
frændhygli og spillingu.
Talsmaður Annans, Fred Eckhard,
sagði þegar hann tilkynnti þessa
ákvörðun hans að rannsókn á máli
Nairs væri lokið og að það yrði ekki
rannsakað frekar. Stjórn starfs-
mannafélagsins mótmælti þessu
harðlega og stjórnendur SÞ gáfu loks
eftir í gær, sögðust vera tilbúnir að
rannsaka málið aftur ef félagið legði
fram upplýsingar sem styddu ásak-
anirnar um að Nair hefði gerst sekur
um spillingu.
Mikil óánægja hefur einnig verið
meðal starfsmanna SÞ vegna þeirrar
ákvörðunar Annans að hreinsa Hol-
lendinginn Ruud Lubbers, yfirmann
Flóttamannastofnunar SÞ
(UNHCR), af ásökunum um að hafa
áreitt starfskonu stofnunarinnar kyn-
ferðislega. Annan ákvað þetta þótt
fyrir lægi skýrsla frá innra eftirliti SÞ
þar sem komist var að þeirri nið-
urstöðu að fótur væri fyrir þessum
ásökunum og mælst var til þess að
gripið yrði til viðeigandi ráðstafana.
Hægrimenn þjarma að Kofi Annan
AP
Kofi Annan ávarpar frammámenn í
viðskiptalífinu á ráðstefnu í New
York þar sem fjallað var um vax-
andi áhrif alnæmisfaraldursins á
efnahag heimsins.
Fréttaskýring | Kofi Annan sætir vaxandi
gagnrýni í Bandaríkjunum þar sem
nokkrir hægrimenn hafa krafist þess að
hann segi af sér. Sú krafa hefur ekki fengið
hljómgrunn í öðrum löndum.
’Bush vék sér tvisvarundan því að svara
spurningum frétta-
manna um hvort Annan
ætti að segja af sér. ‘
AÐ minnsta kosti 30 menn týndu lífi í árás-
um skæruliða í Bagdad, höfuðborg Íraks, í
gær.
Vígahópur Abu Musab al-Zarqawi, sem
sagður er tengdur Al-Qaeda-hryðjuverk-
anetinu, lýsti sig ábyrgan fyrir árásunum.
16 lögreglumenn, hið minnsta, féllu þegar
hópur vopnaðra manna gerði árás á lög-
reglustöð í Al-Amel-hverfi í vesturhluta
Bagdad í gærmorgun. Að sögn vitna tóku
um 60 manns þátt í árásinni. Þeir um-
kringdu lögreglustöðina og hófu skothríð.
Þar inni voru 22 lögreglumenn. Þrír þeirra
féllu í skotbardaganum en svo fór að skot-
færi lögreglumannanna þraut. Ruddust
vígamennirnir þá inn í bygginguna. Fóru
þeir með nokkra lögreglumenn upp á þak
byggingarinnar og tóku þá þar af lífi. Síðan
opnuðu þeir fangageymslur og hermdu
fréttir að um 50 fangar hefðu þannig fengið
frelsið. Árásarmennirnir munu flestir hafa
komist undan.
Síðar í gær týndu 14 manns hið minnsta
lífi þegar bílsprengja sprakk í Al-Adham-
iya-hverfi í norðurhluta borgarinnar. Hverfi
þetta er að mestu byggt súnní-múslímum en
sprengjan sprakk nærri mosku sjíta.
Hermdu fréttir að tvær sprengjur hefðu
sprungið, sú síðari þegar fólk reyndi að
slökkva eld sem kviknað hafði eftir fyrri
sprenginguna. Flestir ef ekki allir þeirra
sem fórust munu hafa verið óbreyttir borg-
arar. Talið er að um sjálfsmorðsárás hafi
verið að ræða.
Mikið mannfall í Bagdad
30 manns, hið minnsta,
týna lífi í árásum víga-
hóps al-Zarqawi
Bagdad. AFP.
AP
Íbúar í Bagdad skoða brak á sprengjustað í Adamiyah-hverfi í gær.
GEORGE W. Bush Bandaríkja-
forseti hefur tilnefnt Bernard
Kerik, fyrrum lögreglustjóra
New York, í embætti heimavarn-
aráðherra Bandaríkjanna. Kerik
var lögreglustjóri New York
þegar hryðjuverkamenn flugu
tveimur farþegaþotum á tvíbur-
aturna World Trade Center 11.
september árið 2001.
Kerik tekur við embættinu af
Tom Ridge, sem sagði af sér í
liðnum mánuði. Kerik þótti öðl-
ast traust og virðingu þjóð-
arinnar með framgöngu sinni í
embætti lögreglustjóra í kjölfar
hryðjuverkaárásanna. Hann
starfaði í Írak árið 2003 þar sem
hann vann m.a. að því að end-
urskipuleggja lögreglusveitir. Til
stóð að dvöl Keriks í Írak yrði
sex mánuðir en hann sneri aftur
til Bandaríkjanna eftir þriggja
mánaða starf.
Kerik er fæddur í New York
árið 1956. Móðir hans gaf hann
frá sér en hún var drykkjusjúk-
lingur og vændiskona. Hugs-
anlegt er að „melludólgur“ hafi
fyrirkomið henni. Kerik vann sig
upp innan lögreglunnar og starf-
aði um skeið sem lífvörður í
Sádi-Arabíu. Hann hefur verið
stjórnvöldum í Mexíkó til ráð-
gjafar um löggæslumál og hefur
einnig tengst ráðgjafarfyrirtæki
Rudolphs Giulianis, fyrrum borg-
arstjóra New York. Kerik hefur
ritað ævisögu
sína og nefnist
hún „Týndi son-
urinn“.
Ráðuneyti
heimavarna
samanstendur
af 22 skrif-
stofum og
stofnunum sem
áður störfuðu
sjálfstætt. Alls starfa 180.000
manns á vegum þessa ráðu-
neytis.
Bush skýrði einnig frá því á
fimmtudag að hann hefði tilnefnt
Mike Johanns, ríkisstjóra í
Nebraska, í embætti landbún-
aðarráðherra.
Thompson og
Danforth hætta
Þá hefur Bush forseti fallist á
afsögn Tommy Thompson heil-
brigðisráðherra sem og John
Danforth, sendiherra Bandaríkj-
anna hjá Sameinuðu þjóðunum,
en hann hefur einungis sinnt
starfinu í hálft ár. Danforth gaf
þá skýringu á uppsögninni að
hann vildi verja meiri tíma með
veikri eiginkonu sinni en líkur
voru taldar á að hann yrði skip-
aður í embætti utanríkisráðherra
áður en Bush tilkynnti að Condo-
leezza Rice, öryggismálaráðgjafi
forsetans, yrði næsti utanrík-
isráðherra Bandaríkjanna.
„Týndi sonurinn“
ráðherra heimavarna
Washington. AP. AFP.
Bernard Kerik