Morgunblaðið - 04.12.2004, Page 29

Morgunblaðið - 04.12.2004, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 2004 29 FERÐALÖG H vaðan ertu að koma ogmeð hverjum fórstu?Ég og kærastinnminn, Ólafur Búi, vorum að koma frá New York í Bandaríkj- unum og Toronto í Kanada. Hvert var tilefni ferðarinnar? Þetta var aðallega skemmtiferð, en einnig vorum við að skoða að- stæður til náms og vinnu í bæði New York og Toronto. Hvað tókstu með þér? Ja, ég tók auðvitað með mér allt það nauðsynlegasta. Myndavélar voru teknar með og auðvitað nokkrar íslenskar gjafir til vina okkar út. Annars vorum við ekkert alltof dug- leg að taka myndir, sáum það eig- inlega eftirá. Við týndum líka einni myndavél, þeirri myndavél sem við vorum með myndir af Frelsisstytt- unni í og svæðinu þar sem Tvíbura- turnarnir stóðu. Hvernig kom New York ykkur fyrir sjónir? New York er auðvitað alveg risa- stór. Allt er stórt og mikið. Það er svo mikið af fólki þarna og það er eins og enginn sofi heldur. Við vorum úti yfir Hrekkjavökuhátíðina og það var alveg rosalega gaman. Við gist- um í íbúð sem var á horni 6th street og Waverly Place. Skrúðgangan var á 6th street og við vorum með fyrsta flokks útsýni yfir alla mannmergð- ina. Við heyrðum að það hefðu 2 milljónir manna labbað framhjá hús- inu okkar þetta kvöld. Einnig vorum við í New York í kringum forseta- kosningarnar og litaðist þjóðlífið svo- lítið af því, sérstaklega eftir að úrslit- in voru gerð kunn. Hvað finnst þér markverðast við borgina? Mér fannst markverðast við borg- ina hvað allir voru ótrúlega kurteisir og skemmtilegir, því við bjuggumst við öðru. Einnig var verðið ekki hátt, okkur var sagt að það væri alls ekki svo ódýrt í New York en það kom okkur samt á óvart að ef þú nennir að labba göturnar þá finnur þú allt sem þú ert að leita að og á flestum stöðum er það alls ekki dýrt. Umferðin var alveg brjáluð í New York, enda erum við vön rólegri og uppákomulausri umferð hérna á Íslandi, miðað við þarna úti. Gerðuð þið eitthvað sérstakt, til dæmis að fara á söfn eða í leikhús? Við höfðum góða leiðsögumenn, bæði í New York og Toronto. Í New York fórum við á marga fræga staði, sem kannski ferðamenn fara ekki á almennt. Við fórum til dæmis á stað sem kallast Catz, en það er staðurinn þar sem Sally fékk fullnæginguna í myndinni „When Harry met Sally“, og það sem meira er, ég sat akkúrat við sama borð og í sama stól og hún. Það var svona stórt skilti fyrir ofan mig sem sagði „Here sat Sally“ eða eitthvað svoleiðis. Einnig fórum við í undarlegar búðir, sem ég hélt ein- faldlega að væru ekki til; japanskar dótabúðir og kínverskar kol- krabbabúðir. Við fórum í Chinatown, sem var reynsla fyrir sig, ég eig- inlega kann ekki að lýsa því á ís- lensku því að við höfum ekkert eins á Íslandi. Kærastinn minn er algjört tækjafrík og leiðsögumennirnir okk- ar, Adam heitir annar og var að vinna í Latabæ á Íslandi, og síðan konan hans Medina, fóru með okkur í risa- risastóra tækjabúð sem heitir J&R. Hún var í svona 7 vöruhúsum og tók yfir tvær húsalengjur, við komumst ekki einu sinni yfir að fara í öll húsin og á allar hæðirnar. Það var til svo mikið af tækjum og dóti að maður gat ekki valið úr því öllu. Við end- uðum bara með því að kaupa batterí og lögðum allt annað á hilluna, bara til að róa okkur niður. Við fórum á svona Comedy-Standup á Improv klúbbnum á Time Square. Það var ótrúlega gaman og við mælum með því, ef fólk hefur tíma, að fara á svo- leiðis. Eru einhver veitingahús í New York sem þú mælir með? Við fórum á Hrekkjavökunni á veitingastað sem heitir Arturós og var svona ítalskur veitingastaður. Veðrið var svo gott að við sátum þar úti seint um kvöldið og horfðum á alla brjáluðu búningana og allt fólkið að skemmta sér. Maturinn þar var himneskur, sérstaklega pizzurnar. Allt þetta tvinnaðist saman og gerði kvöldið æðislegt. Eru borgarbúar enn undir áhrifum frá hryðjuverkunum 11. september 2001? Allir voru ótrúlega vinalegir og kurteisir, en hvort það er alltaf þann- ig veit ég ekki því við vorum aug- ljóslega ferðamenn, töluðum með skrítnum hreim og voru með risa- stórar myndavélar framaná okkur. Sölumennirnir voru einstaklega vina- legir, stundum einum of, enda kannski ekki skrýtið því við litum út fyrir að vilja allt í búðunum. Við fundum aldrei fyrir neinu sem minnti á hryðjuverkin nema á flugvöllunum. Þar var mjög nákvæmt öryggiseft- irlit.. Hvar gistuð þið? Við gistum í íbúð á Waverly Place, sem er bara rétt hjá Washington Park. Við fundum þessa íbúð á heimasíðu á netinu sem er www.ny- habitat.com. Þjónustan er til fyr- irmyndar. Íbúðin sem við vorum í var með 2 svefnherbergjum, stórri stofu, eldhúsi og risastórum svölum. Að- koman var mjög fín og eigandinn var indæll. Verðið var alls ekki svo hátt, mun lægra en á hótelunum á sama svæði.  HVAÐAN ERTU AÐ KOMA? | New York Oft er mannmergð á Times Square í New York. svg@mbl.is Japanskar dótabúðir og kínverskar kolkrabbabúðir Morgunblaðið/Einar Falur Ingibjörg Zophoníasdóttir Ingibjörg Zophoníasdóttir fór með kærastanum til New York og Toronto Ertu búin(n) að skoða nýja blaðið okkar sem fylgdi meðMbl. 28. nóv.? Einnig á www.sminor.is. Komdu í heimsókn. Mikill fjöldi flottra tækja á fínu verði. OD DI HÖ N N UN L6 45 7 www.gisting.dk sími: 0045 3694 6700 Ódýr og góð gisting í hjarta Kaupmannahafnar TILVALIÐ TIL JÓLAGJAFA! Margar gerðir skúfhólka ásamt hálsmenum, ermahnöppum og bindisnælum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.