Morgunblaðið - 04.12.2004, Qupperneq 30
JÓLIN eru hátíð ljóssins og er þá
kveikt á fleiri ljósum og þau oft látin
loga lengur en aðra daga ársins. Hluti
af undirbúningi jólanna á að vera að
ganga úr skugga um að þau ljós sem
nota á séu í góðu lagi. Óvandaður,
skemmdur og rangt notaður ljósa-
búnaður getur valdið bruna og slys-
um.
Rafmagnsöryggisdeild Löggilding-
arstofu hefur gefið út leiðbeiningar
fyrir þessa hátíð.
Jólaljósin passa sig ekki sjálf.
Best er að fara ekki frá logandi jóla-
ljósum þegar farið er að sofa eða þeg-
ar heimilið er mannlaust. Ef bilun
verður í seríunni getur hún hitnað
þannig að hætta stafar af.
Skiptum um perur. Ef pera bilar í
jólaseríu, eykst oftast styrkurinn á
hinum perunum í seríunni og þær
hitna. Aukinn hiti frá perunum getur
valdið bruna. Þess vegna er rétt að
skipta biluðum perum út strax og
passa að nota perur af réttri gerð,
stærð og styrkleika.
Perur hitna. Flestar perur gefa frá
sér hita. Því er varasamt að hafa
pappír, greni og annað skraut nálægt
logandi perum. Þá er ekki rétt að
hafa jólaseríur nálægt gluggatjöld-
um.
Kerti og rafmagnstæki eiga ekki
samleið. Ekki er rétt að hafa kerti og
kertaskreytingar á sjónvarpinu eða
hljómflutningstækjum. Dæmi er um
að kerti bræði sér leið niður í tækin
og kveiki í þeim.
Gömlu jólaljósin geta verið vara-
söm. Margir eiga gömul og falleg
jólaljós sem eru í miklu uppáhaldi hjá
fjölskyldunni. Sum ljós eru jafnvel
áratuga gömul og eru í notkun hjá
annarri eða þriðju kynslóð. Rétt er að
láta líta á þessi ljós því oft vilja leiðsl-
unar trosna og klærnar brotna. Oft
má gera þessi ljós sem ný, en þau
geta verið varasöm ef þau fá ekki
nauðsynlegt viðhald.
Vöndum valið. Ekki er til neitt eitt
ráð til að ganga úr skugga um hvort
jólaljós séu af vandaðri gerð. Vert er
þó að hafa í huga að sérlega ódýr jóla-
ljós eru yfirleitt ekki eins vönduð og
dýrari ljós af svipaðri gerð. Gæði og
öryggi fara saman í þessu sem öðru.
Notum aldrei inniljós úti.
Jólaljós utandyra eiga að vera sér-
staklega gerð til slíkrar notkunar. Á
öllum jólaljósum eða umbúðum
þeirra, sem seld eru hér á landi sem
inniljós, á að standa á íslensku að þau
séu eingöngu til notkunar innanhúss.
Að nota inniljós utandyra getur verið
lífshættulegt. Útiljósakeðjur sem
ekki eru tengdar við spennubreyti
(12V-24V) eiga að vera vatns-
varðar. Brýnt er að perur úti-
ljósa vísi ávallt niður svo að
ekki sé hætta á að vatn safnist í
perustæðin.
Slönguljós Mikil aukning hef-
ur orðið á undanförnum árum í
notkun svokallaðra slönguljósa
sem hægt er að kaupa í met-
ravís. Því miður er nokkuð um
íkveikjur af völdum slíkra
ljósa og nær und-
antekningarlaust er
það vegna þess að
ekki er vandað
nægilega til sam-
setninga. Það er því
afar brýnt að fá ná-
kvæmar leiðbeiningar
JÓL | Nokkuð hefur verið um íkveikjur af völdum slönguljósa
Óvönduð og rangt notuð ljós geta valdið bruna
frá söluaðilum um samsetningu slíkra
ljósakeðja og fara eftir þeim í einu og
öllu.
Reykskynjarinn sefur aldrei.
Reykskynjarar eiga að vera á hverju
heimili. Gott er að hafa það sem fast-
an lið í jólaundirbúningnum að skipta
um rafhlöðu í reykskynjaranum.
30 LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LÍF
Ég held að óhætt sé að fullyrða að meðþessum skóla er brotið blað í sögutrommusettsins á Íslandi,“ segirGunnar Waage, sem ásamt Lísu B.
Ingólfsdóttur hefur stofnað Trommuskóla
Gunnars Waage, en skólinn mun nú eftir ára-
mótin opna trommusettsdeild á háskólastigi. Í
þessu skyni hafa þau Lísa og Gunnar látið hljóð-
einangra bílskúrinn hjá heimili sínu við Borg-
arholtsbraut í Kópavogi og þar er nú þegar haf-
in kennsla í undirbúningsdeild. Þar voru ungir
og áhugasamir nemendur í hóptíma í rythma-
fræðum þegar blaðamann og ljósmyndara bar
að garði, og greinilegt að hér var verið að leggja
grunn að áhugaverðu starfi og hver veit nema
að einhverjir trommusnillingar framtíðarinnar
hafi leynst í þessum hópi.
„Þótt markmiðið sé fyrst og fremst að koma á
fót trommusettsdeild á háskólastigi og að þjálfa
upp háklassa trommuleikara, er það líka stefna
skólans að halda úti sterkri undirbúningsdeild.
Með því vil ég rækta grasrótarstigið og koma
inn nýju hugarfari hjá yngri kynslóðinni. Nem-
endur í diplómanáminu munu líka hljóta
kennsluþjálfun í undirbúningsdeildinni og fyrir
mig persónulega er það bæði hollt og ánægju-
legt að kenna fólki á ólíku getustigi og ýmsum
aldri. Það heldur mér og mínum störfum fersk-
um,“ segir Gunnar og horfir stoltur yfir hópinn í
undirbúningsdeildinni.
Sérstök trommusettsnámskrá
Trommusettsnám á háskólastigi? Þetta
hljómar óneitanlega dálítið einkennilega, en
Gunnar hefur svör á reiðum höndum:
„Það er eðlilegt að þetta hljómi einkennilega
því það hefur ekki verið boðið upp á slíkt nám
hér á landi áður og raunar ekki verið boðið upp
á háskólamenntun í tónlist, annarri en klass-
ískri, á Íslandi fram til þessa. Trommuskólinn
er fyrsti skólinn hér á landi sem kennir eftir sér-
stakri trommusettsnámskrá og snýr í rauninni
baki við hinni klassísku slagverksnámskrá,“
segir Gunnar og leggur áherslu á að með þessu
sé ekki verið að gera lítið úr slagverkinu.
„Trommusettið hefur fram til þessa ekki ver-
ið til í námskrá hér á landi. Í Bandaríkjunum er
þessu öðruvísi farið og þar er trommusettið við-
urkennt sem sérstakt hljóðfæri eins og önnur
hljóðfæri. Það er þróunin í nágrannalöndum
okkar að klassískt slagverk og trommusettið sé
aðskilið því tæknilega kemur klassísk tækni því
miður að litlu haldi í trommusettsleik.
Staðreyndin er sú að trommusettið er amer-
ískt hljóðfæri og þar hafa orðið mestar framfar-
ir í trommuleik. Þar eru kennsluaðferðir mun
þróaðri en í Evrópu og einnig framboð náms-
brauta og leiða innan skólakerfisins.
Með Trommuskólanum erum við því í raun-
inni að opna brúna til Bandaríkjanna hvað varð-
ar nám í trommuleik og höfum gert eins konar
nemendasamning, eða það sem kallað er
„Transfer Agreemment“, við Music Tech Coll-
ege í Saint Paul í Minnesota, og eiga nemendur
okkar möguleika á að halda áfram námi þar.
Þetta er mikilvægur áfangi fyrir skólann okkar
þar sem trommusettsdeild Music Tech er ein
virtasta deild sinnar tegundar í Bandaríkjunum
í dag.“
Gunnar er raunar ekki með öllu ókunnugur
innanhúss í Music Tech of Minneapolis, því
hann útskrifaðist þaðan með Professional
Diploma árið 1994. Námsefniskjarni Trommu-
skóla Gunnars eru einmitt skrif Grody Knudt-
son, en hann er yfirmaður slagverksdeildar
Music Tech-tónlistarháskólans í Minnesota.
Nám og starf vestan hafs
Gunnar var níu ára þegar hann hóf nám við
Barnamúsíkskólann í undirbúningsdeild og síð-
ar var hann í tveggja ára píanónámi við skólann.
Hann var tólf ára þegar hann komst inn í Tón-
listarskólann í Reykjavík og nam þar klassískt
slagverk í tvö ár. Þá flutti hann sig ásamt kenn-
ara sínum, Reyni Sigurðssyni, yfir í Tónlistar-
skóla FÍH fyrsta árið sem sá skóli starfaði. Á
þessum árum fékk hann tækifæri til að spila
með skólasinfóníu- og strengjasveitum, „big-
böndum“, djasshljómsveitum og nútímatónlist.
Hann sótti ennfremur námskeið hjá Pétri Östl-
und, Paul Weeden, Paul Zukofsky seminar og
námskeið hjá Clair Heldrich frá Juilliard-tón-
listarháskólanum í New York. Síðan tók við
spilamennska í framúrstefnurokksveitum,
djass- og blúsrokksveitum og nýbylgjutónlist
þar til Gunnar hélt til Minnesota í Bandaríkj-
unum.
„Ég var kominn í ágæt sambönd þarna úti,
datt inn í mjög skemmtilegt spiladæmi og hefði
kannski átt að vera áfram í Bandaríkjunum því
mér gekk mjög vel. En ég hafði lengi haft áhuga
á Mexíkó og langaði til að reyna fyrir mér þar og
auk þess var dvalarleyfi mitt að renna út og því
ekki um annað að ræða. Þangað fór ég því með
ekkert í farteskinu nema 250 kíló af trommum.
Ég hafði ekki útvegað mér neina vinnu, en var
staðráðinn í að skapa mér ný tækifæri.“
Gunnar dvaldi í Mexíkó í fjögur ár og starfaði
með mörgum af fremstu hljóðfæraleikurum þar
í landi. Má þar nefna Rodrigo Cardeans (bassa-
leikara Ricky Martin), djass-fusion-gítaristann
Emanuel Mora (Poulina de Rubio), hljómsveit-
arstjórann Rodrigo Mendoza, poppstjörnuna
Salvador Manrique og fleirum. Einnig gegndi
hann stöðu yfirkennara trommusettsdeildar
tónlistarháskóla G. Martell í Mexíkóborg.
Gunnar þjálfaði starfslið trommusettsdeildar
ásamt því að skrifa námskrá deildarinnar. Í dag
er enn verið að byggja þjálfun trommusetts-
deildarinnar á skrifum Gunnars og kennslubók
eftir hann, Masterclass, sem gefin var út af
Corporation Digital, er hluti af námskrá skól-
ans, og reyndar fleiri tónlistarskóla í Suður-
Ameríku.
Í Mexíkó byrjaði Gunnar líka að þróa verk-
efnið Azteka, sem er eins konar hópverkefni í
fusion-tónlist.
Miklar kröfur
„Ég var því í ágætum málum í Mexíkó þegar
ég ákvað að snúa aftur heim. Og kannski eru
það bara forlögin því eftir heimkomuna hitti ég
aftur æskuástina og við fórum að búa saman.
Lísa, sem áður hefur komið að rekstri einka-
skóla og er nú á fjórða ári í viðskiptafræði, á
mjög stóran þátt í uppbyggingu skólans og
efast ég um að hlutirnir hefðu gengið sem skyldi
án hennar. Ég held líka að hefði ég ekki komið
heim og stofnað þennan skóla, hefðu líklega liðið
ár og dagar áður en það yrði gert, en mér finnst
tími til kominn að færa hlutina til nútímalegra
horfs,“ segir Gunnar, sem eftir heimkomuna frá
Mexíkó starfaði í tvö ár við Tónmenntaskólann í
Reykjavík og við Tónlistarskólann í Bessa-
staðahreppi.
Lísa er skólastjóri og Gunnar kennslustjóri
Trommuskólans og auk þeirra skipa skólaráð
þeir Áskell Másson slagverksleikari og tónskáld
og Ríkharður H. Friðriksson tónlistarkennari,
tónskáld og tónlistarfræðingur. Þeir munu
einnig reglubundið halda „masterclass-
seminar“ við skólann og skipa dómnefnd í loka-
prófum. Diplomanám við skólann verður 60 ein-
ingar, teknar á tveimur árum.
TÓNLIST
Trommusettsnám
á háskólastigi
Morgunblaðið/Sverrir
Gunnar Waage og Lisa B. Ingólfsdóttir í hópi nemenda í undirbúningsdeild.
Davíð Antonsson, nemandi í undirbúningsdeild, lemur húðirnar og dregur ekki af sér.
Vefslóð: www.vortex.is/azteka/kennsla/
Netfang: azteka@vortex.is
svg@mbl.is
Nýlega var stofnaður
Trommuskóli Gunnars Waage
en þar verður eftir áramót í
fyrsta sinn hér á landi boðið
upp á trommusettskennslu á
háskólastigi.