Morgunblaðið - 04.12.2004, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 04.12.2004, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 2004 31 DAGLEGT LÍF Slys á öldruðum, bæði körlumog konum, eru hlutfallslegaalgengari heldur en hjá öðr- um hópum fullorðinna. Með vaxandi aldri eykst hætta á meiðslum, brot eru lengur að gróa, líkur aukast á innlögn á sjúkrastofnun auk þess sem dvalartíminn þar er að jafnaði lengri. Það er því óhætt að fullyrða að slys á efri árum geti dregið veru- lega úr færni og lífsgæðum margra, auk þess sem þörf á aðstoð eykst. Ótaldar eru þá aðrar afleiðingar eins og verkir og önnur óþægindi. Full ástæða er til þess að reyna eftir fremsta megni að fækka slysum hjá fólki í elstu aldurshópunum. Úttekt á slysum eldri borgara Hjá Landlæknisembættinu er nú unnið að úttekt á slysum eldri borg- ara á árinu 2003 en úttektin byggir á gögnum frá Slysaskrá Íslands og slysadeild Landspítala-háskóla- sjúkrahúss (LSH). Samkvæmt henni leituðu tæplega 1.850 slasaðir einstaklingar, 65 ára og eldri, til slysadeildar LSH á þessu eina ári. Flestir komu vegna heima- og frí- tímaslysa, eða 75%, tæplega 7% vegna umferðaróhappa, 5% vegna vinnuslysa og 4% vegna íþrótta- slysa. Flest slys á heimilum og algengasta orsökin fall Samkvæmt fyrrgreindri úttekt varð mikill meirihluti slysa á eldri borgurum (66%) á og við heimili. Það bendir ótvírætt til þess að slysavarnir aldraðra þurfa fyrst og fremst að snúa að heimilinu og nán- asta umhverfi þess. Í mestum hluta slysanna var or- sök áverkanna fall, eða í rúmlega 67% tilfella. Kemur það heim og saman við aðrar rannsóknir sem gerðar hafa verið á slysum aldraðra, bæði innlendar og erlendar. Þegar litið er á kyn og aldur slasaðra sést að fjöldi falla fer hlutfallslega vax- andi með hækkandi aldri og að kon- um hættir frekar til þess að detta en körlum. Hvað er til ráða? Til þess að fyrirbyggja slys þarf bæði að horfa til einstaklingsins sjálfs og nánasta umhverfis hans. Regluleg hreyfing viðheldur styrk og liðleika líkamans og eykur út- hald. Hún getur einnig hægt á hrörnun og minnkað þær afleiðingar sem sjúkdómar geta haft á almenna færni. Vert er að hafa í huga að ekki hentar sams konar hreyfing öllum og því æskilegt að hver og einn finni líkamsþjálfun sem eykur ánægju og vellíðan. Í heilbrigðisáætlun kemur fram sú stefna stjórnvalda að aldraðir hafi tök á að dvelja sem lengst í heimahúsum. Til þess að svo megi verða er nauðsynlegt að heimilið sé eins öruggt og kostur er. Slysa- varnafélagið Landsbjörg hefur ný- lega gefið út bæklinginn „Örugg efri ár!“ en þar er m.a. er að finna gát- lista fyrir heimilið svo fyrirbyggja megi þær slysagildrur sem þar kunna að leynast. Bæklinginn má nálgast á heilsugæslustöðvum.  HOLLRÁÐ UM HEILSUNA | Landlæknisembættið Öruggt heimili á efri árum Morgunblaðið/Þorkell Hildur Björk Sigbjörnsdóttir, verkefnisstjóri hjá Landlæknisembættinu. iðunn tískuverslun Kringlunni, s. 588 1680 Seltjarnanesi s. 561 1680 Glæsilegt úrval af náttfötum Í jólablaði Morgunblaðsins birtist uppskrift að peruböku og í hráefn- islýsingu vantaði magnið af eggjum og vatni. Hér kemur uppskriftin leiðrétt. 240 g hveiti 150 g smjörlíki 100 g sykur 1 egg 1 msk vatn 1 tsk vanillusykur ½ tsk engiferduft örlítið salt sem má sleppa niðursoðnar perur 1/1 dós eða ferskar. Hveiti og smjörlíki blandað vel saman – hrært saman. Bæta síðan saman við sykri, vanillusykri, engi- fer og salti. Í lokin er eggi og vatni blandað varlega saman við deigið. Það má ekki hræra deigið eftir að vatnið og eggin eru komin saman við. Deiginu er skipt í tvo hluta og flatt út. Annar hlutinn er settur í hringlaga „springform“ og perunum raðað ofan á. Hinn hluti deigsins er flattur út og settur yfir perurnar. Hægt er að frysta bökuna. Bakan er bökuð í ca 30-40 mínútur við 180°C. Borin fram volg með þeyttum rjóma. Perubaka - leiðrétt mbl.is smáauglýsingar smáauglýsingar mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.