Morgunblaðið - 04.12.2004, Side 35

Morgunblaðið - 04.12.2004, Side 35
jórnmála- æði Baska- gar Bata- spænsku þessu hafa m að ETA- þátt í frið- i. yfirlýsing- Fernando aráðherra órnar sósí- gun Bata- enn hefðu æri beitt í pólitískum kkert van- ingsmenn Þessi hef- spænskra nir höfðu birtist yf- hótað var . Ekki var a leiðtoga vanginum Real Soc- ti gestum orgarar í við hvers sk stjórn- afla. ar höfð til væri öld- jafnframt græfi und- gast vand- n hátt og líkja til- mdarverk“. prenging- u ljósi. firlýsingar sverða at- róðir telja á ástandið síðasta yf- talist dig- erðirnar í til þess að lýst yfir Batasuna- st bréf frá amönnum Spáni þar una til að taka þess í iðsamlega tæðu ríki ekki láta r duga. Í ar löngum suna verði þátttakandi í hinu lýðræðislega regluverki. Krafan um þjóðaratkvæði Ef til vill er það Juan José Ibarr- etxe sem einna mestar vonir bindur við stefnubreytingu af hálfu ETA og þó einkum Batasuna. Ibarretxe fer fyrir Þjóðernisflokki Baska (Partido Nacionalista Vasco, PNV) sem verið hefur leiðandi í stjórnmálalífi Baska- lands allt frá því að sérstaða þess og sjálfstjórn innan Spánar var tryggð samkvæmt „Guernica-lögunum“ sem staðfest voru af þingi og kon- ungi í desembermánuði 1979. Flokk- ur þessi hafnar ofbeldi en er hlynnt- ur því að fram fari þjóðar- atkvæðagreiðsla um sjálfstæði Baskalands. Flokkurinn hefur löngum notið í kringum 40% stuðn- ings í Baskalandi og hefur því tryggt sér algjöra sérstöðu í stjórnmálum þar. Samskipti PNV og miðstjórnar- innar í Madríd hafa löngum gengið erfiðlega. Í tíð José María Aznar, forsætisráðherra Þjóðarflokksins (Partido Popular, PP) frá 1996 þar til í marsmánuði, var því löngum haldið fram að ráðamenn PNV í Baskalandi sýndu ekki nægan áhuga á að brjóta starfsemi ETA á bak aftur. Verra þótti þó þegar PNV átti um hríð samstarf við hinn pólitíska arm hreyfingarinnar. Færi svo að Batasuna hafnaði of- beldinu gæti það orðið til þess að styrkja stöðu basknesku heima- stjórnarinnar gagnvart miðstjórn- inni í Madríd og skapað forsendur fyrir kröfum um enn aukna sjálfs- stjórn sem þó er ærin fyrir. Hagur Baska hefur vænkast mjög á und- anliðnum áratugum. Tunga þeirra hefur verið endurreist og staða hennar tryggð. Hagur almennings er góður og yfir meðaltali á Spáni. Baskar ráða yfir eigin lögreglu og stjórna menntakerfinu að verulegu leyti; margir skólar kenna aðeins á Baskamáli og einungis um 15% þeirra nota eingöngu spænsku. Þjóðernissinnar vísa oftar en ekki til „réttar þjóða til sjálfsákvörðun- ar“. Á meðal friðsamra þjóðernis- sinna í Baskalandi er réttur þessi jafnan lagður út á þann veg að hann feli í sér að efna beri til þjóðarat- kvæðis um framtíðarstöðu þjóðar- innar. Er þetta í samræmi við Liz- arra-samkomulagið svonefnda frá árinu 1998 sem er í senn friðaráætl- un og yfirlýsing um sjálfs- ákvörðunarrétt basknesku þjóðar- innar með sérstakri tilvísun til friðarferlisins á Norður-Írlandi. Þjóðernissinnar í Galisíu, Katalóníu og Baskalandi komu ásamt fleirum að Lizarra-samkomulaginu. Eining ríkisins tryggð og varin Einungis um þriðjungur bask- nesku þjóðarinnar studdi stjórnar- skrá Spánar árið 1978. Þjóðernis- flokkurinn studdi hins vegar Guernica-lögin sem kveða á um sér- stöðu Baskalands innan Spánar á grundvelli spænsku stjórnarskrár- innar. Hún kveður aftur á um að við- halda beri einingu ríkisins og er í raun eins konar „endastöð“ umræðu þessarar á Spáni. Í huga mjög margra Spánverja, ekki síst hægri manna, er ákvæðið um að einingu ríkisins megi ekki rjúfa nánast sem trúarsetning. Af þessum sökum hafa margir lit- ið svo á að sjálfstæðistal PNV sé heldur marklítið og að nærtækara sé að setja það í samhengi við viðleitni til að auka enn völd sjálfsstjórnar- innar í Baskalandi. Raunar er linnu- laus viðleitni til að auka valdið heima í héraði á kostnað miðstjórnarinnar í Madríd eitt af helstu einkennum spænskra stjórnmála. Stuðningur við sjálfstæði er mikill í Baskalandi, um það verður ekki efast þótt forðast beri að leggja sam- an meðalfylgi PNV og Batasuna í því skyni að leiða í ljós að meirihluti kjósenda þar myndi styðja aðskilnað frá Spáni. Víst þykir að sumir Bask- ar myndu ekki kjósa sjálfstæði. Þjóðernishyggjan ristir misjafnlega djúpt á hinum ýmsu sviðum sam- félagsins. Í menningarlegum efnum á hún sér traustar rætur en þar með er ekki sagt að þjóðin öll skilgreini sig sem aðgreinda frá öðrum íbúum Spánar. Raunar eru til kannanir þar sem fram kemur að flestir íbúa Baskalands líta fyrst og fremst á sig sem Baska en einnig sem Spánverja. Um þriðjungur kannast einvörð- ungu við að vera Baskar. Færi svo að Batasuna hafnaði of- beldi með afdráttarlausum hætti myndu pólitískar aðstæður gjör- breytast í Baskalandi. Sóknarfæri friðsamra þjóðernissinna gagnvart miðstjórnarvaldinu yrðu önnur og betri en þekkst hafa á undanliðnum áratugum. Krafan um sjálfsákvörð- unarrétt þjóðarinnar fengi annað inntak en hingað til og ef til vill raun- verulegan slagkraft. Síðast en ekki síst myndi slík yf- irlýsing af hálfu Batasuna trúlega fela í sér endalok ETA-hreyfingar- innar. Vonir hafa vaknað um að þau kunni að vera í sjónmáli en reynslan og aðgerðirnar í Madríd-borg síð- degis í gær kenna að hófleg bjart- sýni er ráðleg í því efni. Associated Press ti þjóðfána Baska á fjölmennum útifundi í San Sebastián í Baskalandi 3. desember ður hafði ETA-hreyfingin lýst yfir því að 14 mánaða gamalt einhliða vopnahlé væri úr ir teikn á lofti um að hreyfingin hyggist á ný lýsa yfir því að vopnin hafi verið lögð til asv@mbl.is öðum ETA? tasuna hafnaði ofbeldi með hætti myndu pólitískar að- tast í Baskalandi.‘ Í upphafi ársins kostaðiBandaríkjadalurinn liðlega70 krónur en nú er hannkominn vel niður fyrir 64 krónur. Dollarinn hefur veikst mikið gagnvart krónunni á und- anförnum misserum, þannig var gengið liðlega 80 krónur í upphafi árs 2003 og liðlega 100 krónur í upphafi ársins 2002. Vegna minnkandi utanríkisviðskipta við Bandaríkin má segja að vægi gengisbreytinganna sé minna en ætla mætti og eins hafa fyrirtæki sem eiga mikið undir viðskiptum í dölum í auknum mæli tryggt sig gegn gengisáhættu eða gripið til varna gegn þeim með öðrum hætti. En áhrifin af veikingu dalsins gagnvart krónunni eru engu að síður margvísleg og þau birtast meðal annars í því að vél- ar Icelandair eru með fleiri tösk- ur í maganum og nokkuð þung- fleygari þegar þær koma að vestan. Fleiri ferðatöskur Tölur Hagstofunnar sýna ekki umtalsverðar breytingar í inn- flutningi frá Bandaríkjunum nema þá í innflutningi á bifreið- um. Ekki mælist þó allt í tölum Hagstofunnar þótt góðar séu. Einstaklingar gera sér auðvitað grein fyrir að nú er hagstætt að versla í Bandaríkjunum. Frá því var greint í fréttum á dögunum að um 200 manna hópur Íslend- inga sem fór til St. John’s í Kan- ada hefði verslað svo grimmt að skilja varð eftir um og yfir 100 ferðatöskur er lagt var af stað heim. En hvað um Bandaríkin? Jú, Íslendingar gera nú miklu meira af því að fara vestur til að versla og skemmta sér. Ekki furða því vörur sem kostað hefðu 100 þúsund krónur vestra fyrir tæpum þremur árum kosta nú ekki nema 63 þúsund. Slíkt togar auðvitað og raunin er einnig sú að mikil aukning hefur verið hjá Icelandair í farþegafjölda vestur á þessu ári og bókanir fram í tímann eru mjög góðar. Aukn- ingin í ferðum Íslendinga er mis- jöfn eftir áfangastöðum í Banda- ríkjunum en að meðaltali um 40% það sem af er þessu ári. Í lang- flestum tilvikum er fólk að fara í langar helgarferðir til að versla og gera vel við sig í mat og drykk. Starfsmenn Icelandair hafa orð á því að farþegarnir komi með fleiri töskur til baka en þeir fóru með að utan og vél- arnar ku vera allnokkru þung- fleygari á leiðinni heim. En auðvitað eru tvær hliðar á hverjum peningi og veikari dollar gagnvart krónu og öðrum Evr- ópumyntum er ekki til þess fall- inn að auka áhuga Bandaríkja- manna á að fara til Evrópu sem aftur skiptir Icelandair líka miklu máli þannig að gengisáhrif jafn- ast nokkuð út. Þar fyrir utan tryggir Icelandair, eins og önnur stór fyrirtæki á Íslandi, sig fyrir gengissveiflum með ýmsum hætti. Minnkandi vægi Bandaríkjanna Sem fyrr segir hefur vægi Bandaríkjanna í utanrík- isviðskiptum Íslands farið um- talsvert minnkandi á und- anförnum árum og áratugum. Þannig má nefna að á árunum 1980–1985 fór á bilinu 21–28% af heildarútflutningi Íslendinga til Bandaríkjanna, hlutfallið var komið niður í rúm 12% árið 2000 og síðustu árin hefur það verið um eða innan við 10%. Slíkt hið sama gildir raunar um innflutn- inginn frá Bandaríkjunum, árið 1990 kom 15% af heildarinnflutn- ingi Íslendinga á vörum frá Bandaríkjunum, hlutfallið var tæp 12% árið 2000 og í fyrra var það ekki nema 7,4%. Þetta eru miklar breytingar sem draga úr áhrifum gengisbreytinga Banda- ríkjadals á íslenskt efnahagslíf. Lægra gengi dalsins hefur engu að síður orðið til þess að innflutningur á bílum þaðan hef- ur aukist margfalt í ár. Í fyrra nam innflutningurinn 630 millj- ónum en var kominn í 1,63 millj- arð eftir fyrstu tíu mánuði þessa árs og enn tveir mánuðir eftir af árinu. Þá hafa fyrirtækin aukið innflutning á hrávörum og rekstrarvörum úr 2,2 milljörðum í fyrra í tæpa 3,2 milljarða fyrstu tíu mánuði ársins. Að öðru leyti virðast ekki miklar breytingar hafa orðið í innflutningi að vest- an, a.m.k. þegar horft er til stærstu liðanna í tölum Hagstof- unnar þó að vitað sé að innflutn- ingur á einstökum vörum hafi aukist. Minna af fiski á Bandaríkin Fyrirtæki sem flytja út vörur til Bandaríkjanna fá vitaskuld færri krónur en áður fyrir vör- urnar. Þetta kemur fyrst og fremst við útflutning á sjávaraf- urðum sem slagar upp í að vera 70% af heildarútflutningi Íslands til Bandaríkjanna. Hann dróst verulega saman milli áranna 2002 og 2003, fór úr 22 milljörðum í tæpa 17 milljarða. Verðmæti sjávarafurða fór úr 16,3 millj- örðum í tæpa 11 milljarða í fyrra og er vart annars að vænta en þessi samdráttur hafi haldið áfram í ár. Þessar tölur lýsa þróun sem rímar alveg við það sem raddir í þessum geira segja, þ.e. að út- flutningurinn flytjist í auknum mæli frá Bandaríkjunum og á aðra markaði, t.d. í Evrópu, með lækkandi gengi dalsins en að töluverð tímatöf sé í þeim efnum. Þetta gerist þó alls ekki einn tveir og þrír og raunar nokkuð mishratt eftir afurðum. Í sumum tilvikum geti tekið tíma að vinna vöruna inn á nýjan markað en í öðrum tilvikum sé það auðveld- ara. Breytingar af þessu tagi séu þó almennt frekar hægar og því geti liðið nokkur tími frá því gjaldeyrisbreyting verður og þangað til hennar sjái greinilega stað í útflutningstölum. Þetta kemur heim og saman við það að gengi krónunnar gagnvart dal byrjaði að styrkjast í lok árs 2001 en þau áhrif koma ekki fram fyrr en í útflutningstölunum árið 2003 og væntanlega enn frekar í ár. Álverð, olía og raforka Stundum er talað um að það sé öfugt samband á milli verðs á hrávöru og gengis Bandaríkja- dals, þ.e. þegar dollarinn veikist hækki verð á hrávörum eins og olíu. Þetta er þó umdeilt en má þó til sanns vegar færa þegar horft er til þeirra verðþróunar á þeim tveimur hrávörum sem skipta okkur Íslendinga einna mestu, olíu sem við flytjum til landsins og áls sem við flytjum út. Að óbreyttu hefði veiking dollars átt að koma fram í lægra verði á olíu og bensíni, ein- staklingum og fyrirtækjum hér heima til hagsbóta. Þetta hefur hins vegar alls ekki gengið eftir vegna gríðarlegrar hækkunar á heimsmarkaðsverði á olíu. Það mætti frekar orða það þannig að gengisbreytingarnar hefðu náð að slá örlítið á þá hækkun sem orðið hefði á árinu. Ef horft er til ál- iðnaðarins hér á landi má segja að áhrifin af veikingu dalsins séu lítil, m.a. vegna þess að álverð hefur sjaldan verið hærra. Á það ber einnig að líta að þótt allar tekjur af sölu á áli séu í dollurum þá eru skuldirnar það líka. Og þegar horft er á útgjöld álver- anna er stærsti hluti þeirra, raf- orkan og súrálið, væntanlega líka keypt í dollurum. Þá stendur að- eins sá hluti útgjalda álveranna sem er í íslenskum krónum, þ.e. launakostnaður. Ljóst er að fleiri dollara þarf til þess að greiða fyrir þau útgjöld en staðreyndin er sú að launakostnaður vigtar ekki mjög þungt á útgjaldahlið- inni, líklega ekki nema 10–15% í nýjustu álverum en kannski 20– 25% í þeim eldri. Ef launakostn- aðurinn er í hærri kantinum þyngir sterkari króna rekstur ál- vers en segja má að sá þungi hverfi og gott betur en það þegar saman fer hátt álverð og lágir vextir. Verra sjóðflæði, betri afkoma En hvað með þann sem selur álverunum orkuna og fær greitt í dollurum? Stærsti hluti samninga Landsvirkjunar (LV) vegna orku- sölu til stóriðju er bundinn í döl- um en þó mun sala á raforku til Járnblendifélagsins vera í norsk- um krónum. Tekið skal fram að um eða yfir helmingur tekna LV er þó í krónum vegna sölu á raf- orku til almennra notenda. En áhrifin af lækkun dollars hafa tvenns konar áhrif á rekstur Landsvirkjunar. Sjóðstreymi eða fé frá rekstri minnkar þegar færri krónur fást fyrir doll- aratekjurnar. En á móti lækka afborganir og skuldir í dölum en skuldbindingar LV í dollurum eru umtalsverðar: um síðustu áramót námu skuldir LV um 90 millj- örðum króna og þar af voru skuldir í dölum rúmur fjórðungur en skuldir í evrum um helmingur. Þannig að samandregið má segja að gengislækkun dalsins sé já- kvæð fyrir afkomu Landsvirkj- unar vegna áhrifanna á skulda- stöðuna en neikvæð fyrir sjóðstreymi félagsins. Veikur dollar og þungar flugvélar Fréttaskýring | Gengi Bandaríkjadals fór vel niður fyrir 64 krónur í gær og hefur ekki verið lægra síðan 1995. Arnór Gísli Ólafsson skoðaði áhrifin af veikari dal gagnvart krónunni. arnorg@mbl.is MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 2004 35

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.