Morgunblaðið - 04.12.2004, Síða 42

Morgunblaðið - 04.12.2004, Síða 42
þrúður Jónasdóttir, f. 27. jan. 1948. 2) Guð- ríður Guðrún, f. 3. mars 1938, maki Óli Th. Hermannsson, f. 24. júní 1943, þau eiga fjögur börn, 3) Jón, f. 17. júní 1939, d. 23. sept. 1998, maki Ragnhildur Þorleifsdóttir, f. 16. apríl 1943, þau eiga þrjú börn. 4) Guð- mundína Lilja, f. 28. júní 1940, maki Hall- dór Hafsteinsson, f. 5. maí 1939, þau eiga fjögur börn. 5) Haukur, f. 18. sept. 1941, maki Sigurbjörg Björgvinsdóttir, f. 1. nóv. 1941, þau eiga fimm börn. 6) Hulda Bryndís, f. 4. febr. 1943, maki Ingvar Þ. Gunnarsson, f. 27. apríl 1944, þau eiga fjögur börn. 7) Ás- dís, f. 20. mars 1944, maki Gylfi Gunnarsson, f. 27. júlí 1940, þau eiga fimm börn. 8) Bragi, f. 9. des. 1945, maki I Kristín Ingv- arsdóttir, f. 17. feb. 1945, d. 8. nóv. 1987, þau eiga þrjú börn, sambýliskona Jónína H. Pálsdótt- ir, f. 20. sept. 1959. 9) Sigríður Halldóra, f. 17. des. 1947, maki Guðmundur Bernódusson, f. 9. ✝ Þorsteina Krist-jana Jónsdóttir fæddist á Birnustöð- um í Ögurhreppi 16. nóvember 1914. Hún lést á Hjúkrun- arheimilinu Eir 27. nóvember síðastlið- inn. Foreldrar henn- ar voru Jón Jónas- son bóndi á Birnustöðum, f. 18. maí 1882, d. 27. nóv. 1967, og kona hans Guðmundína Her- mannsdóttir, f. 14. nóv. 1889, d. 6. sept. 1979. Þorsteina átti fimm systk- ini, þau eru: Guðrún, f. 30. júlí 1916, Rebekka, f. 20. sept. 1920, Hermann Jónas, f. 8. apríl 1922, d. 1. júlí 1954, Guðmundur Bjarni, f. 8. apríl 1922, d. 16. júní 1960, og Guðríður, f. 7. jan. 1926, d. 30. nóv. 1991. Hinn 9. desember 1937 giftist Þorsteina Hannibal Guðmunds- syni frá Ytri-Búðum í Bolung- arvík, f. 24. apr. 1907, d. 9. des. 1984. Þeim varð 15 barna auðið. Þau eru: 1) Guðmundur Sigurvin, f. 17. febr. 1937, maki I Sigrún Jónasdóttir, f. 25. júlí 1942, þau eiga fjögur börn, maki II Arn- júlí 1948, þau eiga tvö börn. 10) Sigrún, f. 21. apríl 1950, maki Ólafur Grétar Egilsson, f. 11. okt. 1950, þau eiga þrjú börn, 11) Margrét Guðbjört, f. 25. jan. 1952, maki Jóhannes Guðmundur Þorbergsson, f. 31. maí 1949, þau eiga fjögur börn. 12) Fjóla, f. 22. apríl 1953, maki Jóhann Adolf Haraldsson, f. 26. nóv. 1944, þau eiga tvö börn. 13) Jóhann 27. júlí 1954, maki Guðrún Stella Giss- urardóttir, f. 9. apríl 1962, þau eiga fjögur börn. 14) Rebekka Signý, f. 13. jan. 1956, maki I Ás- björn Eydal Ólafsson, f. 27. jan. 1948, þau eiga tvö börn, maki II Felix Felixson, f. 23. ágúst 1954, þau eiga tvö börn. 15) Þorsteinn Jóhannes, f. 10. sept. 1961, maki Magnea Jónasdóttir, f. 25. jan. 1960, þau eiga þrjú börn. Lang- ömmubörnin eru 49 og afkom- endur því orðnir 115. Þau Þorsteina og Hannibal bjuggu fyrstu árin í Þernuvík í Ögurhrepp en fluttu að Hanhóli í Bolungarvík 1944. Eftir lát Hannibals bjó Þorsteina með Jó- hanni syni sínum og síðustu árin ásamt tengdadóttur, Guðrúnu Stellu Gissurardóttur, á Hanhóli til ársins 1998, en dvaldi eftir það á heilbrigðisstofnun Bolungarvík- ur, hjá dætrum sínum Sigrúnu og Ásdísi í Reykjavík og síðast á Hjúkrunarheimilinu Eir. Útför Þorsteinu verður gerð frá Hólskirkju í Bolungarvík í dag og hefst athöfnin klukkan 11. Skammdegismyrkrið liggur yfir láði en hvít héla lýsir upp kalda nótt- ina. Löngum ævidegi er lokið. Göm- ul kona sem hefur skilað ótrúlegu ævistarfi hefur lagt af stað yfir landamæri lífs og dauða. Undarleg- ar tilfinningar bærast í brjósi enda þótt vitað hafi verið að lífshlaupi tengdamóður minnar, Þorsteinu K. Jónsdóttur, væri að ljúka. Steinu, eins og hún var jafnan kölluð, hitti ég fyrst fyrir liðlega 40 árum er ég fór með syni hennar, Hauki, á æskustöðvar hans vestur í Bolungarvík. Þessi glettna, glæsi- lega, hógværa og góðlega kona um- vafði mig með sinni einstöku hlýju. Allar götur síðan hefur umhyggja úr hennar djúpu, brúnu augum gert nærveru hennar þægilega enda þótt hún myndi ekki nú hin síðari hver ég var. Steina var skarpgreind og hafði til að bera ótrúlegt æðruleysi. Hún tók því sem að höndum bar með „stó- ískri“ ró og reyndi að gera gott úr öllu. Hún var ótrúlega þolinmóð og stálminnug, víðlesin, kunni ógrynni af vísum og ljóðum, sögum og sögn- um og fylgdist vel með málefnum líðandi stundar. Fáir stóðu henni á sporði þegar ráða átti krossgátur eða leysa aðrar þrautir. Hún bar undir belti og fæddi 15 börn sem öll komust til fullorðins- ára. Þá áttu foreldrar ekki rétt á fæðingarorlofi né barnabótum. Hjónin á Hanhóli, Hannibal og Steina, komu hópnum sínum til manns með fádæma elju og dugnaði. Börnin þeirra fengu í veganesti úr foreldrahúsum að heiðarleiki, rétt- lætiskennd og dugnaður ásamt því að virða siðareglur samfélagsins væri það sem skipti máli að lokum. Steina lét sér ekki nægja að annast sinn stóra barnahóp heldur nutu ömmubörnin og margir fleiri hlýju og velvilja hennar í ríkum mæli. Ævistarf hennar skiptir sköpum fyrir íslenskt samfélag þótt hvorki hún né hennar líkar hafi verið sæmdar opinberum orðum. Slík af- rek alþýðukvenna hefur þögnin ein viðurkennt. Í uppvextinum varð Steina mótuð af þeim stórbrotnu og á stundum óblíðu náttúruaðstæðum sem ein- kenna Vestfirði. Hún lærði ung að bjarga sér og var sívinnandi. Það hlýtur að hafa þurft umtalsverðan dugnað og verklagni til að annast hennar fjölmenna heimili. Hugur Steinu var bundinn háum fjöllum og grösugum, þröngum döl- um Vestfjarða. Þar voru hennar djúpu rætur, hennar bernskuspor, hennar ævistarf, hennar gleði, henn- ar sorg. Með þessum ljóðlínum kveð ég tengdamóður mína með djúpri virð- ingu og þökk fyrir allt sem hún hef- ur gefið mér og mínum. Aðstandendum votta ég samúð. Það er sveit bak við heiðina háu þar sem heiðríkust vornóttin skín. Þar sem ótal mörg lífssporin lágu leitar hugur minn ákaft til þín. Þar sem dvaldi ég æskuna alla þar sem ævinnar starf mér ég bjó. Mega hverfa í faðm þinna fjalla færir sál minni huggun og ró. Ég var bundinn þér bláfjallasalur hverju blómi er í skjóli þér grær og þú seiddir mig sólríki dalur sveitin öll, hún var hjartanu kær. Þar sem hnjúkurinn hæstbrýndur fjalla heldur trúr yfir byggðinni vörð. Ó, hve gott er nú höfðinu að halla hinsta sinn að þér blessaða jörð. (Jóhann Guðmundsson.) Blessuð sé minning Þorsteinu K. Jónsdóttur. Sigurbjörg Björgvinsdóttir. Í dag er til moldar borin tengda- móðir mín Þorsteina Kristjana Jónsdóttir frá Hanhóli. Við kveðjustund hrannast minn- ingarbrotin upp um einstæða konu sem lifði og starfaði inn á milli fjalla blárra og hrikalegra í Syðridal við Bolungarvík. Það líða seint úr minni fyrstu kynni mín af Þorsteinu eða Steinu eins og hún var gjarnan köll- uð. Það var eins og að ferðast aftur í tímann fyrir borgarstúlkuna að koma að Hanhóli og hitta fyrir konu sem var langt komin á efri ár með síðar gráleitar fléttur, konu sem skartaði upphlut á tyllidögum á milli þess sem hún vann og stritaði. Konu sem hafði upplifað tímana tvenna og hafði ásamt eiginmanni sínum Hannibal Guðmundssyni komið fimmtán börnum til manns í sveita síns andlits við kröpp kjör á harð- býlu landi. Konuna sem skóp söguna án þess að sagan væri sögð. Á þessum tíma voru lítil þægindin og bjuggu þau Steina og Hannibal við sjálfsþurftarbúskap að mestu framan af í Þernuvík við Ísafjarð- ardjúp en fluttu að Hanhóli í Bol- ungarvík lýðveldisárið 1944. Öll börnin fæddi hún heima, fyrst sjö í Þernuvík og síðan átta á Hanhóli. Hannibal eiginmaður hennar starf- aði mikið utan bús eftir að í Bolung- arvík var komið við að draga björg í bú enda fyrir stórum hópi að sjá og má því geta nærri hve mikið af barnauppeldi og bústörfum var á hendi Þorsteinu. Er ég kynntist Þorsteinu tók hún þátt í bústörfum og sá um heimilið, fór enn í fjósið og handmjólkaði einu mjólkurkúna á bænum í fötu og kældi svo mjólkina í baðkarinu. Þorsteina var bæði íhugul og iðju- söm. Hún fylgdist vel með atburðum líðandi stundar og féll aldrei verk úr hendi. Þorsteina var um margt fróð og bókhneigð mjög. En þar sem tími til lestrar var takmarkaður neð stór- an barnahóp hafði hún tamið sér að vinna helst eitthvað samhliða lestr- inum og þannig sér maður hana fyr- ir sér, sitjandi við eldhúsborðið með augun á bókinni og prjóna á fingrum á milli þess að hún hrærði í pott- unum til að elda fyrir gesti og gang- andi en þó á þessum tíma einkum fyrir hann Jóa sinn sem hafði tekið við búi foreldra sinna en á milli þeirra mæðginanna var einstakt samband sem grundvallaðist á skiln- ingi, ástúð og virðingu. Þorsteina var aðlaðandi kona með góðleg stór brún augu. Hún var nokkuð hlédræg, hafði mikið jafn- aðargeð og framkoma hennar ein- kenndist af æðruleysi og nægju- semi. Stutt var oftast í brosið og kætin og hláturinn skammt undan er hópurinn hennar var saman kom- inn, dæturnar níu og drengirnir sex. Öllum sem bar að garði tók hún á móti af góðmennsku og gestrisni. Henni þótti ákaflega vænt um börn og ungmenni og tók á móti barna- börnunum með opinn arminn og dvöldu mörg þeirra hjá ömmu sinni í sveitinni um lengri eða skemmri tíma. Fyrir henni báru þau virðingu sökum hreinlyndis hennar, þolgæðis og góðmennsku. Dóttur minni Ástu var hún einnig afar góð og mikil gæði fólgin í því að eiga athvarf inni hjá Steinu ömmu er skóla var lokið og mikil var gleði hennar þegar við Jóhann eignuðumst börnin okkar en yngsta dóttir okkar og einnig yngsta barnabarnið hennar heldur nú við nafninu hennar á Hanhóli. Þorsteina var einnig mikill dýra- vinur og var einstakt að sjá hana hlúa að örsmáum fyrirmálslömbum þar sem hún kepptist við að koma í þau lífi með öllum tiltækum ráðum, halda á þeim hita, næra þau og nudda til að þau mættu spretta úr spori í sólbjörtu sumrinu. Heima- hagarnir voru henni afar kærir og undi hún sér best heima á Hanhóli þó að hún hefði gaman af því að ferðast og virða fyrir sér hina stór- brotnu náttúru landsins. Sérstak- lega hafði hún gaman að því að heimsækja æskuslóðirnar á Birnu- stöðum og rifja upp með systur sinni Rúnu bernskuárin, örnefnin og forna búskaparhætti. Svo kær var hún heimili sínu og sveitinni að hún fór helst ekki af bæ nema að taka af okkur loforð um að koma henni við fyrsta tækifæri heim aftur. Hennar staður var á Hanhóli. Þar var hún í senn kletturinn sem sameinaði og stóð vörð um fjölskyldu sína og ætt- ÞORSTEINA KRIST- JANA JÓNSDÓTTIR 42 LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR Björnsdóttir rithöfundur. Hafþór Jónsson kirkjuvörður les jólaljóð. Þórhildur Ólafs, settur sókn- arprestur, flytur ávarp, les úr spá- dómsbók Jesaja og fer með bæn. Sundinni lýkur með því að sunginn verður jólasálmurinn Nóttin var sú ágæt ein eftir Einar Sigurðsson í Eydölum og Sigvalda Kaldalóns. Vonandi fær aðventukvöldið stuðl- að að því að við getum sett jóla- undirbúninginn í rétt samhengi og tekið síðan á móti þeim konungi lífsins sem kemur á jólum í mynd vanmáttugs barns til þess að vera ljós heimsins. Aðventutónleikar Kórs Lindakirkju AÐVENTUTÓNLEIKAR kórsins verða haldnir sunnudaginn 5. des- ember kl. 17 í Glersalnum við Salaveg í Kópavogi. Söngdagskráin verður fjöl- breytt, algeng jólalög og verk frá ýmsum tímum. Stjórnandi er Hannes Baldursson, undirleikari er Sigrún Þórsteinsdóttir ásamt nemendum úr Tónlistarskóla Kópavogs. Einsöngvari með kórn- um er Heiða Margrét Guðmunds- dóttir. Aðgangur er ókeypis. Pönnukakan hennar Grýlu í Lindasókn í Kópavogi ANNAN sunnudag í aðventu verð- ur haldin fjölskylduguðsþjónusta í Lindaskóla kl. 11. Þar verður m.a. sýnt brúðuleikritið Pönnukakan hennar Grýlu í flutningi Bernds Ogrodnik, sem einnig er höfundur leikritsins. Sagan segir frá hug- vitssamri pönnuköku sem flýr steikarpönnu Grýlu með það fyrir augum að ferðast til Jesúbarnsins í Betlehem. En á veginum verða ýmsir sem vilja sinn skerf af kök- unni. Kvennakirkjan í Laugarneskirkju KVENNAKIRKJAN heldur að- ventumessu í Laugarneskirkju sunnudagskvöldið 5. desember klukkan 20.30. Elína Hrund Krist- jánsdóttir guðfræðingur predikar og kór Kvennakirkjunnar leiðir aðventusöng undir stjórn Að- alheiðar Þorsteinsdóttur. Einn þáttur messunnar er mótmæli kirkjunnar gegn ofbeldi í garð kvenna. Þar verður gáð að styrkn- um og gleðinni sem kristin trú boðar konum eftir orðum Biblíunn- ar. Kvöldinu lýkur með kaffi og kökum við kertaljós og næði til samtals og samveru. Aðventukvöld í Norðfjarðarkirkju AÐVENTUKVÖLD verður í Norð- fjarðarkirkju 5. desember kl. 20:00. Meðal efnis er: Fjölbreytt tónlistaratriði með jólastemmingu: Nemendur Tónskólans flytja jóla- lög. Ræðumaður: Smári Geirsson. Kórsöngur; aðventulög og jóla- sálmar. Komum saman í kirkjunni til að eiga gleðistund á aðventukvöldinu. Kaffisopi og piparkökur í Safn- aðarheimili á eftir. Allir velkomn- ir. Aðgangur ókeypis. Þeir eldri borgarar sem þurfa bílferð til kirkjunnar láti sóknarprest vita í símum 477 1127 og 477 1766. Bráðum koma blessuð jólin! Sunnudagaskólinn að venju kl. 11:00 í Safnaðarheimilinu. Kveikt á öðru aðventukertinu. Lýsing í kirkjugörðunum yfir jólahátíðina hefst 5. desember og verður fram yfir þrettándann. Með ósk um að einlæg birta og gleði fái að ríkja á aðventunni. Sóknarprestur og sóknarnefnd Norðfjarðarkirkju. Aðventukvöld Árbæjarkirkju AÐVENTUHÁTÍÐ Árbæjarkirkju hefst kl.20.00. Kammersveit skip- uð, Hjörleifi Valssyni, Helgu Torfadóttur og Örnólfi Kristjáns- syni mundu opna hátíðina með flutningi nokkura verka. Ung- menni tendra á tveimur af fjórum kertum aðventukransins og Sr. Sigrún Óskarsdóttir mun í stuttu máli segja sögu hans. Við kirkjuna eru starfandi tveir kórar ann- arsvegar Kirkjukór kirkjunnar og gospel kór munu þeir syngja sam- an og í sitt hvoru lagi þekkt að- ventu og jólalög sem kemur öllum í jólaskap undir styrkri stjórn Krisztinar Kalló Sklenár organista kirkjunnar. Undirleikari hjá gosp- elkórnum er Egill Antonsson. Há- tíðarræðu kvöldsins flytur Tinna Gunnlaugsdóttir verðandi þjóleik- hússtjóri. Fermingabörn flytja helgileik og sr. Þór Hauksson flyt- ur hugvekju. Kvöldið endar í kirkjunni á að kirkjan öll mun óma af söng kór- anna og kirkjugesta. Boðið verður upp á heitt súkkulaði og meðlæti í safnaðaheimilinu á eftir. Minning látinna ÞRIÐJUDAGSKVÖLDIÐ 7. desem- ber. kl. 19:45 býður Bjarni Karls- son, sóknarprestur í Laugarnes- kirkju, upp á stuttan fyrirlestur um sorgina. Þar eru allir syrgj- endur velkomnir. Í beinu fram- haldi verður kvöldsöngur í kirkj- unni kl. 20:30. Þar gefst fólki kostur á að kveikja á bænakerti í minningu látinna ástvina og Þor- valdur Halldórsson leiðir söng. Kaffisopi er svo í safnaðarheim- ilinu á eftir handa þeim sem það vilja þiggja. Gengið er inn um að- aldyr kirkjunnar. Erindi síra Braga um ekkjumenn í Selfosskirkju ÞRIÐJUDAGSKVÖLDIÐ 7. desem- ber nk. kl. 20.00 heldur síra Bragi Skúlason erindi í safnaðarheimili Selfosskirkju. Fundurinn er hald- inn á vegum Geisla, félags um sorg og sorgarviðbrögð, og er að þessu sinni einkum ætlaður ekkjumönn- um. 2. nóvember sl. kom síra Bragi austur hingað og ræddi að því sinni ekkjur og aðstæður þeirra. Sá fundur var framúrskarandi vel sóttur. Síra Bragi er sérmenntaður á sviði sjúkrahúsþjónustu. Hann hef- ur próf í fjölskyldumeðferð, auk þess sem hann lauk meistaraprófi frá Háskóla Íslands með rannsókn- arverkefninu „Ekklar á Íslandi 1999–2001“. Áreiðanlegt er, að mjög fróðlegt verður að hlýða á síra Braga fjalla um þetta efni og er vonandi, að sem flestir komi á fundinn, sem hefst, sem áður segir, kl. 20. Að erindi loknu verða umræður og kaffidrykkja. Sr. Gunnar Björnsson. Bandarísk stjórnmál og guðfræði í Neskirkju DR. CHRISTOPHER Morse, Diet- rich Bonhoeffer-prófessor við Union Theological Seminary í New York, mun nk. sunnudag, 5. des- ember, kl. 13–14 ræða um guð- fræði og bandarísk samtímastjórn- mál í Neskirkju. Hann mun meðal annars rýna í stjórnmálaástandið vestra út frá kenningum Dietrichs Bonehoeffers, eins virtasta sið- fræðings 20. aldar. Christopher Morse er prófessor í guðfræði og siðfræði Dietrichs Bonhoeffers við Union Theological Seminary (guðfræðideild Columbia University) í New York. Hann er vígður prestur Sameinuðu meþód- istakirkjunnar (United Methodist Church). Rannsókna- og kennslu- svið hans er í samstæðilegri guð- fræði með sérstakri áherslu á að iðka trúfræði og siðfræði með því að „reyna andana“ að því er varð- ar mótandi trúfræðihefðir og mik- ilvægi nútímalegrar sýnar og mats á trúfræði og kenningum kirkj- unnar. Fyrirlesturinn er öllum opinn en hann tekur um hálfa klukkustund og að honum loknum verða um- ræður og fyrirspurnir. Sr. Haukur Ingi Jónasson stýrir fundinum. KIRKJUSTARF

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.