Morgunblaðið - 04.12.2004, Blaðsíða 57

Morgunblaðið - 04.12.2004, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 2004 57 DAGBÓK Staðurogstund http://www.mbl.is/sos Félagsstarf Árskógar 4 | Aðventukaffi miðviku- daginn 8. des. kl. 14. Allir velkomnir. Breiðfirðingabúð | Jólafundurinn verður mánudaginn 6 desember. Mæt- ing kl 19. Munið pakkann. Félag eldri borgara, Reykjavík | Dans- leikur sunnudagskvöld kl. 20, Caprí- tríó leikur fyrir dansi. Fyrirhugað hefur verið að stofna bókmenntaklúbb, kynning verður föstudaginn 10. des- ember kl. 17 í Ásgarði, allir velkomnir. Félagsstarf aldraðra, Garðabæ | Gönguhópur leggur af stað frá Kirkju- hvolskjallaranum kl. 10.30. Mæting tímanlega. Félagsstarf Gerðubergs | Gerðuberg- skórinn synur kl. 14, í opnu húsi hjá Garðyrkjufélagi Íslands Frakkastíg 9, fer síðan á Laugaveginn ef vel viðrar. Félag kennara á eftirlaunum | Fræðslu- og skemmtifundur í Húna- búð, Skeifunni 11. Hefst kl. 13.30. Flosi Ólafsson lítur inn. Hæðargarður 31 | Opið félagsstarf fyrir alla virka daga 9–16. Skráning er hafin á jólahlaðborðið 10. des. sem hefst kl. 17. Fjölskylduganga Háaleit- ishverfis leggur af stað frá Hæð- argarði kl. 10 árdegis alla laugardaga. Húsið opnar kl. 9.30. Að lokinni göngu er boðið upp á vatn og teygjuæfingar. Allir velkomnir. Sjálfsbjörg | félag fatlaðra á höf- uðborgarsvæðinu. Árleg jóla- hlutavelta, kaffisala, lukkupakkar, kór- söngur ofl. Kirkjustarf Fríkirkjan Kefas | Bænastund kl. 20.30. Allir eru hjartanlega velkomnir. Hallgrímskirkja | Fyrirbænaguðsþjón- usta alla þriðjudaga kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum. Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Bæna- stund laugardaginn 4. des. kl. 20. Einnig eru bænastundir alla virka morgna kl. 06 – 07 Allir velkomnir á bænastundirnar. Njarðvíkurprestakall | Ytri- Njarðvíkurkirkja. Sunnudagaskóli sunnudaginn 5. desember kl.11. í umsjá Margrétar H.Halldórsdóttur og Gunn- ars Þórs Haukssonar. Foreldrar eru hvattir til að mæta með börnunum. ÞAÐ verður kátt á hjalla á morgun, sunnudag, í veitingastaðnum Gull- hömrum í Grafarholti, þegar André Bachmann og vinir hans halda Jólahátíð fatlaðra, „Perlujól“, en þetta er í fimmtánda sinn sem fé- lagsskapurinn býður upp á þessa skemmtun. Hátíðin er haldin í sam- starfi við Sjálfsbjörg, Styrktarfélag Vangefinna og Svæðisskrifstofu fatlaðra. André, sem er þekktur fyrir mik- inn jólaanda, syngur einnig á jóla- hlaðborðum og jólaböllum Nausts- ins auk þess sem hann kemur víða við á aðventunni með sveit sinni Stefnumót. Hann segir Jólahátíð fatlaðra hins vegar alveg ómissandi hluta af sinni jólahefð og þar nýtist þau góðu kynni sem hann hefur af samstarfsfólki sínu meðal íslenskra listamanna. „Þarna koma fram fjöl- margir vinir mínir sem ég hef kynnst gegnum árin,“ segir André, en þeir sem koma fram eru m.a. Laddi, Strákarnir úr 70 mínútum, Idol-stjörnurnar Kalli Bjarni og Jón Sigurðsson og Simmi, Idol-kynnir. Þá mun Lúðrasveit Verkalýðsins taka lagið og einnig Vallagerð- isbræður. „Þá verður þarna unglingahljóm- sveitin Hásin, sem eru ungir piltar á aldrinum 12-14 ára. Þeir spila undir fyrir sjálfan rokk-kónginn Rúnar Júlíusson. Þarna verða líka Príma- donnur með Abba-lögin og hljóm- sveitin mín Stefnumót, en með okk- ur syngur Hulda Gests söngkona.“ Leikhópurinn Perlan mun einnig verða með skemmtiatriði á jólahá- tíðinni undir stjórn Sigríðar Ey- þórsdóttur. „Svo koma jólasveinar og jólatrúðurinn Jóki verður með glæsilega uppákomu auk þess sem stelpurnar í Nylon koma og syngja fyrir gesti,“ segir André. „Þá verða þarna töframennirnir Pétur pókus og Lalli með töfrabrögð.“ Kynnir á Perlujólum, jólahátíð fatlaðra, verður hinn landsþekkti poppari og útvarpsmaður Þorgeir Ástvaldsson. Einungis kostar 500 krónur inn á jólahátíðina og er inni- falið í því kaffi, kökur og kók. „Enginn aðstandandi eða skemmti- kraftur á hátíðinni fær nein laun, það gefa allir sína vinnu, það er al- veg á hreinu. Þessar fimm hundruð krónur fara bara til að greiða starfsfólki Gullhamra og fyrir kaffið og kökurnar,“ segir André og bætir við að það sé einfaldlega grundvallaratriði. „Ég legg einnig ríka áherslu á það að aðstandendur mæti með sínu fólki, vegna þess að fatlaðir eru voðalega oft afgangs- stærð í þessu þjóðfélagi.“ Jólaballið verður haldið í veit- ingastaðnum Gullhömrum að Þjóð- hildarstíg 2 í Grafarholtinu og seg- ir André Lúðvík Halldórsson veitingamann á Gullhömrum eiga heiður og hrós skilið fyrir framlag sitt. „Salurinn tekur þúsund manns og það er mjög gott aðgengi þar. Lúðvík skaffar húsið, veitingar og laun til starfsfólks sem eru á hans vegum til að gleðja gestina á þess- ari hátíð. Nói Síríus hefur líka stutt vel við bakið á okkur á hverju ári og gefið öllum krökkunum sem koma jóla- poka.“ Öll sambýli og heimili fatlaðra úti á landi geta látið taka frá fyrir sig miða á hátíðina í Gullhömrum. Fimmtánda Jólahátíð fatlaðra haldin í Gullhömrum Morgunblaðið/Jim Smart André Bachmann hefur gaman af því að gleðja fólk um jólin. Perlujól, jólahátíð fatlaðra, hefjast kl. 15.30 í Gullhömrum, Þjóðhild- arstíg 2 í Grafaholti. Aðgangseyrir er kr. 500. Góðir vinir koma saman „Antibrids.“ Norður♠D7♥ÁD10 A/AV ♦G9874 ♣G65 Suður ♠Á64 ♥KG95 ♦KD10 ♣Á98 Vestur Norður Austur Suður -- -- 1 lauf 1 grand Pass 3 grönd Pass Pass Pass Útspil vesturs er spaðaþristur, fjórða hæsta. Hvernig er best að spila? Það gilda lögmál við spilaborðið. Þau eru flest byggð á líkindafræði, en það er sú fræðigrein stærðfræðinnar sem segir spilurum hvernig best sé að meðhöndla liti „að öðru jöfnu“. Út kemur smár spaði og í borði er Dx, en heima Áxx. Að öðru jöfnu er rétt að fara upp með drottninguna í þeirri von að útspilið sé frá kóng. Þetta vita allir spilarar. En svo gerist það að hið ranga reynist rétt – eins og hér. Og það með skotheldum rökum. Í þessu spili er lykilatriði að setja LÍTINN spaða úr borði í fyrsta slag: Norður ♠D7 ♥ÁD10 ♦G9874 ♣G65 Vestur Austur ♠G9532 ♠K108 ♥8763 ♥42 ♦532 ♦Á6 ♣3 ♣KD10742 Suður ♠Á64 ♥KG95 ♦KD10 ♣Á98 Sjáum hvað gerist ef sagnhafi setur drottninguna: Austur lætur kónginn og suður dúkkar. Austur spilar spaðatíu og aftur dúkkar suður. En nú yfirdrepur vestur og skiptir yfir í lauf! Sem er meira en sagnhafi þolir. Leiðin til að verja laufið er að setja lít- inn spaða úr borði. Þá fær austur slag- inn á tíuna, og spilar næst spaðakóng. Hann fær að eiga þann slag líka, en nú er laufið valdað. Hvort sem austur skiptir yfir í laufkóng eða spilar spaða áfram, verður létt verk að vinna spilið með því að sprengja út tígulás. Ásmundur Pálsson kallar svona spila- mennsku „antibrids“. En það er stund- um hinn eini rétti brids. Hér er vitað að austur á mestan varnarstyrkinn (tíg- ulás, spaðakóng og laufhjón), svo málið snýst um það að geta dúkkað spaðann tvisvar án þess að missa tökin á laufinu. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is Finnsk tónlist í Norræna húsinu Tónleikar sunnudaginn 5. desember kl. 17:00 Finnsku tónlistarmennirnir Sami Mäkelä sellóleikari og Taru Myöhänen-Mäkelä píanóleikari flytja verk eftir Sibelius, Sallinen, Rautio, Melartin, Savikangas og Wessman. Ókeypis aðgangur Sendiráð Finnlands - Suomi-félagið - Norræna húsið LISTASAFN Íslands efnir til umræðu- fundar kl. 11–13 í dag í tilefni sýningarinnar Ný íslensk myndlist – um veruleikann, manninn og ímyndina. Á málþinginu verður rætt um íslenska mynd- list síðustu 10 ára út frá yf- irstandandi sýn- ingu Listasafns Íslands. Spurt verður hvort greina megi nýja merkingu eða boðskap í sam- tímalistinni, hvaða áherslur megi greina í verkum þeirra listamanna sem kynntir eru á sýningunni í alþjóðlegu samhengi og hvernig þessar spurningar kristallist í myndlistarumræðu samtímans. Þátttak- endur í pallborðsumræðu verða Jón B.K. Ransu, myndlistarmaður og listgagnrýn- andi, Ragna Sigurðardóttir listgagnrýn- andi, Úlfhildur Dagsdóttir bókmennta- fræðingur og Þóra Þórisdóttir myndlistarmaður. Fundarstjóri er dr. Ólaf- ur Kvaran, forstöðumaður Listasafns Ís- lands. Laugardagsstefna um nýja íslenska myndlist BASSALEIKARINN Dean Ferrell mun í dag kl. 15.15 stíga á Litla svið Borgarleik- hússins til þess að bregða ljósi á dul- arfullan persónuleika Kafteinsins, bassa- gömbuleikarans og tónskáldsins Tobiasar Hume sem bjó á Englandi í upphafi bar- okktímans. Dean mun á þessum klukkustundarlöngu tónleikum flytja eigin útsetningar á nokkrum verka kafteinsins, bæði einleiks- verk og sönglög og flytja texta sem eign- aðir eru honum. Þar er kontrabassinn í hlutverki hinnar 9 strengja gömbu Tobias- ar og m.a. kemur til skila hinum fjölradda stíl snemmbarokksins að hætti Deans Ferrell. Dean Ferrell kynnir Tobias Hume AÐFARANÓTT sunnudags eru 213 ár liðin síðan meistari W.A. Moz- art lést, en hann var þá langt kominn með að semja síð- asta verk sitt, Re- quiem eða Sálu- messu. Óperukórinn í Reykjavík hefur nú, undir forrystu Garð- ars Cortez, ákveðið að heiðra minningu Mozarts með því að flytja sálumessu hans og hefst flutningurinn klukkan 1 eftir miðnætti í nótt, nákvæmlega á þeirri stundu sem Mozart lést. Flutning- urinn fer fram í Langholtskirkju og er aðgangseyrir 2000 kr. Sálumessa Mozarts flutt í nótt NEMENDUR Listaháskóla Íslands standa þessa dagana fyrir viðamikilli röð jóla- tónleika, sem stendur yfir frá 3. desem- ber til 12. desember. Tónleikarnir eru haldnir í Hráasalnum í Sölvhólsgötu 13. Í dag kl. 17 mun Bartok-kvartett skip- aður þeim Gunnhildi Daðadóttur fiðlu- leikara, Gróu Margréti Valdimarsdóttur fiðluleikara, Auði Öglu Óladóttur víólu- leikara og Júlíu Mogensen leika auk þess sem Dvorak kvintett skipaður þeim Grétu Salóme Stefánsdóttur fiðluleikara, Eygló Dóru Davíðsdóttur fiðluleikara, Ragnheiði Jónsdóttur víóluleikara, Guðný Jónasdóttur sellóleikara og Marie Kristine Løkke píanóleikara, leikur valin verk. Þá munu þær Júlía Mogensen og Guðný Jónasdóttir leika konsert eftir Vivaldi. Jólatónleikar Listaháskóla Íslands HRAFNKELL Sigurðsson opnar sýn- inguna Verkamaður/Workman í Gallerí Banananas í dag kl. 17. Hrafnkell Sigurðsson (f. 1963) hefur verið búsettur í Lundúnum undanfarin ár þar sem hann var á sínum tíma við nám. Nú er hann fluttur heim. Hann hefur komið víða við á ferli sínum, gert skúlptúra, mynd- bandsverk, framið gjörninga og tekið ljós- myndir svo eitthvað sé nefnt. Ljósmyndir hans af tjöldum í snjó, bráðnandi snjó- sköflum á bílastæði, ruslapokum á götum úti og húsum í byggingu ættu að vera ýmsum kunnar, en þær eru m.a. í eigu listasafna landsins og prýða að auki kápu símaskrárinnar. Í tilkynningu vegna sýningarinnar er gefið í skyn að innblástur listaverkanna á sýn- ingunni sé upplifun eftir að listamaður flýgur á hausinn í hálku og missir um tíma rænu og í kjölfarið tök á veruleikanum. „Honum er komið til bjargar af andlits- og búklausum verum sem virðast honum eingöngu litir, efni og ljós. Tvívíðir með- hjálparar, geómetrískir englar,“ segir í til- kynningunni. Í kjölfar þess sýnir Hrafnkell Sigurðsson nú í ruslatunnuportinu sem í vetur hefur verið umgjörð ólíkra myndlistarsýninga, Banananas. „Í gættinni standa verðirnir og gaumgæfa gestina og þar fyrir innan við altari dvelur sá sem þeir þjóna og öll- um stundum leitar feigra. Listamanninum var þyrmt þennan myrka morgun og hefur hann nú tök á að miðla innsýn í sannleik- ann um eilífa hringrás, samruna manna og umhverfis. Útvalinn því ferill hans ein- kennist af víðtækri rannsókn á yfirborði hins sýnilega veruleika, holdi, efni og ljósi,“ segir að lokum. Sýningin stendur til 21. desember og er opin eftir samkomulagi. Hrafnkell Sigurðsson sýnir Verkamann í Galleríi Banananas JÓN Reykdal listamaður opnar í dag kl. 15 sýningu á sex nýjum olíumálverkum í forkirkju Hallgrímskirkju. Sýningin er fyrsta sýning af fjórum á 23. starfsári Listvinafélags Hallgrímskirkju, en biskup Íslands, herra Karl Sigurbjörnsson, opnar sýninguna, en hún stendur til 1. mars. Verkin á sýningunni eru öll ný og tengj- ast viðfangsefnin m.a. náttúrunni, birt- unni og lífskeðjunni. Meðal málverka á sýningunni er Móðir og barn, sem prýðir nýtt jólakort. Jón Reykdal á rúmlega þriggja áratuga feril að baki. Hann hlaut myndlist- armenntun í Reykjavík, Amsterdam og Stokkhólmi og hefur haldið fjölda sýn- inga á undanförnum árum. Síðast sýndi Jón í Hallgrímskirkju árið 1993 á vegum Kirkjulistahátíðar. Jón Reykdal sýnir í for- kirkju Hallgrímskirkju Morgunblaðið/Árni Torfason HÖFUNDAR og þýðendur bókaforlagsins Sölku lesa upp úr bókum sínum í bókabúð- inni Iðu í dag á milli kl. 11 og 12 og svo aftur á milli kl. 15 og 18. Meðal annarra les Kristín Ómarsdóttir upp úr bók sinni Hér, Margrét Lóa Jóns- dóttir les úr Laufskálafuglinum og Auður Ólafsdóttir les úr verðlaunasögu sinni Rigning í nóvember. Einnig verður lesið upp úr ljóðabókum og barna- og unglinga- bókum. Gísli Rúnar Jónsson kynnir þýð- ingu sína á bókinni vinsælu Betur sjá hýr augu en auga – hinsegin hollráð fyrir svo- leiðis karlmenn eða Queer Eye for the Straight Guy. Þá mun Jóhanna Þórhalls syngja lög af nýútkomnum geisladiski sínum ásamt því sem Mary Poppins spjallar við krakkana og Birgitta Klasen, höfundur bókarinnar Læknum með höndunum mun svara fyr- irspurnum fólks varðandi heilsu og bætt líferni. Upplestur, tónlist og spjall í Iðu DILBERT mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.