Morgunblaðið - 04.12.2004, Page 62
62 LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
** *
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
Frá leikstjóra RUSH HOUR og RED DRAGON
PIERCE BROSNAN
SALMA HAYEK
WOODY HARRELSON
DON CHEADLE
Sýnd kl. 3.30, 5.45, 8 og 10.15.
Kolsvört jólagrínmynd
með Billy Bob Thornton
... þú missir þig af hlári
*
**
* *
www.borgarbio.is
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15. B.i. 14 ára.
Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 2 og 4.
VINCE VAUGHN
Ó.Ö.H. DV
BEN STILLER
DodgeBallS.V. Mbl.
BILLY BOB THORTON BERNIE MAC LAUREN GRAHAM
Kvikmyndir.com
PoppTíví
Sýnd kl. 6 og 8.Sýnd kl. 4. ísl. tal
TIM ALLEN JAMIE LEE CURTIS
Ó.Ö.H / DV
Ó.Ö.H / DV
Ein besta
spennu- og
grínmynd ársins
Kr. 500
Sýnd kl. 1.15, 3.40, 5.45, 8 og 10.15
PoppTíví
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10. B.i. 16 ára.
Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i. 16 ára.
Miðasala opnar kl. 15.30
kl. 2, 4, 6, 8 og 10.
Jólaklúður Kranks
Jólamynd fjölskyldunnar
Jólaklúður Kranks
Óttist endurkomuna
því hann er mættur aftur
vígalegri enn nokkru sinni fyrr!!
Óttist endurkomuna
því hann er mættur aftur
vígalegri enn nokkru sinni fyrr!!
❄❄
❄
❄
❄
❄ ❄
❄❄❄
❄
❄
❄
❄
❄ ❄ ❄❄
❄
❄
❄
❄❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄ ❄
❄
❄❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
Sjáumst
í bíó
Sjáumst
í bíó
BRUCE-LEE
Sýnd kl. 10. B.i. 14 ára.
Kapteinn skögultönntei s lt
NÝJASTA tískan hjá fræga fólkinu og
þá væntanlega líka okkur hinum eru
stígvél sem bera nafnið Mukluk og eru
gerð úr kanínuskinni. Slegist er um
stígvélin í búðunum og líka slegist um
þau á annan hátt. Talsmaður dýra-
verndunarsamtakanna PETA í Bret-
landi, Sean Gifford, hefur fordæmt
stígvélin, sem stjörnur á borð við Kate
Moss, Beyoncé Knowles, Gwyneth
Paltrow, Kate Hudson, Paris Hilton
og Britney Spears hafa sést í.
Skórnir eru úr rúskinni, þeir eru
fóðraðir og kanínuskinnið skreytir
skóna utan frá. Löng hefð er fyrir
stígvélunum hjá innfæddum í Kanada
og hafa skórnir indjánablæ á sér.
Skórnir eru í anda Ugg-stígvélanna,
sem eru úr mokkaskinni, og voru
mjög vinsæl í fyrra. Stígvélin eru ekki
ódýr, kosta um 30.000 krónur í Bret-
landi.
„Kanínurnar koma frá Asíu og eyða
ævinni í litlum kössum áður en þær
eru drepnar með raflosti eða kyrktar.
Margar kanínur eru húðflettar lifandi.
Eins og þetta lítur út fyrir okkur þá
eru stjörnurnar að styðja þessa með-
ferð með því að vera í svona stíg-
vélum,“ sagði Gifford.
PETA hefur líka brugðist við vin-
sældum Mukluk-stígvélanna með bar-
áttuherferð gegn notkun kan-
ínuskinna. Herferðin er dæmigerð
fyrir samtökin en í henni má sjá nakt-
ar fyrirsætur með kanínur.
Nærri ómögulegt er að komast yfir
par af „Muks“ eins og stígvélin eru
kölluð. Matches, ein fyrsta búðin í
London sem var með stígvélin til sölu,
seldi 400 pör á tveimur klukkutímum
og núna eru 500 viðskiptavinir á bið-
lista eftir pari.
Tískuleiðtoginn Kate Moss, sem
fyrst sást í stígvélunum í ágúst, á þrátt
fyrir þetta tvö pör. Það er með þetta
eins og svo margt annað, ef Kate er í
því, vilja allir eignast það.
Tíska | Mukluk-stígvél eru nýjasta tískan
Slegist um
kanínu-
skinnsskó
Reuters
Beyoncé, lengst til hægri, klæddist kanínuskónum þegar hún var að kynna
nýjustu plötu Destiny’s Child á Spáni ásamt Michelle og Kelly.
Svona líta þessi eftirsóttu stígvél út.
ingarun@mbl.is
FYRRIPARTUR síðustu viku
í spurningaleiknum Orð
skulu standa var ortur um
Eið Smára Guðjohnsen:
Eiður Smári enn á ný
endar sókn með marki.
Davíð Þór Jónsson orti
þennan í þættinum, með því
fororði að hann beindist alls
ekki gegn fótboltatvíb-
urunum af Skaganum, held-
ur helgaðist eingöngu af
ríminu:
Öfundsjúkir út af því
Arnar verða og Bjarki.
Hlín Agnarsdóttir botnaði:
Félagarnir fagna því
frægð í hverju sparki.
Börkur Karlsson orti í
þættinum:
Aldrei finnst mér þörf á því,
þessu fjandans sparki.
Heimir Eyvindarson sendi
þennan:
Flautað af! Er fyrir bí
frami í tuðrusparki?
Frá Hvanneyri bárust
tveir botnar, þessi frá Ingi-
mari Sveinssyni:
Andstæðingum ógnar því
með óbilandi kjarki.
Og þessi frá Guðrúnu
Gunnarsdóttur:
Andstæðinga ógn er í
hans yfirburða sparki.
Auðunn Bragi Sveinsson
orti þennan:
Hann mun eflaust hætta því,
haldi ’ann áfram slarki.
Hreiðar Karlsson sendi
þennan:
Fáir honum finnast því
fremri í boltasparki.
Sverrir Friðþjófsson botn-
aði svona:
hann er fjári flinkur í
þessu flókna sparki.
Guðveig Sigurðardóttir
sendi þennan:
Íslendingar eiga því
afreksmann í tuðrusparki
Sigurður Einarsson í
Reykjavík botnar svona:
Hann æðir fram með ógnargný
í ensku deildar harki.
Og loks Sveinn Auð-
unsson:
Ekki verður andmælt því,
að eitthvað kann í sparki.
Jólabotn óskast
Fyrripartur þessarar
viku er:
Á jólunum elskum við alla
og ætlum að vera svo góð.
Útvarp | Orð skulu standa á Rás 1
Öfundsjúkir út af því
Arnar verða og Bjarki
Orð skulu standa er á dag-
skrá Rásar eitt í dag kl.
16.10. Hlustendur geta sent
sína botna í netfangið or-
d@ruv.is eða í heimilisfangið
Orð skulu standa, Rík-
isútvarpinu, Efstaleiti 1, 150
Reykjavík.