Morgunblaðið - 09.12.2004, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 336. TBL. 92. ÁRG. FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
www.postur.is
13.12.
er síðasti öruggi skiladagur
á jólapökkum til Evrópu!
Hægt til
metorða
Lag Emilíönu Torrini tilnefnt til
Grammy-verðlauna | Menning
MARGFALDUR verðmunur er á leikföngum hér-
lendis og í St. Paul í Minnesotaríki í Bandaríkj-
unum. Síðastliðinn föstudag var farið í leik-
fangadeild Hagkaupa í Kringlunni og hins vegar í
verslunina Toys’R’Us í Roseville í St. Paul í Minne-
sotaríki. Búinn var til listi yfir tuttugu leikföng
sem njóta vinsælda hér á landi um þessar mundir
og farið í verslanirnar til að fá verðið á þeim upp-
gefið. Aðeins þrettán leikföng fengust á báðum
stöðum. Í ljós kom að samtals kostuðu þessi þrettán
leikföng 81.867 kr. í Hagkaupum í Kringlunni, en
sömu leikföng kostuðu samtals 26.031 kr. í Toys-
’R’Us í St. Paul.
Hægt var að fá netsmell hjá Icelandair til
Minneapolis í Minnesotaríki á 39.910 kr. með
þriggja nátta gistingu en hann er nú uppseldur./30
Leikföng mun dýrari hér-
lendis en í Bandaríkjunum
ÓÁNÆGÐIR bandarískir hermenn kvört-
uðu í gær við Donald Rumsfeld, varnar-
málaráðherra Bandaríkjanna, yfir skorti á
brynvörnum í bíla. Þeir spurðu hann í þaula
hvenær bætt yrði úr þessu og hversu lengi
þeir ættu að vera í Írak.
Rumsfeld ávarpaði um 2.300 bandaríska
hermenn í Buehring-búðunum í Kúveit þar
sem þeir bíða eftir því að verða sendir til
Íraks. Nokkrir hermannanna notuðu tæki-
færið og spurðu ráðherrann hvers vegna
enn væri skortur á brynvörnum tæpum
þremur árum eftir að stríðið í Írak hófst.
„Hvers vegna þurfum við hermennirnir
að grafa í brotajárnshauga eftir járni og
notuðu skotheldu gleri til að brynverja bíl-
ana?“ spurði einn hermannanna og margir
þeirra klöppuðu fyrir honum.
Reuters
Rumsfeld ávarpar hermenn í Kúveit.
Hermenn
kvarta við
Rumsfeld
Buehring-búðunum í Kúveit. AP.
Á ÁRI hverju deyja yfir fimm milljónir
barna úr hungri, eða að jafnaði eitt barn á
hverjum fimm sekúndum, að því er fram
kemur í nýrri skýrslu Matvæla- og landbún-
aðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO).
Stofnunin segir að enn hafi lítt miðað í bar-
áttunni gegn hungri í heiminum átta árum
eftir að ríki heims settu sér það markmið að
fjöldi þeirra sem lifa við hungurmörk
minnkaði um helming fyrir árið 2015.
Í skýrslunni segir að fjöldi vannærðra í
þróunarlöndum hafi aðeins minnkað um níu
milljónir frá árunum 1990–92 og að dán-
artíðnin meðal barna undir fimm ára aldri
hafi haldist óbreytt frá þeim tíma.
Árangurs-
lítil barátta
Róm. AFP.
Skýrsla FAO á mbl.is/itarefni
♦♦♦
BÓNDINN á Minna-Knarrarnesi
og eigandi hrossanna sem drápust
úr miltisbrandi við eyðibýlið Sjón-
arhól síðustu daga, telur landbrot í
landi Sjónarhóls síðastliðinn vetur
líklegustu skýringuna á því hvern-
ig miltisbrandur barst í hrossin.
Fjórða hrossinu í eigu hans var
lógað eftir að það veiktist og því
fimmta, sem einnig var á beit á
jörðinni, verður líklega lógað í var-
úðarskyni. Að sögn Birgis Þórar-
inssonar bónda er hugsanlegt að
þegar land náði lengra fram hafi
sýktar skepnur verið urðaðar á
þessum stað en miltisbrandsgró
geta lifað áratugum, jafnvel öldum
saman í jarðvegi.
„Það eina sem menn vita er að
sjórinn braut bakkann neðan bæj-
arins síðastliðinn vetur í landi
Sjónarhóls og að ekkert annað
jarðrask hefur verið þarna. Þarna
hafa í áraraðir verið skepnur og
heyskapur, þannig að það standa
allir ráðþrota gagnvart þessu.“
Litlar líkur á að fólk smitist
Að sögn Birgis fannst dautt
hross á túninu við Sjónarhól á
fimmtudag í síðustu viku. Dýra-
læknir hefði talið orsökina vera
hjartaslag. „Það er ekki fyrr en tvö
til viðbótar finnast dauð á sunnu-
dagsmorgun úti á túni að þetta fer í
gang,“ segir hann.
Guðrún Sigmundsdóttir, yfir-
læknir á sóttvarnasviði Landlækn-
isembættisins, segir að um tíu
manns, sem hættast var við smiti,
hafi fengið sýklalyf í forvarnar-
skyni. Frekar litlar líkur munu
vera á að fólk smitist af bakterí-
unni og algengast að fólk smitist af
dýrum sem það hefur átt við.
Miltisbrands hefur ekki orðið
vart á Íslandi í tæp 40 ár en milt-
isbrandur er bráður og oftast ban-
vænn bakteríusjúkdómur sem öll
dýr með heitt blóð geta tekið. Al-
gengastur er hann í grasbítum. Að
sögn Sigurðar Arnar Hanssonar
aðstoðaryfirdýralæknis voru blóð-
sýni tekin og við rannsókn kom í
ljós að um miltisbrand var að ræða.
Landbrot hugsanleg or-
sök miltisbrandssýkingar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Unnið var að því í gærdag og -kvöld að hlaða bálköst úr hjólbörðum og timbri, á jörðinni Sjónarhóli á Vatns-
leysuströnd, þar sem sýktu hræin verða brennd í dag. Lögreglan í Keflavík vaktaði svæðið í nótt af öryggis-
ástæðum, en óheimilt var að vera innan girðingar nema í sérstökum hlífðarfatnaði.
Miltisbrandsmálið/Miðopna
VIKTOR Jústsjenko, forsetaefni stjórnarand-
stöðunnar í Úkraínu, ávarpaði tugi þúsunda
stuðningsmanna sinna í miðborg Kíev í gær-
kvöldi og þakkaði þeim fyrir sautján daga mót-
mæli við þinghúsið í borginni. Fyrr um daginn
samþykkti úkraínska þingið breytingar á
stjórnarskrá landsins og á kosningalögum til að
greiða fyrir lýðræðislegum forsetakosningum
26. þessa mánaðar.
„Við höfum eignast nýtt land á þessum
sautján dögum,“ sagði Jústsjenko við mikinn
fögnuð stuðningsmanna sinna. „Við höfum sýnt
fram á að við erum Evrópuþjóð.“
Sökuð um valdarán
Jústsjenko táraðist þegar hann ávarpaði
stuðningsmenn sína og þakkaði lögreglu og her
Úkraínu fyrir að standa með fólkinu og beita
ekki valdi til að kveða niður mótmælin.
Viktor Janúkovítsj, forsætisráðherra og for-
setaefni stjórnarinnar, sakaði hins vegar stjórn-
arandstöðuna um „valdarán“. „Glundroði ríkir
og ákvarðanirnar eru aðeins teknar með valdi,“
sagði forsætisráðherrann, en hann naut stuðn-
ings Leoníds Kútsjma, fráfarandi forseta, í um-
deildum forsetakosningum í síðasta mánuði.
Borís Gryzlov, forseti rússneska þingsins,
sagði að sigur Janúkovítsj forsætisráðherra
væri það eina sem gæti tryggt einingu Úkraínu.
„Ég vona að kosningarnar verði ekki til þess að
eining landsins rofni – aðeins sigur Janúkovítsj
getur haldið Úkraínu sameinaðri.“
„Höfum eignast nýtt land“
Reuters
Viktor Jústsjenko og Júlía Tímosjenko, ein af
þekktustu stjórnarandstæðingum Úkraínu,
meðal stuðningsmanna sinna í Kíev í gær.
Viktor Jústsjenko fagnar sátt um málamiðlun á þingi Úkraínu
Kíev. AFP, AP.
Sátt um málamiðlun/16
Viðskipti | Sendiherra Tæknivals Líftryggingar fleiri en fólkið Úr
verinu | Sjávarútvegurinn er kjölfestan Rýrnun á útflutningsverð-
mæti Íþróttir | Kjartan felldur úr embætti hjá IHF Liverpool áfram
Viðskipti, Úr verinu og Íþróttir