Morgunblaðið - 09.12.2004, Side 52

Morgunblaðið - 09.12.2004, Side 52
52 FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ DAGBÓK 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Krossgáta Lárétt | 1 dyr, 8 endur- gjald, 9 svara, 10 óhljóð, 11 ástundunarsamur, 13 gremjast, 15 danskrar eyju, 18 dræsa, 21 auð, 22 óreglu, 23 skattur, 24 óvandvirka. Lóðrétt | 2 sparsemi, 3 húðin, 4 snaga, 5 ön- uglyndi, 6 mestur hluti, 7 biða, 12 eyktamark, 14 svifdýrs, 15 sjávardýr, 16 árnar, 17 klunnaleg, 18 jurt, 19 gróðabrall, 20 ein- kenni. Lausn síðustu krossgátu Lárétt | 1 hrafn, 4 bogin, 7 fælin, 8 lalli, 9 dul, 11 rétt, 13 anda, 14 ísnál, 15 fork, 17 týnd, 20 smá, 22 kolan, 23 laufi, 24 norpa, 25 trana. Lóðrétt | 1 hæfir, 2 atlot, 3 nánd, 4 ball, 5 golan, 6 neita, 10 unnum, 12 tík, 13 alt, 15 fíkin, 16 rílar, 18 ýsuna, 19 deiga, 20 snúa, 21 álft.  Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Þetta er góður dagur til þess að fást við reikninga, skuldir, tryggingamál og leiðir til þess að deila eignum með öðrum. Hálfnað er verk þá hafið er. Naut (20. apríl - 20. maí)  Sýndu vinum og lífsförunautum þol- inmæði og leggðu eyrun við því sem sagt er við þig. Yfirleitt eru tvær ástæður fyrir hverjum verknaði; það er góð ástæða og hin raunverulega ástæða. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Láttu eftir þér að vera enn skipulagðari í vinnunni en ella. Þú hefur unun af því að hafa mörg járn í eldinum í einu og þolir rútínu illa. Því skipulagðari sem þú ert þeim mun meiru kemur þú í verk. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Tunglið er í sporðdreka í dag, hann er vatnsmerki eins og krabbinn, og því finn- ur þú fyrir galsa og hrekkjaþörf. Þig langar að lyfta þér upp og daðra svolítið. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Einbeittu þér að fjölskyldumeðlimi í dag, hugsanlega öðru hvoru foreldri þínu. Ein- hver á heimilinu þarf athygli þína núna en þú hefur hugsanlega þörf fyrir einveru. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Þetta er góður dagur fyrir verslun og við- skipti, undirritun samninga og stuttar ferðir. Ekki láta þitt eftir liggja. Samtöl við systkini virðast yfirvofandi. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Nú væri kjörið að sinna innkaupum fyrir ástvini eða bara sjálfan sig. Þig langar til þess að kaupa falleg föt, skartgripi og fá- gæta listmuni, er það ekki annars? Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Tunglið er í þínu merki í dag og ýtir undir tilfinningasemi af þinni hálfu. Einnig ýtir það undir ákefð í fari þínu og færir þér jafnvel gæfu. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Það er best fyrir þig að vinna fyrir lukt- um dyrum í dag eða sinna verkefnum í einrúmi. Þú gætir náð árangri í við- skiptum við stjórnvöld og stórar stofn- anir. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Þú nýtur þess að ræða við vini þína í dag, ekki síst vinkonur. Innileg trún- aðarsamtöl færa fólk nær hvað öðru og styrkja vináttuböndin. Sem er bara gott. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Þú vekur meiri athygli í samfélaginu en venjulega um þessar mundir. Eitthvað sem þú gerir beinir sjónum fólks að þér. Samtöl við yfirmenn og valdhafa öðlast sérstaka merkingu. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Nú væri ekki úr vegi að slökkva fróðleiks- þorstann með því að skrá sig á námskeið eða fara á bókasafnið. Víkkaðu sjóndeild- arhringinn. Stjörnuspá Frances Drake Bogmaður Afmælisbarn dagsins: Þú ert eldheit, kraftmikil, kjörkuð og róm- antísk. Hefur unun af dirfsku og hetjudáð- um og ert ekki feimin við sviðsljósið. Æv- intýrin heilla þig og þú sækist eftir hvers kyns þolraunum. Notaðu næstu mánuði til þess að ljúka óunnum verkefnum. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. Staðurogstund http://www.mbl.is/sos Skemmtanir Café Victor | Sessý og Sjonni kl. 22.30. Gaukur á Stöng | Magnaðir Doors Tribute- tónleikar með Björgvin Franz í fararbroddi. Húsið opnað kl. 21, tónleikarnir byrja 22.30. Kaffi Sólon | Zúúber session með Magna og Sævari. Þeir fá til sín leynigest. Kolkrabbinn | Dj Vala í kvöld. Sirkus | Dr. Oleg Nikiforov frá Moskvu og Ritums Rozenbergs frá Rigu í Lettlandi kynna það heitasta í Rússlandi í dag kl. 21. Tónlist Akureyrarkirkja | Kór Tónlistarskólans á Akureyri heldur jólatónleika í Dalvíkurkirkju kl. 20.30. Einsöngvarar eru söngnemendur skólans og orgelleikari er Helga Bryndís Magnúsdóttir. Stjórnandi: Michael J. Clarke. Aðgangseyrir 1.500. Ókeypis fyrir nem- endur TA og eldri borgara. Myndlist Kirkjuhvoll, Akranesi | Gylfi Ægisson sýnir um 60 akrýlmyndir. Alliance Francaise | Marie-Sandrine Bej- anninn – málverk. Anddyri Suðurlandsbrautar 4 | Rafn Sig- urbjörnsson – Fjölskyldan. Tíu olíumálverk. Gallerí 101 | Daníel Magnússon – Mat- prjónagerð lýðveldisins kynnir: Innihald heimilisins. Gallerí Banananas | Hrafnkell Sigurðsson – Verkamaður / Workman. Gallerí i8 | Kristján Guðmundsson – Arki- tektúr. Gallerí Sævars Karls | Hjörtur Marteinsson – Ókyrrar kyrralífsmyndir. Gerðuberg | Guðríður B. Helgadóttir – Efnið og andinn. Grafíksafn Íslands | Í dimmunni Hafnarborg | Jólagjafir hönnunarnema í Iðnskólanum í Hafnarfirði til þjóðþekktra Ís- lendinga. Hallgrímskirkja | Jón Reykdal – 6 ný olíu- málverk í forkirkju Hallgrímskirkju. Hrafnista, Hafnarfirði | Sólveig Eggerz Pétursdóttir sýnir myndir sínar í Menning- arsalnum. Hönnunarsafnið | Sænskt listgler – þjóð- argjöf í Hönnunarsafninu. Kaffi Sólon | Kristín Tryggvadóttir – Leikur að steinum. K&B | Sigurður Guðjónsson – Hýsill. Listasafn Árnesinga | Tumi Magnússon – Innsetning. Listasafnið á Akureyri | Patrick Kuse – Encounter. Listasafn Íslands | Ný Íslensk myndlist: um veruleikann, manninn og ímyndina. Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Þrjár sýningar: Ný íslensk gullsmíði í Austursal, Salóme eftir Richard Strauss í Vestursal og úrval verka úr einkasafni Þorvaldar Guð- mundssonar og Ingibjargar Guðmunds- dóttur á neðri hæð safnsins. Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn | Maðurinn og efnið. Yfirlitssýning á verkum Ásmundar Sveinssonar. Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Graf- ísk hönnun á Íslandi. Erró – Víðáttur. Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir | Textíllist 2004 – Alþjóðleg textílsýning. Stendur til 16. jan. Myndir úr Kjarvalssafni. Listmunahúsið, Síðumúla 34 | Valtýr Pét- ursson – málverk Lóuhreiður | Sigrún Sigurðardóttir – Gróð- ur og grjót. Norræna húsið | Vetrarmessa Nýlistasafnið | Ráðhildur Ingadóttir – Inni í kuðungi, einn díll. Björk Guðnadóttir – Eilífð- in er líklega núna. Skólavörðustígur 20 | Gunnella - Ný verk. Suzuki-bílar | Björn E. Westergren sýnir myndir málaðar í akrýl og raf. Thorvaldsen | Linda Dögg Ólafsdóttir – -sKæti- Tjarnarsalur Ráðhúss | Ketill Larsen – Sól- stafir frá öðrum heimi. Listasýning Handverk og hönnun | Sölusýningin „Allir fá þá eitthvað fallegt…“ Bækur Borgarleikhúsið | Upplestur og tónlist í anddyri kl. 20. Léttur jóladjass og kaffi- húsastemning. Höfundarnir sem lesa eru Birna Anna Björnsdóttir, Bragi Ólafsson, Einar Már Guðmundsson, Gerður Kristný, Njörður P. Njarðvík og Stefán Máni. Söfn Kringlusafn | Jólavaka í Borgarbókasafni, Kringlusafni, kl. 14. Félagar í Bókmennta- klúbbi Háaleitishverfis lesa upp jólaefni undir stjórn Soffíu Jakobsdóttur leikara. Mannfagnaður Listasetrið, Kirkjuhvoli, Akranesi | Að- ventukvöld við arineld kl. 20 í Listasetrinu. Fimm Skagamenn lesa jólasögur. Í hléi verður flutt jólatónlist frá Tónlistarskól- anum á Akranesi. Aðgangseyrir er kr. 800. Fréttir Bókatíðindi 2004 | Númer fimmtudagsins 9. desember er 33790. www.ljosmyndakeppni.is | Fyrstu ljós- myndakeppninni lýkur 13. desember, þátt- taka er öllum heimil og kostar ekkert. Þema keppninnar er jól og verður að taka mynd- ina frá 1. des. til 13. des. Fundir GSA á Íslandi | Fundur um matarfíkn, át- röskun kl. 20.30, Tjarnarg. 20. www.gsa.is. Jólafundur Styrks | Styrkur, samtök krabbameinssjúklinga og aðstandenda þeirra, heldur jólafund í Kiwanishúsinu við Engjateig kl. 20. Helga Soffía Konráðsdóttir flytur jólahugvekju, Vallargerðisbræður syngja, stjórnandi Þórunn Björnsd., Stein- unn Ólafsd. leikkona les upp og Einar Logi Hreinsson leikur á gítar. Kristniboðsfélag kvenna | Jólafundur kl. 16 í Kristniboðssalnum á Háaleitisbraut 58– 60. Gestir koma í heimsókn. Kvenfélagið Aldan | Jólafundur á Veitinga- húsinu Skólabrú 1 kl. 19.30. Muna eftir jóla- pökkunum. Samfylkingarfélagið í Reykjavík | Varnar- og öryggismál verða rædd á fundi Samfylk- ingarfélagsins í Reykjavík í kvöld á Hallveig- arstíg 1 kl. 20. Málshefjendur eru Þórunn Sveinbjarnardóttir alþm., Jón Gunnarsson alþm. og Einar Karl Haraldsson, ráðgjafi og varaþingmaður. Allir velkomnir. Regnbogasalur Samtakanna ’78 | Samtök foreldra og aðstandenda samkynhneigðra, FAS, bjóða til samverustundar á aðventu laugardaginn 11. desember kl. 16–18 í Regn- bogasal Samtakanna ’78, Laugavegi 3, 4. hæð. Gestur fundarins er Hörður Torfason söngvaskáld og mun hann flytja tónlist. Hópar sem vinna að málefnum samkyn- hneigðra segja frá starfi sínu. Sigurhæðir | Jólafundur Samtaka foreldra og aðstandenda samkynhneigðra verður að Sigurhæðum á Akureyri kl. 20. Fulltrúar stjórnar til viðtals frá kl. 19.30. Fundarefni: Sambúð og hjónabönd samkynhneigðra, fjölskyldulíf þeirra, barneignir og ættleið- ingar. Fyrirlestrar Oddi – Félagsvísindahús HÍ | Roberta Ost- roff Bjarnason flytur fyrirlestur á vegum RIKK um ofbeldi gegn konum í kvikmynd- um. Fyrirlesturinn hefst kl. 12 í stofu 101 í Odda og er hluti af átaki gegn kynbundnu ofbeldi. Fyrirlesturinn fer fram á ensku. Útivist Ferðafélagið Útivist | Útivistarræktin gengur frá Skógræktarfélagi Reykjavíkur í Fossvogi kl. 18. Börn www.menntagatt.is | Fram að áramótum verður opinn jólakortavefur á mennta- gatt.is. Allir nemendur í leik-, grunn- og framhaldsskólum geta sent inn myndir og verða þær sjálfkrafa að jólakortum. Hægt er að skoða myndirnar og senda þær sem jólakort til vina og ættingja. TÓNLISTARMAÐURINN Stranger heldur tónleika á Thorvaldsen í kvöld kl. 21, en hann gaf nýverið út plötuna Paint Peace. Samhliða tónleikum Stranger mun mynd- listarkonan Mæja sýna verk sín, en hún málar álfa og verur í ævintýraheimi og eru mótíf hennar frelsi, ást, ró og gleði. Hjörvar Hjörleifsson, sem gengur undir listamannsnafninu Stranger, segir áhorf- endur mega vænta lágstemmdrar stemmningar í kvöld. „Hljómsveitin mun gíra sig niður til þess að mæta kröfum staðarins sem er svolítið afslappaðri held- ur en margir aðrir staðir,“ segir Stranger. „Þetta er líka viss frumraun á tónleika á þessum stað, hér hafa aldrei verið haldnir tónleikar. Þetta er vissulega áskorun fyrir hljómsveitina. Við ætlum að umturna lög- unum okkar og taka þau í öðruvísi útsetn- ingum heldur en hefur verið gert. Það má búast við mikilli hamingju í kvöld og að- gangurinn er ókeypis.“ Stranger sitja ekki auðum höndum þessa dagana, en framundan eru tón- leikar á Grandrokk 15. des. þar sem sveitin mun leika ásamt tveimur trúba- dorum, þeim KGB og Togga. „Þar setjum við okkur í rokkgírinn og leikum lögin nær upprunalegum útsetn- ingum. Bandið er náttúrulega nokkuð lágstemmt þó tónleikarnir okkar hafi oft verið nokkuð harðir að okkar mati. En það verður hver að dæma.“ Stranger og Mæja leiða saman hesta á Thorvaldsen Morgunblaðið/Kristinn 1. e4 d5 2. exd5 Dxd5 3. Rc3 Da5 4. d4 Rf6 5. Rf3 c6 6. Re5 Be6 7. Bd3 g6 8. 0–0 Bg7 9. Re2 0–0 10. Rf4 Bd5 11. He1 b5 12. c3 Db6 13. g4 e6 14. Be3 Rfd7 15. Rxd5 cxd5 16. Db3 Rxe5 17. dxe5 Dc7 18. f4 Rd7 19. Bf1 Hfb8 20. Hac1 a6 21. h4 Hc8 22. Dd1 Rc5 23. Bd4 Hab8 24. Df3 Re4 25. Bd3 Rc5 26. Bb1 De7 27. h5 b4 28. hxg6 hxg6 29. cxb4 Hxb4 30. De3 Bf8 31. b3 Hb5 32. He2 Hd8 33. f5 Dh4 34. Hh2 Dxg4+ 35. Hg2 Dh4 36. fxg6 Bh6 37. gxf7+ Kh8 38. Df2 Dxf2+ 39. Bxf2 Re4 40. Hc7 Rxf2 Staðan kom upp í fyrrihluta Íslands- móts skákfélaga sem lauk fyrir nokkru í húsakynnum Menntaskólans í Hamra- hlíð. Andri Áss Grétarsson (2.335) hafði hvítt gegn Jóhanni Helga Sigurðssyni (2.055). 41. f8=D+! Hxf8 42. Hh7#. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is Hvítur á leik Staður og stund á mbl.is. Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is Meira á mbl.is smáauglýsingar mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.