Morgunblaðið - 09.12.2004, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 09.12.2004, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR RÚMLEGA þrítugur maður, sem nokkrum sinnum hefur verið dæmd- ur fyrir ofbeldisbrot, var í gær dæmdur í 15 mánaða fangelsi fyrir tvær líkamsárásir og ölvunarakstur. Í öðru tilvikinu beitti hann skærum við árásina. Sá sem varð fyrir þeirri árás gjörbreytti framburði sínum fyrir dómi og sagðist sjálfur, af klaufaskap, hafa skorið sig á skær- unum og síðan dottið á þau. Maðurinn sem varð fyrir fyrri árásinni sagði að hann hefði flautað fyrir aftan bifreið mannsins þar sem hún hafi verið nánast kyrrstæð. Öku- maðurinn og farþegi hefðu þá „gefið fingurinn“ og síðan kastað einhverju í framrúðu bílsins. Hann hefði því ekið á eftir bílnum þar til hann var stöðvaður á Grettisgötu. Þar hefði maðurinn ráðist fyrirvaralaust á sig, sparkað þrisvar sinnum í hnakkann á sér og síðan slegið hann bylmings- högg í andlitið. Árásarmaðurinn sagði að maðurinn hefði dottið og síðan hefði hann e.t.v. gefið honum einn til tvo kinnhesta. Þessari frá- sögn trúði héraðsdómur ekki. Fyrri árásin var framin þann 17. október í fyrra. Einni viku seinna lét maðurinn aftur til skarar skríða, að þessu sinni við Grímsbæ og í Foss- vogsdal. Sú árás beindist gegn manni sem vann á hárskerastofu og við hana beitti hann skærum sem fórnarlambið bar í belti. Óttaðist hefndaraðgerðir Sá sem varð fyrir árásinni lýsti því svo fyrir lögreglu að maðurinn hefði komið inn á vinnustað sinn og beðið hann um að koma út til að ræða við sig. Þar hefði hann rifið í hár sitt og dregið sig inn í bíl og sagt um leið „nú verður gengið frá þér“. Annar maður hefði setið við stýrið og bíln- um verið ekið niður í Fossvoginn. Þar hefði árásarmaðurinn rifið sig á hárinu út, hent í götuna og sparkað í hann. Tvenn skæri hefðu við það dottið úr skærahulstri. Maðurinn hefði tekið þessi skæri og stungið í vinstri höndina og hægri upphand- legg. Þrjú vitni voru að því þegar hann var dreginn út úr bílnum en þau sáu ekki skæraárásina. Sá sem varð fyrir árásinni sagðist aðeins kannast við árásarmanninn. Þegar skýrsla var tekin af honum síðar kvaðst hann ekki vilja leggja fram formlega kæru eða bótakröfu vegna árásarinnar. Kvað hann ástæðuna vera þá að hann óttaðist að hann eða fjölskylda sín myndu hugs- anlega verða fyrir verulegu ónæði eða árásum ef hann kærði málið. Þegar árásarmaðurinn var hand- tekinn bar hann fyrir sig minnis- leysi. Framburður beggja var á allt annan veg fyrir dómi. Hvaða kvennamál? Fyrir dómi sagði árásarmaðurinn að kvennamál hefðu leitt til átak- anna. Hinn maðurinn hefði reynt að beita skærum í átökunum en því hefði hann varist. Með eftirgangsmunum greindi sá sem varð fyrir árásinni frá því fyrir dómi að deilur þeirra hefðu snúist um einhver kvennamál en hann vissi þó í raun ekki hvaða kvennamál það væru. Þegar komið var í Fossvogs- dal hefði hann síðan orðið hræddur við manninn og í æsingnum dregið upp skæri og einhvern veginn náð að stinga sig í vinstri höndina. Síðan hefði hann dottið og fundið skærin stingast í hægri upphandlegg. Þá neitaði hann því að hafa átt ógreidd- ar fíkniefnaskuldir. Héraðsdómur taldi þennan fram- burð mannanna fyrir dómi ekki vera trúverðugan og skýringar á stungu- sárunum væru ótrúlegar. Að öllu virtu þótti ekki varhugavert að dæma manninn fyrir stórfellda lík- amsárás. Hann var því dæmdur í 15 mánaða óskilorðsbundið fangelsi fyrir tvær líkamsárásir og fyrir ölv- unarakstur. Þá var hann dæmdur til að greiða manninum sem varð fyrir fyrri árásinni 275.000 krónur í skaðabætur. Ásgeir Magnússon kvað upp dóm- inn. Sigríður J. Friðjónsdóttir sótti málið f.h. ríkissaksóknara en Jón Egilsson hdl. var til varnar. „Nú verður gengið frá þér“ Fórnarlamb hrætt við að kæra og dró framburð til baka fyrir dómi GÓÐ stemning var í Ráðhúsi Reykjavíkur í gærkvöldi þar sem Stórsveit Reykjavíkur hélt sína ár- legu jólatónleika. Efnisskráin var var að vanda fjölbreytt, en flutt var innlend og erlend jólatónlist í stór- sveitarbúningi. Má þar nefna þætti úr Hnotubrjótnum eftir Tsjaíkovskí í útsetningu Duke Ellington. Stjórnandi tónleikanna var Samúel J. Samúelsson og einsöngvari var Bogomil Font. Stórsveit Reykjavíkur var stofn- uð árið 1992 fyrir hvatningu Sæ- björns Jónssonar, en hann var að- alstjórnandi stórsveitarinnar fram til árins 2000. Hljómsveitin telur sautján hljóðfæraleikara og er eina stórsveit landsins sem skipað er at- vinnumönnum. Meðal liðsmanna eru margir af fremstu djasstón- listarmönnum þjóðarinnar. Jólatónleikar Stórsveitar Reykjavíkur Morgunblaðið/Sverrir Blásarar Stórsveitar Reykjavíkur létu tónlistina óma í sölum Ráðhússins á jólatónleikum sveitarinnar í gærkvöldi. AÐILDARRÍKJAÞING Loftslags- samnings Sameinuðu þjóðanna (SÞ) stendur yfir í Buenos Aires í Argent- ínu, en 185 ríki eiga rétt til setu á þinginu. Meðal helstu viðfangsefna þingsins eru framkvæmd og út- færsla skuldbindinga sem fylgja Loftslagssamningnum og Kýótó- bókuninni, en bókunin mun taka gildi 16. febrúar á næsta ári. Sigríður Anna Þórðardóttir um- hverfisráðherra verður fulltrúi Ís- lands á þinginu og verður hún við- stödd 13. desember þegar skýrsla Norðurskautsráðsins um áhrif lofts- lagsbreytinga á norðurslóðum (ACIA-skýrslan) verður kynnt. Einnig mun hún taka þátt í ráð- herrafundi þingsins 15. – 17. desem- ber, en þingið sjálft hófst sl. mánu- dag. Að sögn Huga Ólafssonar, skrif- stofustjóra í umhverfisráðuneytinu sem staddur er á þinginu, er ráð- herrafundurinn hápunktur þingsins þar sem pólitískum skilaboðum verð- ur komið á framfæri. Hann segir meginþema þingsins vera gildistöku Kýótó-bókunarinnar á næsta ári. „Þetta er síðasta aðildarríkjaþingið áður en bókunin gengur í gildi.“ Gildistaka Kýótó-bókunarinnar felur í sér lagalega bindandi ákvæði fyrir þau 128 ríki sem nú þegar hafa fullgilt bók- unina. Losunar- skuldbindingar þeirra aðildar- ríkja sem undir það falla munu koma til fram- kvæmda á fyrsta skuldbindingar- tímabili bókunar- innar árin 2008-2012. Umræður á þinginu munu fyrst og fremst snúast um undirbúning ríkja að fram- kvæmd bókunarinnar en þó má gera ráð fyrir að nokkrar umræður fari fram um undirbúning viðræðna um aðgerðir ríkja eftir árið 2012. Skuldbindingar Íslands sam- kvæmt Kýótó-bókuninni eru tví- þættar. Annars vegar skal almennt útstreymi gróðurhúsalofttegunda frá Íslandi ekki aukast meira en sem nemur 10% frá árinu 1990, þ.e. vera innan við 3.650 þúsund tonn koltvíox- íðsígilda árlega að meðaltali á tíma- bilinu 2008-2012. Hins vegar skal koltvíoxíðsútstreymi frá nýrri stór- iðju eftir árið 1990 sem fellur undir sérstakt ákvæði ekki vera meira ár- lega en 1.600 þúsund tonn að með- altali árin 2008-2012. Þingað um Loftslagssamning SÞ Ræða útfærslu Kýótó-bókunar NÝR kjarasamningur Sambands ís- lenskra bankamanna, SÍB og SA sem undirritaður var í gær felur í sér 15-19% launahækkun félags- manna á samningstímanum sem er til 1. október 2008. Mestu skilar samningurinn fyrir félagsmenn í lægstu launahópunum með minna en 250 þúsund króna mánaðarlaun. Eru þetta einkum starfsmenn úti- búa, s.s. þjónustufulltrúar, banka- ritarar og gjaldkerar. Sem dæmi má nefna að reyndur gjaldkeri með 170 þúsund kr. á mánuði fær í lok samningstímans 209 þúsund kr. og þjónustufulltrúi með 210 þúsund kr. hækkar í 250 þúsund kr. Samningurinn er afturvirkur til 1. október 2004 og hækka öll laun frá og með þeim degi um 5,25%. 1. janúar 2006 hækka öll laun um 3,75% og ári síðar um 3%. Þann 1. janúar 2008 hækka öll laun um 2,25%. Jafnframt eru ákvæði um orlofs- uppbót upp á 110 þúsund kr. og ákvæði um að banki skuli greiða fastráðnum starfsmönnum í fæð- ingarorlofi mismun á óskertum launum og greiðslum frá Fæðingar- orlofssjóði. 3.900 félagsmenn eru í SÍB. Að sögn Friðberts Traustasonar, formanns SÍB, telst samningurinn viðunandi fyrir félagsmenn. Samningurinn verður kynntur á Grand hóteli í dag, fimmtudag kl. 17:30. Hærri laun hjá bankamönnum RÍKISLÖGREGLUSTJÓRI hefur ákveðið að fjölga nýnemum sem teknir verða inn í lögregluskólann í byrjun janúar úr 20 í 32. Þetta er gert m.a. vegna þess að það er fyrirsjáanlegt að menntaða lögreglumenn vanti til starfa um áramót. Í kjölfar þessarar ákvörðunar valdi valnefnd Lögregluskólans tólf nýnema til viðbótar úr hópi um- sækjenda og hefur þeim öllum ver- ið tilkynnt niðurstaðan. Á morgun, föstudag, mun Lög- regluskólinn brautskrá 35 nem- endur sem nú stunda nám í grunn- deild skólans. Nýnemum fjölgað um tólf
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.