Morgunblaðið - 09.12.2004, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 2004 61
DAVID og Victoria Beckham eru í líki
Jósefs og Maríu meyjar í nýjum vax-
myndum sem afhjúpaðar hafa verið á
Madame Tussaud-safninu í Lundúnum.
Í tilefni jólahátíðarinnar hefur verið
sett upp sérsýning þar sem frægt fólk úr
samtímanum hefur fengið hlutverk sögu-
persóna úr Bíblíunni, þeirra sem komu
við sögu fæðingar Krists.
Þannig eru Bush Bandaríkjaforseti,
Tony Blair forsætisráðherra Bretlands
og Filipus prins í hlutverkum vintring-
anna og ekki ber á öðru en að fjárhirð-
arnir séu sláandi líkir þeim leikurum
Samuel L. Jackson og Hugh Grant og
sjónvarpsgrínaranum Graham Norton.
Talsmaður Madame Tussaud segir uppá-
tækið til þess ætlað að fá fólk til að
brosa. „Þetta á að vera svolítið lúmskt.
Við höfum fengið frábærar viðtökur og
kallað fram ófá brosin.“
Hann viðurkennir þó að ein eða tvær
kvartanir hafi borist:
„Sumum finnst nefnilega ranglega hafa
verið skipað í hlutverk að láta Bush,
Blair og Filipus prins leika vitringana.“
Yfirvöld kirkjumála hafa hinsvegar
ekki gert athugasemd við uppátækið.
Eina sem talsmaður erkibiskupsins lét
eftir sér hafa var: „Ja, hérna“ og tals-
menn Vatíkansins telja það „smekk-
laust“.
Vaxmyndir | Umdeild uppfærsla Madame
Tussaud á fæðingu frelsarans
Vitringarnir Bush,
Blair og Filipus prins
AP
Fjárhirðarnir Samuel L. Jackson, Hugh Grant og Graham Norton, David og Victoria Beckham sem
Jósef og María og Blair, Filipus prins og Bush sem vitringarnir. Skyldi Jackson vera í jötunni?
SETH GREEN MATTHEW LILLARD DAX SHEPARD
KRINGLAN
kl. 10.10.
Frá leikstjóra Mr Deeds kemur
gamanmynd sem fær þig til að
missa það algjörlega.
Fór beint á toppinn í USA
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 8.20. B.i. 12 ára.
Kvikmyndir.is
Les
Marchands
de sable
(Svefnsandur)
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4, 6 og 8.
Jólamyndin 2004 Pólarhraðlestin
Jólamyndin 2004 Pólarhraðlestin
S.V. Mbl.
Jólamyndin 2004 Pólarhraðlestin Jólamyndin 2004 Pólarhraðlestin Jólamyndin 2004 Pólarhraðlestin
HILARY DUFF CHAD MICHAEL MURRRAY
Sagan af Öskubusku í nýjum búningi
Kvikmyndir.is
H.J.Mbl.
KRINGLAN
Sýnd kl. 6. Ísl. tal
KRINGLAN
kl. 10.20. B.i. 16 ára.
Stanglega bönnuð innan 16 ára
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 10.10.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 10.30. Stanglega bönnuð innan 16 ára
KRINGLAN
Sýnd kl. 6 og 8.10. Ísl. tal./
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10. Enskt tal.
H.L. Mbl.
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 8. Enskt tal.
AKUREYRI
Sýnd kl. 6.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4.
O P E N
W A T E R
Kvikmyndir.is
RENEE ZELLWEGER HUGH GRANT COLIN FIRTH
Sama Bridget. Glæný dagbók.
H.J. Mbl.
M.M.J. Kvikmyndir.com
AKUREYRI
Sýnd kl. 8.
ÞAÐ er orðið svo gott sem regla
fremur en hitt að berja á Bryan
Adams þegar hann gefur út nýja
plötu. Maður er svo sem ekki hissa
þegar hlýtt er á þetta nýjasta útspil
hans. Þetta er bara mjög lélegt, það
verður bara að segjast. Það er
merkilegt hvert þessi ágæti hæfi-
leikamaður er
kominn því
framan af ferli
flutti hann hið
ágætasta
„heartland“
rokk, séramer-
ísk stefna sem
Bruce Springsteen og John Cougar
Mellencamp standa (stóðu) fyrir.
„Summer of 69“ er þá stórkostleg
snilld. Undanfarin fimmtán ár hefur
hins vegar topp meðalmennska verið
aðal Adams og ekki breytist það hér.
Það sem er hvað athyglisverðast
við þessa plötu er að það er ekki eitt
lag – ég endurtek – ekki eitt lag sem
vekur eftirtekt hjá manni. Ég hef
ekki heyrt flatari plötu í heillangan
tíma.
Adams er í hlutlausum gír allan
tímann, hver og ein lagasmíð svo
þunn að maður tekur vart eftir því
að maður sé að hlusta. Platan pirrar
ekki. Hún er bara ekki.
Lygilega slappt frá manni sem
ætti að geta betur en virðist svo gott
sem á miðjumoðskrossferð.
Topp meðal-
mennska
TÓNLIST
Erlendar plötur
Bryan Adams – Room Service
Arnar Eggert Thoroddsen