Morgunblaðið - 09.12.2004, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 09.12.2004, Blaðsíða 53
ERLA Huld Sigurð- ardóttir listakona sýnir leirlist og myndlist á sölusýn- ingu í Listagjánni í Bæjar- og héraðs- bókasafninu á Sel- fossi í desember. Sýn- ingin nefnist Trú, von og kærleikur. Verkin eru unnin út frá þroskasögu gras- lauks. Byrjað var á málverkunum sem eru akrýlmyndir og leirverkin unnin út frá þeim. Erla Huld útskrifaðist úr Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1998. Hún hefur tekið þátt í nokkrum samsýningum. Á menningarhátíðinni Vor í Árborg sl. vor var Erla Huld með opna vinnustofu sína að Víðivöllum 2, þar sem hún sýndi m.a. handlaugar og aðra listmuni. Hún hefur kennt myndlist og leirlist í Vallaskóla sl. 2 ár og í Myndlistarskóla Kópavogs í 7 ár. Erla Huld í Listagjánni MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 2004 53 DAGBÓK Félagsstarf Aflagrandi 40 | Vinnustofa bað og jóga kl. 9, boccia kl. 10, myndlist kl. 13, videohornið kl. 13.30. Árskógar 4 | Bað kl. 8–14, handa- vinna kl. 9–16.30, boccia kl. 9.30, helgistund kl. 10.30, leikfimi kl. 11, smíði/útskurður kl.13–16.30, myndlist kl. 13.30. Jólabingó á morgun föstud. 10. des. Glæsilegir vinningar. Bólstaðarhlíð 43 | Hárgreiðsla, böð- un almenn handavinna, leikfimi, myndlist, bókband, söngur, fótaað- gerð, kl. 14 lesið úr nýjum bókum. Fé- lagsvist á morgun. Dalbraut 18–20 | Kl. 9–11 kaffi og dagblöð, kl.9–14 baðþjónusta, kl. 9– 16.45 hárgreiðslustofan opin, kl. 10– 14 opin handavinnustofa, kl. 11.15– 12.15 matur, kl. 15–15.45 kaffi. Félag eldri borgara, Reykjavík | Brids í dag kl. 13, framsögn kl. 16.15, félagsvist kl. 20, leshringur– Bókmenntaklúbbur, Sólveig Sörensen kynnir betur hugmyndina að les- hringnum föstudaginn 10. desember kl. 17 í Ásgarði Glæsibæ. Allir áhuga- samir um lestur góðra bóka eru vel- komnir í Ásgarð á morgun, að ræða málin. Félagsstarf aldraðra, Garðabæ | Karlaleikfimi og málun kl. 13, trélist kl. 13.30, boccia karla og kvenna kl. 15. Vatnsleikfimi í Mýrinni kl. 8.30. Í Garðabergi er opið kl. 13–17. Banki með kynningu í Garðabergi kl. 15. Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 10.30 helgistund umsjón sr. Guðmundur Karl Ágústsson, frá hádegi vinnustof- ur og spilasalur opin, kl. 13.30 dans- leikur sérstaklega fyrir Foldabæ, Fríð- uhús, Hlíðarbæ og Vitatorg. Vinabandið sér um músíkina. Hraunbær 105 | Kl. 9 almenn handa- vinna, bútasaumur, perlusaumur, kortagerð, hjúkrunarfræðingur á staðnum, kl. 10 boccia, kl. 11 leikfimi, kl. 12 hádegismatur, kl. 14 félagsvist, kl. 15 kaffi. Hvassaleiti 56–58 | Opin vinnustofa – bútasaumur kl. 9–13 boccia kl. 10–11, hannyrðir kl. 13–16.30, félagsvist kl. 13.30. Böðun virka daga fyrir hádegi. Fótaaðgerðir – hársnyrting. Korpúlfar Grafarvogi | Á morgun, föstudag vatnsleikfimi í Grafarvogs- laug kl. 9.30. Krabbameinsfélagið | Aðventukvöld verður í Hafnarfjarðarkirkju 9. des- ember kl. 20.30. Sigþrúður Ingi- mundardóttir hjúkrunarforstjóri á Sólvangi flytur hugvekju. Óperukór Hafnarfjarðar og Barna- og unglinga- kór Hafnarfjarðarkirkju syngja. Séra Þórhallur Heimisson leiðir athöfnina. Organisti Antonia Hevesi. Norðurbrún 1, | Kl. 9–12 leir, kl. 9– 16.30 opin vinnustofa, kl. 13–16.30 leir. Munið eftir jólagleðinni 10. des- ember. Sjálfsbjörg | Skák í Hátúni 12 í kvöld kl. 19.30. Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla og fótaaðgerðir, kl. 9.15–16 mynd- mennt, kl. 10–12 sund (Hrafnistulaug), kl. 10.15–11.45 spænska, kl. 11.45– 12.45 hádegisverður, kl. 12.15–14 verslunarferð í Bónus Holtagörðum, kl. 13–14 spurt og spjallað, kl. 13–16 tréskurður, kl. 14.30–15.45 kaffiveit- ingar. Vitatorg | Smiðjan kl. 8.45, bókband, hárgreiðsla og pennasaumur kl. 9, morgunstund kl. 9.30, boccia kl. 10, handmennt, glerskurður og frjáls spil kl. 13. Spiluð félagsvist kl. 20. Kirkjustarf Akureyrarkirkja | Kyrrðar– og fyr- irbænastund kl. 12. Léttur hádeg- isverður á eftir. Áskirkja | Hreyfing og bæn í dag milli kl. 12–12.45. Opið hús milli kl. 14 og17, samsöngur undir stjórn org- anista, kaffi og meðlæti. Allir vel- komnir. TTT–starfið, samvera milli 17 og 18. TEN–SING–starfið, æfingar milli 17 og 20. Bústaðakirkja | Foreldramorgnar fimmtudaga kl. 10–12. Allar nánari uppl eru á: www.kirkja.is. Digraneskirkja | Foreldramorgnar kl 10–12. Umsjón Anna Arnardóttir. Leikfimi IAK kl 11.15. Bænastund kl 12.10. (sjá nánar www.digra- neskirkja.is). Fella- og Hólakirkja | Foreldra- morgnar alla fimmtudaga kl. 10–12. Allir foreldrar, afar og ömmur sem eru heima með barn eða börn (ekki bara ungabörn) velkomin. Stelpustarf f. 3.–5. bekk er í Fella- og Hólakirkju alla fimmtudaga kl. 16.30–17.30. Síð- asta samvera fyrir jól er 9. desem- ber. Garðasókn | Kyrrðar- og fyrirbæna- stund er hvert fimmtudagskvöld í Vídalínskirkju kl. 22. Tekið er við bænarefnum af prestum og djákna. Boðið upp á kaffi í lok stundarinnar. Grafarvogskirkja | Foreldramorgnar kl. 10–12. Fræðandi og skemmtilegar samverustundir, ýmiss konar fyr- irlestrar. Alltaf heitt á könnunni, djús og brauð fyrir börnin. Hallgrímskirkja | Kyrrðarstund í há- degi alla fimmtudaga kl. 12. Org- elleikur, íhugun. Léttur málsverður í safnaðarheimili eftir stundina. Hjallakirkja | Opið hús er í dag kl. 12–14. Jólasamvera. Léttur hádeg- isverður og skemmtileg sam- verustund. Barnakór kemur í heim- sókn. Allir velkomnir. KFUM og KFUK | Aðventufundur fimmtudaginn 9. desember kl. 20. Sameiginlegur fundur Ad KFUK og KFUM. Ræðumaður: Herra Sigurbjörn Einarsson biskup. Upphafsbæn: Sig- urbjörn Þorkelsson. Kór KFUM og KFUK syngur. Allir velkomnir. Langholtskirkja | Foreldra– og ung- barnamorgnar alla fimmtudaga kl. 10–12. Fræðsla frá Miðstöð ungbarna- eftirlits. Umsjón hefur Rut G. Magn- úsdóttir. Söngstund með Jóni Stef- ánssyni. Kaffisopi. Allir foreldrar ungra barna velkomnir. Laugarneskirkja | Kl. 12 Kyrrð- arstund í hádegi. Málsverður á eftir. Kl. 17.30 KMS (15–20 ára) í samstarfi Laugarneskirkju, Miðborgarstarfs KFUM & K og fleiri aðila. Æfingar fara fram í Áskirkju og Félagshúsi KFUM & K við Holtaveg. Lágafellskirkja | TTT Töff Töfrandi og Taktfast, æskulýðsstarf fyrir tíu til tólf ára. TTT er félagsskapur fyrir öll tíu til tólf ára börn sem langar til að eiga skemmtilegan vetur saman. TTT fundirnir verða á fimmtudögum kl. 16.30 í safnaðarheimili Lágafells- kirkju. Staðurogstund http://www.mbl.is/sos                                MENNING SCALA-óperan í Míl- anóborg var formlega opnuð í fyrrakvöld með uppfærslu á óperunni Europa Riconosciuta eftir Antonio Salieri, þeirri sömu og var sett á svið þegar óperuhúsið var opnað í fyrsta sinn árið 1778. Hér sést hljómsveit- arstjórinn Ricardo Muti taka á móti þökkum áheyrenda ásamt öðrum flytjendum, en í aðal- hlutverkum voru sópr- ansöngkonurnar Diana Damrau og Desire Rancatore. Stóðu fagn- aðarlætin í einar tólf mínútur og voru flytj- endur klappaðir fimm- tán sinnum upp. Uppselt var á sýn- inguna, en af þeim 1.000 miðum, sem í boði voru, var um helmingur boðs- miðar. Seldust aðrir miðar á verðbilinu 17.000–170.000 krónur. Yfir 1.000 lögreglumenn gættu svæðisins í kring um óperuna, þar sem von var á miklum mótmælum, meðal annars gegn notkun dýraskinna í pelsa. Þá voru þó nokkrir andstæðingar forsætisráðherra Ítal- íu, Silvio Berlusconi, mættir til að mótmæla, og hrað- aði hann sér inn um hliðardyr á óperunni til að verj- ast köllum þeirra. Fagnaðarlæti í Scala AP HALLDÓR Hansen barnalæknir ánafnaði Listaháskóla Íslands veg- legu tónlistarsafni sínu fyrir þremur árum, auk þess sem hann erfði skól- ann að öllum eigum sínum. Halldór lést sumarið 2003 og hefur síðan verið unnið að því að koma gjöf hans í réttan farveg. Mikill fengur Halldór óskaði eftir því í skipu- lagsskrá sem gerð var í lok árs 2002, að eigum hans yrði ráðstafað í sérstakan styrktarsjóð í hans nafni eftir sinn dag. Í henni kemur fram að meginmarkmið sjóðsins séu að „styrkja uppbyggingu og styðja við tónlistarsafn Listaháskóla Íslands“ og „veita árlega styrk í nafni Hall- dórs Hansen til eins af tónlist- arnemum Listaháskóla Íslands sem náð hefur framúrskarandi árangri að mati sjóðsstjórnar“. Að sögn Hjálmars H. Ragn- arssonar, rektors Listaháskóla Ís- lands og stjórnarformanns sjóðsins, er mikill fengur að sjóðnum. „Bæði getur hann stutt við uppbyggingu tónlistarmenntunar hér á landi og haldið nafni Halldórs á lofti,“ segir hann. Styrktarsjóðurinn er sjálf- stæður, þó að hann heyri undir Listaháskóla Íslands. „Hann hefur sjálfstætt bókhald og sín eigin markmið. Það sem gert er í hans nafni, ber nafn Halldórs.“ Tveir nemendur fá styrk Sjóðurinn til styrktar tónlist- arnemum í nafni Halldórs verður formlega stofnaður 7. janúar næst- komandi og þá verður jafnframt út- hlutað úr honum í fyrsta sinn, til tveggja einstaklinga. Stjórn sjóðsins skipa Hjálmar H. Ragnarsson rekt- or skólans, Árni Tómas Ragnarsson læknir og Mist Þorkelsdóttir deild- arforseti tónlistardeildar skólans, og verður veitt árlega úr honum. „Það er miðað við að fólk sem enn er í námi og við í stjórninni höfum ákveðið að horfa víðar en eingöngu til tónlistarnemenda í Listaháskóla Íslands,“ segir Hjálmar og bætir við að styrkirnir miðist fyrst og fremst við hljóðfæraleikara og söngvara, enda í samræmi við áhugasvið Hall- dórs. Stjórn sjóðsins hefur ennfremur ákveðið að standa að masterklössum í nafni Halldórs, og munu sópr- ansöngkonan Elly Ameling, sem var góður vinur Halldórs, og píanóleik- arinn Gerrit Schuil, halda þann fyrsta af þeim toga í Listaháskól- anum næsta vor. Þýðingarmikið fyrir uppbyggingu Þá er unnið að því að skrásetja tónlistarsafn Halldórs um þessar mundir og gera það að hluta bóka- safns Listaháskólans, sem er stærsta listbókasafn á Íslandi. Í safni Halldórs, sem Hjálmar segir afar þýðingarmikið fyrir uppbygg- ingu bókasafns skólans, er meðal annars að finna myndbands- upptökur með tónlistarefni, bækur um tónlistarleg málefni og yfir 10.000 plötur, sem að stærstum hluta eru vínýlplötur sem spanna öll svið klassískrar tónlistar, þó flestar hafi að geyma óperutónlist eða ljóðasöng. Skráning hlutanna úr safni Halldórs og uppbygging tón- listarsafnsins er að hluta til kostuð með fé úr styrktarsjóði Halldórs. „Það er sú viðbót sem til þarf til að hægt sé að koma þessu safni á lagg- irnar á tiltölulega skömmum tíma. Við gætum aldrei gert þetta án þessa stuðnings,“ segir Hjálmar að lokum. Tónlistarmenntun | Styrktarsjóður Halldórs Hansen, barnalæknis og tónlistarunnanda, að taka á sig mynd Tónlistarsafn og styrkir til nemenda Morgunblaðið/Ásdís Halldór Hansen og Hjálmar H. Ragnarsson, með Árna Tómasi Ragnarssyni lækni og Birni Bjarnasyni, þáverandi menntamálaráðherra, sem vottuðu gjafarsamkomulag Halldórs og Listaháskólans fyrir þremur árum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.