Morgunblaðið - 09.12.2004, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 2004 23
MINNSTAÐUR
PANTAÐU ÁSKRIFT á veffanginu
icelandreview.com
eða í síma 512 75 75
I R
I c e l a n d R e v i e w
icelandreview.com
G J A F A Á S K R I F T
ICELAND REVIEW hefur í meira en 40 ár verið eina
tímaritið á ensku um Ísland og Íslendinga. Blaðið er
þekkt fyrir frábærar ljósmyndir af stórbrotnu landslagi
en blaðið fjallar líka um strauma í viðskiptum, menn-
ingu, vísindum og stjórnmálum.
VINSÆL JÓLAGJÖF
Gjafaáskrift að Iceland Review er vinsæl
jólagjöf til vina og viðskiptavina erlendis.
Vinirnir fylgjast stöðugt með því sem gerist
á Íslandi, og blaðið minnir á gefandann
fjórum sinnum á ári.
Áskrift kostar aðeins 3.400 kr
fyrir árið (2.982 án vsk).
Innifalinn er sendingarkostnaður til útlanda.
GJAFABRÉF
Hverri áskrift fylgir gjafabréf sem sent er
til viðtakenda þar sem fram kemur hver gefur.
Auk þess sendum við nýjum áskrifendum litla bók
að gjöf, Memories of Reykjavík,
með ljósmyndum eftir Pál Stefánsson.
BÓKAGJÖF
Þeir sem kaupa tvær áskriftir eða fleiri fá
sjálfir veglega bókagjöf og geta valið um
ljósmyndabækurnar Land eða 1881 km
(myndir af hringveginum) eftir Pál Stefánsson (verð út
úr búð um 4000 kr) eða Hálendishandbókina eftir
Pál Ásgeir Ásgeirsson (verð út úr búð um 5000 kr.).
GLEÐJIÐVINI ERLENDIS
MEÐ GJAFAÁSKRIFT
Borgartúni 23
Laugavegi 95 – Sími 552 1844 – www.seatingconcept. is – Opið á sunnudögum ti l jó la
Mikið úrval af fallegum sófum til afgreiðslu fyrir jól
Vorum að taka inn nýjar gerðir
Verð 179.900
Kárahnjúkavirkjun |
Lokið er vinnu við að
grafa jarðgöng, hella
og skúta í Valþjófs-
staðarfjall í Fljótsdal
mörgum vikum á und-
an áætlun. Fosskrafts-
fólk fagnaði áfangan-
um um helgina. Það
tók verktakann, Foss-
kraft, aðeins þrettán
og hálfan mánuð að
grafa þrenn göng inn í
fjallið, tvo gríðarstóra
hella fyrir stöðvarhús
og spenna og tilheyr-
andi ganganet. Byrjað
var að sprengja fyrir
aðrennslisgöngunum
22. október í fyrra og
er þessum þætti framkvæmdanna
nú lokið. Mest mæddi á undirverk-
taka frá Slóvakíu við að sprengja
og grafa inni í fjallinu. Slóvakarnir
voru kvaddir með viðhöfn í Fljóts-
dal síðastliðinn laugardag og fóru
heim í gær.
Jónas Jónmundsson, staðar-
stjóri Fosskraft í Fljótsdal, sagði í
samtali við Morgunblaðið að nú
yrði farið í að steypa upp hús inni í
fjallinu, sem sé annað eins verk-
efni og það sem búið er.
Þjónustubygging framan við
göngin verður byggð samhliða og
er í útboði hjá Landsvirkjun. Til-
boð verða opnuð 10. janúar nk.
Jónas reiknar með að hún fari í
byggingu fljótlega eftir það. Nú
eru um 100 manns hjá Fosskraft
og segir Jónas nokkur tímamót
þegar jarðvinnumenn fari heim og
byggingarmenn koma í staðinn.
Um jólin verður vinnusvæðið lokað
frá því rétt fyrir jól og fram í byrj-
un janúar, en öryggisvakt á svæð-
inu.
Nýtt bormet
Í Kárahnjúkastíflu er nú kominn
ríflega fjórðungur fyllingarefnis-
ins. Kárahnjúkastífla verður alls
8,4 milljónir rúmmetrar og í hana
eru þegar komnar tæplega 2,4
milljónir rúmmetra af fyllingarefni
eða rúmlega 28%.
Boruðu göngin lengdust samtals
um hátt í 620 metra í síðustu viku.
Borvél þrjú setti þá nýtt met með
því að bora 83 metra á einum sól-
arhring. Fyrra metið var 80 metr-
ar á sólarhring.
Fosskraft lauk greftri jarðganga,
hella og skúta á mettíma
Jarðvinnumenn heim
og byggingamenn
bretta upp ermar
Landsvirkjun
Hér sést hvernig risaborarnir þrír mjakast
áfram hver í sínu lagi um 150 m undir yfirborði
jarðar við borun aðganga Kárahnjúkavirkjunar.
AUSTURLAND