Morgunblaðið - 09.12.2004, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 09.12.2004, Qupperneq 18
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Austurland | Landið Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust- urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is Enn rekur hvali| Annan hval hefur rekið á fjöru í Kelduhverfi, að þessu sinni rétt vestan við Lónsósinn. Hvalinn rak í landi Fjalla á svokölluðum Fjallareka, tæpan kílómetra vestan við þann stað sem anda- nefjuna rak um daginn. Það var Guð- mundur Héðinsson á Fjöllum sem sá hval- inn þegar hann var að kanna aðstæður til að grafa út Lónsósinn. Frá þessu er greint á vefnum kelduhverfi.is og einnig að um sé að ræða einhverja höfrungategund, um fjóra metra að lengd. „Höfrungurinn hefur greinilega verið dauður í þó nokkurn tíma, því ef eitthvað er er hann minna kræsilegur en andanefjan sem rak á land fyrir akkúrat mánuði,“ segir í fréttinni. Þessir hvalrekar eru mjög óvenjulegir, segir ennfremur og vitnað til þess að Björn í Lóni, sem búið hefur þar alla ævi (f. 1929), „man einungis eftir einum hvalreka hér á fjörum, áður en þessa tvo rak á land nú í vetur“.    Úr bæjarlífinu HÉÐAN OG ÞAÐAN Sama afstaða til sameiningar| „Sveit- arstjórn Aðaldælahrepps mótmælir þeirri aðferð að taka þurfi afstöðu til tillagna um sameiningu sveitarfélaga þar sem hvorki er frágengin væntanleg tekjuskipting ríkis og sveitarfélaga né verkaskipting. For- senda þess að árangur náist í sameiningu sveitarfélaga er að ásættanleg niðurstaða fáist sem fyrst varðandi núverandi tekju- stofna þeirra,“ segir í bókun sem sam- þykkt var á fundi sveitarstjórnar Að- aldælahrepps á dögunum. Fram kemur að sameiningartillaga sem kosið var um í nóvember árið 2001 hafi verið felld með miklum meirahluta en sú tillaga var nán- ast samhljóða þeirri sem nú er lögð fram. Þá er bent á að niðurstöður íbúafundar sem haldinn var í Aðaldælahreppi um miðjan síðasta mánuð um sameiningarmál, bentu eindregið til þess að afstaða íbúa hafi lítið breyst. Vilji kom þar fram til sameiningar við Þingeyjarsveit og því er ljóst að tillaga þar sem Þingeyjarsveit er með væri líklegri til að fást samþykkt. Sveitarstjórn leggur til að íbúar taki af- stöðu til tillögunnar með lýðræðislegri kosningu. Ættjarðarlög í nýju ljósi | Gunnar Gunn- arsson organisti og Sigurður Flosason saxó- fónleikari halda tónleika í Ytri-Njarðvík- urkirkju fimmtudaginn 9. desember kl. 20.30. Tónleikarnir eru haldnir í tilefni af út- komu geisladisksins Draumalandið. Á disk- inum leika Sigurður og Gunnar þrettán ís- lensk ættjarðarlög í eigin útsetninum, en þar gegnir spuni stóru hlutverki. Gestum í Laufási viðEyjafjörð gefst ásunnudag, 12. des- ember, kostur á að fylgj- ast með undirbúningi jólanna eins og var í gamla daga. Samveran hefst kl. 14. Leikin verður jólatónlist með hljóðfærum frum- byggja Ástralíu. Búið verður til jólaskraut, jólatré skreytt, skorið í laufabrauð og búin til kerti. Gestir geta fengið að smakka hangikjöt, laufabrauð og kúmen- kaffi. Einnig verður boðið upp á gamaldags sælgæti. Jólamarkaður verður í skálanum, þar sem hægt verður að kaupa jóla- varning. Andi liðinna jóla Áætlunarflug á veg-um Landsflugshófst til Sauð- árkróks í liðinni viku. Þá voru liðlega tveir mán- uðir síðan áætlunarflug þangað lagðist af. Vel var tekið á móti Lands- flugsmönnum í fyrstu ferðinni á Krókinn. For- svarsmenn sveitarfé- lagsins voru mættir út á völl með blóm og konfekt og létu þess getið að þetta væri ánægjulegur og mik- ilvægur dagur fyrir sam- göngur við héraðið. Á myndinni sem tekin var við þetta tækifæri eru forsvarsmenn Lands- flugs, flugmenn og fulltrúar sveitarfélagsins. Morgunblaðið/Örn Þórarinsson Góðar móttökur Nýlega kom út bók-in Nema ljóð &sögur X, sem gef- in var út eftir námskeið Þórðar Helgasonar og Ragnars Inga Aðalsteins- sonar í Kennaraháskóla Íslands. Þar er meðal ann- ars vísan Löngun eftir Að- albjörgu Karlsdóttur: Langar manninn list að sjá, lita mála, hanna. Unna, kyssa, ungmey fá, undraheima kanna. Ari Eggertsson er með limruna Gunnar dauður: Andskotans helvítis hitt. Hallgerður gaf mér ei sitt fallega hár, ég fallinn er nár af kinnhesti er ég nú kvitt. Jóhann Alfreðsson er einnig með limru: Þeir flöskuna tæma í tollinum og trúlega ná úr sér hrollinum en hætti þeir ekki og drekki – og drekki þá dragast þeir áfram í sollinum. Ungmey kysst pebl@mbl.is Eskifjörður| Aðventukvöld eru nú haldin í kirkjum víða um land þar sem fólk kemur saman og á notalega stund í aðdraganda jólanna. Eskfirðingar komu saman í sinni kirkju á dögunum og áttu þar góða stund. Börn úr skólanum léku stórt hlutverk og áttu sinn þátt í að gera stundina skemmtilega, voru með leikþátt um fæðingu frelsarans sem góð- ur rómur var gerður að. Þá var sungið og kveikt á kertum til að lýsa upp skammdegið. Á mynd- inni er Heimir Andri Atlason, ungur Eskfirðingur, sem tók þátt í aðventukvöldinu og heill- aðist af kertaljósunum. Morgunblaðið/Helgi Garðarsson Heillaðist af kertaljósinu Aðventukvöld Stranddalavegur| Vegurinn um Arn- kötludal og Gautsdal mun borga sig upp á tíu árum og kosta á milli 780 og 800 milljónir króna. Um veginn myndu fara að meðaltali 165 bílar á sólarhring og sparnaður vegna fækkunar slysa er áætlaður um 12,2 milljónir króna ef mið- að er við þá styttingu sem gerð vegarins skilar. Þetta er meðal þess sem kemur fram í greinargerð og frumdrögum að lagningu vegarins sem verkfræðistofan Línuhönn- un hefur unnið fyrir Leið ehf. Í for- sendum er ekki reiknað með að innheimt verði veggjald af þeim sem um veginn fara. Í skýrslunni kemur m.a. fram að gerð vegarins er arðsöm með innri vexti upp á 14%, en framkvæmd með yfir 6% innri vexti telst arðsöm, og teljast for- sendur þó hófsamar. Út frá þeim for- sendum sem miðað er við í greinargerð- inni má gera ráð fyrir að vegurinn borgi sig upp á 10 árum. Áætlaður heildarkostnaður við gerð vegarins í þeirri veglínu sem líklegt má telja að hann verði lagður er að óbreyttu um 796 milljónir króna. Þar af er kostn- aður verktaka áætlaður 612 milljónir, hönnunarkostnaður, umsjón og eftirlit er áætlaður 92 milljónir króna og loks er í tölunni gert ráð fyrir 15% ófyrirséðum kostnaði sem einnig er að fjárhæð 92 milljónir króna. Kostnaður er svipaður við þrjú afbrigði leiðarinnar eða á bilinu 780 til 800 milljónir króna með virð- isaukaskatti. Lokið við gerð umferðar- matsskýrslu á næstu dögum Í umferðarforsendum er reiknað með að meðaltalsumferð um veginn verði 165 bifreiðar á sólarhring ef hann verður lagður nú eða 60.000 bílar á ári en að umferðin aukist í 90.000 bíla á ári eftir 20 ár. Árlegur sparnaður vegna slysa- og óhappa við þennan veg er áætlaður um 12,2 milljónir króna og er þá ein- göngu metinn sú stytting vegalengda sem felst í vegagerðinni. Í tilkynningu frá Leið ehf. segir að á næstu dögum megi gera ráð fyrir að lokið verði við gerð umhverfismatsskýrslu fyrir veginn og hún send Skipulagsstofnun til með- ferðar. Í kjölfarið verður for- og verk- hönnun vegarins boðin út ef fjármögnun tekst og í framhaldinu, sem gæti orðið sex til átta mánuðum síðar, mætti bjóða verkið sjálft út. Frá þessu er sagt á vef Bolungarvíkur, vikari.is. Stranddala- vegur borg- ar sig upp á 10 árum Ótrúlega fjölbreytt saga af ævintýrinu um bílinn, sem breytti íslensku þjóðlífi meira en nokkurt annað tæki. Spennandi lestur fyrir alla sem hafa gaman af þjóðlegum fróðleik, frásögnum af mannraun- um og því hvernig fólkið í landinu þróaði nýtt samfélag, samfélag sem byggist á sam- göngum – stundum í baráttu við stjórnvöldin. Saga bílsins á Íslandi 1904 – 2004 AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111   
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.