Morgunblaðið - 09.12.2004, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 2004 29
NEYTENDUR
AIREX DÝNUR
FYRIR JÓGA
OG LEIKFIMI
polafsson.is
Trönuhrauni 6 // 220 Hafnarfjörður // Sími: 565 1533
„ÞETTA er mín verslun,“ segir Þorsteinn Sæ-
berg, skólastjóri Árbæjarskóla, um leið og
hann grípur græna innkaupakörfu í anddyri
Nóatúns við Furugrund í Kópavogi og gengur
ákveðnum skrefum að kjötborði verslunar-
innar. „Bæði er að ég bý hérna rétt fyrir ofan
og eins hitt, að hér er boðið upp á mjög gott
kjötborð,“ bætir Þorsteinn við, og greinilegt
að ekki er komið að tómum kofunum hjá hon-
um þegar kjöt er annars vegar, enda má segja
að Þorsteinn sé alinn upp í kjötbúð.
„Faðir minn, Sigurður Sæberg, átti og rak í
félagi við Björn Inga Björnsson Kjötverslun
Suðurvers, sem var hreinræktuð sérverslun
með kjötvörur. Þar vann ég öll mín unglings-
ár, úrbeinaði og gerði allt er laut að kjöt-
vinnslu þannig að ég er eiginlega á heimavelli
þegar kemur að kjötborðinu.“
Spurður hvort aldrei hafi komið til greina
að hann fetaði í fótspor föður síns og gerðist
kjötkaupmaður segir Þorsteinn að örlögin hafi
einfaldlega hagað því svo að hann haslaði sér
völl í menntakerfinu. „Ég lauk kennaraprófi
frá Kennaraháskólanum árið 1984 og hóf að
því loknu kennslu í Hólabrekkuskóla í
Reykjavík. Þar kenndi ég almenna bekkjar-
kennslu fyrst, en síðan aðallega stærðfræði á
unglingastigi og varð síðan aðstoðarskóla-
stjóri í Hólabrekkuskóla í þrjú ár þar til ég
tók við stöðu skólastjóra í Árbæjarskóla árið
1993.“
Gaman í eldhúsinu
Þorsteinn er nú kominn að kjötborðinu og
skimar eftir lambafile, sem hann ætlar að hafa
í matinn þennan dag. Og þarna eru þær, rauð-
ar, safaríkar og freistandi að sjá og meira að
segja á tilboði. „Þeir eru yfirleitt með mjög
gott kjöt hérna í Nóatúni,“ segir Þorsteinn og
kveðst ætla að gera einföld matarinnkaup að
þessu sinni. „Þetta verður einfalt en mjög
gott. Lambafile er í uppáhaldi á mínu heimili
og ég ætla að velja hérna þrjár litlar sneiðar
og með þeim ætla ég að hafa gullkorn og hrá-
salat,“ segir Þorsteinn og miðar innkaupin við
þrjá fullorðna, en þau eru þrjú í heimili, auk
Þorsteins eru það eiginkonan Gerður Sigurð-
ardóttir og 19 ára dóttir, Hrafnhildur, en son-
urinn Sigurður, sem er 24 ára, er fluttur að
heiman. Á tilboðsverðinu kostar lambafile
1.151 krónu, en hefði annars kostað 1.655
krónur.
„Við verðum að hafa góða sveppasósu með
þessu,“ segir Þorsteinn, sem er nú kominn að
grænmetisborðinu. „Hérna er líka evrópskt
jöklasalat og svo kippum við með okkur einni
agúrku, nokkrum tómötum og einum rauð-
lauk. Nú vantar bara fetaost í krukku og þá er
þetta komið, nema auðvitað kartöflurnar, sem
ég á til heima, en best er að hafa þær bakaðar
með þessum rétti. Þetta er eins einfalt og
hugsast getur.“
Þorsteinn kveðst vera vanur því að elda
heima. „Konan mín er að vísu mjög mynd-
arleg húsmóðir og góður kokkur, en mér
finnst bara svo gaman í eldhúsinu að ég reyni
að sjá um matseldina eins oft og ég get.“
Lambafile að hætti Þorsteins
Kartöflurnar bakaðar á hefðbundinn hátt í
ofni eða á útigrilli.
Með þeim er að mínu mati best að hafa
sýrðan rjóma með graslauk.
Kjötið brúnað á pönnu við háan hita á báð-
um hliðum og kryddað ýmist með salti og pip-
ar eða með Broiled steak seasoning sem mér
finnst passa einkar vel með þessu. Lokið sett
á pönnuna og hitinn lækkaður, látið malla í
u.þ.b. 5 mínútur.
Með kjötinu bý ég til sveppasósu.
Jöklasalati, agúrkum, tómötum, rauðlauk
og fetaosti blandað saman.
Auk ofangreinds eru hafðar maísbaunir
með þessu.
HVAÐ ER Í MATINN? | Þorsteinn Sæberg
Einfalt en mjög gott
Morgunblaðið/Þorkell
Þorsteinn Sæberg velur sér ferskt grænmeti í salatið; tómata, agúrkur, jöklasalat og rauðlauk.
Morgunblaðið/Þorkell
Lambafile og meðlæti sem Þorsteinn tíndi of-
an í innkaupakörfuna í Nóatúni.
svg@mbl.is