Morgunblaðið - 09.12.2004, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 2004 31
NEYTENDUR
arkaupum, Blómavali og Mela-
búðinni.
Íslensk veiðibúð á Netinu
Veiðihornið opnaði um
helgina nýja vefsíðu. Síðan sem
er hlaðin fróðleik og upplýsingum
fyrir veiðimenn er einnig fullbúin
netverslun útbúin tækni sem gerir
kreditkortaviðskipti yfir netið al-
gjörlega örugg. Úrval af jólagjafa-
hugmyndum er í netversluninni en
upp úr áramótum má einnig sjá þar
gott úrval af fluguhnýtingaefni auk
alls kyns útbúnaði fyrir stanga-
veiðimenn og skotveiðimenn. Veiði-
menn um allt land hafa því eignast
íslenska veiðibúð á netinu. Slóðin er
veidihornid.is
Ítölsk aðventukaka
Heilsuhúsið býður
upp á ítölsku aðventu-
kökuna Panettone fyr-
ir þessi jól. Ávaxtakak-
an hefur verið bökuð í
bakaríum á Norður-Ítalíu
frá því á 15. öld. Kakan er gerð úr
gerdeigi með eggjarauðum. Í það er
bætt sykruðum ávöxtum af ýmsum
tegundum. Kakan er oft bragðbætt
með góðum líkjör. Þessi kaka er
borðuð á Ítalíu á aðventunni og þá
þykir gott að drekka með henni
freyðivín.
Fyrir þá sem ekki eru hrifnir af
kökum með ávöxtum í er til hliðstæð
kaka án ávaxta sem heitir Pandoro.
Kökurnar fást einnig í Fjarð-
NÝTT
NÝBÖKUÐ 38 ára gömul amma í
Reykjanesbæ brá á það ráð að búa
til vefsíðu með uppskriftum þegar
einkasonurinn flutti að heiman og
fór að búa með kærustu og dóttur.
Amman sagðist lítið vera fyrir at-
hyglina og vildi hvorki koma fram
undir nafni né mynd, en sagði að vef-
inn góða mættu auðvitað allir nýta
sér sem vildu þó hann hafi í upphafi
verið hugsaður sem heimanmundur
fyrir soninn. Þar er m.a. að finna úr-
val af smákökum, tertum, form-
kökum og brauðum.
„Okkur mæðginunum hefur alltaf
fundist gaman að baka og því ákvað
ég að taka saman alla uppskrifta-
bréfsneplana mína, skipuleggja þá
svolítið og setja í aðgengilegt form á
vefinn. Síðan hefur mér oft verið
boðið í kaffi og meðlæti til sonarins
sem flutti með sína fjölskyldu í kjall-
arann hjá okkur."
Amman hefur fengið þó nokkur
viðbrögð á vefinn, aðallega þó út af
stafsetningarvillum en hún segist
vera ómenntuð, lesblind og ritvillt.
„Ég laga villurnar þá bara eftir því
sem ábendingar berast. Þetta er
fyrst og fremst uppskriftasafnið
mitt sem kemur úr ýmsum áttum og
mörgum uppskriftum hef ég breytt
en eins og við vitum eru allar góðar
uppskriftir stolnar,“ segir hún og
bætir við að engin hafi hjálpað sér
við gerð síðunnar. „Ég vann þetta
bara upp á eigin spýtur með síðu-
forrit í annarri hendi og músina í
hinni.“ Hún áformar að bæta við
uppskriftum og segist fagna því ef
aðrir vilji deila með sér og gestum
síðunnar uppskriftum. Þær má
senda á netfangið: monsa8@sim-
net.is. Að lokum var þessi framtaks-
sama kona beðin um að uppljóstra
uppáhalds uppskriftunum og nefndi
hún þá m.a. kökur, sem heita Kaffi-
kökur. Vefslóðin á uppskriftasafnið
er: http://www.simnet.is/mus1/
smakokur.htm
Kaffikökur
200 g smjör
1 dl sykur
4 dl hveiti
1 dl kartöflumjöl
½ tsk lyftiduft
2 msk skyndikaffi
Krem:
50 g smjör
1 dl flórsykur
vanilludropar
Blandið saman öllum hráefnunum
í deigið og hnoðið vel. Kælið. Fletjið
deigið þunnt út og skerið út. Bakið
við 175°C í 15-20 mín eða þar til kök-
urnar verða fallega gulbrúnar. Látið
kökurnar kólna. Hrærið saman
smjöri, flórsykri og vanilludropum í
kremið og leggið saman tvær og
tvær kökur með kreminu. Geymið í
vel lokuðum plastpoka á köldum
stað eða í frysti.
VEFUR | Bjó til uppskriftasafn á Netinu
Heiman-
mundur
sonarins
Morgunblaðið/Golli
80%landsmanna eru
sammála því að í Morgunblaðinu
megi finna mikilvægar upplýsingar
um vörur og þjónustu ❉
❉ Mjög og frekar sammála
Gallup mars 2004
„Finn vel upplýsingar
um vörur og þjónustu“
Morgunblaðið 80%
Fréttablaðið 72%
Rás 2 53%
Sjónvarpið 60%
Hús og híbýli 53%
Rás 1 50%
mbl.is 50%
Stöð 2 49%
Gestgjafinn 44%
jólagjöf
Hugmynd að
fyrir börnin
Smáralind
Sími 545 1550
Glæsibæ
Sími 545 1500
Kringlunni
Sími 575 5100
www.utilif.is
Mikið úrval af
húfum og vettlingum.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
TI
2
66
32
12
/2
00
4