Morgunblaðið - 09.12.2004, Síða 35
náðu samstöðu um og Ásgerður
Halldórsdóttir núverandi forseti
bæjarstjórnar kynnti rækilega á sín-
um tíma, m.a. í NESfréttum. Nú vill
bæjarstjóri flytja völlinn á stað sem
betur væri fallinn undir miðbæj-
arkjarna Seltjarnarness. Ríkt hefur
almenn sátt um núverandi staðsetn-
ingu vallarins þangað til farið var að
róta upp í málinu nú af annarlegum
ástæðum.
Flutningur vallarins kæmi ekki
neinum og síst af öllum knatt-
spyrnumönnum á Seltjarnarnesi til
góða. Mikið flæmi færi undir völlinn,
sem getur nýst til þess að skapa lif-
andi miðbæ fyrir bæjarfélagið. Samt
er svæðið of lítið til að völlurinn njóti
sín. Að minnsta kosti 6000 og allt
upp að 8250 fermetrum færu undir
völlinn einan. Eru þá ekki talin með
nauðsynleg öryggissvæði, svæði fyr-
ir áhorfendur og aðstandendur, bíla-
stæði fyrir sömu áhorfendur og
fleira. Í tilrauninni til að láta völlinn
rúmast þarna er farið niður í allra
lægstu undanþágulágmörk skv.
reglum Knattspyrnusambands Ís-
lands. Samt er ekki hægt að verða
við tilmælum knattspyrnuforyst-
unnar á Nesinu um að völlurinn
verði í C-flokki, en það myndi auka
notagildi hans og bæta rekstr-
argrundvöll.
Óheppilegar aðstæður
Einn stærsti gallinn á þessu öllu er
svo sá að völlurinn mundi liggja þétt
upp að byggðinni. Erfitt er að sjá að
gert hafi verið ráð fyrir því að ein-
hverjir ættu að horfa á leiki Gróttu,
ýmist talað um áhorfendasvæði sem
rúmi 200, 300 eða í hámarki 400
manns. Er þá augljóst að sumir
þurfa að standa nálægt endamörk-
um vallarins. Þá eru frá taldir íbúar
blokkarinnar sem á að byggja við
hliðina á vellinum endilöngum. Þeir
myndu fá stúkusæti á besta stað,
hvort sem þeim líkaði það betur eða
verr. Og það yrði ókeypis, svo ekki
styrkir þetta mjög hæpinn rekstr-
argrundvöll vallarins. Ennfremur
eru heimili fyrir aldraðra nú þegar í
námunda við fyrirhugaðan gervi-
grasvöll. Þrátt fyrir verðskuldaðar
vinsældir knattspyrnunnar hafa
ekki allir áhuga á íþróttinni. Miklar
líkur eru á því, kannske er nær að
tala um vissu, að háreysti og spenn-
ingur sem eðlilega fylgir íþróttinni
leggist ekki jafnvel í alla þá sem
myndu flytjast í nýju blokkirnar.
Aldraðir eru gjarna viðkvæmari en
aðrir fyrir hávaða. Það þýðir að lík-
lega þyrfti að ljúka æfingum og
kappleikjum fyrr á kvöldin en ella,
skylt að hætta kl. 10 ef kvartanir
berast. Þetta felur í sér meinlega
takmörkun á sumrin þegar knatt-
spyrnuáhugamenn á Nesinu eru oft í
miklum ham langt fram yfir mið-
nætti.
Það eru viðtekin sannindi að með
því að bæta aðstöðu áhorfenda fjölgi
þeim sem mæti á völlinn. Þau skref
sem hér er verið að stíga fara öll í öf-
uga átt. Hér er verið að rýra aðstöðu
áhorfenda svo um munar. Hvað svo
ef Grótta myndi ná góðum árangri
og komast upp í t.d. 1. deild? Þá sæt-
um við uppi með keppnisvöll af D-
gerð, sem ekki er leyfilegur í 1.
deild. Ljóst er að ekkert svigrúm
væri til þess að bæta þar úr. Þótt
þátttaka Gróttu í 1. deild sé ef til vill
fjarlægur draumur þá næst ekki ár-
angur nema markið sé sett hátt. Það
lýsir litlum metnaði bæjarstjórans
fyrir hönd Gróttu, að beinlínis skuli
gert ráð fyrir því að félagið muni
aldrei ná árangri. Grótta og Sel-
tjarnarnes eiga betra skilið. Með
svona ráðstöfunum er verið að slíta
hásinina í knattspyrnuiðkuninni á
Nesinu. Krafan er því: Völlinn á sín-
um stað, gervigras án frekari tafa.
Látum ekki knattspyrnuna vera í
viðjum skipulagsklúðursins lengur.
Höfundar eru
knattspyrnuáhugamenn.
fjörð og sveitir Þingeyinga sem
eitt vinnusvæði. Vænlegast væri,
að gera þessar byggðir að einu
sveitarfélagi með Kristján Þór
Júlíusson sem sveitarstjóra. Það
sem við Norðanmenn þurfum
þessa dagana, er sterk liðsheild
með öflugan foringja í brúnni, til
að leiða þetta mál til lykta. Stór-
iðja, samgöngubætur og sterkari
yfirstjórn er það sem byggð-
arlagið mitt þarf á að halda, til að
fá kraft til betra lífs. Allt tal um
„eitthvað annað“ í stað stóriðju er
innantómt hjal, enda er „eitthvað
annað“ ekki til. Það er margreynt.
Fram til sóknar Norðanmenn.
Höfundur er útgerðarmaður.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 2004 35
UMRÆÐAN
Hlíðasmára 11, Kópavogi
sími 517 6460
www.belladonna.is
Réttu stærðirnar
Munið
að slökkva
á kertunum
❄
❄❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
Setjið kerti aldrei
nálægt tækjum sem
gefa frá sér hita, s.s.
sjónvarpi. Hiti frá
tækinu veldur aukinni
áhættu á óhappi.
Slökkvilið
Höfuðborgarsvæðisins
❄
❄
❄
❄❄
❄
Notið þægindin
Notaleg stæði í sex bílahúsum bíða þín
í jólaumferðinni.
H
ön
nu
n:
G
ís
li
B
.
Innkeyrsla frá Vesturgötu
um Mjóstræti. 106 stæði.
Vesturgata 7
Eftirfarandi greinar eru á
mbl.is:
Guðrún Lilja Hólmfríðardótt-
ir: „Ég vil hér með votta okk-
ur mína dýpstu samúð vegna
þeirrar stöðu sem komin er
upp í íslensku þjóðfélagi með
skipan Jóns Steinars Gunn-
laugssonar í stöðu hæstarétt-
ardómara. Ég segi okkur af
því að ég er þolandinn í „Pró-
fessorsmálinu“.“
Sveinn Aðalsteinsson: „Nýj-
asta útspil Landsvirkjunar og
Alcoa er að lýsa því yfir að
Kárahnjúkavirkjun, álbræðsl-
an í Reyðarfirði og línulagnir
þar á milli flokkist undir að
verða „sjálfbærar“!“
Hafsteinn Hjaltason:
„Landakröfumenn hafa engar
heimildir fyrir því, að Kjölur
sé þeirra eignarland, eða eign-
arland Biskupstungna- og
Svínavatnshreppa.“
María Th. Jónsdóttir: „Á
landinu okkar eru starfandi
mjög góðar hjúkrunardeildir
fyrir heilabilaða en þær eru
bara allt of fáar og fjölgar
hægt.“
Guðmundur Hafsteinsson:
„Því eru gráður LHÍ að inn-
taki engu fremur háskólagráð-
ur en þær sem TR útskrifaði
nemendur með, nema síður
sé.“
Á mbl.is
Aðsendar greinar