Morgunblaðið - 09.12.2004, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 2004 37
UMRÆÐAN
ÞEIR kölluðu rækjuna Stóra
kampalampa, þegar rækjuveiðar hóf-
ust fyrst í tilraunaskyni í Ísafjarð-
ardjúpi fyrir 80 árum. Alvaran hófst
síðan 1936 þegar vinnsla á rækju
hófst á Ísafirði. Rækjuveiðar inn-
fjarðar hafa verið mjög mikilvægar í
atvinnulífi víða um land. Þegar
hörpudisksveiðar hófust fyrst frá
Bolungarvík árið 1968 urðu kaflaskil í
útgerðarsögu okkar og hörpudisks-
veiðar og -vinnsla hafa verið gríð-
arlega þýðingarmikill
þáttur í sjávarútvegi
okkar og gjaldeyr-
issköpun og hreinlega
burðarás í atvinnulífi á
Snæfellsnesi, eink-
anlega Stykkishólmi.
Getur það verið að
nú sé sagan öll? Við vit-
um það ekki og vonum
vitaskuld að ástandið
sé mjög tímabundið.
En eitt er ljóst. Engar
innfjarðarrækjuveiðar
eiga sér nú lengur stað
hér við land og algjört
veiðibann er nú á hörpudiski við land-
ið. Þetta eru auðvitað hrikaleg tíð-
indi. Því efndi ég til umræðu utan
dagskrár á Alþingi sl. föstudag. Í um-
ræðunum kom fram ríkur skilningur
sjávarútvegsráðherra og það ríkti
góð samstaða þingmanna.
Hver er staða innfjarðarrækju-
veiðanna?
Við skulum aðeins átta okkur á töl-
unum. Á árunum 1990 til 2000 nam
innfjarðarrækjuveiðin að jafnaði 7 til
10 þúsund tonnum. Það er nálægt
helmingi þess kvóta sem nú er út-
hlutað í úthafsrækju. Veiðin var
stunduð af minni bátum, oftast í eigu
einstaklinga. Þetta var grundvöllur
annarrar útgerðar og skapaði mik-
ilvæg störf á svæðum sem svo sann-
arlega þurftu á þeim að halda. Á síð-
ustu árum hafa þessar veiðar smám
saman verið að dragast saman. Til
marks um hversu hlutirnir gerast
hratt má nefna að í ástandsskýrslu
Hafrannsóknastofnunar frá því í vor
var talað um að rækjustofninn í Arn-
arfirði væri nærri sögulegu hámarki.
Við rannsóknir nú í haust var hins
vegar lagt til veiðibann. Þar með lauk
síðustu rækjuveiðum innfjarðar við
strendur landsins.
Það er athyglisvert að samkvæmt
gögnum vísindamanna er ástandið
alls staðar hið sama á innfjarðarslóð-
inni. Rækjan er horfin,
en ýsa, þorskur og jafn-
vel lýsa vaða inn um allt.
Einkanlega er það ýsan
sem nú er í gríðarlegum
vexti á svæðum þar sem
hún jafnvel þekktist
ekki. Hækkandi hitastig
sjávar er greinilega að
gjörbreyta myndinni.
Hér sýnist manni að á
ferðinni séu einhver
skýrustu merkin sem
við þekkjum um um-
hverfisbreytingar í haf-
inu í kringum okkur.
Gagnvart þessum stofnum – rækju
og hörpudiski – birtist þetta sem eins
konar náttúruhamfarir.
Ofveiði er ekki ástæða vand-
ræðanna. Nákvæmlega hefur verið
fylgt ráðleggingum vísindamanna.
Umhverfisbreytingar og sýking í
náttúrunni hafa á hinn bóginn sett
allt í loft upp.
Gríðarlegt tekjutap
við Breiðafjörð
Svipaða sögu er að segja af hörpu-
diskinum. Á árunum 1990 til 2000 var
veiðin í Breiðafirði að jafnaði 8–10
þúsund tonn. Nú er veiðibann. Stofn-
inn er í sögulegu lágmarki. Afleiðing-
arnar eru gríðarlegar. Atvinnuráð-
gjöf Vesturlands mat það svo að fyrir
Stykkishólm, sem var með 75% í
heild af hörpudisksaflanum, næmi
efnahagslega tapið í byggðarlaginu
614 til 660 milljónum á ári. Það þarf
ekki að orðlengja að þetta er gíf-
urlegt áfall. Talið er að ástæður séu
samspil sýkingar og breyttra um-
hverfisþátta.
Útgerðarmenn og sjómenn skel-
fisksbátanna hafa gagnrýnt vinnu-
brögð Hafrannsóknastofnunar mjög
harðlega og telja að ekki hafi verið
vel staðið að rannsóknum. Vekur at-
hygli að forsvarsmenn fyrirtækjanna
hafa sjálfir haft frumkvæði að því að
kalla til erlenda sérfræðinga, til þess
að vinna að þessum rannsóknum,
sem tvímælalaust er á verksviði Haf-
rannsóknastofnunar að gera. Þarna
er augljóst að auka þarf rannsóknir
tafarlaust.
Aukinn sveigjanleiki
í þágu byggðanna
Stjórnvöld hafa reynt að koma til
móts við þær byggðir sem orðið hafa
fyrir þessu áfalli, með ýmsum hætti.
Byggðakvótum hefur verið beitt, en
einkanlega svokölluðum jöfnunar-
úthlutunum, og hefur um þær ráð-
stafanir verið prýðileg sátt. For-
sendan er sú að um sé að ræða mjög
tímabundið ástand, sem muni breyt-
ast til batnaðar. Við þekkjum ýmis
dæmi úr sögunni um tímabundinn
aflabrest á einstökum tegundum.
Núna er ástandið hins vegar miklu al-
varlegra og langvinnara. Með núver-
andi aðferð munu aflabæturnar
smám saman eyðast út. Útgerðirnar
sem byggðust upp með veiðirétti í
þessar tegundir verða verðlausar og
menn geta ekki bjargað sér með því
að hverfa að öðrum veiðum.
Til viðbótar þessu öllu saman hefur
síðan komið verðfall á rækju, ekki
síst smærri rækjunni, sem er uppi-
staðan í afla þessara báta. Og afleið-
ingarnar hafa ekki látið á sér standa.
Færri störf og lakari afkoma, á svæð-
um sem síst máttu við slíku.
Þess vegna er ástæða til að fagna
yfirlýsingu Árna M. Mathiesen sjáv-
arútvegsráðherra. Ráðherrann benti
á breytingar sem gerðar voru á lög-
um um stjórn fiskveiði, meðal annars
í tengslum við lögleiðingu línuíviln-
unar. Opnaðir voru möguleikar á að
bregðast betur við þegar viðvarandi
vandræði steðja að, í líkingu við þau
sem við blasa í innfjarðarrækjuveið-
inni og hörpudiskinum. Það skiptir
útgerðirnar og byggðirnar miklu
máli að fá veiðirétt í stað þess sem
náttúran hefur af þeim tekið. Þetta er
dæmi um lagabreytingar sem gerðar
hafa verið til þess að auka sveigj-
anleika í fiskveiðistjórnuninni sem
tekur mið af hagsmunum byggðanna.
Slíkt er vitaskuld af hinu góða.
Þegar náttúran tekur
burt veiðiréttinn
Einar K. Guðfinnsson
fjallar um veiðirétt
Einar K.
Guðfinnsson
’Það skiptir útgerð-irnar og byggðirnar
miklu máli að fá veiði-
rétt í stað þess sem
náttúran hefur af þeim
tekið. ‘
Höfundur er formaður þingflokks
Sjálfstæðisflokksins og situr í
sjávarútvegsnefnd Alþingis.
BRÉF TIL BLAÐSINS
Morgunblaðið Kringlunni 1 103 Reykjavík Bréf til blaðsins | mbl.is
HVAÐ er eiginlega að þeim sem
stjórna þessu landi sem við búum í,
finnst fólki þetta virkilega eðlilegt?
Maður spyr sig. Að halda virkilega
að það sé eitthvað betra fyrir þessa
sjúku menn sem misnota lítil börn
kynferðislega að vera styttra í fang-
elsi en þeir sem selja eiturlyf.
Þetta er fáránlegt, ég skil ekki af
hverju það er ekkert gert í þessum
málum í stað þess að vera að spá í
hvort það þurfi ekki að laga Miklu-
brautina.
Á Íslandi er dómskerfið fáránlegt,
menn komast upp með alltof mikið.
Þá menn, sem eru það veikir að vera
að misnota börn kynferðislega, á að
loka inni til æviloka. Allavega á alls
ekki að hleypa þeim út í þjóðfélagið
aftur.
Það er alveg ótrúlegt að maður
skuli ekki sjá neina umræðu um
þetta neins staðar. Er öllum alveg
sama um þetta, eða hvað er málið?
Okkur á ekki að vera sama um fólkið
í landinu.
Þeir sem selja eiturlyf fá mjög oft
þunga dóma og eru kannski lengi í
fangelsi, og þeim er alveg sama, þeir
bara passa sig betur næst. Þeir sem
misnota börn fá mjög stutta dóma og
stundum enga. Þeir menn gætu farið
að líta á þetta sem mjög einfaldan
hlut og að þeir séu að taka svo litla
áhættu af því þeir verða ekkert lengi
hvort sem er í fangelsi. Svo koma
þeir úr fangelsinu og halda áfram að
gera nákvæmlega sömu hlutina.
Fíknin safnast upp hjá þeim og
lagast ekkert þótt þeir þurfi að sitja
inni á Litla-Hrauni í 1–2 mánuði.
Ekki alls fyrir löngu misnotaði mað-
ur fósturdóttur sína og dómsvaldið
vorkenndi honum svo af því að hann
átti lítið barn heima hjá sér sem
hann þurfti að hugsa um að hann
fékk vægari refsingu. Sumir halda
að það sé rosalega læknandi fyrir
þessa menn að fara og tala við sál-
fræðing í mánuð, en þetta er allt
tómur misskilningur. Þeir sem mis-
nota börn eru að brjóta það traust
sem barnið ber til þeirra. Þeir eru að
eyðileggja barnið gjörsamlega og
þetta hefur varanlegar afleiðingar
fyrir það. Svo er þeim hleypt aftur
heim.
Það er líka mjög skammarlegt að
þurfa einhverjar sannanir fyrir
svona hlutum og að sumum börnum
skuli ekki vera trúað. Það er alveg
hægt að sjá það á barninu hvort það
er hrætt við þann sem misnotaði það.
Þeir sem selja eiturlyf eru kannski
að gera eitthvað slæmt en það eru
kaupendurnir sjálfir sem ákveða það
hvort þeir kaupa og nota eiturlyf en
það eru ekki börnin sem biðja um að
vera misnotuð, þau eru saklaus. Það
er allt of mikið um kynferðislegt of-
beldi og hluti af því er að menn kom-
ast upp með það.
Ég ætla að vona að þetta dóms-
kerfi fari að breytast og fólk fari að
pæla meira í hlutunum, hvað þetta er
fáránlegt að það sé betra að vera
barnaníðingur en eiturlyfjasali. Það
verður að breyta þessu og hafa þetta
framar í umræðunni í blöðum og
sjónvarpi en ekki vera að einblína á
einhverja dópsala úti í bæ sem nán-
ast öllum er sama um, þeir eru þó
alla vega bara að skemma sjálfa sig.
NANSÝ RUT
VÍGLUNDSDÓTTIR,
Hraunbæ 162,
110 Reykjavík.
Skammarlegt dómskerfi!
Frá Nansý Rut Víglundsdóttur:
CANON MYNDAVÉLAR OG PRENTARAR
Glæsileg jólatilboð - Aðeins í verslun Nýherja
Canon Powershot A310
• 3.2 milljón punktar/pixlar.
• 5.1x stafrænn aðdráttur.
• Þriggja mín. kvikmyndaklippur með hljóði.
• Auðveld í notkun.
Stafræn myndavél á aðeins
14.900 kr.
Canon i905d
• 6 hylkja 4800 x 1200 punkta upplausn.
• Single Ink tækni sem lækkar
rekstrarkostnað.
• Hraðvirk rammalaus prentun.
• Lítill skjár til að skoða
myndir af myndavélakorti.
• Prentar á geisladiska.
Jólatilboð 22.900 kr.
Listaverð 29.900 kr.
Ve
rð
gi
ld
a
á
m
eð
an
bi
rg
ði
r
en
da
st
.
Nýherji hf. · Borgartúni 37 · 105 Reykjavík · Sími 569 7700 · www.nyherji.is
Canon Digital Ixus 400
stafræn myndavél
• 4.1 milljón punktar/pixlar.
• 3x aðdráttarlinsa.
• Tengjanleg beint við prentara.
• Mikið af notendavænum hugbúnaði.
Canon i475D prentari
• Hraðvirkur og mikil gæði.
• 4800 x 1200 punkta upplausn.
• Prentar allt að 18 bls. í svörtu á mín. og 12 í lit.
Jólatilboð 42.800 kr. Listaverð 52.800 kr.
Þú
sparar
kr.
7.000
Þú
sparar
kr.
5.000
• 4.0 milljón punktar/pixlar.
• 3.2x aðdráttarlinsa.
• Tengjanleg beint við prentara.
• Hentar vel fyrir byrjendur sem
lengra komna.
Jólatilboð 29.900 kr.
Listaverð 36.900 kr.
Canon Powershot A80
Þú
sparar
kr.
7.000
Myndavél og prentari
á frábæru jólaverði
Þú
sparar
kr.
10.000
Listaverð 19.900 kr.
Öflug og auðveld myndavél
færir þér jólin!
Canon
Hagkvæmur hágæða
prentari fyrir heimilið