Morgunblaðið - 09.12.2004, Síða 51
ÍSLANDSDEILD
Amnesty Inter-
national blæs til tón-
leika annað kvöld kl.
20.30 í Neskirkju við
Hagatorg í tilefni af
alþjóðlega mannrétt-
indadeginum. Á tón-
leikunum koma fram
Ragnheiður Gröndal
söngkona, Gunnar
Kvaran sellóleikari,
Elísabet Waage
hörpuleikari og horn-
leikarar úr Sinfón-
íuhljómsveit Íslands
þau Joseph Ognibene,
Anna Sigurbjörns-
dóttir, Þorkell Jóels-
son og Emil Frið-
finnsson. Meðal
annars verða flutt
verk eftir C.Saints-
Saëns, G.Fauré,
L.Boccherini,
J.Massenet,
W.H.Squire, J.S.Bach
og Eugéne Bozza.
Tónleikar Amnesty Int-
ernational á mannréttindadaginn
eru orðnir fastur liður á aðvent-
unni og fólk sameinar stuðning
við mikilvægt málefni góðri stund
með fallegri tónlist.
Tónleikar til styrktar
Amnesty International
Tónleikarnir hefjast kl. 20.30 á morgun. Miðaverð er kr. 1.500. Ágóðinn af tón-
leikunum rennur óskiptur til mannréttindastarfs Amnesty International.
Forsala aðgöngumiða er í verslun Skífunnar að Laugavegi 26, og á skrifstofu
Amnesty International að Hafnarstræti 15.
Ragnheiður Gröndal er meðal flytjenda á styrkt-
artónleikum Amnesty International annað kvöld.
Morgunblaðið/Jim Smart
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 2004 51
DAGBÓK
Dýrasta námið er
leikskólanámið
SLÆMT er það nú að fullorðnir
námsmenn skuli þurfa að greiða
skráningargjöld í ríkisháskólann.
Bara vegna þess að sá hinn sami
skóli fær ekki næga peninga til að
skrá nema skólans. Vorkunn er nátt-
úrulega menntamálaráðherra að
þurfa að hækka skráningargjöldin –
næst þarf sennilega að setja gjald-
skrá á klósettin – til að greiða fyrir
þessa dæmalausu ásókn í skólann.
Er það lofsvert, hlálegt eða grátlegt
að það skuli vera í umræðunni að
hækka þessi gjöld? Ég veit það ekki.
Ég veit hins vegar að háskólafólk og
skólafólk almennt í þeim löndum
sem við gjarnan berum okkur saman
við, hlær að menntastefnu, menntun,
umræðu og framkvæmd skólamála á
Íslandi.
Er það ekki undarlegt að um leið
og barist er um þessar krónur sem
umrædd hækkun er þá greiða
yngstu þegnar þessa lands skóla-
gjöld uppá nánast sömu upphæð
mánaðarlega? Sú upphæð er síðan
mismikið niðurgreidd eftir stöðu for-
eldra í samfélaginu.
Já, ég er að tala um leik-
skólagjöldin. Er það forsvaranlegt
og stríðir það ekki jafnvel gegn
stjórnarskránni að yngstu náms-
menn þessarar þjóðar – leikskóla-
kennarar kenna eftir aðalnámskrá
og eru í kennarasambandinu, ekki
satt? – að þessir yngstu námsmenn
þjóðarinnar greiði ekki bara há
skólagjöld heldur einhver hæstu
skólagjöld námsmanna á Íslandi eða
30.800 krónur á mánuði fyrir fullt
nám – sem eru mismikið nið-
urgreiddar eins og áður segir? Síðan
um leið og barnið verður fimm ára
og fer í grunnskóla sveitarfélaganna
þá, þá allt í einu, þurfa þessir náms-
menn ekki lengur að greiða náms-
gjöld. Hvaða vitleysa er þetta?
Hvaða rök eru fyrir svona vitleysu?
Fornám barns fyrir grunnskólann
kosta því 369.600 krónur á ári fyrir
gifta foreldra sem eru með eitt barn
í námi. Flest börn stunda þetta nám
í þrjú ár. Þetta fornám kostar því
þennan námsmann 1.108.800 krón-
ur. Eða svipað og gott nám við Há-
skólann í Reykjavík. Reyndar fá þeir
námsmenn meiri réttindi út úr því
námi.
Menntamálaráðherra, há-
skólafólk, sveitarstjórnarmenn og
þið stjórnmálamenn sem fundvísir
eru á vinsæl mál. Þetta er mál mál-
anna. Niðurfelling þessara náms-
gjalda mun hækka laun þeirra sem
eru með unga námsmenn á framfæri
verulega. Það er siðferðilega rangt
að innheimta skólagjöld af yngstu
námsmönnunum ef ekki bara ólög-
legt og kemur flestum betur en
gerviskattalækkanir sem koma bara
eignafólki vel.
Stefán Sturla Sigurjónsson,
Drápuhlíð 41, Rvík.
Tímon er týndur
TÍMON er 4 mánaða grá kremaður
Chihuahua-strákur sem hvarf frá
heimili sínu í Hafnarfirði að kvöldi 5.
desember. Þeir sem hafa orðið hans
varir eru beðnir að hafa samband við
Úrsúlu í síma 661 5521 eða Ingunni í
síma 697 6912.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Föstudaginn 10. desember verður ráðgjafi frá
Sebastian og Wella á stofunni okkar frá kl. 12-16
Verið velkomin
Óðinsgötu 2 ◆ s. 552 2138
Árleg jólasýning Gallerís Foldar viðRauðarárstíg verður opnuð í dag. Aðþessu sinni verður sýningin tvíþætt. Íbaksölum verða hefðbundin upphengi
af eldri verkum og verkum gömlu meistaranna,
en í hliðarsal verður fjölbreytt úrval verka núlif-
andi listamanna.
Á sýningunni verður lögð sérstök áhersla á að
kynna vaxtalaus lán til kaupa á nýjum verkum.
Lánin eru til allt að 36 mánaða og er þar um að
ræða samstarfsverkefni Reykjavíkurborgar, KB
banka, listamanna og gallerísins.
„Hugmyndin um vaxtalausu lánin kemur upp-
haflega frá Hollandi,“ segir Tryggvi Frið-
riksson, sem hefur rekið Gallerí Fold ásamt eig-
inkonu sinni Elínbjörtu Jónsdóttur
vefnaðarkennara í 12 ár. „Þar hefur verið boðið
upp á þetta árum saman og það orðið til að
hleypa lífi í sölu á nýjum verkum. Sama reynsla
virðist ætla að verða af þessu hér, því við höfum
fengið mjög góðar viðtökur hjá almenningi.
Þetta er frábært tækifæri til að eignast listaverk
á auðveldari hátt en ella.“
Hvers vegna vaxtalaus lán til listaverka-
kaupa?
„Margir hafa sagt að loksins fái þeir tækifæri
til að láta draum um að eignast gott listaverk
rætast. Um leið verður þetta til að hleypa auknu
lífi í myndlistarmarkaðinn. Við búumst við að
selja mikið núna fyrir jólin á þessum kjörum.
Íslendingar eiga marga frábæra myndlist-
armenn og það er sérstaklega ánægjulegt að
vinna með þessu fólki og koma verkum þess á
framfæri.“
Hvers vegna að kaupa myndlist?
„Er það ekki fyrst og fremst til að njóta
hennar? Flestir gera það til að njóta hennar, en
einn og einn vill fjárfesta í henni. Hvort tveggja
getur verið ágætt. Myndlist getur verið góð
fjárfesting. Ef maður kaupir list eftir þá sem
eiga eftir að verða frægir getur hún hækkað um-
talsvert í verði, en það er auðvitað erfitt að sjá
það fyrir hverjir standast tímans tönn. Ég segi
þó fólki að það eigi ekki að kaupa myndlist nema
því líki við hana og það njóti þess sem það er að
kaupa. Maður verður að líta svo á að fólk sé
frekar að fá vextina í ánægjunni heldur en bein-
hörðum peningum. Mér finnst myndlist vera al-
gjörlega nauðsynlegur hluti af búslóð. Þegar ég
kem heim til mín vil ég hafa eitthvað þægilegt í
kringum mig, geta horft á eitthvað sem er fal-
legt, heilbrigt og uppbyggilegt. Þar finnst mér
góð myndlist koma vel til sögunnar.
Það munar rosalega miklu þegar verið er að
bjóða upp á þetta vaxtalaust, það er ótrúlegur
munur á því. Ég hef það á tilfinningunni að
áhugi á myndlist sé að aukast.“
Myndlist | Vaxtalaus lán til listaverkakaupa kynnt á jólasýningu Gallerís Foldar
Tryggvi Friðriksson
er fæddur í Reykjavík
árið 1945. Hann út-
skrifaðist úr Versl-
unarskóla Íslands árið
1965. Tryggvi hefur
unnið við ýmiss konar
verslunarstörf. Starf-
aði í áratugi innan
björgunarsamtakanna,
m.a. sem formaður
Landssambands hjálp-
arsveita skáta, fyrsti formaður Landsstjórnar
björgunarsveita og sem skólastjóri Björg-
unarskólans. Tryggvi er kvæntur Elínbjörtu
Jónsdóttur vefnaðarkennara og eiga þau þrjú
uppkomin börn og fjögur barnabörn.
Hleypir lífi í sölu á nýjum verkum
Eitrað útspil.
Norður
♠Á106
♥98643 A/Enginn
♦Á9
♣D63
Vestur Austur
♠42 ♠97
♥KG75 ♥ÁD102
♦KG5 ♦D873
♣10942 ♣KG8
Suður
♠KDG853
♥–
♦10642
♣Á75
Vestur Norður Austur Suður
– – 1 grand * 2 spaðar
Pass 4 spaðar Pass Pass
Pass
* 12–14 HP.
Vestur finnur eina útspilið sem ógn-
ar fjórum spöðum – tromp. Með ein-
hverju öðru útspili gæti sagnhafi gefið
slag á tígul og stungið tvo tígla í borði.
En nú mun vörnin nota innkomu sína á
tígul til að trompa aftur út og þá vantar
einn slag. Laufkóngurinn liggur á eftir
drottningunni og tígultían fríast ekki,
svo sagnhafi er í miklum vanda.
En það er til vinningsleið, þrátt fyrir
leguna, og það er ómaksins vert fyrir
lesandann að reyna við spilið áður en
lengra er lesið.
Lausn: Fyrsti slagurinn er tekinn í
borði og hjarta stungið. Síðan er tígli
spilað og gosi vesturs dúkkaður. Vest-
ur trompar aftur út, sem er tekið með
ás blinds og hjarta trompað. Innkomur
blinds á tígulás og tígultrompun eru
líka notaðar til að stinga hjörtu og þeg-
ar þessu öllu er lokið eru fjögur spil á
hendi: Í borði er fimmta hjartað (sem
er frítt) og Dxx í laufi. Heima á sagn-
hafi tígultíu og Áxx í laufi. Austur á eft-
ir hæsta tígul (drottninguna) og KGx í
laufi. Suður spilar austri inn á tígul-
drottningu og neyðir hann til að spila
frá laufkóngum. Laufdrottningin verð-
ur þá tíundi slagurinn og fríhjartað sá
ellefti!
Meginstefið í spilinu er að loka fyrir
útgönguleið austurs í hjarta áður en
hann er sendur inn á tígul. Það er svo
aukabónus að fimmta hjartað skyldi
fríast.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
50 ÁRA afmæli. Ídag, fimmtu-
daginn 9. desember,
verður Magnús Sverr-
isson, Sauðárkróki,
fimmtugur. Hann
verður að heiman á af-
mælisdaginn.
Systrabrúðkaup og skírn | Hinn 6.
nóvember sl. voru gefin saman í Sval-
barðseyrarkirkju af sr. Pétri Þórarins-
syni brúðhjónin Eiríkur Orri Her-
mannsson og Sigrún Jónsdóttir og
skírð dóttir þeirra Halldóra Eiríks-
dóttir og brúðhjónin Jón Gunnar Ein-
arsson og Guðrún Hjálmtýsdóttir og
skírður sonur þeirra Einar Hjálmtýr.
Með þeim á myndinni er dóttir Sigrún-
ar, Karen Ósk.
mbl.is
smáauglýsingar
LJÓSMYNDIR
mbl.is