Morgunblaðið - 09.12.2004, Síða 55

Morgunblaðið - 09.12.2004, Síða 55
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 2004 55 MENNING Skálholtsútgáfan er eittþeirra forlaga sem lítið látayfir sér í jólabókaflóðinu þótt ýmsar bækur þess séu sann- kallaðar jólabækur með tilliti til innihalds og boðskapar. „Skálholt er sjálfstætt starfandi fyrirtæki en í eigu Þjóðkirkjunnar og tals- vert af útgáfustarfi okkar beinist að innra starfi kirkjunnar með alls kyns fræðsluefni,“ segir Edda Möller, fram- kvæmdastjóri Skálholts- útgáfunnar. Hún bætir því við að grunn- skólarnir og leikskólar leiti einnig mjög mikið til þeirra varðandi ýmislegt fræðsluefni, sérstaklega er tengist hátíðum kirkjunnar, jólum og páskum. „Við sjáum nán- ast alfarið um útgáfu á tónlistar- efni fyrir blandaða kóra og barnakóra og Söngvasveigsbækur okkar eru orðnar 15 talsins. Þetta efni er bæði trúarlegs og verald- legs eðlis.“ Skálholtsútgáfan rekur einnig Kirkjuhúsið við Laugaveg 31 þar sem öll útgáfuverkin eru til sölu auk ýmislegra annarra muna sem tengjast kirkjunni með beinum eða óbeinum hætti. „Það er alltaf mikil stemmning hjá okkur í Kirkjuhúsinu á aðventunni þar sem fólk er aðkoma og finna ým- islegt til jólagjafa eða til að gleðja sig og fjölskylduna fyrir jólin,“ segir Edda.    Í haust gefur Skálholtsútgáfanút 12 titla af ýmsum toga. „Við höfum ýmis markmið í útgáfu okkar og eitt þeirra er að vera áberandi á barnabókamark- aðinum. Við viljum gefa út barna- bækur með sterkum siðferðileg- um tilvísunum, ekki endilega trúarlegum, en boðskapurinn þarf að vera hreinn og skýr. Þetta eru bækur fyrir foreldra sem taka uppeldishlutverkið alvarlega og vilja fræða börnin sín og ala þau upp með sterka siðferðisvitund. Merkust er metnaðarfull útgáfa fyrir börn og fullorðna á mynd- skreyttri Barnabiblíu í stóru broti sem var valin besta barnabókin í Bretlandi árið 2002. Þetta er fal- leg bók og í rauninni eins konar heimilisbiblía þar sem allir geta sótt fróðleik og fræðslu. Svo erum við að gefa út þriðju bókina henn- ar Elínar Elísabetar Jóhanns- dóttur. Við gáfum út árið 2000 Söguna af Snorra Eddu, Einn dagur þúsund ár, sem varð óskap- lega vinsæl og er mikið notuð við Íslandssögukennslu. Fyrir tveim- ur árum gáfum við svo út aðra metsölubók Elínar, Jólahrein- gerningu englanna, og núna gef- um við út Leiðina til leikheima sem er bók á hvolfi, þ.e. fyrri hlutinn segir sögu Bíbíar og Bassa og þar koma vandræða- unglingar við sögu. Til að lesa seinni hlutann þarf að snúa bók- inni við og byrja á hinum end- anum og þar er sama sagan sögð en frá sjónarhóli vandræðaungl- inganna. Þetta er eiginlega frá- bær fræðsla í lífsleikni um leið og hún er spennandi og skemmtileg,“ segir Edda. Þá er ónefnd bókin Af hverju afi? eftir Sigurbjörn Einarsson biskup. „Þessa yndislegu bók er- um við að endurútgefa en hún hefur verið ófáanleg í tuttugu ár. Hann hefur reyndar endurskrifað hana fyrir þessa útgáfu.“    Edda segir að aukin áhersla ábarnabókaútgáfu sé á dag- skránni og Skálholtsútgáfan stefni að samkeppni um barnabók fyrr en seinna. „Á næsta ári ætlum við reyndar að halda samkeppni um nýja barnasálma og söngva og draumurinn er að laða að okkur fleiri barnabóka- höfunda.“ En barnabækur eru ekki einu bækurnar sem Skáholtsútgáfan gefur út. „Við gefum líka út bækur fyrir fólk sem er að tak- ast á við ýmsa hluti í líf- inu, sorg, skilnað og ýmsa aðra erfiðleika. Þarna má nefna þrjár bækur, Börn og skilnað sem er fræðslubók fyrir foreldra sem vilja fræða börn sín ef skilnaður stendur fyrir dyrum. Elli og skilnaður- inn er myndabók fyrir ung börn sem foreldrar geta nýtt til að hjálpa börnum sínum að komast yfir skilnað þeirra. Við erum líka búin að gefa út Börn og sorg sem er dæmi um bók sem á við um ákveðnar aðstæður í lífi fólks. Við gefum líka út í haust Mig mun ekk- ert bresta, dásamlega bók eftir séra Jónu Lísu Þorsteins- dóttur sem hún skrifaði eftir að hafa misst eiginmann sinn snögg- lega. Það er alveg einstakt hvern- ig henni tekst að orða hugsanir sínar, sorgina og hve mikil hugg- un henni er í trúnni. Síðast en ekki síst er þetta bók sem lýsir því hvernig vonin kviknar á ný og hún getur sagt í lok bókarinnar að lífið sé yndislegt. Þetta er bók fyrir fólk sem er í sorg en er að leita að voninni.“    Af öðrum toga en þó ekki ger-ólíkum er bókin Vegamót um tólfsporakerfið og hvernig tengja má efni þess við biblíuna. „Tólf sporin eiga sér ákveðna sögu sem er rakin í þessari bók en meg- inefni hennar er hvernig sporin tengjast bíblíunni. Fjöldi fólks nýtir sér tólfsporakerfið til að ná sátt við fortíð sína og bókin er fyrir fólk sem hefur tileinkað sér sporin og vill tengja sig betur við kristna trú í gegnum þau. Tólf sporin eru auðvitað sprottin úr kristnum jarðvegi svo það er ekki langur vegur þarna á milli.“ Edda nefnir að lokum að sölu- hæsta bók Skálholtsútgáfunnar á þessu ári sé Orð í gleði eftir Karl Sigurbjörnsson biskup. „Það er auðvitað mjög ánægjulegt því við viljum þjóna fólki sem er á fullu í lífinu, jafnt í sorg og gleði, and- streymi og meðbyr.“ Bækur fyrir fólk jafnt í sorg og gleði ’Við sjáum nánast al-farið um útgáfu á tón- listarefni fyrir blandaða kóra og barnakóra. Söngvasveigsbækur eru orðnar 15 talsins. ‘ AF LISTUM Hávar Sigurjónsson havar@mbl.is Morgunblaðið/Þorkell Edda Möller, framkvæmdastjóri Skálholts- útgáfunnar. 12 titlar koma þar út í haust. SUOMI-félagið, Sendiráð Finnlands og Norræna húsið voru samstarfs- aðilar að kammertónleikum á sunnudag í tilefni af þjóðhátíðardegi Finnlands 6. desember. Eins og oft vill verða reyndist ekkert samræmi milli flutningsgæða og aðsóknar, því tónleikagestir voru teljandi á fingr- um og tám, þrátt fyrir að spila- mennska Sami Mäkelä og Taru Myöhänen-Mäkelä væri víða á við það bezta sem hérlendir kollegar þeirra hafa upp á að bjóða og vel það. Dagskráratriðin voru né heldur neitt slor. Hið litla tvíþætta Diverti- mento Matta Rautios nr. 2 (1902) var mjög áheyrilegt, og hin nokkru yngri Þrjú stykki eftir Erkki Mel- artin báru sama vinalega keim af vandaðri salontónlist „fagra skeiðs- ins“. Kaliki fyrir einleiksselló án undirleiks frá í fyrra eftir unga Finnann Max Savikangas (f. 1978) myndaði aftur á móti sláandi and- stæðu með fjölda hressilegra fram- úrstefnueffekta. Eftir dimma og dul- úðuga Elegíu fyrir Sebastian Knight (1964) eftir nýklassíska nestorinn Aulis Sallinen, sömuleiðis fyrir selló án undirleiks, lék dúóið skemmti- lega Prokofievskotið verk eftir Harra Wessman, Ský, í fjórum þátt- um (aðeins þrír komu fram af tón- leikaskrá), og luku skínandi samtaka leik sínum á fjórum sjálfstæðum stykkjum eftir Jean Sibelius, þótt halda mætti af skránni að væru þrír þættir undir heildarheitinu Andant- ino. Hér sem fyrr var afbragðsvel leik- ið. Sellótónninn var glansandi þéttur og jafn, mótunin skýr og hrynjandin snörp. Þó að slagharpan væri oftast rituð í bakgrunnshlutverki var pí- anóleikurinn fullkomlega sam- hæfður og örðulaus. Frágangur tón- leikaskrár var hins vegar í hálfgerðu skötulíki. Uppsetning verkalista var víða óljós, og ekki aukatekið orð fylgdi um höfunda og verk, þótt sum hlytu að teljast fremur ókunn hér á landi. Komu örstuttar kynningar sellistans því varla í fullar þarfir. Finnsk hágæði í kyrrþey TÓNLIST Norræna húsið Verk eftir finnsku tónskáldin Rautio, Mel- artin, Savikangas, Sallinen, Wessman og Sibelius. Sami Mäkelä selló og Taru Myöhänen-Mäkelä píanó. Sunnudaginn 5. desember kl. 17. Kammertónleikar Ríkarður Ö. Pálsson .. Hafnarstræti 5 - sími 551 6760 • www.veidihornid.is • Síðumúla 8 - sími 568 8410 Sendum samdægursMunið gjafabréfin Mesta úrval landsins af veiðivörum Mad Dog galli Vatnsheldur jakki og smekkbuxur með útöndun fyrir skotveiðimanninn. Aðeins kr. 19.900 Fyrir veiðimanninn í fjölskyldunni þinni ODC Sport Boat Frábær tvíbytna frá Creek Company í vatnaveiðina. Aðeins kr. 38.800 Byssuskápur Viðurkenndir, smekklegir byssuskápar í 3 stærðum. Aðeins frá kr. 22.980 Sérhönnuð úr fyrir veiðimenn og útivistarfólk frá Dakota Watch. Verð frá kr. 4.995 Scierra töskur Vandaðar töskur frá Scierra. Einhver vinsælasta jólagjöfin í Veiðihorninu Aðeins frá kr. 2.995 Stonefly hnýtingartaska Frábær taska, sérhönnuð fyrir fluguhnýtarann. Allt á einum stað. Aðeins kr. 15.900 Ron Thompson fluguveiðisett Vinsæl fluguveiðisett fyrir byrjendur og lengra komna. Frábært verð. Aðeins frá kr. 12.900 Perfect Cast DVD Einhver besta veiðimynd sem tekin hefur verið upp á Íslandi. Góð kastkennsla. Aðeins kr. 3.990 FJÓRÐU og síðustu tónleikar Tónlist- arhátíðar Neskirkju, „Tónað inn í að- ventu“, fóru fram á mánudagskvöld, þegar Steingrímur Þórhallsson hélt þrí- tugsafmælistónleika á „Nýja Nóa“ eins og gárungar hafa uppnefnt hið fimm ára gamla Noack orgel kirkjunnar. Fyrir vígslu þess samdi Jón Ásgeirs- son Stutta fantasíu og passacaglíu er hér var endurflutt, rúmri viku eftir að Steingrímur lék hana á sama stað. Má segja að san- nazt hafi hið fornkveðna að æfingin gjöri meistarann, því flutningstím- inn mældist nú mínútu styttri en þá (11’) og var hraðinn því orðinn 10% meiri í millitíðinni, jafnvel þótt túlkunin héldist beinskeytt og skýr. Glimrandi verk og gæti átt eftir að verða klassískt. Um klassíska stöðu atriðisins þar á undan þurfti ekki að spyrja. Prelúdía og fúga Bachs í G-dúr BWV 550 er frá fyrri Weimarár- unum þegar ungi snillingurinn frá Eisenach gerðist hamhleypa til verka fyrir konung hljóðfæranna, og hefur önnur eins frum- leikasprenging hvorki sézt fyrr né síðar. Steingrímur réðst ekki bein- línis á lægsta tempógarðinn, en slapp þó merkilega vel fyrir horn í prelúdiunni. Spilfúgan lumaði hins vegar á nokkrum fingurbrjótum er kostuðu sitt í fimmta gír. En þó að hefði kannski verið hyggilegra að hafa hraðavaðið aðeins neðar, var á hinn bóginn hressandi að heyra mann sem þorði að taka áhættu, enda varð útkoman allt önnur en leiðinleg í gustmiklu raddvali org- anistans, þrátt fyrir nokkrar óhjákvæmi- legar hjánótur. Felix Alexandre Gu- ilmant (1837-1912) þykir meðal hlustvænni full- trúa franska orgelskól- ans, þökk sé smitandi fersku tónmáli sem leit- un er á í almennt org- elfælnu síðrómantíkinni. Höfuðverk hans voru átta orgelsónötur, fjöl- þátta verk í frjálslegu formi, og lék Steingrímur hér hina sexþættu nr. 7 Op. 89. Fyrsti þátt- urinn, Entrée, gæti verið tilvalinn viðhafnarbrúðarmars eða „Int- rada“ stórmenna á tyllidegi, varla síður en hávelborinn bojaravals- mars Rimskys úr Mlödu. Fylgdi hin fjölbreyttasta músík í kjölfarið, oft við furðupíanískan rithátt, og brá m.a.s. fyrir ávæningi af djass- sveiflu í Fínalnum. Leikið var af markvissri mótun og áræðinni dirfsku, er hvergi lét setja sig út af lagi þótt kvarnaðist ögn utan af einni og einni súlunni í tónmusteri Guilmants, og uppskar Stein- grímur að launum „lófatak á fæti“ eins og kallað er. Áræði og þor TÓNLIST Neskirkja Verk eftir J. S. Bach, Jón Ásgeirsson og Guilmant. Steingrímur Þórhallsson, org- el. Mánudaginn 6. desember kl. 20:30. Orgeltónleikar Ríkarður Ö. Pálsson Steingrímur Þórhallsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.