Morgunblaðið - 09.12.2004, Page 56
56 FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
!" ## # #$%&#' ()'* #+,-&#.# / #'#0 #1 . &# #2 (&
#,!&# .3* &#-)#4#/ &#$#5/ 4&##!"#4#56(
:
:
:
2!
$$+
AX
G
,
73' #8*
5#9 ) "
7#, 4
4
#1
:/
;# * /# * /
:/
<#/"#1"
= 3
>?
5*#$) "
>"#1 ' 4
@
$)#7" A
-B#5
, CC
- 4
9 )#>"3 4
74CC#D/
>"3#-)
5//
5#03)/
:/
,#1(
74C4
; #.
,/ "
:/
$
0"'
1)/
0 # #'#34
E#
4
>"C4'
$4FB#
-'#B#
1"# #4
#. #(4((*
8 # G4
24#14/C4
5*
H #I4
24J#!4# /#K#K4/G#,4 $)#7" A
;#L 3?/
!.C
- //#+ #3 #-4 #- G
$4/#0
8 #2
)#/. /#CL /# B'
5G4
K#/#.
; #) "'
8 #2
74/G
4 " #
1/) *
,#>4 M#5#H #7 4
,
1
1
7#, 4
1 .
1 .
$4FB
1 .
1 .
<-1
1/
#!"
1 .
@
1 .
##N #N4
1 .
#!"
1 .
5-+
1 .
@
; #!"
1
,-8
O4
##N #N4
1 .
@
BIRGITTA Haukdal er
óskoruð poppdrottning
Íslands. Er sveit hennar,
Írafár, ákvað að taka sér
hvíld eftir þrotlausa
vinnu undanfarin ár
ákvað hún sæta lagi og
uppfylla gamlan draum.
Sá draumur er nú kom-
inn út í líki barnaplöt-
unnar Perlur, sem inn-
heldur tólf lög sungin af
Birgittu en bæði eru þau ný og svo gömul uppá-
haldslög Birgittu sjálfrar. Af lögum má nefna
„Söng súkkulaðiprinsessunnar“, „Stóð ég útí
tunglsljósi“ og „Í bljúgri bæn“. Birgitta gefur
plötuna sjálf út og hefur sagt í viðtali að nú geti
hún snarað út barnaplötu með sjálfri sér
handa börnum og barnabörnum í framtíðinni!
Engill!
Fönkbolt-
arnir í
Jagúar
eru mætt-
ir hryn-
heitir að
vanda inn
á Tónlist-
ann með
þriðju plötu sína í farteskinu. Tvær síðustu
plötur, Jagúar (1999) og Get the funk out
(2001) voru ósungnar en í þetta sinnið tekur
leiðtoginn Samúel Samúelsson (valin kyn-
þokkafyllsti maður landsins í DV fyrir stuttu!)
hljóðnemann traustataki og syngur fönkið af
hjartans lyst. Með titla eins og „Funky Junky“
og „Funky Fried Chicken“ er hægt að stað-
hæfa að hér er komin sveittasta plata ársins
og auk þess dansvæn í meira lagi.
Sveitt!
LÍKT og bar-
áttubræður
þeirra svart-
stakkarnir, sem
eru tveimur sæt-
um fyrir ofan,
njóta Á móti sól
vinsælda í ís-
lenskum popp-
heimi. Fyrir
fimmtu plötu
sína ákvað sveit-
in að venda
kvæði sínu í
kross og hljóðrita tökulagaplötuna 12 íslensk
topplög sem hefur að geyma sígild íslensk lög
sem hafa verið í sérstöku eftirlæti hjá hljóm-
sveitinni. Titillinn kallast skemmtilega á við
plötuna 12 íslensk bítlalög sem Bítlavina-
félagið gaf út fyrir rúmum fimmtán árum síðan
og laut svipaðri hugmyndafræði.
12 lög enn!
Hljómsveitin Í
svörtum fötum
hefur styrkst
með hverri
plötu síðan sú
fyrsta, Verkefni
1, kom út árið
2000. Meðan
ég sef er fjórða
breiðskífan og
halda fé-
lagarnir sem
sveitina skipa
inn á draumkennd mið eins og titillinn gefur til
kynna. Lög og textar eru eftir meðlimi sem hafa
sjóast í þeim fræðunum jafnt og þétt eftir því
sem árin hafa liðið. Í svörtum fötum er fyrir
löngu búin að sanna sig sem ballsveit en hefur
jafnframt treyst sig í sessi sem ein fram-
bærilegasta poppsveit landsins hvað laga-
smíðar varðar.
Vaknaðir!
SANTIAGO steig fram á sjónarsviðið fyrir
tveimur árum með plötunni Girl. Tónlistin
þar var melódískt, áferðarfallegt rokk og
spilamennska örugg en sveitin hafði þá verið
að spila sig saman í heil þrjú ár.
Sveitin er sem fyrr skipuð þeim Sigríði Ey-
þórsdóttur, Birgi Ólafssyni, Jökli Jörgensen
og Oddi F. Sigbjörnssyni en sú breyting hef-
ur orðið að Ragnar Örn Emilsson gítarleik-
arari er hættur. Í hans stað er kominn Birkir
Rafn Gíslason sem áður lék með Ber.
„Upptökuferlið var dálítið erfitt í kringum
þessa nýju plötu,“ viðurkennir Sigríður.
„Fyrsta platan var mikið til tekin upp beint
og við reyndum að beita sama vinnulagi við
þessa. Það gekk hins vegar ekki og hún var
tekin upp í pörtum og með hléum.“
Líkt og með fyrri plötuna sá Jón Skuggi
um upptökustjórn og alla hljóðvinnslu en
hann gefur og út á fyrirtæki sínu Mix.
„Það er erfitt að lýsa muninum á þessum
tveimur plötum,“ segir Sigríður. „Sér-
staklega þegar maður er tiltölulega nýbúinn
að klára verkið. Við lágum dálítið yfir útsetn-
ingum í þetta skiptið, röddum og slíku og not-
uðum strengi aðeins. Mér finnst einhvern
veginn bjartari tónn yfir þessari en þeirri síð-
ustu.“
Nýr maður
Sigríður segir að umsvifin hjá Santiago
undanfarin misseri hafi verið í minna lagi.
„Ég eignaðist barn stuttu eftir að fyrsta
platan kom út. Við lékum svo á Airwaves í ár
og í fyrra. Það má segja að við séum loksins
að fara í gang aftur núna. Við ætlum að fylgja
þessari plötu grimmt eftir og helst viljum við
hefja upptökur á nýju efni strax í janúar. Það
er mikill hugur í fólki núna, það má segja að
sveitin sé endurfædd.“
Sigríður segir að með tilkomu Birkis hafi
sveitin breyst, orðið rokkaðri, en hann byrj-
aði í Santiago fyrir u.þ.b. tveimur mánuðum.
Fyrstu tónleikar hans með sveitinni voru á
Iceland Airwaves-hátíðinni. Birkir segist
hafa verið búinn að fá sig fullsaddan á töku-
lögunum en Ber hætti störfum í sumar.
„Ég hef meiri áhuga á að vinna með frum-
samið efni. Finnst það mun meira spenn-
andi,“ segir hann.
Sigríður fagnar komu Birkis í Santiago en
segir að fyrst hafi hún verið stressuð yfir að
vera að fá nýjan mann inn í þetta. Fljótlega
hafi hún hins vegar séð að breytingin hafi
verið til hins betra og sveitin hafi tekið já-
kvæðum breytingum.
Santiago ætlar að halda útgáfutónleika
vegna plötunnar á NASA núna á föstudaginn.
„Það mun kosta 350 krónur inn,“ segir Sig-
ríður. „Við ætlum að herma eftir Mugison en
útgáfutónleikarnir hans voru geggjaðir.
Þetta eru kynningartónleikar fyrst og fremst
og mér finnst þetta frumkvæði Mugison til
stakrar fyrirmyndar.“
Tónlist | Santiago gefur út Chase the Bird
Morgunblaðið/Sverrir
Sigríður Eyþórsdóttir, söngkona Santiago, segir sveitina endurfædda með tilkomu nýs gítarleikara og það sé mikill hugur í liðsmönnum.
Útgáfutónleikar Santiago verða á föstudags-
kvöldið 10. desember í NASA. Einnig leikur
sveitin daginn áður á Grand Rokk ásamt
Nimbus.
arnart@mbl.is
Bjartari
tónn
MYNDIN um leitina að Búdda-líkneskinu
Ong-bak er minnisstæð fyrir það tvennt að
vera ein fyrsta, ef ekki allra fyrsta, taílenska
bíómyndin sem sýnd er hérlendis í kvikmynda-
húsi og í annan stað er hún nánast linnulaus
slagsmál frá upphafi til enda.
Söguhetjan Booting (Phanom Yeeram/Tony
Jaa), er nýútskrifaður meistari í bardaga-
íþróttinni Muay Thai, en er að öðru leyti hinn
mesti friðsemdarpiltur. Hann bregst hins-
vegar drengilega við þegar íbúarnir í litla og
kyrrláta þorpinu hans biðja hann um að hafa
uppá helgidjásni þeirra, Búddalíkneskinu sem
myndin dregur nafn sitt af. Booting heldur til
Bangkok og leitar styttunnar en leiðin er löng
og ströng og kostar ótalin slagsmál við ill-
ræmdustu slagsmálahunda undirheima höf-
uðborgarinnar.
Þrátt fyrir litrík tilþrif, órúlega fimi Jaa
(sem minnir hvað helst á Bruce Lee), og magn-
aða kóreógrafíu átakaatriðanna, verður Ong-
bak heldur endurtekningargjörn þegar fram í
sækir. Myndin er án nokkurs vafa hreinrækt-
aður hvalreki áhugafólki um austurlenskar
barsmíðar, aðrir ættu að bíða eftir jólamynd-
unum. Samtöl og persónusköpun minna á
fyrstu kung-fu myndirnar sem komu á mark-
aðinn, einfeldningslegur barnaskapur allsráð-
andi sem verður fljótt hvimleiður í eyrum
Vesturlandabúans.
Sæbjörn Valdimarsson
Ong-bak
Leikstjóri: Prachya Pinkaew. Aðalleikendur: Tony
Jaa, Perttary Wongkamlao, Pumwaree Yodkamol.
105 mín. Taíland. 2003.
Ong-bak
Laugarásbíó
KVIKMYNDIR
Barist fyrir
Búdda