Morgunblaðið - 09.12.2004, Qupperneq 58

Morgunblaðið - 09.12.2004, Qupperneq 58
58 FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ EMILÍANA Torrini er tilnefnd til bandarísku Grammy- tónlistarverðlaunanna sem meðhöfundur lagsins „Slow“ í flutningi áströlsku söngkon- unnar Kylie Minogue, en það er tilnefnt í flokkinum Besta dans- lagið. Þetta mun vera í fyrsta sinn sem Emilíana er tilnefnd til þessara virtustu og eftirsótt- ustu dægurtónlistarverðlauna. Í sama flokki eru tilnefnd lögin „Good Luck“ með Base- ment Jaxx, „Get Yourself High“ með The Chemical Brothers, dansútgáfa Scissor Sisters á Pink Floyd-laginu „Comfort- ably Numb“ og hið margfræga „Toxic“ með Britney Spears. Björk Guðmundsdóttir er einnig tilnefnd til tvennra Grammy-verðlauna í ár, fyrir besta flutning söngkonu á popplagi („Oceania“) og fyrir bestu jaðarplötuna (Medúlla). Rapparinn Kanye West er annars tilnefndur til flestra verðlauna í ár eða alls tíu verð- launa. Alicia Keys og Usher eru með átta tilnefningar hvort og Ray Charles heitinn, sem lést í júní á þessu ári, fær sjö tilnefningar, þ.á m. fyrir plötu ársins, Genius Loves Company, sem er orðin sölu- hæsta platan á löngum ferli söngv- arans. Þá fær rokksveitin Green Day sex tilnefningar fyrir rokk- óperu sína American Idiot sem er harkaleg ádeila á bandarísk yf- irvöld og samfélag. Fyrsta plata upptökustjórans og rapparans Kanyes West, The Coll- Þrátt fyrir göfug yrkisefni þykir West sjálfumglaður í meira lagi og þegar hann fékk engin verðlaun, þrátt fyrir fjölda tilnefninga á Bandarísku tónlistarverðlaunahátíðinni, sem fram fór um daginn, þá lýsti hann því yfir að hann hefði verið rændur. Plöturnar sem tilnefndar eru í helsta flokknum, plata ársins, eru: Genius Loves Company Ray Charles American Idiot Green Day The Diary of Alica Keys Alicia Keys Confessions Usher Grammy-verðlaunin verða afhent 13. febrúar nk. Nýtt væntanlegt frá Torrini Ný plata er væntanleg frá Emilíönu Torrini undir lok jan- úar á næsta ári og ber hún nafnið Fisherman’s Woman. Fimm ár eru liðin síðan Emilíana gaf út fyrstu sólóplötu sína, Love in The Time of Science, og má því segja að aðdáendur hennar sé farið að lengja eftir plötunni. Lagið „Slow“ samdi hún ásamt upp- tökustjóranum Mr. Dan sér- staklega fyrir Kylie Minogue og er Kylie titluð meðhöfundur. Lagið var á síðustu plötu Body Language en þau Emilíana og Mr. Dan eiga einnig þátt í tveimur öðr- um lögum á plötunni. Tónlist | Tilnefningar til 47. Grammy-verðlaunanna Rappsöngvarinn Kanye West var alsæll með sínar tíu tilnefningar. Reuters Hin 17 ára breska söngkona Joss Stone fékk sínar fyrstu Grammy- tilnefningar og það tvær. Ray Charles fær sjö tilnefningar, en hann lést í júní. ege Dropout, hefur fengið mikið lof og selst vel. Hún er m.a. tilnefnd til mikilvægustu verðlaunanna sem er Plata ársins. Ólíkt flestum kollegum sínum forðast West að rappa um kynlíf, peninga og ofbeldi en kýs fremur að rappa á trúarlegum nót- um og fjallar í textum sínum um óttann við að mistakast og önnur persónuleg vandamál sem hann á við að glíma. Trúarjátning hans „Jesus Walks“ er tilnefnd sem lag ársins. Ljósmynd/Marcus Clarkson Lag Emilíönu Torrini „Slow“ náði töluverð- um vinsældum og var einnig tilnefnt til bresku Ivor Novello-verðlaunanna. Emilíana með sína fyrstu tilnefningu EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS * * www.borgarbio.is Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15. B.i. 14 ára. VINCE VAUGHN  Ó.Ö.H. DV BEN STILLER Sýnd kl. 6 og 10. B.i. 14 ára. Kvikmyndir.com  PoppTíví  Sýnd kl. 6. TIM ALLEN JAMIE LEE CURTIS Ó.Ö.H / DV  Ó.Ö.H / DV  Sýnd kl. 3.40, 5.45, 8 og 10.15PoppTíví  PoppTíví  Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i. 16 ára.Sýnd kl. 8 og 10. B.i. 16 ára. Miðasala opnar kl. 15.30 Jólaklúður Kranks Jólamynd fjölskyldunnarJólaklúður Kranks Jólamynd fjölskyldunnar Óttist endurkomuna því hann er mættur aftur vígalegri enn nokkru sinni fyrr!! Óttist endurkomuna því hann er mættur aftur vígalegri enn nokkru sinni fyrr!! ❄ ❄❄ ❄ ❄❄❄ ❄ ❄❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ Sjáumst í bíóSjáumst í bíó Sýnd kl. 4. BRUCE-LEE Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. B.i. 14 ára. kl. 4, 6, 8 og 10. Hann er á toppnum... og allir á eftir honum Framleidd af Mel Gibson Pottþéttur spennutryllir... ... DodgeBall  DV ÓÖH... FRUMS ÝNING ..stórskemmtileg og hin hressasta... ..stórskemmtileg og hin hressasta... i r t ...  DV ÓÖH... JULIA Roberts og Cameron Diaz eru efstar á listanum yfir hæst laun- uðu leikkonurnar í Hollywood, og fær hvor um sig rúmar tíu millj- ónir dollara fyrir hverja mynd, eða sem svarar rúmlega 623 milljónum króna. Roberts er reyndar ein á toppi listans, sem Hollywood Reporter birt- ir, vegna þess að Diaz sést ekki í neinni mynd sem framleidd er á árinu þótt heyra megi rödd hennar í Shrek 2. En Diaz mun væntanlega taka sæti Roberts á toppnum á næsta ári, því þá ætlar sú síðarnefnda að einbeita sér að upp- eldi tvíburanna sem hún hefur nýlega eignast, Hazel og Phinnaeus. Nicole Kidman er þriðja á listan- um, með átta milljónir dollara á mynd, Reese Witherspoon og Drew Barrymore koma næstar, einnig með átta milljónir á mynd. Meðal fleiri nafna á listanum má nefna Renee Zellweger og Jennifer Lopez, sem hvor um sig fá sex millj- ónir fyrir mynd. Vekur reyndar athygli að hæstu laun leikkvenna virðast hafa staðið nokkuð í stað því t.a.m. Roberts og Diaz voru báðar farnar að fá tíu millj- ónir á mynd fyrir hálfum áratug síð- an, en sama gildir reyndar um karl- ana, laun þeirra launahæstu hafa lítið hækkað þótt þau séu enn helmingi hærri en hjá konunum. Launamunur kynjanna er því ekki síður vandamál hjá fræga fólkinu en hjá almennum launþegum. Roberts og Diaz með hæstu launin Kvikmyndir | Launahæstu Holly- wood-leikkonurnar
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.