Morgunblaðið - 09.12.2004, Blaðsíða 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
Lágmúla og Smáratorgi
opið kl. 8-24
alla daga
Heilsukoddar
Heilsunnar vegna
Opið til 22 til jóla
KLEIFARVATN eftir Arnald Indriðason
er sem fyrr söluhæsta bókin á Íslandi en
Morgunblaðið birtir í dag samantekt Fé-
lagsvísindastofnunar um bóksölu fyrir
dagana 30. nóvember til 6. desember.
Barnabók Guðrúnar Helgadóttur, Öðru-
vísi fjölskylda, kemur næst en báðar þess-
ar bækur voru tilnefndar til Íslensku bók-
menntaverðlaunanna á dögunum.
Heimsmetabók Guinness er í þriðja sæti á
listanum og Útkall – Týr er að sökkva eftir
Óttar Sveinsson í því fjórða. Sigmundur
Ernir Rúnarsson á bókina í fimmta sæti,
Barn að eilífu.
Vaka-Helgafell á flestar bækur í hópi
tíu efstu, fjórar að tölu. JPV-útgáfa á
þrjár./26
Kleifarvatn selst best
NÆRRI 5% styrking krónunnar sl. vikur
hefur rýrt útflutningsverðmæti sjávaraf-
urða um 5 milljarða króna, að mati Arnars
Sigurmundssonar, formanns Samtaka
fiskvinnslustöðva. Hann segir geng-
ishækkunina vera gríðarlegt högg fyrir
sjávarútveginn og bætast ofan á allt ann-
að. Hann bendir á að verðbólgan sé meiri
en áætlað var og gengi krónunnar sterk-
ara sem þýði mun lakari samkeppnisstöðu
útflutningsgreinanna.
Arnar Jónsson, forstöðumaður gjald-
eyris- og afleiðumiðlunar Landsbanka Ís-
lands, segir tilhneiginguna alla vera til
styrkingar krónunnar um þessar mundir.
Ekki sé útlit fyrir að viðskiptahallinn hafi
áhrif á stöðu krónunnar fyrr en eftir að
minnsta kosti 12 mánuði. Næsta ár gæti
þannig orðið sjávarútveginum mjög erfitt.
Arnar bendir jafnframt á að allt þetta ár
hafi staða krónunnar gagnvart evru verið
tiltölulega stöðug, allt fram til allra síð-
ustu daga./C1
Gríðarlegt högg
fyrir sjávarútveginn
ÞESSAR glaðlegu stúlkur valhoppuðu léttar á fæti
á Austurvelli í Reykjavík í gær. Ómögulegt er að
segja hvort kæti stúlknanna stafaði af léttinum sem
fylgir því að ljúka jólaprófunum eða hvort hið
milda veður framkallaði sumarhoppið. Óhætt er
enda að segja að veðurfarið hafi víða verið óvenju
milt að undanförnu og ekki að sjá á myndinni að
hún sé tekin fyrri part desembermánaðar.
Morgunblaðið/Jim Smart
Valhoppað á Austurvelli
INNRI skoðun á skattamálum
Norðurljósa (og Skífunnar) leiddi í
ljós að endurskoðendurnir töldu að
þau væru svo óljós að ómögulegt
væri að leggja annað fjárhagslegt
mat á skattskuldbindingu félag-
anna, vegna skattrannsókna 1996 til
2001 en að áætla, að samtals gæti
skattakrafan verið frá 570 milljón-
um til eins milljarðs króna.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins munu hluthafar og
stjórnendur Og Vodafone hafa vilj-
að að Og Vodafone keypti rekst-
urinn af Norðurljósum, þ.e. Ís-
lenska útvarpsfélagið og Frétt, og
gerðu upp við Norðurljós, með það
að markmiði að losna við óuppgerð-
ar skattskuldbindingar Norður-
ljósa.
Þær eignir sem eftir munu
standa í Norðurljósum eru hluta-
bréfaeign, skuldabréf frá Skífunni
upp á ca 300 milljónir og fasteign í
Garðabæ, fyrir innan við 20 millj-
ónir, samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins.
Gunnar Smári Egilsson, sem ver-
ið hefur framkvæmdastjóri Norður-
ljósa, verður framkvæmdastjóri Ís-
lenska útvarpsfélagsins og Fréttar.
STOFNAÐ hefur verið félagið
Geysir Petroleum hf. hér á landi
af norskum og skoskum aðilum.
Einn stærsti eigandinn er norskt
ráðgjafarfyrirtæki í orkuiðnaði,
Sagex Petroleum AS. Markmið
og tilgangur félagsins er að vinna
að rannsóknum og olíuleit við Ís-
land og Færeyjar og segir Dag O.
Larsen, framkvæmdastjóri
Geysir Petroleum hf., í samtali við
Morgunblaðið að um leið og lög-
um hafi verið breytt hér á landi
muni félagið leggja inn umsókn í
iðnaðarráðuneytið um leyfi til ol-
íuleitar.
Eins og fram kom í Morgun-
blaðinu í gær, upp úr skriflegu
svari Valgerðar Sverrisdóttur
iðnaðarráðherra á Alþingi, hafa
nokkur erlend fyrirtæki sýnt
áhuga á olíuleit innan íslenskrar
lögsögu. Ekki var upplýst hvaða
fyrirtæki þetta eru en það hefur
nú verið staðfest að Geysir
Petroleum hf. er eitt þeirra. Dag
O. Larsen segist hafa heyrt af
áhuga fleiri fyrirtækja en bendir
á að Geysir sé eini aðilinn sem
hafi tryggt sér aðgang og keypt
mælinga- og rannsóknargögn fyr-
irtækisins Inseis Terra, sem fyrir
þremur árum fékk leyfi iðnaðar-
ráðherra til mælinga á mögu-
legum olíusvæðum á suðurhluta
Jan Mayen-hryggsins, norðaust-
ast í íslensku lögsögunni. Gáfu
þær mælingar vísbendingar um
að olíu eða önnur jarðefnaelds-
neyti gæti verið að finna í nægu
magni til að hefja boranir og
vinnslu.
„Lykilstarfsmenn okkar hafa
unnið að þessu máli í nokkur ár
og við erum sannfærð um mögu-
leika á að finna olíu eða gas á Jan
Mayen-hryggnum,“ segir Larsen.
Larsen segir að viðræður
standi nú yfir við íslensk fyrir-
tæki og fjárfesta um eignaraðild
að félaginu og útvegun frekara
fjármagns. Stefnt sé að því að fé-
lagið verði að stórum hluta í eigu
Íslendinga í náinni framtíð. Hann
vill ekki upplýsa á þessu stigi
hvaða íslensku aðilar þetta eru.
Umsókn lögð inn
í Færeyjum
Að sögn Larsens hefur tekist
að tryggja nægt fjármagn, eink-
um frá norskum fjárfestum, til
starfseminnar á allra næstu ár-
um.
Geysir Petroleum hf. hefur nú
þegar lagt inn umsókn hjá fær-
eyskum stjórnvöldum um heimild
til olíuleitar í færeyskri lögsögu
og vonast Larsen til þess að leyfi
fáist strax í byrjun næsta árs.
Hyggst félagið opna skrifstofu í
Þórshöfn á næstu mánuðum.
Geysir Petroleum ræðir við íslenska fjárfesta
Hyggjast undirbúa
olíuleit við Ísland
BIRGITTA Haukdal á sölu-
hæstu plötu landsins síðustu
vikuna, samkvæmt Tónlistan-
um. Platan Perlur kom ný inn á
lista í síðustu viku og náði þá
sjötta sæti en nær nú á toppinn
og veltir Ragnheiði Gröndal og
Vetrarljóðum hennar úr sessi,
niður í annað sætið. Á Perlum
syngur Birgitta góðkunn
barnalög, bæði ný og eldri. / 56
Perlur
Birgittu á
toppinn
Skattskuldbindingar Norðurljósa
og Skífunnar 500–1000 milljónir
Slökkt á/B8
RÍKISSTJÓRNIN hefur, að tillögu for-
sætisráðherra, ákveðið í tilefni 60 ára af-
mælis lýðveldisins Íslands og jafnframt í
tengslum við 100 ára af-
mæli heimastjórnar að
festa kaup á teikningum
Sigmunds Jóhanns-
sonar sem birst hafa í
Morgunblaðinu um ára-
tuga skeið. „Teikningar
Sigmunds eru á sinn
hátt aldarspegill þjóð-
arinnar og má með
þeim skoða sögu ís-
lenskra stjórnmála ekki
síður en atvinnulífs, segir m.a. í frétt frá
forsætisráðuneytinu.
Í ár eru einmitt 40 ár frá því að Morg-
unblaðið hóf að birta teikningar Sigmunds
og ljóst að heimildargildi teikninganna er
mikið, bæði fyrir fræðimenn og ekki síður
almenning,“ segir í fréttatilkynningu frá
forsætisráðuneytinu. Samningur um
kaupin verður undirritaður í næstu viku í
Vestmannaeyjum.
Þjóðin eignast
aldarspegil
Sigmunds
Sigmund
Jóhannsson
♦♦♦
♦♦♦