Morgunblaðið - 14.01.2005, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 14.01.2005, Blaðsíða 4
Skoðað hvort farið verði strax í umhverfismat TÓMAS Már Sigurðsson, forstjóri Alcoa-Fjarðaáls, segir að þrátt fyrir dóm Héraðsdóms Reykjavíkur muni framkvæmdir við álverið í Reyðarfirði halda áfram af fullum krafti eins og ekkert hafi í skorist, enda sé búið að áfrýja málinu til Hæstaréttar og ein- sýnt að bæði framkvæmda- og starfsleyfi álversins séu í fullu gildi. „Við höfum ekkert hvikað frá þeirri stefnu að álverið í Reyðarfirði muni taka til starfa í apríl árið 2007 eins og við höfum ætlað okkur frá upp- hafi,“ segir Tómas Már við Morgunblaðið. Hann átti í gær fjölmarga fundi til að fara yfir mál- ið, m.a. með stjórnendum móðurfyrirtækisins í Bandaríkjunum, þar sem staða Alcoa var kortlögð í ljósi dómsins. Samkvæmt dómnum er úrskurði um- hverfisráðherra hnekkt um að álverið hafi ekki þurft að fara í nýtt umhverfismat. Segir hann eigendur Al- coa hafa orðið undrandi á niðurstöðu héraðsdóms en það hafi aldrei verið ætlun fyrirtækisins að komast hjá umhverfismati. Aðspurður segir Tómas Már að ein þeirra leiða sem Alcoa sé að íhuga sé að ráðast sem fyrst í gerð nýs umhverfismats, þannig að sú verði þá komin í gang óháð niðurstöðu Hæstaréttar. „Við erum ekk- ert hrædd við mat á umhverfisáhrifum og munum undirbúa það svona til vara. Hefðum við þurft að framkvæma nýtt umhverfismat værum við búnir að því. Hins vegar teljum við dóminn byggja á misskiln- ingi og munum áfrýja honum,“ segir hann en minnir á að Alcoa hafi keypt umhverfismatsskýrslu Reyð- aráls á sínum tíma og fengið meðfylgjandi leyfi. Sam- anburðarskýrslu hafi verið skilað inn til Skipulags- stofnunar og jákvæð niðurstaða fengist þaðan. Skaðabætur ekki skoðaðar Hvort Alcoa muni hugsanlega krefjast skaðabóta frá stjórnvöldum, staðfesti Hæstiréttur héraðs- dóminn, segir Tómas Már það ekkert hafa komið til tals. Miklir hagsmunir séu vissulega í húfi en ekkert eigi þó að koma í veg fyrir, jafnvel staðfesting í Hæstarétti, að álverið verði gangsett í apríl 2007.  Meira á mbl.is/ítarefni 4 FÖSTUDAGUR 14. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR BEIÐNI um fjölskipaðan dóm í Héraðsdómi Reykjavíkur kom ekki til álita í máli Hjörleifs Guttorms- sonar gegn ríkinu og Alcoa. Dóms- stjóri héraðsdóms, Helgi I. Jónsson, segir slíka beiðni ekki hafa komið frá héraðsdómaranum, Skúla Magnússyni. Þetta sé ávallt mats- atriði dómara hverju sinni. Helgi segir að aðalregla laga um meðferð einkamála, nr. 91/1991, sé sú að einn dómari skipi dóm í hverju máli. Samkvæmt ákvæðum sömu laga geti dómari kvatt til tvo meðdómara ef deilt sé um stað- reyndir sem málsástæður og dóm- ari telja þurfa sérkunnáttu til að leysa úr. Þá geti dómari, að fengnu samþykki viðkomandi dómsstjóra, kvatt til héraðsdómara til setu í dómi með einum sérfróðum með- dómsmanni eða tvo héraðsdómara ef mál séu umfangsmikil eða sak- arefni mjög mikilvæg frá almennu sjónarmiði. Dómur líklega fyrir réttarhlé Ekkert af þessu kom til tals í um- ræddu máli, sem hinir stefndu hafa ákveðið að áfrýja til Hæstaréttar. Sú beiðni hefur ekki borist rétt- inum en að sögn Þorsteins A. Jóns- sonar, skrifstofustjóra Hæsta- réttar, ætti málum sem berast réttinum formlega í þessum mánuði að vera lokið með dómi fyrir rétt- arhlé, sem yfirleitt hafa hafist um miðjan júnímánuð. Fjölskipaður dómur kom ekki til álita FULLTRÚAR Impregilo áttu í gær fundi með Árna Magnússyni félagsmálaráðherra og Vinnu- málastofnun til að upplýsa um gang ráðningarmála og útskýra sín sjónarmið í deilunum við verkalýðs- hreyfinguna um kjaramál við Kárahnjúkavirkjun. Ráðherra segir fundinn hafa verið gagnlegan og ljóst sé að forráðamenn fyrirtækisins hafi áhyggjur af því hvernig samskiptin við verkalýðshreyfinguna hafa þróast. Ef fram haldi sem horfi muni það hafa áhrif á verkið. „Þeir fóru yfir málið frá sinni hlið. Þetta var gagnlegur fundur þar sem við skiptumst á skoð- unum. Þeir bregðast við hluta af þeim ásökunum sem á þá hafa verið bornar. Mikilvægt er fyrir mig að kynna mér allar hliðar málsins og hef auk þessa fundar hitt fulltrúa verkalýðshreyfingarinnar og Samtaka atvinnulífsins,“ sagði Árni við Morgun- blaðið að fundi loknum. Hann sagðist enn vera að móta skoðun sína á greinargerðinni sem ASÍ sendi honum, og greint var frá í blaðinu í gær. Liður í því væru fundir með málsaðilum. Bjóst Árni við því að hitta fulltrúa ASÍ að nýju eftir helgina. Förum eftir lögum Gianni Porta, verkefnisstjóri Impregilo við Kára- hnjúka, sat fundinn með Árna ásamt Luigiano Bru- netti fjármálastjóra og Þórarni V. Þórarinssyni, lögmanni fyrirtækisins. Yfirmenn Impregilo frá Mílanó komust ekki til landsins fyrir fundina í gær en von var á þeim í gærkvöldi eða í dag. Porta sagði við Morgunblaðið að fundurinn með ráðherra hefði verið jákvæður. Upplýsingum hefði verið komið á framfæri og ráðherra verið boðið að heimsækja virkjunarsvæðið og kynna sér aðstæður af eigin raun. „Við erum reiðubúnir að sanna að við förum eftir íslenskum lögum og reglum í einu og öllu og virðum þá kjarasamninga sem við höfum gert við verka- lýðsfélögin,“ sagði Porta. Hann minnti á að tak- markaður fjöldi umsókna hefði borist frá sérhæfð- um og vönum verkamönnum. Því hefði Impregilo leitað eftir vönum mönnum, sem unnið hefðu við svipaðar aðstæður í Kína og Mongólíu. Að sjálf- sögðu myndi fyrirtækið halda áfram að leita eftir starfskröftum hér á landi eða annars staðar í Evr- ópu. „Okkar verkefni er að reisa virkjunina og stífl- una. Til þess þurfum við ekki bara vélar heldur einnig fólk,“ sagði Porta. Fulltrúar Impregilo funduðu með Árna Magnússyni félagsmálaráðherra í gær Áhyggjur af samskiptum við verkalýðshreyfinguna Morgunblaðið/Jim Smart Fulltrúar Impregilo, Gianni Porta, Luigiano Brunetti og Þórarinn V. Þórarinsson, sitja gegnt Árna Magnússyni félagsmálaráðherra og hans nánustu samstarfsmönnum á fundinum í gær. „MÉR finnst þetta fyrst og fremst leiðinlegt,“ segir Guð- mundur Bjarnason, bæjarstjóri Fjarðabyggðar, um úrskurð Hér- aðsdóms vegna umhverfismats fyrir álver Fjarðaáls á Reyð- arfirði. „Ég get ekki séð að þetta hafi nein áhrif á framkvæmdirnar hér eða muni tefja þær. Í dómn- um er fallist á þá aðferð sem not- uð var við umhverfismatið, en síðan setur dómarinn sig í sér- fræðingsstöðu og kemst að þess- ari niðurstöðu. Maður taldi að búið væri að leita til okkar fær- ustu sérfræðinga varðandi loft- dreifingu og breytingin sem var gerð er sú að strompar verk- smiðjunnar eru hækkaðir. Mér finnst að dómurinn hefði þurft að vera fjölskipaður í svona miklu máli og þykir skrítið að þetta sé lagt á einn mann. Fyrst og fremst er það leiðinlegt að þessi mál skuli raunverulega aldrei taka enda, en við verðum að hlíta því enda búum við hér í lýðræðisþjóðfélagi.“ Guðmundur telur hverfandi líkur á að framkvæmdin við álverið verði stöðvuð, hvort sem nýtt umhverfismat fari fram eða ekki. „Málið er nú á fyrra dómstiginu og mér finnst að menn megi ekki draga allt of miklar ályktanir af þessu. Menn eru komnir allt of langt í framkvæmdinni til að hún verði stöðvuð nú, en að sjálfsögðu þarf að fara yfir málið.“ Guðmundur segist heyra á sínu fólki í Fjarðabyggð að það sé hundsvekkt og pirrað á að málatilbúnaði vegna álversins ætli aldrei að linna. „Það er búið að kæra bæjarstjórnina hér í bak og fyrir af bæði Hjörleifi Guttorms- syni og umhverfissamtökum og þau mál hafa öll fallið um sjálf sig. Við sættum að vísu ekki kæru í þessu tiltekna máli.“ Bæjarstjóri Fjarðabyggðar telur litlar líkur á að framkvæmdum vegna álvers verði frestað Guðmundur Bjarnason segir dóminn ekki stöðva framkvæmdir. Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Telur að dómur hefði þurft að vera fjölskipaður GIANNI Porta, verkefnisstjóri við Kárahnjúkavirkjun, segir það ekki rétt sem fram hafi komið í fjöl- miðlum að íslenska verkalýðshreyf- ingin hafi átt frumkvæði að því að fá fulltrúa Alþjóðabygginga- sambandsins og ítalskra verkalýðs- félaga til landsins. Þessi heimsókn sé að frumkvæði Impregilo. Munu hinir erlendu gestir heim- sækja virkjunarsvæðið og kynna sér aðstæður af eigin raun, að sögn Porta. Einnig standi til að bjóða fulltrúum íslenskra verkalýðs- félaga, hafi þeir áhuga á því. Alþjóðleg verka- lýðsfélög koma í boði Impregilo
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.