Morgunblaðið - 14.01.2005, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 14.01.2005, Blaðsíða 34
Það er með trega að ég kveð góða vinkonu mína, Siggu Bergsteins, sem ég átti samleið með í hálfa öld. Vinkonu sem var gott að leita til bæði í gleði og sorg, hvunndags sem og tyllidög- um. Sigga var ráðagóð og heilræði hennar voru holl bæði mér og unglingum mín- um. Guði sé lof fyrir langa og góða vináttu. Það verður gott að leyfa minningunum að fljóta fram og orna sér við á köldum vetrardögum. Steingerður. 34 FÖSTUDAGUR 14. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Sigríður Berg-steinsdóttir fædd- ist 11. ágúst 1918. Hún lést 8. janúar síð- astliðinn. Foreldrar hennar voru Berg- steinn Kristjánsson, f. 28.11. 1889, d. 6.6. 1974, bóndi á Árgils- stöðum í Hvolhreppi og á Eyvindarmúla í Fljótshlíð, rithöfund- ur og síðar starfsmað- ur tollstjóraembættis- ins í Reykjavík, og Steinunn Auðunsdótt- ir, f. 3.7. 1994, d. 8.1. 1991. Sigríður var næstelst fjög- urra dætra þeirra sem fæddust all- ar á Árgilsstöðum. Systur hennar voru: 1) Sigrún verslunareigandi í Reykjavík, f. 23.4. 1917, d. 6.4. 1997, gift Stefáni Nikulássyni við- skiptafræðingi, f. 1915, d. 3.7. 1985, sonur þeirra var Bergsteinn sjóntækjafræðingur og stofnandi Linsunnar, f. 6.11. 1940, d. 29.4. 1996, var kvæntur Eddu R. Níels, f. 14.9. 1942. Dætur þeirra eru Sig- rún Rósa, f. 1965, og Helga Marín, f. 1968. 2) Guðbjörg fulltrúi hjá Tollstjóraembættinu í Reykjavík, f. 23.8. 1919, d. 11.10. 1996. 3) Ásta, f. 4.4. 1922, d. 22.2. 1990, gift Georg Sigurðssyni cand.mag. í íslensku, f. 19.10. 1919, d. 24.12. 1994. Börn þeirra eru a) Sigurður hæstarétt- arlögmaður, f. 27.9. 1946, dætur hans eru Solveig Hólmfríður lyfja- fræðingur, f. 1967, Ásta Sigríður hjúkrunarfræðingur, f. 1969, og Ragnheiður Kristín nemi, f. 1981. Sambýliskona Sigurðar er Heiðrún Bára Jóhannesdóttir, f. 31. október 1954. b) Steinunn Georgsdóttir hjúkrunarfræðingur, f. 18.1. 1956, gift Jóni Baldri Lorange kerf- isfræðingi, f. 26.4. 1964, börn þeirra eru Hjördís Lilja, f. 1989, og Jón Baldur, f. 1991. Fyrir átti Stein- unn Ástu, f. 1980. c) Bergsteinn héraðs- dómslögmaður, f. 2.11. 1959, kvæntur Unni Sverrisdóttur héraðsdómslög- manni, f. 28.12. 1959, börn þeirra eru Sverrir, f. 1983, og Unnur Ásta, f. 1989. Sigríður bjó fyrst á Árgilsstöð- um í Hvolhreppi og síðar á Eyvind- armúla í Fljótshlíð en flutti búferl- um með foreldrum sínum til Reykjavíkur 1934. Á Baldursgötu 15 í Reykjavík bjó Sigríður ásamt foreldrum og systrum, tveimur tengdasonum og fjölskyldum stærstan hluta ævi sinnar. Á átt- unda áratug síðustu aldar bjó hún í Stigahlíð um nokkurra ára skeið en árið 1984 flutti hún ásamt Sig- rúnu systur sinni og mági á Hring- braut 28 í Reykjavík. Þar bjó hún þar til heilsa hennar brast fyrir u.þ.b. ári. Sigríður var við nám í Húsmæðraskólanum á Laugum ár- ið 1944–5. Hún starfaði við ýmis störf eftir komuna til Reykjavíkur, m.a. hjá Erlingi Þorsteinssyni háls-, nef- og eyrnalækni. Síðar vann Sigríður lengi á skrifstofu Mjólkursamsölunnar í Reykjavík eða allt til starfsloka. Útför Sigríðar fer fram frá Dómkirkjunni í dag og hefst at- höfnin klukkan 13. Mér er ljúft að minnast Sigríðar, móðursystur minnar. Strax frá upp- hafi tók hún ríkan þátt í uppvexti mínum ásamt Sigrúnu systur sinni þegar stórfjölskyldan bjó á Baldurs- götu 15 í Reykjavík. Þar fékk lítil stúlka að storma um allt hús eins og prinsessa. Undirrituð man fyrst eftir sér fjögurra ára hlaupandi á milli hæða í hvítu gömlu undirpilsi af Siggu þegar hún kom heim frá vinnu. Sigga frænka var mér í raun sem mín önnur móðir. Hún var sannan- lega mikill áhrifaþáttur í lífi mínu alla tíð. Þegar litið er til baka er áhrifamesti atburðurinn þegar ég veiktist heiftarlega 9 mánaða gömul af heilahimnubólgu. Segja má að hún hafi þá bjargað lífi mínu með því að taka af skarið og koma mér undir læknishendur á síðustu stundu. Sigríður giftist aldrei og átti engin börn. Hins vegar má segja að hún hafi tekið systrabörnum sínum sem sínum eigin og var það launað með gagnkvæmri ástúð. Hún var stórglæsileg kona og ekki vantaði glæsilega biðlana. Hún var vinamörg, vinsæl og vildi öllum vel. Það var gott að fá að njóta samveru hennar og á ég ljúfar minningar um margar samverustundir sem munu ylja mér um ókomna tíð. Alltaf var gott að leita til hennar og vorum við trúnaðarvinkonur fram á síðasta dag. Ég kveð þig, hugann heillar minning blíð, hjartans þakkir fyrir liðna tíð, lifðu sæl á ljóssins friðar strönd, leiðir sjálfur Drottinn þig við hönd. (Guðrún Jóhannsdóttir.) Blessuð sé minning hennar. Steinunn Georgsdóttir. Sigga frænka, ömmusystir okkar, var okkur systrum eins og önnur amma frá því við vorum smástelpur. Við munum fyrst eftir henni í Stiga- hlíðinni þar sem hún bjó rétt hjá ömmu og afa. Þar heimsóttum við hana oft þar sem Sigga tók okkur alltaf opnum örmum. Við vorum allt- af velkomnar enda var Sigga ein- staklega gestrisin þótt gestirnir væru ungir að árum. Við munum alltaf eftir þeim stundum þegar hún passaði okkur systur. Að fá að gista hjá Siggu frænku var mikil hátíð enda dekrað við okkur á allan hátt. Hún neitaði okkur um fátt og átti alltaf til ís handa okkur. Hún kallaði okkur líka ísdrottningarnar enda fengum við ís eins og við gátum í okkur látið. Hún átti síðar meir heimili að Hringbraut 28 í sama húsi og amma okkar. Þar vorum við sem fyrr alltaf velkomnar á hennar huggulega heimili, hvort sem við skutumst óvænt til hennar í hádeginu eða þá hún bauð okkur í kvöldmat. Sigga ferðaðist mikið með fjöl- skyldu okkar innanlands sem utan og eigum við margar góðar minning- ar um þær ferðir. Hún var einstaklega skemmtileg kona og orsakaði oft mikinn hlátur í fjölskylduboðum með hnyttnum til- svörum sínum. Við munum sakna frábærrar frænku, Sigrún Rósa og Helga Marín Bergsteinsdætur. Sigga Bergsteins var ein besta vinkona móður minnar, Steingerðar Þorsteinsdóttur. Vinátta þeirra spannaði um fimmtíu ár. Það leið vart sá dagur að þær töluðu ekki saman í síma eða hittust. Árið sem var að líða var þeim báðum erfitt. Sigga þjáðist í veikindum sínum og mamma átti oft erfitt með að sætta sig við hvernig komið var fyrir vin- konu sinni. Það var aðdáunarvert hvað hún var dugleg að heimsækja hana og sitja hjá henni tímunum saman. Sigga mat vináttu hennar mikils. Fyrstu kynni vinkvennanna voru þegar mamma þurfti að láta taka úr sér kirtlana en Sigga vann þá hjá Er- lingi Þorsteinssyni háls-, nef- og eyrnalækni. Síðan unnu þær saman hjá Mjólkursamsölunni að Lauga- vegi 166 í yfir þrjátíu ár eða þar til þær létu af störfum vegna aldurs. Ég er búin að þekkja Siggu jafn- lengi og mamma eða í hálfa öld. Fyrsta aðdáun mín á Siggu var þeg- ar hún aðstoðaði lækninn við taka úr mér nef- og hálskirtlana. Mig minnir að hún hafi verið hætt á stofunni en gert það fyrir mömmu að vera við- stödd. Sigga annaðist mig af nær- gætni og blíðu og hvatti foreldra mína eindregið eftir aðgerðina að gefa mér Sinalco til að lina sársauk- ann og hrekja burt öll tár. Það fannst mér frábært. Sigga vann í móttökunni hjá Mjólkursamsölunni og svaraði í sím- ann. Þegar ég sem krakki var að sniglast í vinnunni hjá mömmu, fannst mér gaman að sitja frammi á símanum hjá Siggu, horfa á hana stinga símasnúrum í hin og þessi göt sem blikkuðu í gríð og erg. Svara: „Mjólkursamsalan, góðan dag, augnablik, ég gef þér samband.“ Hvernig gat hún lært á svona flókið tæki? Hvernig vissi hún hvar allir voru? Hvernig gat hún svarað öllum þessum spurningu? Þetta hlaut að vera vandasamt starf og líka ofboðs- lega skemmtilegt. Sigga hafði skemmtilega kímni- gáfu og sá spaugilegar hliðar á hlut- unum. Það var gaman að heyra hana segja frá og rifja upp liðin atvik og/ eða aðstæður sem maður hafði jafn- vel sjálfur lent í eða verið þátttak- andi. Hún hafði lag á að draga upp lifandi og skondnar myndir af at- burðunum sem kitluðu hláturtauga- rnar. Þessar myndir eru mér dýr- mætar. Eftir að mamma missti manninn sinn um fertugt urðu hún og Sigga enn nánari. Þær skemmtu sér sam- an, ferðuðust innanlands og utan. Sigga hafði ekki bílpróf þannig að það kom í hlut mömmu að aka um landið þvert og endilangt. Stundum hoppuðu þær upp í ísbíl frá Mjólk- ursamsölunni og skoðuðu helstu sjoppur og kaupfélög landsins. Oft komu þær til Akureyrar á meðan við bjuggum þar og var ólýsanlega skemmtilegt að fá þær í heimsókn því þær voru svo kátar og spaugsam- ar. Ég kveð með söknuði fallega og góða konu sem mér þótti vænt um. Ég bið aðstandendum hennar bless- unar og mömmu sem saknar sárt góðrar vinkonu. Sigríður Guðnadóttir. SIGRÍÐUR BERG- STEINSDÓTTIR Elskulegur sambýlismaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, sonur, bróðir og afi, PAUL ERIK SÍMONARSON, Grýtu, Eyjafjarðarsveit, andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri að morgni þriðjudagsins 4. janúar. Útförin fer fram frá Grundarkirkju í Eyjafirði laugardaginn 15. janúar kl. 13:30. Guðrún Krüger, Trausti Pálsson, Júlíus S. Pálsson, Konný B. Viðarsdóttir, Valgeir Pálsson, Bergþór Pálsson, Símon I. Konráðsson, Doris Jelle Konráðsson, systkini og barnabörn. Systir okkar og frænka, STEFANÍA JÓNSDÓTTIR, lést föstudaginn 7. janúar. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Fyrir hönd aðstandenda hinnar látnu, Guðmundur Jónsson. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, KJARTAN ÞÓR VALGEIRSSON, Akraseli 10, Reykjavík, sem lést á Landspítala Fossvogi 8. janúar sl., verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju þriðju- daginn 18. janúar kl. 13:00. Anna Elín Hermannsdóttir, Þóra Kjartansdóttir, Hermann Kjartansson, Valgeir Kjartansson, Lísa Björk Bragadóttir, Kjartan Bragi Valgeirsson, Ævar Valgeirsson, Þórir Steinn Valgeirsson, Hjalti Valgeirsson. Ástkær faðir, afi okkar og frændi, HREINN BENEDIKTSSON prófessor, sem andaðist á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ aðfaranótt föstudagsins 7. janúar, verður jarð- sunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík mánu- daginn 17. janúar kl. 15.00. Egill Benedikt Hreinsson, Arndís Hrönn Egilsdóttir, Hrafnkell Orri Egilsson, Andri Egilsson, Högn Egilsson, Fríða Sigurðardóttir og Axel Gunnlaugsson. Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, JÁRNGERÐUR EINARSDÓTTIR frá Tjörnum, Vestur-Eyjafjöllum, lést á líknardeild Landspítala, Landakoti, mánudaginn 10. janúar. Jarðarförin fer fram frá Dómkirkjunni í Reykja- vík föstudaginn 21. janúar kl. 13.00. Leifur Aðalsteinsson, Guðrún Eyþórsdóttir, Þórður Guðjón Kjartansson, Sigrún Þorbjörnsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginkona mín og móðir okkar, EYGERÐUR INGIMUNDARDÓTTIR frá Hrísbrú, Reykjabyggð 28, Mosfellsbæ, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi þriðjudaginn 11. janúar. Fyrir hönd fjölskyldunnar og annarra aðstandenda, Henning Kristjánsson, Inga Elín, Jóna Margrét, Bóel og Steinunn. HINSTA KVEÐJA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.