Morgunblaðið - 14.01.2005, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 14.01.2005, Blaðsíða 46
Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes BRÁÐUM VERÐ ÉG 26 ÁRA GAMALL ÉG ÞOLI EKKI GAMLINGJA EN ÉG ELSKA MIG BARA SVO ÓSTJÓRNLEGA MIKIÐ HANN SAGÐI AÐ ÉG HÉLDI AÐ ÉG VÆRI BETRI EN ÞIÐ! ÞAÐ ER ÞAÐ FALLEGASTA SEM NOKKUR MAÐUR HEFUR SAGT VIÐ MIG! ÞÚ MÁTT EIGA HANSKANN TOMMI! ÉG SKIL ÞIG EKKI KALLI! ÞÚ ÞEKKIR SKRÍTIÐ FÓLK... FINNST ÞÉR HANN SKRÍTINN? ÞÚ ÆTTIR AÐ SJÁ VIN HANS MEÐ ÓLINA AF HVERJU LASTU EKKI SÖGUKAFLANN SEM ÉG SETTI FYRIR? ÉG REYNDI AÐ LESA HANN, FRÚ KENNARI, EN ÚTGEFANDINN HEFUR EKKI NOTAÐ RÉTT BLEK... ÞANNIG AÐ ÞEGAR ÉG OPNAÐI BÓKINA ÞÁ RUNNU ALLIR STAFIRNIR AF BLAÐSÍÐUNUM OG MYNDUÐU STÓRAN RUSLAHAUG Á MIÐJU STOFUGÓLFINU ÉG VERÐ AÐ FARA AÐ NOTA AFSAKANIR SEM ERU EKKI SVONA ÝKTAR Beini ÉG ÆTLA AÐ FÁ EINN BJÓR ... © LE LOMBARD ... OG HANN VILL APPELSÍNUSAFA EH ... NEI, HEYRÐU ANNARS HANN VILL FREKAR ANNANASSAFA ... ....MEÐ RÖRI GLUGG! POUUITT! ÞÚ ERT EKKI BÚINN AÐ SJÁ ALLT. ÞAÐ ER EKKI BARA AÐ HANN SÉ FLOTTUR ... HUNDURINN ÞINN ER FRÁBÆR. HANN KEMUR MEÐ ÞÉR Á KNÆPUNA ... HANN DREKKUR ÁVAXTASAFANN SINN ... Í GLASI, EINS OG ALLIR AÐRIR. VEL AF SÉR VIKIÐ! ... HELDUR BORGAR HANN LÍKA! Dagbók Í dag er föstudagur 14. janúar, 14. dagur ársins 2005 Sir Howard Davies,rektor London School of Economics, sagði skemmtilega sögu í kvöldverði, sem efnt var til með fyrr- verandi nemendum skólans hér á landi í byrjun vikunnar. Hann upplýsti að 1972 hefði hann fengið sitt fyrsta starf eftir út- skrift frá Oxford, sem lágt settur embætt- ismaður í brezka utan- ríkisráðuneytinu. Þar hefði hann átt að fylgj- ast með fjölda ríkja, þar á meðal Íslandi. Óvænt hefðu mál þróazt þannig að 80% starfsins fóru í að sinna Íslandi þegar þorska- stríð brauzt út. x x x Sir Howard rifjaði upp að á þess-um tíma hefði verið komið upp stríðsherbergi, eins og menn þekkja úr bíómyndum um seinni heims- styrjöld, í einni af stjórnarráðsbygg- ingunum við Whitehall. Tilgangur þess hefði reyndar aðallega verið að fylgjast með viðkvæmu ástandi á Kýpur, en þar hefði Ísland einnig komið við sögu. Kvöld eitt var hann kallaður á fund í stríðsherberginu vegna ástandsins á Ís- landsmiðum; þar hafði varðskip abbazt upp á brezkan togara. Síma- samband var við yf- irstjórn brezka flotans í Northwood og rödd flotaforingjans glumdi úr litlum hátalara í stríðsherberginu. Fundarmenn voru þeirrar skoðunar að ekki þýddi að láta Ís- lendinga komast upp með yfirgang gagn- vart togurunum og senda þyrfti herskip á vettvang. Spurt var hvaða freigáta væri tiltæk og frá Northwood kom svarið; að HMS Ajax væri á næstu grösum. Eftir svolitla þögn heyrðist hins vegar í hátalaranum: „Ó, fjandinn!“ Þegar menn hváðu í Whitehall var útskýrt að Karl prins af Wales væri staddur um borð. Ekki væri hægt að senda prinsinn á vettvang, þar sem hætta var talin á að skipzt yrði á skotum. Ekki mundi Sir Howard nafnið á togaranum, þannig að Víkverji gat ekki kannað hvernig málinu lauk – en þarna hefur Landhelgisgæzlan kannski fengið meira svigrúm til að- gerða en ella, þökk sé flotauppeldi Karls prins. Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is            Akureyri | Hin stórskemmtilega og hæfileikaríka söngkona Margrét Eir Vil- hjálmsdóttir mun í kvöld kl. 21 leika á tónleikum í leikhúsinu Hlöðunni, en leikhúsið varð til þegar Skúli Gautason gerði upp gamla hlöðu og bjó til lítið leik- og skemmtihús. Margréti til aðstoðar verður Róbert Þórhallsson, sem leikur á kontra- bassa, en útkoman ku vera afar skemmtileg þegar rödd og bassi leika ein saman. Taka þau þekkta smelli m.a. eftir Suzanne Vega, Kate Bush og Duran Duran. Margrét er stödd á Akureyri vegna hlutverks síns í söngleiknum Ólí- ver og getur vel verið að einhverjir samleikarar hennar kíki við og telji í eitt til tvö lög með henni. Morgunblaðið/Kristján Bassi og rödd í Hlöðunni MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug- lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.400 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. Því hvar sem fjársjóður yðar er, þar mun og hjarta yðar vera. (Lúk. 12, 34)
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.