Morgunblaðið - 14.01.2005, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 14.01.2005, Blaðsíða 6
6 FÖSTUDAGUR 14. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR hún og bætir því við að hún hafi rekist stuttlega á Tony Blair á göngum hússins. Þorgerður segist hafa átt ánægjulegt spjall við Cher- ie Blair í um klukkustund. „Við ræddum um heima og geima. Um menntamál, jafnréttismál, íþróttir, börnin okkar og svona eins og maður spjallar raunverulega þegar maður er í heimsókn hjá vinum og kunningjum,“ segir Þorgerður en hún kynntist Blair á ráðstefnu í ágúst. „Að sjálfsögðu bauð ég henni aftur til Íslands,“ segir Þorgerður og bætir því við að það kunni vel að vera að Blair komi aftur til Íslands enda hafi hún heillast bæði af landi og þjóð. ÞORGERÐUR Katrín Gunnarsdóttir mennta- málaráðherra átti nýverið fund með Cherie Blair, eig- inkonu Tonys Blairs, forsætisráðherra Bretlands. „Þetta er einstaklega heillandi og skarpgreind kona sem hefur mjög miklu að miðla eins og við Íslendingar þekkjum eftir að hún var hérna í heimsókn fyrir ekki löngu,“ segir Þorgerður. Hún segist hafa fengið fyrir skömmu boð um einkaheimsókn frá Blair þegar hún ætti leið um London. Þorgerður, sem var stödd í vikunni í Lundúnum á ráðstefnu, heimsótti Blair sl. þriðjudag í Downing- stræti 10. „Þetta var mjög skemmtilegt og það var gaman að sjá hvað allt var heimilislegt hjá þeim,“ segir Cherie Blair ásamt Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur í Downing-stræti 10. „Einstaklega heillandi kona“ BORGARRÁÐ Reykjavíkur hefur samþykkt að vísa tillögu Stein- unnar Valdísar Óskarsdóttur borg- arstjóra um að álagningarprósenta fasteignaskatts í Reykjavík hækki ekki í ár úr 0,320% í 0,345% til borgarstjórnar sem mun taka af- stöðu til hennar á þriðjudaginn eft- ir helgi. Í tillögu borgarstjóra kom fram að við samþykkt fjárhagsáætlunar hefði ekki verið ljóst hversu mikið fasteignamat íbúðarhúsnæðis myndi hækka og því hefði verið ákveðið að hækka álagning- arprósentuna í 0,345%. Síðan hefði komið í ljós að fasteignamat sér- býlis í Reykjavík hækkaði um 20% milli ára og fjölbýlis um 13%. Áætl- aður tekjuauki borgarinnar vegna þessa án hækkunar álagningarhlut- falls væri 103,6 milljónir og því hefðu forsendur hækkunar breyst. Fallið verði frá hækkun fast- eignaskatts TOLLGÆSLAN í Reykjavík var búin að ákveða að leita að fíkniefn- um um borð í Hauki ÍS áður en fregnir bárust af því að þýska lög- reglan og tollgæslan hefðu fundið 3½ kíló af kókaíni og álíka magn af hassi um borð í skipinu, að sögn Sigurðar Skúla Bergssonar for- stöðumanns tollgæslusviðs tollstjór- ans í Reykjavík. Þegar tollgæslan leggur mat á hvort leita skuli að fíkniefnum í skipum sem koma til baka úr sigl- ingum, er m.a. litið til þess hverjir eru í áhöfn og hvort þeir eigi af- brotaferil að baki, en einnig er leit- að í skipum þó engin sérstök ástæða sé fyrir því, að sögn Sigurðar Skúla. Sigurður Skúli segir að þegar ljóst varð að Haukur ÍS myndi leggjast að bryggju í Hafnarfirði hefði tollgæslan þar í bæ verið látin vita. Skipið kom frá Hollandi á þriðjudagskvöld og var þá farið með fíkniefnaleitarhunda um borð. Ekk- ert fannst en Sigurður Skúli segir að hundarnir hafi greinilega fundið lyktina af fíkniefnunum. Tveir fíkniefnaleitarhundar Það er ekki algengt að lagt sé hald á stórar fíkniefnasendingar um borð í íslenskum fiskiskipum og nokkuð um liðið síðan það gerðist síðast. Sigurður Skúli segir að skip, jafnt fiskiskip sem önnur, sem koma frá útlöndum séu tollafgreidd en ef ástæða þyki til sé leitað sér- staklega að smyglvarningi. Af og til sé farið með fíkniefnaleitarhunda um borð í skipin en tollstjóraemb- ættið á tvo slíka hunda. Sigurður Skúli treysti sér í gær ekki til þess að leggja mat á hlutfall þeirra skipa sem tollgæsla leitar gaumgæfilega í. Aðspurður sagði hann að frekar stæði til að leita oftar með fíkni- efnaleitarhundum um borð í fiski- skipum. „Þetta mál [fíkniefnafund- urinn um borð í Hauki ÍS] segir okkur að við verðum að vera mjög vakandi yfir þessum hlutum,“ segir Sigurður Skúli. Tollgæslan hafði ákveðið að leita um borð í Hauki VIÐ skulum spyrja að leikslokum. Ef áfrýjunarnefnd samkeppnismála treystir sér til að taka tillit til þeirra röksemda sem umbjóðandi minn lagði fram af sinni hálfu vænti ég þess að þær stjórnvaldssektir sem tekist er á um í málinu muni lækka verulega,“ segir Kristinn Hallgríms- son, hæstaréttarlögmaður, lögmað- ur Kers hf., áður Olíufélagsins ehf., um málflutning umbjóðanda síns fyrir áfrýjunarnefndinni sem fram fór sl. mánudag. „Mál þetta er óvenjuumfangsmik- ið. Að auki er það mjög flókið lög- fræðilega af ýmsum ástæðum, m.a. vegna lagabreytinga á rannsóknar- tímabilinu. Erfitt er því að tjá sig um það í stuttu máli. Ef tilraun er gerð til þess að lýsa hluta þess málflutn- ings sem fram fór má segja að um- bjóðandi minn telji sig m.a. hafa fært fram gild rök um að útreikningar samkeppnisráðs og Samkeppnis- stofnunar um meintan ólögmætan ávinning af ólögmætu samráði olíu- félaganna á árunum 1996–2001 byggist á röngum forsendum sem aftur leiði til þess að álagðar stjórn- valdssektir ættu að lækka verulega,“ segir Kristinn. „Útreikningar samkeppnisyfir- valda taka ekki nægjanlegt tillit til breytinga á rekstrarkostnaði um- bjóðanda míns til hækkunar, t.d. vegna aukins gengistaps meðan ís- lenska krónan var í frjálsu falli á ár- unum 2000–2001, hækkunar launa umfram almennar verðlagsbreyting- ar, sem munar umtalsverðum fjár- hæðum, og kostnaðar vegna hertra krafna á sviði öryggis- og umhverf- ismála, svo einhver dæmi séu nefnd. Einnig var því t.d. mótmælt að sam- keppnisyfirvöld virðast ekkert taka tillit til þess í niðurstöðu sinni að samráð olíufélaganna minnkaði að mun á rannsóknartímabilinu, og var lokið í öllum verulegum atriðum þeg- ar rannsókn samkeppnisyfirvalda hófst,“ segir Kristinn. Að sögn hans hefur umbjóðandi hans kosið að tjá sig ekki frekar efn- islega um málið fyrr en niðurstaða áfrýjunarnefndar samkeppnismála liggur fyrir, sem vænst er fljótlega. Lögmaður Olíufélagsins um málareksturinn fyrir áfrýjunarnefndinni „Skulum spyrja að leikslokum“ TRÚNAÐARMAÐUR starfsmanna Íslenska útvarpsfélagsins ætlar að boða þá starfsmenn útvarpsstöðv- anna X-ins, Skonrokks og Stjörnunn- ar, sem sagt var upp störfum á mið- vikudag, á sinn fund eftir helgi. Hólmfríður Kristjánsdóttir trúnaðar- maður hafði ekkert rætt við starfs- fólkið síðdegis í gær. Yfirstjórn Íslenska útvarpsfélags- ins hefur boðað starfsmenn á fund í Vetrargarðinum í Smáralind í dag, þar sem m.a. verður kynnt nýtt skipu- rit fyrirtækisins. Gunnar Smári Eg- ilsson, framkvæmdastjóri ÍÚ og Fréttar, segir fundinn hefðbundinn starfsmannafund, þar sem farið verð- ur yfir stefnu fyrirtækisins. Að sögn Elíasar Guðmundar Magnússonar, forstöðumanns kjara- sviðs VR, er líklegt að flestir starfs- mennirnir séu aðilar að VR. For- svarsmenn Íslenska útvarpsfélagsins tilkynntu VR að um tíu aðilum hefði verið sagt upp en ekki var nákvæm- lega tilgreint hversu margir væru að- ilar að VR. „Okkar trúnaðarmaður er að skoða málin og við munum í næstu viku væntanlega fá nafnalista og hitta þessa aðila ef þeir vilja það. Þá verður farið yfir réttarstöðu þessa fólks og um hvað samið var við það.“ Uppsagnir hjá ÍÚ VR skoðar mál starfs- manna í næstu viku „GÆSIRNAR eru einfaldlega ban- hungraðar,“ sagði Ólafur Karl Niel- sen, fuglafræðingur á Nátt- úrufræðistofnun Íslands. Fólk sem farið hefur niður að Tjörn til að gefa fuglunum hefur orðið fyrir árásum frá gæsunum. M.a. komst ung kona undan gæsunum við illan leik í vik- unni eftir að þær höfðu étið bíllyklana hennar. Ólafur tók saman skýrslu fyrir borgina veturinn 1998–99 þar sem kannað var hve mikið almenningur gæfi fuglunum við Tjörnina. „Nið- urstaðan var sú að um helgar full- nægðu brauðgjafir almennings fæðu- þörf fuglanna, en svo var alls ekki virka daga því þá fullnægðu brauð- gjafir ekki nema að meðaltali 35% fæðuþarfar fuglanna,“ segir Ólafur og bendir á að alltaf sé eitthvað um það að gæsir í borginni drepist úr hungri. Aðspurður segir Ólafur gæsir verst settar af fuglategundum við Tjörnina þegar jarðbönn eru líkt og nú. „Því bæði endur og álftir geta náð sér í fæðu í sjónum, en gæsir eru grasætur og þegar snjór hylur jörð í jarðbönnum hefur hún ekkert æti annað en það sem borgararnir færa henni,“ segir Ólafur og áætlar að samtals hafi um 700 grágæsir vet- ursetu í borginni. Aðeins er þó hluti þeirra við Tjörnina, en Ólafur segist hafa talið 280 grágæsir á Tjörninni 9. janúar sl. Ólafur rifjar upp að haustið 1997 hafi þáverandi garðyrkjustjóri borg- arinnar ákveðið að hætt skyldi dag- legri fóðrun tjarnarfugla á vegum borgarinnar og var tilgangurinn að stemma stigu við frekari fjölgun gæs- anna þar. Mætti sú ákvörðun nokk- urri gagnrýni og var því gripið til þess ráðs að gefa gæsunum daglega í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum og í Vatnsmýrinni þegar jarðbönn væru. Ólafur segist einnig vita til þess að sumstaðar í íbúðarhverfum sé gæsum gefið. Spurður hvort ágangur gæs- anna komi á óvart svarar Ólafur því neitandi, enda séu gæsirnar ekki hræddar við mannskepnuna eftir ára- tuga samveru. Örn Sigurðsson, skrifstofustjóri Umhverfis- og heilbrigðisstofu Reykjavíkurborgar, staðfesti í sam- tali við Morgunblaðið að gæsum væri gefið daglega í Fjölskyldu- og hús- dýragarðinum og í Vatnsmýrinni annan hvern dag þegar jarðbönn væru. „Eftir því sem mér skilst eru þær svo vel haldnar þessar gæsir að það hálfa væri nóg.“ Aðspurður segir Örn borginni ekki hafa borist neinar kvartanir vegna ágengni gæsa við Tjörnina. Örn seg- ist þó vita til þess að þær séu að- gangsharðar og frekar á þeim stöðum í borginni þar sem þær eru fóðraðar. „Gæsirnar eru hungraðar“ Þar sem gæsir eru grasætur hafa þær ekkert æti þegar jörð er hulin snjó líkt og gildir um þessar mundir. Gæsirnar eru því algjörlega háðar brauðgjöfum borgarbúa. Ólafur Karl Nielsen fuglafræðingur áætlar að tæplega 300 þeirra 700 grágæsa sem dvelja í borginni að vetrarlagi haldi til við Tjörnina. SAMFYLKINGIN í Kópavogi telur eðlilegt að skoða lækkun fast- eignaskatts í Kópavogi. Í grein- argerð með tillögu Samfylking- arinnar, sem lögð var fyrir bæjarráð Kópavogs í gær, er minnt á að fasteignamat í Kópavogi hafi hækkað um 15,3% að meðaltali um áramótin en það feli í sér mikinn út- gjaldaauka fyrir heimilin. Þá er á það bent að Kópavogsbær er með hærri álagningarprósentu fast- eignaskatts en nágrannasveit- arfélögin og að við því þurfi að bregðast. Reykjavíkurborg hafi til að mynda ákveðið að draga hækk- un á fasteignagjöldum til baka og Hafnarfjarðarkaupstaður hafi sam- þykkt að athuga þessi mál. Bæjarráð Kópavogs mun vænt- anlega taka afstöðu til tillögu Sam- fylkingarinnar að viku liðinni. Leggja til lækkun fasteignaskatts
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.