Morgunblaðið - 14.01.2005, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 14.01.2005, Blaðsíða 54
54 FÖSTUDAGUR 14. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ Miðasala opnar kl. 15.30 VIÐSKIPTAVINIR ÍSLANDSBANKA FÁ 20% AFSLÁTT AF MIÐAVERÐI I I I I Í I I ÍSLANDSBANKI ... „séríslenskt Fönn, fönn, fönn!“  SV MBL ... í l , , !  "...bráðvel heppnuð skemmtun, grín og fjör..."  ÓHT rás 2 .. l t , rí fj r... r  Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. kl. 4, 6, 8 og 10. Yfir 23.000 gestir Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.15. B.i. 10 ára QUEEN LATIFAH JIMMY FALLON GISELE BÜNDCHEN I Á FULLRI FERÐ MEÐ GRÍNIÐ Í BOTNI Í FRÁBÆRRI GAMANSPENNUMYND EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS Sýnd kl. 4 og 6. ÍSLENSKT TAL Sýnd kl. 8 og 10. B.i. 14 ára. Í takt við tímann er tekjuhæðsta jólamyndin, yfir 20.000.000. í tekjur frá öðrum degi jóla til dagsins í dag. Sýnd kl. 6 og 10. QUEEN LATIFAH JIMMY FALLON GISELE BÜNDCHEN I Á FULLRI FERÐ MEÐ GRÍNIÐ Í BOTNI Í FRÁBÆRRI GAMANSPENNUMYND Sýnd kl. 6 og 8.   VIÐSKIPTAVINIR ÍSLANDSBANKA FÁ 20% AFSLÁTT AF MIÐAVERÐI I I I I Í I I ÍSLANDSBANKI ... „séríslenskt Fönn, fönn, fönn!“  SV MBL ... í l , , ! "...bráðvel heppnuð skemmtun, grín og fjör..."  ÓHT rás 2 ... l t , rí fj r... r Yfir 23.000 gestir Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20.Sýnd kl. 8 og 10.10. Tilnefnd til 5 Golden Globe verðlauna þ.á.m. besta mynd, leikstjóri og leikari í aðalhlutverki. Einstök mynd um höfund hinnar sígildu sögu um Pétur Pan. Stórkostleg upplifun! Tilnefnd til 5 Golden Globe verðlauna þ.á.m. besta mynd, leikstjóri og leikari í aðalhlutverki. Einstök mynd um höfund hinnar sígildu sögu um Pétur Pan. Stórkostleg upplifun! NÝ mynd með hinum fjölhæfa og margfæra Jim Carrey, sjálfu gúmmífésinu, vekur ætíð athygli enda er hann einn af fáum leik- urum sem borið geta uppi heilu bíómyndirnar með nærveru sinni. Nýjasta myndin með þessum tvö- falda Golden Globe-verðlaunahafa heitir því langa og óþjála nafni Lemony Snicket’s A Series of Un- fortunate Events eða Röð ólán- legra viðburða. Myrk, drungaleg og gráglettin ævintýramynd fyrir alla fjölskylduna – eða þá úr henni sem þora. Í myndinni leikur Carr- ey Ólaf greifa – Count Olaf, kyn- legan kvist, skelfilegan leikara og meistara dulargervisins sem er staðráðinn í að svindla á hinum bláeygu og blíðu munaðarlausu systkinum af Baudelaire-ættinni og hafa af þeim fjölskylduauðæfin miklu. En Jósefína frænka þeirra – leikin af hinum tvöfalda Ósk- arsverðlaunahafa Meryl Streep stendur í vegi fyrir Ólafi greifa. Í mjög stórum dráttum þá er þetta sagan sem dularfullur náungi að nafni Lemony Snicket segir í myndinni – en hann talar með röddu Jude Law. Hér er markmiðið klárt, að bjóða uppá eins óvenjulega sögu og fráleita og mögulegt er, eitt- hvað sem alveg er á skjön við það sem börn á öllum aldri eiga að venjast. Sagan er byggð á þremur bókum samnefnds Lemony Snick- et, en eftir þennan huldumann – sem sagan segir að heiti réttu nafni Daniel Handler og sé 34 ára gamall – hafa komið út ellefu æv- intýri sem eru undir sterkum áhrifum frá ævintýrahöfundum allt frá Grímsbræðrum til Roalds Dahls. Bækur Lemony Snicket voru þær fyrstu sem afrekuðu að velta sjálfum Harry Potter úr toppsæti bóksölulista New York Times og hafa þær samtals verið 600 vikur á þeim lista. Bækurnar hafa fengið fína dóma gagnrýn- enda og selst í meira en 27 milljónum eintaka – jafnvel þótt höfundur þeirra hafi ítrekað grátbeðið fólk um að „lesa eitthvað annað“. Sjálfur segist Carrey hafa notið þess að leika svona andstyggilegan og margsnúinn náunga, nokkuð sem hann gerði einnig með glæsi- brag í Batman Forever og The Grinch. Og útlit myndarinnar sjálfrar minnir einna helst á myrkari verk Tim Burtons en leikstjóri er Brad Silberling sem á að baki mynd- irnar Casper, City of Angels og Moonlight Mile, auk þess sem hann leikstýrði fyrstu þáttunum í sjónvarpsþáttaröðinni vinsælu Judging Amy. „Ég grátbað þá um að gera ekki mynd. Ég grátbað þá um að fá ekki góðan leikstjóra. Ég grátbað þá um að ráða ekki neitt hæfi- leikafólk í hlutverkin. Ég grátbað þá um að byggja ekki myndina á neinni bók eftir mig og þeir völdu þrjár!“ lét Snicket hafa eftir sér þar sem hann dvaldi í óþekktri holu í jörðinni eða lúxusvillu. „Eina von mín er að hjörð sjálf- boðaliða lesi þetta, kaupi alla miða á myndina sem eru í boði og fari síðan ekki á myndina.“ Frumsýning | Lemony Snicket’s A Series of Unfortunate Events Hinn ógeðfelldi Ólafur greifi „Kaupið ykkur miða – en ekki fara á myndina.“ Skýr en skringileg skila- boð frá Lemony Snicket, skapara Ólafs greifa og munaðarleysingjanna. ERLENDIR DÓMAR: Roger Ebert  Guardian  BBC  Empire  Metacritic.com 63/100 Variety 70/100 (metacritic) New York Times 60/100 (meta- critic) HAMSLAUS hugmyndaauðgi mannsins sem skapaði Pétur Pan og þrá hans eftir eilífri æsku er viðfangsefni kvikmyndarinnar Finding Neverland, einnar af þeim myndum sem sterklega hafa verið orðaðar við Óskarsverðlaunin. Í þessari mynd Svisslendingsins Marcs Forsters (Monster’s Ball) fer Johnny Depp með hlutverk skoska skáldsins James Mathew Barrie, höfundar barnaævintýr- isins sígilda um Pétur Pan, dreng- inn sem bjó í Hvergilandi og neit- aði að eldast. Sjálfur neitaði Barrie að eldast og bjó í sínu eigin Hvergilandi, landi hugarflugsins. Myndin byggist á hugmyndum handritshöfundarins David Mag- ees um það hvernig sagan af Pétri Pan kann að hafa orðið til. Barrie bjó hana til eftir að hann hafði kynnst Llewelyn Davis fjölskyld- unni; fjórum föðurlausum drengj- um og ungri og fagurri móður þeirra, ekkju, sem leikin er af Kate Winslet. Barrie tekur ástfóstri við piltana og upplifir eigin æsku á nýjan leik með þeim og notar þá reynslu sína til að skapa Hvergi- land, Pétur, Kaptein krók og sjó- ræningja hans. Myndin var frumsýnd á Feneyjahátíðinni og hlaut þar verðlaun. Þá völdu Landssamtök kvikmyndagagnrýnenda (National Board of Review) hana bestu mynd ársins 2004. Johnny Depp hefur fengið sérstaklega mikið lof fyrir túlkun sína á Barrie og þykir líklegur til að hreppa Óskarstil- nefningu, eins og reyndar myndin og Winslet en myndin er tilnefnd til fimm Golden Globe-verðlauna. Frumsýning | Finding Neverland Pétur Pan verður til: Barrie og ungur drengur í Llewelyn Davies- fjölskyldunni láta hugann reika. Í leit að eilífri æsku ERLENDIR DÓMAR: Roger Ebert Guardian  BBC  Metacritic.com 67/100 Variety 80/100 (metacritic) New York Times 50/100 (meta- critic)
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.