Morgunblaðið - 14.01.2005, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 14.01.2005, Blaðsíða 44
44 FÖSTUDAGUR 14. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Atvinnuauglýsingar Matvælafyrirtæki Framsækið matvælafyrirtæki óskar eftir starfs- mönnum í sal við pökkun og frágang. Einnig óskum við eftir starfsmanni á skrifstofu. Kunnátta í Tok sölukerfi æskileg. Nánari upplýsingar í síma 567 6640. Esja kjötvinnsla, Dugguvogi 8.  á Grenivík. Verður að hafa bíl til umráða Upplýsingar gefur Ólöf Engilberts- dóttir í síma 569 1376.  í afleysingar í Fossvogi og Smáíbúðahverfi. Ekki yngri en 18 ára. Upplýsingar í síma 569 1376 R A Ð A U G L Ý S I N G A R Fundir/Mannfagnaður Aðalfundur Aðalfundur Heimilis og skóla, landssamtaka foreldra, verður haldinn föstudaginn 28. janúar kl. 18 á Mannhæðinni, Laugavegi 7, 3. hæð. Dagskrá: Hefðbundin aðalfundarstörf. Heimili og skóli - landssamtök foreldra, Laugavegi 7, 101 Reykjavík, s. 562 7475, www.heimiliogskoli.is Kyrrðardagar í Skálholti Á kyrrðardögum gefst kostur á andlegri og lík- amlegri hvíld og uppbyggingu í kyrrð, helgi og sögu Skálholtsstaðar. Næstu kyrrðardagar verða helgina 21.–23. janúar 2005 Leiðsögn annast Sigurður vígslubiskup Sigurðarson. Upplýsingar og skráning í Skálholtsskóla, sími 486 8870, netfang: skoli@skalholt.is . Styrkir Ungt fólk í Evrópu Styrkjaáætlun ESB Næsti umsóknarfrestur er 1. febrúar 2005. Hægt er að sækja um styrki hjá UFE fyrir 1. febrúar vegna verkefna, sem eiga að hefjast á tímabilinu 1. maí 2005 til 30. september 2005. UFE styrkir fjölbreytt verkefni, m.a. ungmennaskipti hópa, sjálfboðaþjónustu einstaklinga, frum- kvæðisverkefni ungmenna, námskeið, ráðstefnur o.fl. Öll umsóknarform og frekari upplýsing- ar er að finna á www.ufe.is . Landsskrifstofa Ungs fólks í Evrópu, Pósthússtræti 3-5, 101 Reykjavík, sími 520 4646 — ufe@itr.is Tilkynningar BORGARTÚN 3 • 105 REYKJAVÍK • SÍMI 563 2600 • MYNDSENDIR 562 3219 Reykjavíkurborg Skipulags- og byggingarsvið Auglýsing um nýtt og breytt deiliskipulag í Reykjavík Í samræmi við 25. gr. skipulags- og bygg- ingarlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum, eru hér með auglýstar til kynningar tillögur að nýju og breyttu deiliskipulagi í Reykjavík. Hamrahlíð 10, menntaskóli. Tillaga að skipulagi fyrir Hamrahlíð 10, lóð menntaskólans við Hamrahlíð. Tillagan gerir m.a. ráð fyrir tveimur nýjum við- byggingum við menntaskólann. Viðbygging I, íþrótta- og kennsluhús, 4000m2 og viðbygging II, kennsluhús, 2000m2, tengihús við núverandi hús skal taka mið af núverandi húsnæði skólans. Á uppdrætti hefur verið markaður byggingarreitur fyrir þessi mannvirki. Sérstakar kvaðir eru fyrir viðbyggingar og allir hlutar húss skulu standa innan byggingarreits, tvær bráðabirgða kennslustofur eru á lóð og er gert ráð fyrir að þær verði fjarlægðar þegar við- bygging II verður reist. Bílastæðaþörf fyrir skólann verður fullnægt á lóð skólans. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna. Vagnhöfði 9 – 21 og Dvergshöfði. Tillaga að breytingu á deiliskipulagi lóðanna nr. 9 – 21 við Vagnhöfða og land Reykjavíkur- borgar við Dvergshöfða. Tillagan gerir m.a. ráð fyrir að lóðarmörkum ofantaldra lóða við Vagnhöfða verði breytt og lóðir stækkaðar. Til að nýting lóðanna verði sem best þarf að þrengja akbraut Dvergshöfða úr 9,5 metra í 7 metra, nyrðri kantur akbrautar verður óbreyttur. Ekki verða heimilaðar varan- legar byggingar á þessum nýju lóðarhlutum. Innkeyrslur verða fastákveðnar í deiliskipu- laginu og eru þær 4 í allt þar af 2 sem eru sameiginlegar fyrir 2 lóðir. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna. Tillögurnar liggja frammi í upplýsingaskála skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkur- borgar í Borgartúni 3, 1. hæð, virka daga kl. 8:20 – 16:15, frá 14. janúar til og með 25. febrúar 2005. Einnig má sjá tillögurnar á heimasíðu sviðsins, skipbygg.is. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Ábendingum og athuga- semdum við þær skal skila skriflega til skipulags- og byggingarsviðs (merkt skipu- lagsfulltrúa) eigi síðar en 25. febrúar 2005. Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillögurnar. Reykjavík, 14. janúar 2005 Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur Mat á umhverfisáhrifum Ákvörðun Skipulagsstofnunar um matsskyldu framkvæmda Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að eftirtalin framkvæmd skuli ekki háð mati á um- hverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum. Breyting á Þrengslavegamótum. Hringvegur 1-d9; Svínahraun-Hveradala- brekka, Sveitarfélaginu Ölfusi. Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulags- stofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Hana er einnig að finna á heimasíðu Skipu- lagsstofnunar: www.skipulag.is. Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til umhverfisráðherra og er kærufrestur til 11. febrúar 2005. Skipulagsstofnun. Félagslíf Sálarrannsókna- félag Suðurnesja María Sigurðardóttir, miðill, verður með skyggnilýsingarfund sunnudaginn 16. janúar kl. 20.30 í húsi félagsins á Víkurbraut 13, Keflavík. Húsið opnað kl. 20. Að- gangseyrir við innganginn. Allir velkomnir. Stjórnin. Í kvöld kl. 20.30 heldur Þórir Barðdal erindi „Þekking og blekking” í húsi félagsins, Ingólfsstræti 22. Á laugardag kl. 15-17 er opið hús með fræðslu og umræðum kl. 15.30 í umsjón Benedikt S. Lafleur: Kynning á SahajaYoga. Starfsemi félagsins er öllum opin. www.gudspekifelagid.is I.O.O.F. 12  1851148½  9.0. I.O.O.F. 1  1851148  SJÓSUNDFÉLAG Íslands efnir til sjósundmaraþons á morgun, laug- ardaginn 15. janúar og er það liður í landssöfnuninni til styrktar fórn- arlömbum náttúruhamfaranna við Indlandshaf. Synt verður í Nauthólsvík frá rampinum hjá Siglingaklúbbi Sigluness, vinstra megin við ströndina. Ásamt Sjósundfélagi Íslands taka þátt Sundfélag Hafnarfjarðar, Sjósund- félag lögreglunnar o.fl. Áætlað er að þátttaka sundmanna og annarra sem koma að sundinu verði 20-30 manns og hefst sundið kl. 13.30 og er stefnt að því að það verði til 16.30. Hver sundmaður syndir að meðaltali í 1–3 mínútur en hitastig í sjónum er 1–2 gráður um þessar mundir. Ekki verður safnað áheitum í sérstökum síma, fyrir utan söfnunarsíma, en bæði fyrirtæki og ein- staklingar eru hvött til að leggja söfnuninni lið, segir í fréttatilkynningu. Sjósundmaraþon í Nauthólsvík SENDIRÁÐ Rússlands á Íslandi vottar innilega samúð fórnarlömbum flóðbylgj- unnar í Suður-Asíu og aðstandendum þeirra. Sendiráðið segir í fréttatilkynningu að rússnesk yfirvöld standi fyrir viðamik- illi aðstoð á hamfarasvæðunum. „Rússland hefur veitt rúmlega 30 millj- ónir dollara í neyðaraðstoð vegna hamfar- anna í Suður-Asíu. Rússneskir læknar starfa nú í miklum mæli á hamfarasvæðunum. Varn- armálaráðuneyti Rússlands hefur sett upp tvö farandsjúkrahús á þessum slóðum. 13. janúar verður flogið með sérstöku sjúkra- flugi til Taílands með nýtt farandsjúkrahús um borð. Hópur rússneskra sérfræðinga í hamfaralækningum fer til Sri Lanka 14. janúar. Áætlað er að í Suður-Asíu verði að störfum 182 rússneskir læknar. Allt frá 27. desember hefur verið rúm- lega 20 sinnum flogið með hjálpargögn frá Rússlandi til hamfarasvæðanna á vegum flughersins og annarra ríkisstofnanna svo sem almannavarnaráðuneytisins. Meira en 150 tonnum af hjálpargögnum hefur verið dreift í Taílandi, Sri Lanka og Indónesíu. Það er drykkjarvatn og vatnshreins- unartæki, tjöld, færanleg raforkuver, lyf, fatnaður og matur. Rússneskar flugvélar með hjálpargögn lentu í Indónesíu og Sri Lanka fyrstu klukkustundir eftir hamfarir. Ríkisstjórn Rússlands mun leggja sig fram til að sjá um frekari aðstoð við fórnarlömb hamfaranna í Suður-Asíu.“ Viðamikil aðstoð Rússlands í Asíu Lyf og heilsa veitir afslátt Mistök urðu í texta sem fylgdi verðkönnun Neyt- endasamtakanna á verkja- lyfjum og unninn var úr frétt sem birt var í Morg- unblaðinu nýverið. Í upp- talningu á lyfjaverslunum sem veita afslátt fyrir elli- lífeyrisþega og öryrkja kom fram að Lyf og heilsa veitti engan afslátt en hið rétta er að Lyf og Heilsa veitir 5% afslátt til ellilíf- eyrisþega og öryrkja. LEIÐRÉTT
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.