Morgunblaðið - 14.01.2005, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. JANÚAR 2005 49
DAGBÓK
Vers l un Odda • Hö fðabakka 3 • S ím i 515 5105
www.oddi.is
Verð áður: 2.490 kr.
1.999 kr. Oddi hf -
L7
94
7
Vers l un Odda • Hö fðabakka 3 • S ím i 515 5105
www.oddi.is
Verð áður: 299 kr.
139 kr. Oddi hf -
L7
94
7
!
"#$$
%&'&(&&
)** $
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Bingó kl. 14 ýmsar
uppákomur eru á föstudögum, bað-
stofan er opin alla morgna frá kl. 9.
Árskógar 4 | Bað kl. 8–14, handavinna
kl. 9–12, smíði/útskurður kl. 13–16.30,
bingó kl. 13.30.
Bólstaðarhlíð 43 | Hárgreiðsla, al-
menn handavinna, böðun, kl. 13.30 fé-
lagsvist, fótaaðgerð.
Dalbraut 18 – 20 | Kl. 9–11 kaffi og
blöðin, kl. 9–12 baðþjónusta, kl. 9–
16.45 hárgreiðslu-
stofan opin, kl. 10–14
opin handavinnustofa,
kl. 11.15–12.15 matur, kl.
14.30–15.30 kaffi.
Félag eldri borgara í
Kópavogi | Félag eldri
borgara í Kópavogi. Fé-
lagsvist spiluð í kvöld í
Gjábakka kl. 20.30.
Brids í Gjábakka í dag
kl. 13.15.
Félagsstarf aldraðra,
Garðabæ | Slök-
unarjóga og teygjur kl.
10.30 og kl. 11.30, kl. 13
koma 15 enskumælandi
slóvensk ungmenni í
heimsókn í Garðaberg, nemar úr FG
verða túlkar.
Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 9–16.30
vinnustofur opnar, m. a. fjölbreytt
föndurgerð, eftir hádegi bókband, kl.
10.30 létt ganga, frá hádegi spilasalur
opinn. S. 575 7720.
GA-fundir (Gamblers Anonymous) |
Fundir fyrir spilafíkla eru alla föstu-
daga í Laugarneskirkju, safnaðarheim-
ilinu kl 20. Allir velkomnir. Tekið er vel
á móti nýliðum.
Hraunbær 105 | Kl. 9 almenn handa-
vinna, útskurður og hárgreiðsla, kl. 10
fótaaðgerð, kl. 12 hádegismatur, kl. 13
bókabíllinn, kl. 14 bingó, kl. 15 kaffi.
Hraunsel | Bridge kl. 13.
Hvassaleiti 56–58 | Frjáls aðgangur
að opinni vinnustofu. Böðun virka
daga fyrir hádegi. Fótaaðgerðir, hár-
snyrting.
Hæðargarður 31 | Félagsstarfið er öll-
Staður og stund
http://www.mbl.is/sos
um opið. Listasmiðja og Betri stofa
opinn kl. 9–16, gönuhlaup kl. 9.30,
bridge kl. 13.30. Hárgreiðslustofa
568–3139. Fótaaðgerðastofa 897–
9801. Hugmyndabankafundur laug-
ardag 15. janúar kl.14, skemmtiatriði.
Allir velkomnir. Nánari upplýsingar í
síma 568–3132.
Norðurbrún 1, | Nýtt námskeið í
myndlist kl. 9.12, hárgreiðslustofan
opin, kl. 10 boccia, kl. 14 leikfimi.
Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla og
fótaaðgerðir, kl. 9.15–14.30 hannyrðir,
kl. 11.45–12.45 hádegisverður, kl.
13.30–14.30 sungið v/flygilinn við und-
irleik Sigurbjargar, kl. 14.30–15.45
kaffiveitingar, kl. 14.30–16 dansað í að-
alsal við lagaval Sigvalda, pönnukökur
með rjóma í kaffitímanum. Allir vel-
komnir.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl.
8.45, leirmótun og hárgreiðsla kl. 9,
morgunstund og fótsnyrting kl. 9.30,
leikfimi kl. 10, bingó kl. 13.30, allir vel-
komnir.
Kirkjustarf
Hallgrímskirkja | Starf með öldruðum
alla þriðjudaga og föstudaga kl. 11–15.
Leikfimi, súpa, kaffi og spjall.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Kirkja
unga fólksins – Föst. 14. jan. Samkoma
kl. 19.30 Bænastund kl. 19. Tómas Dav-
íð Ibsen talar, Þóra Gísladóttir leiðir
lofgjörð. Allir velkomnir.
Kirkjan í Gufudal í Barðastrandarsýslu.
Morgunblaðið/Einar Falur
TVÆR ljósmyndasýningar verða
opnaðar á morgun kl. 15 í Þjóð-
minjasafni Íslands, en þær nefnast
„Hér stóð bær …“ og „Átján vóru
synir mínir í álfheimum …“
Á sýningunni „Hér stóð bær …,“
er brugðið upp á þriðja hundrað
ljósmyndum af óþekktum sveitabæj-
um. Myndirnar á sýningunni eru all-
ar frá 20. öldinni og flestar teknar
um miðbik hennar, á árunum frá
1930–60 og eru safngestir beðnir um
að aðstoða Þjóðminjasafnið við að
nafngreina bæina á myndunum, þar
sem þeim upplýsingum sem fylgja
myndum sem berast safninu er
gjarnan ábótavant. Stærsta búsetu-
breyting Íslandssögunnar var flutn-
ingur úr sveitinni á mölina. Um 1920
voru 6.063 sveitabæir í byggð á Ís-
landi en undir aldarlok voru 4.754
bæir í byggð og eyðibýli voru 1.714.
Sýningin kallar fram minningar
um söng Hauks Morthens, helsta
dægurlagasöngvara þjóðarinnar á
sinni tíð, í lagi sem náði miklum vin-
sældum um miðja 20. öld. Texti
Lofts Guðmundssonar er talinn lýsa
á hjartnæman en raunsannan hátt,
heimkomu margra í heiðardalinn og
hefur það fyrir löngu öðlast sígildan
samhljóm hjá þjóðinni.
Ljósmyndasýningin Átján álaga-
blettir varpar samtímaljósi á æva-
forna þjóðtrú Íslendinga. Fátt hefur
staðist jafn vel tímans tönn og trú Ís-
lendinga á helgi álagablettanna sem
finna má í hverri sveit og skipta
hundruðum í landinu öllu. Enn þann
dag í dag njóta staðir þessir frið-
helgi og til eru bæði gamlar og nýjar
sögur af óhöppum og slysförum sem
tengjast brotum á bannhelginni.
Myndirnar voru teknar á ára-
bilinu 1998–2003 og hafa nokkrar
þeirra birst í bókinni Landið, fólkið
og þjóðtrúin sem út kom árið 2001.
Sýningin er tileinkuð sögunni um
átján barna föður í álfheimum og
öðrum forvitnum Íslendingum,
þessa heims og annars.
Eyðibýli og álagablettir
Eyðibýli eru viðfangsefni sýningarinnar Hér stóð bær í Þjóðminjasafninu.
Tvær ljósmyndasýningar opnaðar í Þjóðminjasafninu á laugardag
Sýningarnar standa til 27. febrúar
og eru opnar 11–17 alla daga nema
mánudaga.
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3 b6 4. g3 Bb7
5. Bg2 Be7 6. O-O O-O 7. Rc3 Re4 8.
Bd2 f5 9. d5 Bf6 10. Hc1 Ra6 11. a3
c5 12. Re1 exd5 13. cxd5 De7 14. Rd3
d6 15. Rf4 Rc7 16. b4 Hfe8 17. bxc5
dxc5 18. Rxe4 fxe4 19. Hc4 Rxd5 20.
Hxe4 Df7 21. Dc2 Rxf4 22. Bxf4 Bxe4
23. Bxe4 Hxe4 24. Dxe4 He8 25. Dc2
De6 26. Da4 He7 27. Be3 Hd7 28.
Hc1 h5 29. h4 Df5 30. Db5 Kh7 31. a4
Hd6 32. a5
Staðan kom upp á lokuðu skákmóti
sem lauk fyrir skömmu í Reggio
Emilia á Ítalíu. Dimitry Komarov
(2555) hafði svart gegn Igor Naum-
kin (2479). 32... Bxh4! 33. axb6 axb6
34. gxh4 Dg4+ 35. Kf1 Dh3+ 36.
Kg1 hvítur hefði orðið mát eftir 36.
Ke1 Dh1#. 36... Hg6+ 37. Bg5 Dxh4
38. f4 Dxf4 og hvítur gafst upp enda
staðan að hruni komin.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Svartur á leik.
EFNT verður til nokkuð stórra og fjölbreyttra tónleika í
kvöld þegar sveitirnar Shadow parade, Darkhammer og
Hot damn! koma fram auk Kalla, söngvara Tenderfoot,
sem mun grípa í kassagítarinn og syngja nokkur lög fyr-
ir gesti sem trúbador kvöldsins.
Shadow parade spilar lágstemmt nýbylgjurokk sem
sumir hafa kosið að nefna heróín-kántrí. Drengirnir eru
nýkomnir úr hljóðveri þar sem þeir hljóðrituðu tvö lög,
en annað þeirra, Nothing for me, er nú farið að hljóma á
Rás 2. Stefnan er tekin á að hljóðrita fyrstu plötu sveit-
arinnar á næstu mánuðum. Sveitin er skipuð þeim G.
Dan Gunnarsson söngvara, Jóni Gunnari Biering gít-
arleikara og bræðrunum Magnúsi Erni trommuleikara
og Andra bassaleikara, Magnúsarsonum.
„Yrkisefni okkar er mjög misjafnt,“ segir G. Dan, sem
einnig er þekktur sem Beggi. „Þetta er hálf drungalegt á
köflum hjá okkur, en við sækjum töluverðan innblástur í
tónlist sveita eins og Elbow, Jeff Buckely, Radiohead og
Portishead. Þá höfum við einnig orðið fyrir nokkrum
áhrifum frá Doors.“
Darkhammer var stofnuð fyrir rúmu ári, en hér er um
að ræða nokkurs konar samtíning úrvals íslenskra raf-
tónlistarmanna, skipaða þremur einstaklingum úr afar
ólíkum áttum. Síðan sveitin var stofnuð hefur hún samið
mikið af efni og sótt markvisst á erlenda markaði, m.a.
Bretlands- og Japansmarkað og segja liðsmenn að út-
gáfu megi vænta í báðum löndum síðar á árinu.
Hot Damn!, sem skipuð er þeim Smára Tarfi, fyrrum
gítarleikara rappsveitarinnar Quarashi og Jens Ólafs-
syni, söngvara Brain Police, eru nú að leggja lokahönd á
sína fyrstu breiðskífu sem kemur út í byrjun mars. Sveit-
in hefur hlotið mikið lof fyrir sína sköpun og var m.a. í 2.
sæti yfir mest sóttu lög ársins á Rokk.is.
Það má því segja að fjölbreytnin verði í fyrirrúmi á
Grandrokk í kvöld kl. 23 og ekki spillir fyrir að aðgangur
að þessum tónleikum er ókeypis.
Drungaleg
kvöldstund á
Grandrokk
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sveitin Shadow Parade leikur drungalega en um leið
lagræna sveitakennda rokktónlist.