Morgunblaðið - 14.01.2005, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 14.01.2005, Blaðsíða 16
● HAFSTEINN Bragason hefur verið ráðinn starfsmannastjóri hjá Actavis sam- stæðunni. Haf- steinn var áður stjórnandi Mann- auðslausna hjá IMG. Hann mun sjá um samræmingu mannauðs- mála hjá dótturfyrirtækjum Actavis, með hliðsjón af stefnumörkun sam- stæðunnar. Hafsteinn lauk B.A.-prófi í sálfræði frá Háskóla Íslands árið 1993 og M.A.-gráðu í vinnu- og skipulags- sálfræði frá Free University í Amst- erdam í Hollandi árið 1998. Hann starfaði hjá AC Nielsen í Hollandi 1997 en hóf störf hjá IMG sama ár. Hann hefur jafnframt verið stunda- kennari við viðskipta- og hag- fræðideild Háskóla Íslands frá 1999. Hann hefur einnig kennt við Háskólann í Reykjavík og Við- skiptaháskólann á Bifröst. Ráðinn starfsmanna- stjóri Actavis 16 FÖSTUDAGUR 14. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF $ %& '()     * * +,'- ./0       * * 1/1  230     * * 4+0 $ 55     * * 61-0 .#7 8#      * * ÞETTA HELST ... VIÐSKIPTI Bréf Flugleiða hækka um 7,5% ● HEILDARVIÐSKIPTI í Kauphöll Ís- lands í gær námu 11,2 milljörðum króna. Þar af voru viðskipti með hlutabréf fyrir 4,5 milljarða. Mest viðskipti voru með hlutabréf Íslands- banka, eða fyrir 1,3 milljarða, og hækkaði gengi þeirra um 0,9%. Mest hækkuðu bréf Flugleiða, eða um 7,5%. Af félögum í úrvalsvísitölunni lækkuðu einungis bréf Bakkavarar, en þau lækkuðu um 0,8%. Verðmat á SÍF hærra en núverandi gengi ● NÝTT verðmat Greiningar Íslands- banka gefur hærra gengi á hlutabréf- um félagsins en gengi þeirra hefur verið að undanförnu. Hefur deildin gert nýtt verðmat á félaginu í kjölfar breytinga sem orðið hafa hjá því að undanförnu. Niðurstaða verðmatsins er 30,1 milljarðar króna sem gefur verð- matsgengið 5,1. Þó er varað við und- irliggjandi óvissu í verðmatinu þar sem „hið nýja SÍF hefur enn sem komið er ekki skilað uppgjöri.“ Lokagengi SÍF í Kauphöll Íslands þegar verðmatið var unnið var 4,78 og er því mælt með því að fjárfestar haldi bréfum sínum og vegi þau í vel dreifðum eignasöfnum. FRAMKVÆMDASTJÓRAR Versl- unarráðs og Samtaka atvinnulífsins voru gagnrýnir á skattayfirvöld í erindum sínum á skattadegi Del- oitte í gær. Þór Sigfússon, fram- kvæmdastjóri Verslunarráðs, sagði m.a. að samskipti skattayfirvalda og viðskiptalífsins hefðu versnað á síðustu árum. Þór sagði í erindi sínu að skila- boð innan úr skattkerfinu væru oft afar óljós og svo virtist sem kerfið lifði í aukinni einangrun. „Það kann að vera augljós en mikilvæg skýr- ing á því hvers vegna segja má að nokkurt bil sé að verða á milli skattyfirvalda og viðskiptalífs,“ sagði Þór. Hann benti á að fyrir fáum árum hefðu fjármálaráðuneytið og stofn- anir þess haft yfirburðaþekkingu á skattamálum. Nú væru hins vegar starfandi skattasérfræðingar í fyr- irtækjum, sem væru jafnvel eða betur að sér en embættismenn. „Þessi staðreynd kann að vera ein meginástæða þess að stofnanir ráðuneytisins grípa til ýmissa ráða til að vekja athygli á þörfinni fyrir aukna þekkingu innan kerfisins og þörfinni á fleiri starfsmönnum og um leið kann þetta að vera ástæða þess að fullyrða má að samskipti viðskiptalífs og skattyfirvalda hafi versnað á síðustu árum,“ sagði Þór. Í framhaldi af orðum Þórs rifjaði Ari upp ummæli ríkisskattstjóra um að hann skildi ekki hvað ís- lensku bankarnir væru að fara með stofnsetningu útibúa í Lúxemborg, þeir ættu ekkert erindi þangað. „Að segja við íslensku bankana að þeir eigi ekki að vera í Lúxemborg finnst mér nánast eins og að segja við útgerðarmenn að þeir skuli alls ekki fara að veiða á Halamiðum eða Selvogsbanka, heldur halda sig ein- hvers annars staðar,“ sagði Ari. Menn hlytu að halda sig þar sem hlutirnir væru að gerast og jafn- sjálfsagt væri að íslenskir bankar sinntu erlendum viðskiptavinum og að útlendir bankar hefðu íslenska viðskiptavini. Versnandi samskipti viðskiptalífs og yfirvalda Morgunblaðið/Þorkell Skattadagur Deloitte Hluti fundarmanna á morgunverðarfundi í tengslum við skattadag Deloitte. Hallar undan fæti hjá Iceland BRESKA matvöruverslanakeðjan Iceland, sem er á leið með að kom- ast í eigu íslenskra fjárfesta með Pálma Haraldsson í broddi fylking- ar, var meðal þeirra verslana sem urðu verst úti í samkeppni á bresk- um matvörumarkaði fyrir jólin. Í frétt í breska blaðinu In- dependent kemur fram að mark- aðshlutdeild Iceland hafi minnkaði um 2,1% á tólf vikna tímabili til 2. janúar 2005 í samanburði við sama tímabil árið áður. Staða stóru matvörukeðjanna Tesco og Asda er sterkari en nokkru sinni fyrr að því er fram kemur í Independent. Nam mark- aðshlutdeild Tesco 29% og hlut- deild Asda var um 17% á sama tímabili. Er þar um að ræða 13% aukningu hjá Tesco miðað við sama tímabil í fyrra. Þá hefur bandaríska Walmart-samsteypan, sem á Asda- keðjuna, upplýst að af þeim 20 verslunum samsteypunnar sem náðu hvað bestum árangri hafi 18 verið Asda-verslanir. Iceland er í eigu Big Food Group, sem Baugur á fimmtung í og á nú í yfirtökuviðræðum við. Verði af yfirtökunni mun Iceland- keðjan seld, líkt og áður hefur kom- ið fram, félaginu IceCo, sem verður í eigu BG Holding, Burðaráss, Talden Holding (Pálma Haralds- sonar), Milestone (Karls Werners- sonar og systkina) og Landsbank- ans. Frumherji býður í SBI í Danmörku FRUMHERJI hf. tekur þátt í útboði á dönsku bifreiðaskoðuninni, SBI, sem verið er að einkavæða. Óskar Eyjólfsson staðfestir þetta í samtali við Morgunblaðið en segist ekki geta tjáð sig frekar um útboðið að svo stöddu. „Við sjáum í þessu tækifæri, enda er um að ræða mjög svipaðan rekstur og við erum með hér heima,“ segir hann. Bifreiðaskoðun í Danmörku var gefin frjáls nú um áramót en hefur verið á höndum danska ríkisins allt frá því að Danmörk gekk í Evrópu- sambandið. SBI rekur um 70 skoð- unarstöðvar víðsvegar í Danmörku og hjá fyrirtækinu starfa um 600 manns. Velta þess var á síðasta ári um 5 milljarðar króna. Samkvæmt vefriti dönsku kaup- hallarinnar er talið að SBI muni kosta nærri 4,5 milljarða íslenskra króna en fyrirtækið hefur farið í gegnum allsherjar endurskoðun á síðustu árum. Danska ríkið fór skömmu fyrir jól fram á bindandi til- boð frá þeim aðilum sem sent höfðu inn verðhugmyndir. Frumherji hf. var stofnaður árið 1997 í kjölfar breytinga sem gerðar voru á Bifreiðaskoðun Íslands hf. Starfsemi félagsins snerist til að byrja með eingöngu um bifreiða- skoðanir en hefur þróast í alhliða þjónustu á sviði ýmis konar skoðana og prófana ásamt annarri starfsemi. Félagið starfar nú á sex mismunandi sviðum á um 30 stöðum á landinu og eru flest starfssvið þess rekin sam- kvæmt viðurkenndum gæðastöðlum. Meiri velta með ríkisverðbréf ● VELTA með ríkisverðbréf í Kaup- höll Íslands jókst verulega árið 2004 samanborið við árið 2003, samkvæmt upplýsingum frá Lána- sýslu ríkisins. Árið 2004 var velta með ríkisbréf 269 milljarðar króna, samanborið við 150 milljarða árið áður. Velta með spariskírteini var 108 milljarðar árið 2004 sem er aukning um 30 milljarða frá árinu áður. Aukin velta með spariskírteini á sama tíma og staða bréfanna lækk- ar á milli ára merkir að veltuhraði þeirra hefur aukist. Þá jókst velta ríkisvíxla um 5 milljarða króna á síð- asta ári. Meðalstaða endurhverfra verðbréfalána í desember var 7.441 milljónir að markaðsvirði samanborið við 5.603 milljónir í nóvember. Þetta er hæsta með- alstaða í einum mánuði frá því að boðið var upp á slík lán. Rætt um yfirtöku á breskum banka KB banki og Landsbankinn eru nefndir sem hugsanlegir bjóðendur í breska fjárfestingarbankann Dur- lacher. Stjórnendur Durlacher hafa sagt að viðræður um yfirtöku á bankanum séu í gangi en nefna ekki hver eða hverjir eigi í hlut. Frá þessu er greint í frétt á vefmiðlinum this- ismoney, sem er hluti af útgáfufyr- irtæki breska blaðsins Daily Mail og fleiri blaða. Tekið er fram í fréttinni að þó svo að KB banki og Lands- bankinn séu nefndir sem hugsanleg- ir bjóðendur þá sé talið að þeir séu ekki líklegir til að yfirtaka Dur- lacher. Brynjólfur Helgason, fram- kvæmdastjóri alþjóðasviðs Lands- bankans sagði í samtali við Morgun- blaðið að bankinn tjáði sig ekki um einstök verkefni sem unnið væri að. Í frétt thisismoney segir að orð- rómur um yfirtöku á Durlacher hafi komist á kreik í byrjun vikunnar. Í kjölfarið hafi gengi hlutabréfa fé- lagsins hækkað um 8%. Durlacher er í fjármálahverfinu í London. Markaðsvirði fyrirtækisins er nú um 21 milljón punda, sem svar- ar til um 2,4 milljarða íslenskra króna. Á tímum netbólunnar, fyrir rúmum hálfum áratug, var Durlach- er eitt þeirra fyrirtækja sem mikið bar á í ýmsum áhættufjárfestingum í Bretlandi og tók þá þátt í stofnun margra fyrirtækja sem síðan hafa horfið af sjónarsviðinu. Markaðs- virði Durlacher fór þá hæst í um 2 milljarða punda, eða um 240 millj- arða íslenskra króna.                      /9  : #"; <55= : #"; <"   +  >  >! / # 5 +"  ? % 5 4< 5 4=" @% 5 ? % 3  3%9  + 2 >  5 ; 'A ' "" +  >  ! B "    + 5 5" ? % : % C;   C >  ! D A> E 8 #  @F> G5 "  $HA '?+ ' " >I '"" % '="  = A >  A! ,    =    " =  D# "  E'G  !"#$ % & /" " 55 + 5% - >   @% F ? % ,G5 >G % '( ) 61-J 'F    5!                E E  E   E  E E E E E E E <   >  >    5!  E     E E E E E E E E E E E E E E E E E E E K *L K E*L K *L K *L K *L K  *L K *L K  *L K  *L K *L E K *L K  *L K *L K *L E E E E E E E E E E E E E E E E E E C %   5 ; %  , # F #5 % M 4"; '  ! ! !  ! !  !! ! !  !  ! ! ! !  ! ! ! E ! E  ! ! E   ! E ! !  E E E E E E E                                E          E      5 ; F N ! 5 ! /,C! O / A""  + =%   5 ;      E  E  E E   E E E E E E E /,C!E P  " > A%% =" A" >  ! /,C!E '5%     >  > =5" # A>" #> !
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.