Morgunblaðið - 14.01.2005, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 14.01.2005, Blaðsíða 42
42 FÖSTUDAGUR 14. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR Jóhann kom með nútímahugsun inn í starfið og var ötull og óbang- inn að takast á við ný og ögrandi verkefni. Alls staðar ávann hann sér virðingu og honum voru falin margvísleg ábyrgðarstörf. Hann var mikill félagsmálamaður og átti gott með að vinna með fólki. Jóhann var virkur félagi í Ferða- málasamtökum Vestfjarða og var formaður þeirra er hann lést. Það var ekki létt verk að feta í fótspor þess merka manns Egils Ólafssonar en Jóhanni tókst það með ágætum. Hann hélt uppi merki Egils og safnsins auk þess að takast á við ný verkefni á sviði ferða- menningar og safnamála. Jóhann var rólegur maður en staðfastur og vissi hvað hann vildi, hann leit fram á veginn og átti auð- velt með að sjá heildarmyndina fyr- ir sér. Hann var eldhugi og fylginn sér og óspar á tíma sinn í þágu góðra verka með hagsmuni heildar- innar að leiðarljósi. Hann setti sterkan svip á þau verkefni sem honum voru falin á þeim allt of stutta tíma sem kraftar hans fengu að njóta sín. Nýjasta og ef til vill stærsta verkefnið sem Jóhann tók þátt í að móta er fjölþjóða strand- menningarverkefni, þar sem hann var tilnefndur fyrir Íslands hönd. Félagar Jóhanns kveðja þennan ötula liðsmann í ferðaþjónustu á Vestfjörðum með miklum söknuði. Ferðamálasamtök Vestfjarða senda Magneu og fjölskyldu inni- legar samúðarkveðjur við fráfall góðs drengs. Ferðamálasamtök Vestfjarða. Mér er minnisstætt er ég ók með Jóhanni Ásmundssyni veginn inn í Örlygshöfn sem mörgum þykir hrikalegur þó að sumri sé. Við ræddum ófærð á vetrum og bíl- skaða sem ekki er þar óalgengur í hálku og ófærð. Hann sagðist dást að æðruleysi fólksins sem byggi við þessi náttúruskilyrði. Mér fannst hann aftur á móta kjarkaður sjálfur að hafa flust á svo afskekktan stað og reka þar minjasafn að Hnjóti. Þetta sumar er ég naut gestrisni Jóhanns og Magneu í Örlygshöfn var búið að ákveða að loka skól- anum þar og útlitið ekki bjart fyrir þetta litla samfélag. Erindið var hins vegar að koma af stað verkefni í dreifmenntun sem Jóhann hafði átt frumkvæði að og fólst í að tengja saman grunnskóla í Vest- urbyggð og á Tálknafirði. Jóhann sneri þannig vörn í sókn. Nú skyldi nota möguleika upplýsingatækni- nnar til þess að efla skólastarf í byggðarlaginu. Í þau nærri fimm ár sem Jóhann Ásmundsson starfaði í mennta- málaráðuneytinu ávann hann sér traust og álit hjá samstarfsfólki sínu. Hann bar ábyrgð á gerð nám- skráa í upplýsinga- og tæknimennt og lífsleikni en í þeirri vinnu var verið að móta nýjar áherslur í menntun í grunn- og framhalds- skólum. Þarna naut hugmynda- auðgi og atorka Jóhanns sín vel og munu verkin halda nafni hans á lofti. Hann starfaði síðan að stefnu- mótun í upplýsingatækni og sinnti verkefnum fyrir ráðuneytið eftir hann flutti vestur. Góð þekking hans og innsýn í möguleika upplýs- ingatækni í menntun og menningu var þar uppspretta hugmynda sem enn er unnið eftir. Fyrrverandi samstarfsmenn Jó- hanns í menntamálaráðuneytinu minnast hans með söknuði og fyrir hönd þeirra sendi ég eiginkonu hans og fjölskyldu samúðarkveðjur. Arnór Guðmundsson. Á lífsleiðinni eigum við stundum samfélag við fólk um nokkurt skeið, kannski daglega um ákveðið árabil, en svo skilja leiðir. Slíkt samfélag stóð árin 1997–1999 og átti það sameiginlegt að vinna að samningu nýrrar aðalnámskrár en til verksins var ráðinn umsjónarmaður með hverri námsgrein eða námsgreina- flokki. Í þessu samfélagi var Jóhann Ás- mundsson allt í öllu. Hann var ekki okkur vitanlega ráðinn til að bjarga málum en hann gerði það samt, ekki síst tölvu- og netmálum sem vöfðust fyrir mörgum okkar, bón- góður og hollráður um flesta hluti. Þegar sest var niður í góðum hópi og rætt um hin dýpri rök nám- skrárinnar eða þjóðfélagsins var heldur ekki komið að tómum kof- unum. Jóhann hafði óvenjulega fjöl- þætta reynslu og menntun þó ung- ur væri að árum, hógvær og góður félagi en jafnframt fylginn sér þeg- ar hann vildi koma góðum málefn- um í höfn. Í faglegri umsjón sinni fékk Jó- hann upplýsingatækni, smíði, ný- sköpun og lífsleikni á sína könnu. Tilfærsla smíða á námssvið upplýs- inga- og tæknimennta var honum hugleikin og hann vildi tengja há- tækniumhverfið við handverkshefð- ina í nýrri námsgrein. Eftirfarandi orð í inngangi að markmiðum upp- lýsinga- og tæknimennta lýsa vel sýn Jóhanns og félaga: ,,Tækni er einn af skapandi þáttum menningar og mótar ásýnd hennar, inntak, merkingu og tilgang. Hún er af- rakstur af framkvæmdum fólks sem beitir ímyndunarafli sínu, sköpunargáfu, þekkingu og verk- legri færni til að takast á við um- hverfi sitt í markvissum tilgangi.“ Jóhann var maður framtíðar sem gat frætt okkur hin um margt sem í vændum var. Þess vegna kom kannski á óvart þegar hann tók að sinna fortíðinni á Minjasafni Egils Ólafssonar á Hnjóti og tók loks við safninu að Agli gengnum og nám- skránni fullbúinni. Ljóst er að þar vann hann stórvirki. Genginn er góður maður á allt of ungum aldri og skarð fyrir skildi. Við sendum fjölskyldu hans inni- legar samúðarkveðjur. F.h. umsjónarmanna með gerð aðalnámskráa 1997–99, Guðni Olgeirsson, Janus Guðlaugsson og Þor- steinn Helgason. Jói kom inn í líf mitt með fremur sérstæðum hætti fyrir nærri tveim- ur áratugum og varð skjótt einn af nánustu vinum mínum. Þetta byrj- aði allt með litlum miða sem á var skrifað dularfullt símanúmer … og litlu síðar kom ég í kvöldkaffi til Magneu vinkonu full forvitni að líta hann Jóa augum. Ég komst fljótt að því að hann var sérstakur maður – rólegur í fasi, rökfastur og lesinn sem gerði hann í mínum augum enn forvitnilegri en áður. Eftir að þau hófu búskap áttum við einatt svona samræður þegar ég kom, eld- heitar og frjóar – um sálina, mann- legt eðli og hvernig væri réttast að bregðast við ólíklegustu hlutum. Jói elskaði að lesa um frumstæða þjóð- flokka og var hann á þessum tíma í mannfræði í HÍ. Við skylmdumst oft og vorum ekki á sama máli en það gerði bara allt skemmtilegra og samræðurnar eftirsóknarverðari. Stundum hef ég sagt í gegnum árin að vinkonur mínar allar ættu góða eiginmenn en Jói væri eini eigin- maðurinn sem varð líka besta vin- kona mín. Heppna ég. Jói var sá sem kenndi mér fyrst á tölvu og Jói er þolinmóðasti kennari sem ég þekki. Eins var með strákana Árna og Einar, þeir voru ekki gamlir þegar þeir voru orðnir fljúgandi færir í tölvunni og áður en langt um leið var komin tölva inn í hvert herbergi. Við Jói áttum margt sam- eiginlegt. Þetta var á þeim tíma þegar Jói spilaði oft á píanóið og húsið var fullt af músík. Hann var að stúdera forn íslensk álagaljóð og shamanisma sem hann var fjölfróð- ur um en gömul trúarbrögð voru alla tíð hans uppáhald. Hann gaf mér þá skýringu hví hann hefði þennan áhuga á göldrum að hann hefði þegar stúderað Guðstrúna og hann vildi bara sjá allar hliðar á trúarþörfinni. Oft vakti Jói mig til umhugsunar hvernig hann sá hlut- ina, fordómalaus og orðvar en það kunni ég að meta mest. Eftir að ég kynntist manninum mínum urðu kaffisamsætin okkar enn skemmtilegri en þá bættust inn í samræðurnar margar nýjar skoð- anir þannig að nóttin varð aldrei nægjanlega löng til að klára um- ræðuna sem var í gangi þá stund- ina. En þegar tíminn leið vildi Jói víkka enn meira sjóndeildarhring- inn og fór í félagsfræðina en þá fékk hann byr undir báða vængi því hann var ekki aðeins að læra það sem hann þá þegar var búinn að lesa svo mikið um – heldur starfaði hann í Útideildinni þar sem hann kom mörgu ungmenninu til hjálpar. Stundum kom það fyrir þegar hann bauð Magneu á kaffihús í miðbæn- um að þau hittu svo marga ung- linga sem vildu spjalla að þau fóru aldrei á kaffihúsið en þetta sýnir best hvaða mann hann hafði að geyma. Magnea kom svo inn með kennarahliðina enda sér á parti hvað það varðar og studdi hún Jóa sinn, sama hvað hann tók sér fyrir hendur. Samhentari og ástfangnari hjón var ekki hægt að hugsa sér. Svo voru þau ekki bara elskhugar heldur feikna góðir vinir og félagar. Jói las reiðinnar býsn af sálfræði- kenningum og í vinnuherberginu voru bækur og ritgerðir í stöflum. Ég man eftir honum á þessum tíma sitjandi við tölvuna með skrudd- urnar allt í kring – því verkefnið var svo spennandi sem hann vann að. Þegar Jói kom að því að gera Að- alnámskrá grunnskólanna var hann með ákveðna hugsýn í upphafi og lagði mikla vinnu í það verk. Hann kom inn í skóla landsins fjölbreytt- ari kennsluháttum en áður þekkt- ust, eins og lífsleikni og afnam gömlu „stelpur í handavinnu og strákar í smíði“ regluna. Samræður á þeim tíma snerust að mestu um uppeldis- og kennslumál þar sem skoðanir voru meitlaðar og nýjar hugmyndir fæddust. Eins fórum við hjónin stundum upp í sumarbú- stað sem fjölskylda Magneu byggði og áttum við þar frábæra tíma. Einar bróðir Magneu og Jói sem var lærður smiður lögðu mikla vinnu í að gera bústaðinn sem best- an og var gaman að koma þarna og taka til hendinni með þeim. Þarna gátu þau slakað á við trjárækt, sil- ungsveiðar í Laugarvatni eða legið í heita pottinum. En meðfram allri þessari vinnu var Jói sístarfandi að sínum áhuga- málum sem oftar en ekki áttu hug hans allan. En það var fornleifa- fræðin. Eftir að hafa unnið að upp- greftri á Bessastöðum var kannski ekkert skrýtið að hann fór að vinna nokkrum árum seinna á Minjasafn- inu á Hnjóti. Það var eins og köll- un. Þar blómstruðu hæfileikarnir hans á öllum sviðum en aðalstyrkur hans var fyrst og fremst að þakka hvílíkum hafsjó af fróðleik hann var búinn að viða að sér úr öllum áttum gegnum áralanga þekkingarleit. Þetta var það sem hann elskaði að gera og áður en árið var liðið fluttu Jói og Magnea í Örlygshöfn, sögðu það gott fyrir hundinn og ákváðu að gerast heimamenn. Þegar við hjónin komum í heimsókn var þetta sveitadraumurinn í hnotskurn. Þau brosandi út að eyrum af gleði – allir tala og faðmast, gargandi krían í varpi fyrir neðan túnin, glaður hundur í hlaði og hrafnsungi á bak við hús. Var til nokkuð betra? Ég féll fyrir hrafninum sem var mjög frekur og stal mat frá hundinum og elti mann inn í þvottahús. Hann hafði fundist hrakinn í grjótbrekku og verið tekinn í fóstur eftir að það kom í ljós að hann sætti sig við hundinn. Síðan skoðuðum við safnið þar sem Jói var búinn að vera að mála um sumarið með Helga skjaldböku og hann ljómaði þegar hann útskýrði hvernig vinnan hans var og sýndi okkur nýju heimasíð- una sem hann var að hanna fyrir safnið. Þetta var eitthvað fyrir Jóa. Að tala við heimamenn og grúska í gömlum sögum og halda áfram að safna gömlum munum fyrir kom- andi kynslóðir – það var hans Para- dís. Og tölvuvæða safnið í gegnum myndavélar. Hann langaði líka að setja myndavél út á Látrabjarg þannig að fólk gæti fylgst með bjargbúum á Netinu, séð lundann verpa og koma ungunum á legg en eins og hann sagði þá er til fullt af fólki sem aldrei sér fugl í bjargi hvað þá að það væri sjálfstætt framhald í beinni útsendingu á hverjum degi eins og hægt er að gera með tölvu og myndavél. Og óneitanlega var hugmyndin góð. Það metnaðarfulla starf sem Jói tók að sér og gat ekki lokið við er sárara en hægt er að setja í orð. En framtíðin er óútreiknanleg og kannski að einhver muni ljúka verkinu fyrir hann á Hnjóti. En þá er ég viss um að Jói gleðjist í himnaríki. Það væri eins og göldr- um líkast. Síðasta dag júnímánaðar var Jói ekki eins og hann átti að sér, kenndi verks í síðunni og þegar venjuleg verkjalyf virkuðu ekki fór hann á sjúkrahúsið á Patró – og þaðan suður. Nokkrum dögum seinna komu þær hörmulegu fregn- ir að hann væri með krabbamein um allan kropp. Hvílíkt áfall. Í ljós kom að lítið væri hægt að gera ann- að en taka því sem koma skyldi. Sýndi og sannaði Magnea þá hvílík gæðakona hún er enda sama hvað gerðist, hún var alltaf með fæturna á jörðinni, hlý og gefandi. Eftir að Jói lagðist inn á líknardeildina vék hún ekki frá honum fékk bara sjúkrarúm inn á herbergi handa sjálfri sér svo hún gæti sofið þar á nóttunni. Hún sá um að það væri notalegt í kringum Jóa og þær stundir sem voru góðar væru nýtt- ar til fulls. Þegar ég kom til Íslands í október sagðist hann vera búinn að vera í nokkra daga að hlusta á klassíska tónlist og snældur með Halldóri Laxness. Jói var ekkert feiminn að tala um veikindin eða hvert horfði, hafði meira að segja svolitla þörf fyrir það. Hann spurði mig hvernig ég héldi að himnaríki væri og hvort ég teldi að það væri gott að vera þar og svaraði ég því til að ef himnaríki væri staðreynd þá væri örugglega gott að vera þar því við enduðum þar öll einn dag- inn, við dæjum jú öll á endanum – hann væri aðeins að fara örlítið á undan okkur hinum og hann gæti tekið á móti mér við gullna hliðið þegar ég dæi. Jói horfði þá á mig svolitla stund og svaraði síðan með sinni rólegu röddu: „Hver veit nema ég geri það, Linda mín.“ Ég er alveg sannfærð um hversu yf- irvegað Jói tók þessum nöturlega veruleika var Magneu að þakka því Jói vissi að heiðarlegri manneskju er ekki hægt að finna. Samband þeirra hélt því áfram að þroskast og núna í gegnum lífsreynslu sem þau höfðu talið vera langt inn í framtíð, á gamalsaldri þegar við er- um södd lífdaga, en að missa maka sinn og besta vin í blóma lífsins eru grimm örlög. Það er líka mjög sorglegt að foreldrar Jóa dóu með stuttu millibili á sama ári, en eins og Magnea komst svo fallega að orði þá fór mamma hans á undan til himnaríkis til að búa um rúmið fyr- ir Jóa svo allt væri tilbúið þegar hans tími kæmi. Ég sendi minni ástkæru Magneu mínar innilegustu samúðarkveðjur. Eins bið ég Guð að blessa störf hjúkrunarfólksins á líknardeildinni sem annaðist Jóa og sérstaklega læknanna en þeim verður seint full- þakkað sitt göfuga og góða starf. Og djúpt í sálu minni þakka ég Jóa fyrir allt sem hann var mér og bið honum eilífrar Guðs blessunar. Sjáumst seinna, elsku vinur – dreymi þig vel og góða nótt. Hellen Linda Drake. Júníkvöldsólin slær fjólubláum ævintýrabjarma á á tignarlegan Hafnarmúlann. Vaðallinn liðast nið- ur Örlygshöfn milli iðjagrænna túna og mætir lognöldunni í ósnum. Lágvært og róandi öldugjálfrið berst inn um opinn gluggann og blandast úi æðarblikanna, gargi kríunnar og kvaki mófuglanna. Ég stend við stofugluggann og fylgist með nágrönnum mínum úr Miðgarði koma upp holtið. Magnea á undan, tindilfætt og kvik í hreyf- ingum. Jói á eftir, íhugull og yf- irvegaður. Stássa fylgir í kjölfarið með ýmsum útúrdúrum þegar mó- fugl eða lamb fangar athyglina. Framundan er notaleg og skemmtileg kvöldstund með mínum góðu nágrönnum; ein af ótalmörg- um, – og vissulega var Hafnarm- úlinn ekki alltaf jafnrósrauður ásýndum. En það skipti ekki máli hvort úti var stórhríð eða steypi- regn, ekki voru sporin upp holtið talin eftir. Eitt mesta lán hvers manns í líf- inu er að eignast góða granna og vini. Því láni átti ég vissulega að fagna í Örlygshöfn. Alltaf voru allir tilbúnir að rétta fram vinar- og hjálparhönd ef á þurfti að halda og sannlega var Jói einn af þeim. Jói var einstakur. Hann ávann sér virðingu með prúðmannlegri framkomu sinni sem og með verk- um sínum og þeim dugnaði og trú- mennsku sem hann sýndi í hví- vetna. Frá því að Jói kom í Örlygshöfn var mér oft hugsað til þess, að ekki væri litla byggðarlag- ið okkar alveg heillum horfið úr því að svo hæfur og góður maður vildi helga því krafta sína og jafnframt halda á lofti merki þeirra er gengn- ir voru. Eitt af aðalsmerkjum Jóa var hversu orðvar hann var. Ég minnist þess ekki að hafa heyrt hann hnjóða í nokkurn mann, jafnvel ekki þá andstæðinga sína sem ekki höfðu skilning á orðum hans og verkum og reyndu að leggja stein í götu hans. Veikindi og fráfall Jóa voru mikið reiðarslag fyrir fjölskyldu hans og samfélagið. Verður hans skarð vandfyllt. Ég votta minni kæru Magneu, sonum þeirra, tengdadóttur og öðr- um ættingjum mína dýpstu samúð við fráfall góðs drengs.Ég er þakk- lát fyrir að hafa kynnst Jóa. Bless- uð sé minning hans. Björg Baldursdóttir. ,,Íslands óhamingju verður allt að vopni“. Það er illt að þjóðin skuli missa Jóhann Ásmundsson frá hálfnuðu verki. Jóhann var maður með sýn. Eldhugi undir sallarólegu fasinu. Hann var móralskur maður og leit á sig sem samfélagsþjón. Slíkir menn fyrirfinnast en eru sjaldgæfir. Við systur höfum orðið þess happs aðnjótandi að verða á vegi Jóhanns. Önnur í námskrár- vinnu fyrir menntamálaráðuneytið og hin tekur nú við starfi Jóhanns við Minjasafn Egils Ólafssonar að Hnjóti. Það má vera dofinn maður sem var samur eftir kynni við Jó- hann. Hugsjónaeldur hans, góðvild, gáfur og hugmyndaauðgi höfðu varanleg áhrif á samferðamenn. En hann var líka maður framkvæmda og kunni þá list að breyta orðum í athafnir. Hann heillaði þá sem sáu á hvaða leið hann var, en hann þurfti þó oft að berjast fyrir hug- myndum sínum og sýndi þá óbil- andi seiglu. Eins og gjarnan hjá hugsuðum réð djúp tilfinning för. Því þótt leit Jóhanns hafi alltaf lot- ið skýrri hugmyndafræðilegri und- irstöðu lá dýpra sterk tilfinning um rétt og rangt, fagurt og ljótt. Jafnaðarhugsjónin litaði líf og starf Jóhanns. Löngu áður en síma- fyrirtæki fóru að spretta upp, sá Jóhann hversu einfalt og ódýrt það væri að stofna símafyrirtæki. Að stofnkostnaði undanskildum gæti það rúllað nánast ókeypis. Hann hafði samband við nokkra eigna- menn og bauð þeim þátttöku í símafyrirtæki sem yrði ókeypis fyr- ir neytendur. Þegar það rann upp fyrir þeim að enginn gróði yrði af fyrirtækinu heldur bara bætt kjör fyrir fjöldann duttu allir úr skaft- inu, skildu bara ekki hugmyndina. En nokkrir þeirra stofnuðu auðvit- að símafyrirtæki sjálfir og urðu rík- ir. Í námskrárvinnunni varð hann bjargvættur vinnuhópsins í heima- síðugerð og annarri tækni. Hann var þó aðallega frjór hugmynda- fræðilegur veitandi og glaður þiggj- andi í þeirri vinnu og gerði hana að skemmtilegu ævintýri. Fingraför Jóhanns má víða sjá í íslensku JÓHANN ÁSMUNDSSON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.